Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Qupperneq 3
DV. LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1986.
3
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
SveKarstjórar víða endurráðnir
Sveitarstjómir um allt land hafa
komið saman til sinna fyrstu funda,
eftir kosningar á síðustu dögum, og
kosið í trúnaðarstöður.
A Fáskrúðsfirði var meirihluti fram-
sóknarmanna og Alþýðubandalags
endurreistur. Guðmundur Þorsteins-
Grace
Jones
til íslands
Grace Jones er væntanleg hingað til
lands og mun gista á Hótel Sögu að-
faranótt miðvikudagsins 9. júlí. Fátt
annað en nafhið bendir þó til hvort
hér sé á ferðinni hin heimsþekkta
poppsöngkona, Grace Jones, eða al-
nafna hennar.
„Það var bandaríska ferðaskrifstof-
an Travcoa sem pantaði gistinguna
fyrir Grace Jones. í fyrra kom hingað
fararstjóri á vegum þessarar sömu
ferðaskrifstofu og hann hét James
Bond. Það var þó ekki sjálfur James
Bond,“ sagði talsmaður Hótel Sögu í
samtali við DV í gær.
-EIR
Ráðstefha í Reykjavík:
Heims-
þekktir
hjarta-
læknar
Margir heimsþekktir vísindamenn
munu flytja erindi á alþjóðlegri ráð-
stefnu um hjartarannsóknir er hefst á
Hótel Loftleiðum á sunnudag. Ráð-
stefrian stendur í fióra daga og verða
flutt rúmlega 100 erindi um hjarta-
sjúkdóma, hjartadrep og starfsemi
hjarta og hjartavöðvafruma svo eitt-
hvað sé nefht.
Meðal þekktra gesta á ráðstefnunni
má neftia þá R. Bing, A. Fabiato og
G. Langer frá Bandaríkjunum, W.
Kubler og E. Bassenge frá Vestur-
Þýskalandi, N.S. Dhalla frá Kanada,
D.J. Hearse, A.D. Smith og R.A. Rie-
mersma frá Bretlandi og y.V. Kupriy-
anov frá Sovétríkjunum.
Formaður undirbúningsnefndar ráð-
stefnunnar hér á landi er Sigmundur
Guðbjamarson.
-EIR
Concorde
kemur á
þriðjudag
Concorde-þota kemur til íslands á
þriðjudag. Lending er áætluð á Kefla-
víkurflugvelli um klukkan átta um
morguninn og brottför um klukkan
átján síðdegis.
Um eitt hundrað breskir eftirlauna-
þegar hafa keypt sér dagsferð með
hljóðfráu þotunni. Hérlendis hefur
Ferðaskrifetofan Orval skipulagt
skoðunarferð fyrir hópinn til Vest-
mannaeyja, Reykjavíkur og í Svarts-
engi.
Þetta verður önnur Concorde-
koman til íslands á þessu sumri.
Concorde lenti hérlendis fyrir hálfum
mánuði. Þotan lendir hér í þriðja sinn
á árinu þann 30. ágúst.
son, Framsóknarflokki, verður oddviti
fyrstu tvö árin en þá tekur Björgvin
Baldursson, Alþýðubandalagi, við.
Sveitarstjóri verður áfram Sigurður
Gunnarsson en athygli vekur að fyrsta
verk sveitarstjómarinnar var að reka
bæjartæknifræðinginn.
Álþýðubandalag myndaði meiri-
hluta með E-lista sem Framsóknar-
menn og Alþýðuflokksmenn stóðu að.
Margrét Frímannsdóttir verður áfram
oddviti og sagði hún í samtali við DV
að meirihlutinn legði allt kapp á að
Guðmundur Sigvaldason yrði áfram
sveitarstjóri.
Á Þingeyri stóðu núverandi stjóm-
arflokkar, Framsókn og Sjálfstæðis-
flokkur, saman að kosningu oddvita,
Guðmundar Ingvarssonar, frá fyrr-
nefnda flokknum og ráðningu sveitar-
stjóra, Jónasar Ólafesonar, Sjálfetæð-
isflokki.
Framsóknai'flokkur missti meiri-
hluta á Vopnafirði í síðustu kosning-
um og ekki tókst að mynda nýjan.
Aðalbjörn Bjömsson, Alþýðubanda-
lagi, var kosinn oddviti og Sveinn
Guðmundsson verður að öllum lík-
indum endurráðinn sveitarstjóri.
Hreppsnefnd Ölfushrepps (Þorláks-
höfn) hefur löngum ekki skipst í meiri-
og minnihluta og verður engin undan-
tekning á því nú. Einar Sigurðsson,
Sjálfstæðisflokki, var kosinn oddviti.
Ólafur Ólafeson, sem gegnt hefur starfi
sveitarstjóra, hefur óskað eftir því að
verða leystur frá störfum. Starfið hefur
verið auglýst og fiölmargar umsóknir
borist.
ás.
fyrirtæki bjóða skuldabréf með hærri vöxtum
en rfkissjóður. Spariskírteinin eru engu að
síður besti kosturinn. Þau eru eignar-
skattsfrjáls og njóta fullkomins öryggis, því
að baki þeim stendur ríkissjóður og þar með
öll þjóðin.
Þetta öryggi er ekki til staðar hjá öðrum og
því skaltu íhuga vandlega þá áhættu sem
fylgir því að kaupa skuldabréf fyrirtækja þótt
vextir sýnist álitlegir.
Nú þegar frystingin er úr sögunni fyrir fullt
og allt er ekkert sem ætti að hræða þig frá því
lengur að kaupa spariskírteini ríkissjóðs.
Þú átt ekki kost á betri
fjárfestingu.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS
!
Nú getur þú selt spariskírteinin þín
hvenær sem er þótt binditími þeirra
sé ekki útrunninn. Þetta gildir um nær alla
flokka spariskírteiná - óháð aldri þeirra og
verði.
Verðbréfaþing íslands.
Verðbréfaþing fslands sem stofnað var á síð-
asta ári hefur komið sér upp kaup- og sölu-
ntarkaði á spariskírteinum og fer verð þeirra
eftir því gengi sem aðilar þingsins auglýsa.
Aðilar Verðbréfaþingsins sem þú getur snúið
þér til eru: Landsbankinn, Iðnaðarbankinn,
.S Fjárfestingarfélagið og Kaupþing.
^ í raun merkir þetta að þótt þú fjárfestir í
o spariskírteinum ríkissjóðs eru peningarn-
t= ir þínir lausir hvenær sem þú vilt með litl-
a um fyrirvara.
Spariskírteini ríkissjóðs eru örugg-
asta fjárfesting sem völ er á.
Þú hefur eflaust veitt því athygli að nokkur
-KMU