Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Side 15
DV. LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1986. 15 Coppola - leikstjórinn sem getur leyft sér allt Gamalt spakmæli í Hollywood segir að þegar leikstjóra hafi mistek- ist tvisvar þá fari hann að leita að starfi hjá öðru kvikmynda- veri; hafi honum mistekist þrisvar fari hann að leita að nýrri vinnu. Það verður því að líta svo á að Hollywood hafi verið óvenjulega góð við Francis Ford Coppola. Lítill hagnaður í tíu ár Um tíu ár eru nú síðan Coppola gerði mynd sem hlaut mikið lof gagnrýnenda og skilaði miklum hagnaði. Það var Guðfaðirinn II. Mynd hans um Vietnam, Opin- berunin, kostaði þrjátíu milljónir dala (1200 milljónir króna) en skil- aði aðeins óverulegum hagnaði. Næstu íjórar myndir hans, One From the Heart, The Outsiders, Rumble Fish og The Cotton Club kostuðu samtals 89 milljónir dala en þeir sem lögðu fram féð til gerð- ar myndanna fengu aðeins um helming þess aftur. Þá fengu One From the Heart og The Cotton Club lélega gagnrýni (þó ekki í Evrópu) og sýningum þeirra var fljótlega hætt í Bandaríkjunum. Hefur samt nóg að gera Það hefúr því valdið mörgum heilabrotum hvers vegna Francis Ford, sem er ekki lengur talinn ungur töframaður, vinnur nú sam- tímis að undirbúningi gerðar margra mynda hjá Zoetropekvik- myndaverinu. Þá vekur það lika furðu að honum skuli berast ný tilboð nær vikulega. Og ekki vekur það minnsta furðu að hann skuli fá meira fyrir að leikstýra mynd en frægir leikstjórar eins og Mark Rydell, Norman Jewison og Alan Pakula eða um tvær og hálfa millj- ón dala (um 100 milljónir króna). Er svörin að finna í fortíðinni? f byrjun fyrra mánaðar hófst vestanhafs kvikmyndavika þar sem tækifæri gafst til að sjá margar af þeim myndum sem Coppola hefur gert. Svarið við spumingunum hér að framan er sennilega að finna í fortíð hans eins og hún birtist þá á hvíta tjaldinu. Hafi Coppola ve- rið veginn og léttvægur fundinn af fjármálamönnum og ýmsum gagnrýnendum þá má ekki horfa fram hjá því að myndir hans hafa alltaf vakið athygli. Hann hefur fitjað upp á ýmsu nýstárlegu og jafnvel byltingarkenndu og hann verður að teljast standa framarlega í gerð „listrænna" kvikmynda vest- anhafs þótt hann hafi ekki alltaf fengið hlýjar móttökur hjá þeim sem leggja til fé til kvikmyndagerð- ar. Líkur Welles Irwin Yablans, kvikmyndafram- leiðandi sem hefur unnið með Coppola að gerð nokkurra kvik- mynda, segir að hann líkist á ýmsan hátt Orson Welles. „Hann tekur of mikið af myndum, hann er of hugaður og hann eyðir of miklu,“ segir þó Yablans. „Hann er líka sá síðasti af stóru gömlu leikstjórunum eða að minnsta kosti sá eini þeirra sem komið hefur fram í seinni tíð. Sum af mistökum hans eru betri en bestu verk sumra ann- arra leikstjóra." Fullkominn tækjabúnaður í aðalstöðvum Coppola, Ze- otropekvikmyndaverinu, sem er í stóru húsi sem byggt var um alda- mótin, eru nýjustu og fullkomnustu kvikmynda- og myndbandstæki sem völ er á. Og þar stjómar mað- urinn með skeggið öllu og minnir mjög á unga og áhugasama mann- inn sem varð fyrstur allra sem útskrifast höfðu úr kvikmynda- skóla Kaliforníuháskóla til þess að fá leikstjórastarf. Þó gengur ekki allt samkvæmt áætlun. Coppola vinnur nú að gerð tveggja kvikmynda og undirbýr töku tíu annarra, en allt er á eftir áætlun. Mynd með Turner Þannig hefur gengið nokkuð er- fiðlega með gerð myndarinnar Peggy Sue Got Married með Kat- hleen Turner í aðalhlutverkinu. Myndin fjallar um fertuga konu sem fær tækifæri til þess að verða átján ára aftur og fer í mennta- skóla en nýtur þar allrar reynslu fullorðinsáranna. Sá sem fyrst tók að sér að leikstýra myndinni gekk frá verkinu eftir að hann lenti i deilu við yfirmenn kvikmyndavers- ins. Þá hætti sú leikkona, Debra Winger, sem fara átti með aðal- hlutverkið, tvisvar sinnum við það. Nú er liðið að lokum gerðar mynd- arinnar og Turner, sem er nú eftirsóttasta leikkona í Hollywood, segist hafa tekið við hlutverkinu um leið og henni bauðst það af því að hún hafi metið það svo mikils að fá tækifæri til að starfa með Coppola. Og önnur með Michael Jackson Hin myndin sem nú er verið að taka er Captain Eo en það er stutt ævintýramynd sem gerist úti í Kathleen Turner leikur i mynd sem Coppola er nú að Ijúka við að leikstýra. Coppola þykir djarfur. geimnum. Með aðalhlutverkið fer Michael Jackson og verður myndin einungis sýnd í Disneylandi og Disneyheimi. Um ár er nú síðan gerð myndarinnar hófst þótt hún sé aðeins um tólf mínútur. Jackson fær að syngja lög sem hann hefur samið og dansa að eigin höfði en myndin verður sýnd á nýja Imaxtj- aldinu og í þrívídd. Sögusagnir herma að hver mínúta kosti þegar rúma milljón dala (um 40 milljónir króna). Viðurkennir erfiðleika „Ég á við ýmsa erfiðleika að etja,“ segir Coppola „en það eru ítalsk-bandarískir erfiðleikar sem eru í rauninni jákvæðir.