Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Side 4
4
DV. LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Skiptafundur í þrotabúi Hafskips:
Yfir 300 andmæli komu
gegn afstöðu bústjóra
Skiptafundur hefur verið haldinn
í þrotabúi Hafskips á vegum skipta-
ráðandans í Reykjavík. A fimdinum
kom fram 321 andmæli gegn afstöðu
bústjóra þrotabúsins til einstakra
krafoa í þrotabúið.
Ef teknar eru með þær kröfur sem
bárust eftir að kröfúfresti lauk eru
alls gerðar 965 kröfur í búið að upp-
hæð tæplega 2,5 milljarðar kr. en
bústjórar viðurkenna kröfur að upp-
hæð einn milljarður og níu milljónir
kr.
Ragnar Hall skiptaráðandi setti
fundinn og stjómaði honum. í máli
hans kom fram að forgangskröfúr
yrðu að fullu greiddar en síðan las
hann upp andmæli gegn afstöðu
bústjóra. Alls höfðu 288 slík and-
mæli borist fyrir fundinn og rúmlega
30 komu fram á fundinum sjálfum.
Að þessu loknu boðaði Ragnar nýjan
skiptafúnd þann 3. júlí nk. þar sem
fjalla á um andmælin þar sem kraf-
ist er forgangsréttar. Skilyrði er að
viðkomandi sé búsettur hérlendis
eða hafi lögmann hérlendis.
Er Ragnar hafði lokið máli sínu
tók til máls Gestur Jónsson hrl. og
greindi hann frá skýrslu bústjóra til
skiptafundar. Eftir skýrslu Gests
vom sömu bústjórar og verið hafa
kosnir aftur og tekin vom til með-
ferðar ýmis málshöfðunarmál sem
þeir telja að búið eigi að fara í en
slík mál em nú 15 talsins. Að lokum
var svo veitt opin heimild til handa
bústjórum til fieiri slíkra málshöfð-
ana ef tilefoi þykir til.
-FRI
Hrein eign
er 680
milljónir
Samkvæmt skýrslu bústjóra er
hrein eign þrotabús Hafskips nú 680
milljónir kr. og em þá ekki taldar
með hugsanlegar inneignir þrota-
búsins hjá dótturfélögunum i
Evrópu sem öll em gjaldþrota.
Jafaframt hefur ekki verið gerð
tilraun til þess að meta til fjár hugs-
anlegar kröfur sem þrotabúið kann
að eiga á hendur aðilum erlendis,
ýmist beint eða í gegnum dótturfé-
lögin.
Af þessum 680 milljónum er stærst-
ur hluti söluverð eigna til Eimskips,
eða 307,7 milljónir. Greiddar inn-
lendar viðskiptakröfur nema alls
128,4 milljónum kr. og sérgreind
verðmæti háð ætluðum handveðrétti
Útvegsbanka Islands nema' 105.3
milljónum kr.
Meðal útgjalda þrotabúsins em laun
og launatengd gjöld að upphæð 18
milljónir kr. -FRI
DV-mynd PK.
Séð yfir salinn þar sem skiptafundurinn var haldinn.
Inneignir
hjá umboðs-
mönnum
erlendis
Þrotabú Hafekips telur sig eiga inn-
eignir hjá nokkrum umboðsmönnum
sínum erlendis. Þeim var öllum sent
bréf á sínum tíma þar sem óskað var
eftir skilagreinum og uppgjöri til
þrotabúsins.
Ágreiningur er um lokauppgjör í
nokkmm tilvikum og unnið að máls-
höfðun vegna þess. Að mati bústjóra
er eðlilegt að telja þrotabúinu til
eignar á þessu sviði kröfur þess á
hendur finnska umboðsmanninum
John Nurminen að fjórhæð 753.115
fm og kröfu á Lindblom & Co AB í
Svíþjóð að upphæð 105.661 skr.
Báðum fyrrgreindum aðilum hefur
verið ritað bréf þar sem krafist er
greiðslu á þessum upphæðum en í
báðum tilvikum er ágreiningur um
uppgjör.
-FRI
Skaftá verður
boðin upp í júlí
Á skiptafundinum kom fram að
bústjórum þrotabúsins hefur borist
telex frá Belgíu, þar sem ms. Skaftá
var kyrrsett í fyrra, þess efais að
fyrra uppboðið á skipinu fari fram í
júlí en hið síðara í september. Ekki
var nánar greint frá dagsetningum.
Ms. Skaftá er eign þrotabúsins og
sú ákvörðun var tekin af bústjórum,
að höfðu samráði við skiptaráðendur
og fulltrúa Útvegsbankans, að leggja
fram beiðni um uppboð á skipinu í
Antwerpen og er þrotabúið þá upp-
boðsbeiðandi.
Þetta var gert því sýnt þótti að
kostnaður þrotabúsins við að losa
skipið úr kyrrsetningu var meiri en
nam hugsanlegum ávinningi þrota-
búsins af slíku.
Bústjórar líta svo á að kostnaður
við vörslu skipsins í Belgíu og kostn-
aður við uppboðið komi til greiðslu
af uppboðsandvirði áður en nokkuð
greiðist til veðhafa. -FRI
Málshöfðun
gegn umboðsmanni
í Eyjum
- ágreiningur um 8 milljónir í Keflavík
Alls störfuðu 10 umboðsmenn á
vegum Hafekips innanlands og hefur
þrotabúið gengið fiá fullnaðarsam-
komulagi um uppgjör samkvæmt
umboðssamningi við 8 þeirra.
Ekki hefur náðst samkomulag við
umboðsmennina í Vestmannaeyjum
og í Keflavík. Hefur þrotabúið höfð-
að mál gegn umboðsmanninum í
Vestmannaeyjum. Er krafan í því
máli upp á 1,7 milljón kr. og hafa
eignir umboðsmanns verið kyrrsett-
ar til tryggingar greiðslu.
Verulegur ágreiningur er við um-
boðsmanninn í Keflavík um rétt
uppgjör. Samkvæmt bókum þrota-
búsins er útistandandi krafa á
hendur umboðinu yfir 8 milljónir kr.
en umboðsmaður telur sig skuld-
lausan. Viðræður hafa ekki leitt til
neinnar lausnar og má telja víst að
enginn samkomulagsgrundvöllur sé
í þessu máli.
-FRI
Fundarpúltið borið inn í húsakynni skiptaráðandans í
Reykjavík við Skógarhlíð. DV-mynd PK.