Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1986, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1986.
Fréttir
Forsætisráðhena:
Útilokar ekki
vetrarkosningar
- ef verðbólgan fér úr böndunum
„Ef ljóst er að ekki nást samningar
um kaup og kjör og ekki verði unnt
að grípa til neinna aðgerða, sem
sæmileg samstaða er um, til að koma
í veg fyrir að verðbólgan fari úr
böndunum þá lít ég svo á að hverri
ríkisstjóm, sem situr, beri skylda til
að taka á því af hörku og þá sé rétt
að kjósa,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra, í
samtab við DV.
Hann sagðist alls ekki vera að
gera því skóna að það ætti að kjósa.
Honum fyndist verkalýðshreyfingin
og vinnuveitendur ábyrgir í afstöðu
sinni og trúði því að það yrði áfram.
„Mín skoðun er sú að ríkisstjómin
eigi að setja metnað sinn í að sýna
að hún stendur við þá samninga sem
gerðir voru í febrúar. Bæði að verð-
lag nái því sem stefnt var að og að
kaupmáttur aukist eins og um var
talað þá.
Ég tel að í haust eigi fljótlega að
fara að ræða um framhaldið og ef í
ljós kemur að hlutimir ætla að fara
úr böndunum þá getur vel verið rétt
að efha til kosninga. Mér finnst ekki
skipta öllu hvort það verður um
haust,“ sagði Steingrímur.
Forsætisráðherra sagði að frétt
Þjóðviljans í gær, um að stefnt væri
að kosningum í mars og þingrofi
fyrir jól, væri tilhæfulaus. „Þetta er
eins nýtt fyrir mér og fyrir alla aðra.“
-APH
Kaupendur
höfhuðu
frjálsu
loðnuverði
Á fundi Verðlagsráðs sjávarútvegs-
ins í gær náðist ekki samkomulag um
loðnuverðið. Verðlagsákvörðun hefur
því verið vísað til yfimefndar.
„Á þessum fundi kom fram að kaup-
endur treystu sér ekki til að sam-
þykkja frjálst verð á loðnunni. Sá
draumur er því úti,“ sagði Óskar Vig-
fússon, fulltrúi sjómanna í verðlagsr-
áði, í samtali við DV.
Jónas Jónsson, fulltrúi kaupenda,
sagði að í ljós hefði komið að loðnu-
verksmiðjumar hefðu ekki viljað gefa
verðið fijálst.
Loðnuvertíðin hefst á sunnudaginn.
Óskar Vigfússon sagðist búast við að
þessi afstaða kaupenda myndi hafa
þau áhrif að lítil hreyfing yrði á flotun-
um í byijun vertíðar.
-APH
Ósjátfbjarga á báti og blöðru
„Mennimir vom ekki í neinni
siglingaleið og algerlega ósjálf-
bjarga. Það var mikið lán að við
skyldum eiga leið þama um,“ sagði
Björgvin Hermannsson í samtali
við DV.
Björgvin lagði upp á bát sínum
úr Elliðavogi í fyirakvöld. Hélt
hann ásamt fimm samferðamönn-
um sínum í átt til Kjalamess.
Þegar þeir fóm hjá laxeldisgirð-
ingu sem þar er stóð maður á
gúmmíblöðru við eina baujuna.
„Við urðum vitaskuld undrandi
að sjá manninn standa þama al-
einan. En hann veifaði okkur bara
að halda áfram. Eftir nokkra stund
sáum við svo h'tinn bát sem rak
stjómlaust. í honum var 16 ára
Þjóðveiji og hafði hann verið með
þessum sem stóð á blöðrunni. Við
tókum bátinn í tog og náðum svo
í hinn. Hann varð himinlifandi að
sjá okkur aftur. Sagðist hann ekki
hafa getað gert sig almennilega
skiljanlegan þegar við fórum fram-
hjá fyrst. Hann var búinn að
standa þama eins og línudansari,
rennblautur og hás, í tæpa sex
tíma.“
Björgvin færði tvímenningana til
hafhar í Elliðavogi. Þeim varð
ekki meint af hrakningunum.
„Þetta hefði getað orðið þeim dýr-
keypt. Það var lán í óláni að ég
skyldi eiga leið þama um. Ég hef
ekki komist út á bátinn í nokkum
tíma vegna meiðsla á fæti, en á-
Björgvin Hermannsson. Bjargaði tveim mönnum skammt utan við Kjalar- kvað að drífa mig þetta kvöld.“
nes. DV-mynd GVA -ÞJV
Farmgjold:
„Lækkunin þegar
orðin töluverð“
„Þessi oh'uverðslækkun hefur þegar
haft sín áhrif á farmgjöldin, við semj-
um nú um töluvert meiri afslátt á
farmgjöldum nú heldur en um síðustu
áramót. Ég hef þó engar tölur borð-
liggjandi, það er erfitt að sjá hve
lækkunin. er mikil yfir svo stuttan
tíma. Ég get þó sagt að hún er tölu-
verð,“ sagði Valtýr Hákonarson,
fi-amkvæmdastjóri Eimskips, í samtali
viðDV.
