Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1986, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1986, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1986. Neytendur Kjúkl- inga- bitar kannaðir Það eru ekki mörg ár síða ’O kallaðir skyndibitastaðir ruddu sér til rúms hér á landi. Fyrst var um að ræða hamborgarastaði en svo fóru kjúklingastaðir að spretta upp eins og gorkúlur. Kjúklingastaðir og djúpsteiktir kjúklingabitar eru það sem málið snýst um í dag því við lögðum leið okkar einn daginn í vikunni á átta helstu kjúklinga- bitastaðina á Stór-Reykjavíkur- svæðinu og keyptum tvo bita á hverjum stað. Tilgangurinn var sá að vigta hvem skammt sem við fengum og bera saman verð en við látum ykkur eftir að dæma um bragðið. Ódýrast á Kentucky Við fórum eins og áður segir á átta staði: Kentucky fried chicken, Hjallahrauni 15, Hf., Westem fried chicken við Vesturlandsveg, Am- erican style, Skipholti 70, Chick king, Suðurveri, Southem fried chicken, Tryggvagötu, Royal fried chicken, Nýbýlavegi, Kóp., Candys fried chicken, Eddufelli 6, og Sprengisand, Bústaðavegi 153. Kjúklingabitamir reyndust ódýr- astir á Kentucky fried chicken en hver biti kostar þar 60 kr. Á veit- ingastaðnum Chick King í Suður- veri er bitinn dýrastur, eða á 70 kr. Kjúklingaskammtur með tveim- ur bitum kemur einnig best út á Kentucky miðað við þyngd. Þar vó skammturinn, sem við fengum, 225 g og kostar þá kílóið 533 kr. miðað við uppgefið verð. Dýrast kemur skammturinn út miðað við þyngd á American style. Þar vó skammturinn aðeins 185 g og kost- ar þá kílóið 746 kr. miðað við verð hvers bita þar en hver biti kostar 69 kr. Alls staðar skjót afgreiðsla Á öllum kjúklingastöðunum er lagt upp úr hraðri þjónustu eins og sönnum skyndibitastöðum sæmir. Er við vorum á ferðinni var frekar rólegt á öllum stöðunum þannig að við fengum mjög skjóta afgreiðslu á hverjum stað. Alls staðar nema á Candys fried er hægt að setjast niður og borða. Aðstaðan var þó síst á Chick king og Westem fried þar eð þar er minnsta borðplássið og af þeim sökum fólk minna út af fyrir sig. Á Sprengisandi og Kentucky fried er langmesta sætaplássið og einnig sérlega snyrtilegt umhverfi. Á American style er einna mest „kósí, nýtískulegt og smekklegt V\C10US 'esíem /nerf Flestir kjúklingastaðirnir leggja eins og sjá má mikið upp úr snyrtilegum og smekklegum umbúðum. Hviti einliti kassinn var utan um bitana sem við fengum á Sprengisandi en í pokanum voru bitarnir frá Candy s fried. Þetta eru skammtamir sem við fengum. í efri röð frá vinstrí eru bitar frá Kentucky fried, þá frá Westem fried, American style, Chick king, Southem fried, Royal fried, Sprengisandi og loks i neðra homi til hægri bitar frá Candys fríed. Þið takið sjálfsagt eftir að bitamir frá Sprengisandi eru þrír en okkur voru gefnir þrír litlir bitar er við báðum um tvo. Þó að bitamir virki á Ijósmyndinni litlir eöa stórir þá er það fyrst og fremst þyngdin sem gefur rétt til kynna hve matarmiklir þeir eru. Bitamir voru líka nokkuð misjafnir aö lit og er það kryddblandan sem ræður þvi sem og steikingartimi og hiti. Kryddblandan er eins og gefur að skilja mjög misjöfn og er þar einmitt um leyndardóm kjúklingamatreiöslunnar aö ræöa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.