“ Coppola er ekki ríkur. Að vísu varð hagnaðurinn af Guðföðurnum um þrjú hundruð milljónir dala (um 12 milljarðar króna) og því varð hans eigin hlutur góður eða sjö milljónir dala (240 milljónir króna). Hann lagði féð hins vegar strax í gerð annarra mynda og varð meira að segja að veðsetja húsið sitt og Zeotropekvikmyndaverið til þess að geta lokið við gerð myndarinnar One From the Heart sem stórtap varð svo á. Óvenjuleg fjölskylda Margir í stóru, ítölsku fjölskyld- unni hans hafa komið við sögu gerðar mynda hans. Fjölskyldufað- irinn, Carmine, er hljómlistarmað- ur og lagasmiður (hann var einu sinni fyrsti flautuleikari NBC-sin- fóniuhljómsveitarinnar og lék þá meðal annars undir stjórn Toscan- ini) og lögin sem hann lagði til Guðföðurins II þóttu svo góð að hann fékk óskarsverðlaunin. Hann er mjög stoltur af syni sínum og þegar hann tók á móti verðlaunun- um sagði hann: „Án hans væri ég ekki hér,“ en svo bætti hann við: „Það væri hann heldur ekki án mín.“ Móðirin, Italia, er komin af ætt í Napólí sem er þekkt fyrir hljóm- listargáfu og rithöfundarhæfileika. Faðir hennar var þekktur leikrita- höfundur og sum af atriðum hans voru notuð í Guðföðurnum í breyttri mynd. Þá er systir Copp- ola, Talia, kunn leikkona sem var eitt sinn tilnefnd til óskarsverð- launa og var einn af framleiðend- um síðustu James Bond-myndar- innar sem Sean Connery lék í, Never Say Never. Loks má nefna að eldri bróðir Coppola, August, er skáldsagnahöíúndur. Hann er þekktur fyrir bækur sínar en þykir no ;kuð sérvitur. Sóttist Jerry E; jwn, fyrrum ríkisstjóri Kalifor- ru'u, eftir hor.um á sinum tíma til að taka við stjórn íylkisháskólanna í Kaliforniu. Fjölhæfur Coppola er fjölhæfur leikstjóri. Á yngri árum fékkst hann við gerð mynda sem sýndu meðal annars naktar stúlkur en um sama leyti vann hann að gerð handrita fyrir Reflections in a Golden Eye (John Huston/Marlon Brando) og Patton en fyrir þá mynd fékk hann óskars- verðlaun 1970. Voru það fyrstu óskarsverðlaun af fimm sem hann hefur fengið. Og lengst af hefur Coppola látið skiptast á stórmyndir og myndir sem lýsa örlögum fólks eins og The Rain People og The Conversation. Atriðinu fleygt Eins og svo oft fyrr og síðar var miklu af filmum flevgt þegar unnið var að töku myndarinnar Opin- berunin. Martin Sheen, sem fór með hlutverk aðalsöguhetjunnar, segir frá því að „mörgum kílómetr- um“ hafi verið fleygt, þar á meðal áhrifamiklu atriði með Marlon Brando. Hafi það í rauninni skýrt hvers vegna höfuðsmaðurinn í myndinni var eins brjálaður og hann var. „Þetta er sumt af því besta sem Brando hefur gert,“ segir Sheen. „Þetta var fjölskylduatriði þar sem bæði hefð og heiður koma við sögu en það tekst Coppola svo vel að túlka.“ Það var hins vegar lagt hart að Coppola að stytta myndina eins og hægt var og því kom þetta atriði aldrei fyrir augu kvikmyndahús- gesta. „Það er varla hægt að skilja persónuna sem Brando leikur án þessa atriðis,“ segir Sheen. Telur Rumble Fish besta Sjálfur lítur Coppola svo á að Rumble Fish (1983) sé besta mynd sín. Hún var tekin í svarthvítu og lýsir samkeppni tveggja bræðra. A hún sinn þátt í því að gagnrýnend- ur hafa viljað líkja Coppola við Welles. Og nú hefur Coppola verið boðið að gera mynd um James Dean. Hún á að heita Rebel James (Uppreisn- armaðurinn James) og til gerðar- innar á Coppola að fá 25 milljónir dala (einn milljarð króna). Þessa dagana er hann hins vegar að glíma við að afla fjár til að gera Whore’s Gold en það er vestri sem Coppola segir að verði fyrsti og síðasti vestrinn sem hann ætli að gera. Svo er hann að íhuga mynd um töfram- anninn Houdini og... Þýð.: ÁSG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.