„í heildina má þó segja að farm-
gjaldalækkanir séu mestar í heil-
farmaflutnmgum þar sem samið er um
verð við einn aðila um meira magn
heldur en í gámaflutningum. Afslátt-
urinn frá hámarkstaxta Verðlags-
stofnunar á farmgjöldum er
samningsatriði hveiju sinni. Ég vil
ekkert segja um hvað hann getur
mest orðið.
Georg Ólafsson verðlagsstjóri sagði
að Verðlagsstofnun hefðu ekki borist
tölur fi-á skipafélögunum um hve mik-
inn afslátt væri að ræða frá hámarkst-
öxtum farmgjalda eftir þessa miklu
olíulækkun.
„Skipafélögin geta auðvitað boðið
upp á hagstæðari farmgjöld við þær
aðstæður að rekstarkostnaður ski-
panna lækki,“sagði Georg. „Spuming-
in er hvort þau gera það og þá hvað
mikið. Samningsaðstaða viðskipta-
vina við skipafélög er missterk, hún
hefur mikið að segja um hve mikill
afsláttur næst. I reynd er það meira
og minna fijálst hvaða farmgjöld nást
við þessar aðstæður. Nú er Eimskip
mjög ráðandi skipafélag hérlendis. Ég
tel þó að það sé ósanngjamt að ásaka
þá um of hátt verð á flutningum, það
hefur breyst mikið til og frá undan-
farið. Verðlagsstofriun fylgist með
hvaða stefriu þessi mál taka,“ sagði
Georg. -BTH |
Samningsréttur
til háskóla-
manna
Tillaga fjármálíiráðherra um að
hefja undirbúning á breytingum á
kjaraákvörðun háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna var samþykkt á rík-
isstjómarfundi í gær.
Fjármálaráðherra hefúr lýst því yfir
að hann vilji að þessir ríkisstarfsmenn
fái samningsrétt. Til þess að það geti
orðið þarf lagabreytingu. Samkvæmt
upplýsingum DV er stefht að því þessi
lagabreyting eigi sér stað áður en
kjarasamningar BHMR renna út um
áramótin og að frumvarp verði strax
lagt fram í þingbyijun.
í BHMR
„Ég vil fá að vita meira um þessar
hugmyndir. Við viljum fá fúllan samn-
ingsrétt en ég óttast að af hálfu
fjármálaráðherra sé verið að tala um
mjög takmarkaðan samningsrétt,"
sagði Þorsteinn A. Jónsson, formaður
launamálaráðs BHMR, í viðtali við
DV. Hann sagði jafnframt að í dag
myndu forystumenn BHMR eiga fúnd
með fjármálaráðherra. Ráðherra verð-
ur þá afhent uppsögn á samningum
og væntanlega fá ríkisstarfsmenn nán-
ari skýringar á hugmyndum ráðher-
rans um samningsrétt. -APH
Fangi kveikti
í rúmfatnaði
Fangi í hegningarhúsinu við Skóla-
vörðustíg kveikti í rúmfatnaði sínum
í fyrrinótt. Kallað var á slökkviliðið
en þegar það bar að garði hafði fanga-
vörðum tekist að slökkva eldinn.
Fanginn var fluttur á slysadeild en
meiðsli hans eru óveruleg.
JFJ
Vegagerö:
Efhiskostnaður
helmingi lægri
- áhrif olíulækkunar
„Olíulækkunin hefúr heldur bet>
ur komið Vegagenðinni tO góða.
Asfalt, sem við notum í lagningu
bundins slitlags, hefúr lækkað um
helming, 200 dollarar á tonn í
fyrra, 100 dollarar í ár. Hefði þessi
verðlækkun ekki komið til hefði
Vegagerðin ekki getað lagt eins
mikið bundið slitlag í ár og raunin
verður, það er alveg ljóst,“ sagði
Helgi Hallgrímsson, forstjóri
tæknideildar hjá Vegagerð ríkis-
ins, í samtali við DV.
„Ég reikna þó ekki með að farið
verði langt fram yfir vegalagn-
ingaáætlun í ár sem gerð var á
sínum tíma, olíulækkunin var þá
þegar komin í ljós að nokkru leyti
og farið að sjá fyrir hver þróunin
yrði. Þótt minni fjárveiting hafi
verið lögð í vegagerðina á ár, held-
ur en í fyrra, er fyrirsjáanlegt að
lagning bundins slitlags í kíló-
metrafjölda verður síst minni nú.'
Það má rekja beint til olíuverðs-
lækkunarinnar. -BTH