Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1986, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1986.
Viðskipti
Norðmenn með söluherferð í Japan
Reykjavík
Síðar i þessum pistli verður sagt
frá söluherferð Norðmanna á Jap-
ansmarkaði og hvað mikla peninga
þeir nota til þessa verkefnis sem
þeir nefha Japansáætlun. Það væri
fróðlegt að fá að vita hvað háum
upphæðum er eytt til auglýsinga á
fiski í hinum ýmsu markaðslöndum
okkar.
Togaralandanir í Reykjavík síð-
ustu viku, 10.-16. júlí. Bv. Jón
Baldvinsson landaði 10. júlí ails 200
tonnum af blönduðum fiski, verð-
mæti 2,7 milljónir króna. Bv. Ottó
N. Þorláksson landaði 11. júlí 202
tonnum fyrir kr. 2,5 millj. Bv. Asþór
landaði 131 tonni, aflaverðmæti kr.
1,8 millj. Bv. Engey landaði 15. júlí
370 tonnum.
Afli hefur verið með ágætum fyrir
austan og hafa húsin orðið að setja
skorður við löndun á þorski, eins
hefúr verið góður afli hjá togurum
norðan og vestan. I síðasta þætti var
sagt frá gangverði á afla innanlands.
Grimsby
Bv. Börkur landaði í Grimsby 10.
júlí 163 tonnum og seldist aflinn fyr-
ir kr. 9,8 millj., meðalverð kr. 54,34
kílóið. Bv. Otto Wathne landaði
sama dag 137 tonnum fyrir kr. 8
milljj., meðalverð kr. 59 kílóið. Bv.
Amár landaði 14. júlí 94 tonnum
fyrir kr. 4,7 millj., meðalverð á þorski
kr. 55,71 kg. Meðalverð á fiski var
eins og hér segir: Þorskur kr. 58,71,
ýsa kr. 58,25, ufsi kr. 23,63, karfi kr.
33,96, koli kr. 32,72. Þetta gildir fyrir
Grimsby og Hull.
Hull
Bv. Krossanes landaði 10. júlí 96
Norðmenn ætla nú að reyna að selja fiskafurðir i Japan.
tonnum fyrir kr. 5,2 millj. Bv. Staf-
nes landaði einnig sama dag 48
tonnum fyrir kr. 1,5 millj.
FiskmarkaðLmir
Ingólfur Stefánsson
tew York
Lágt verð hefur verið á markaðn-
um hjá Fulton að undanfómu. Helst mikill og fjöldi manns er út úr borg-
má kenna því um að hiti hefur verið inni í sumarleyfum. Borið hefur við
að framboð hefúr verið það mikið
að menn hafa selt lax á nokkru lægra
verði en skrásett hefur verið á mark-
aðnum og hefur verðið verið allt
niður í 300 kr. kg fyrir lax, 2-3 kg,
og 350 kr. fyrir stóran lax, 6-7 kg.
Eins og fyrr segir seldu menn á lægra
verði til að losna við birgðir. Verð á
þorski hefur verið lágt eða kr. 75.
Ýsa kr. 136, ufsi kr. 40, karfi kr. 70,
stór lúða kr. 242. Enginn íslenskur
hörpuskelfiskur var á markaðnum,
en kanadískur hörpuskelfiskur var
á kr. 496 kg, skötuselur kr. 270.
Rækjuverð er enn stöðugt eins og
það hefir verið í allt vor og sumar.
Verðið á laxi frá markaði Fulton er
svipað og úr búð í Reykjavík.
British Columbia
Fiskeldi í British Columbia hefur
orðið fyrir stórtjóni vegna sýkingar
á eldisfiski, þó sérstaklega á regn-
bogasilungi en þar hafa drepist um
200.000 fiskar, sem flestir vom 4 kíló
að þyngd. Talið er að allt að 1 millj-
ón fiska geti farist af þessari sýkingu
sem er vegna sýktra þömnga sem
setjast að í tálknum fiskanna og
kæfir þá.
Fyrir nokkm urðu eldisstöðvar
fyrir nokkm tjóni af annarri veiki
en þá var um að ræða kísilsvepp sem
hagaði sér á svipaðan hátt. Talið er
að hjá þessum skakkafóllum hefði
mátt komast ef menn hefðu verið
betur að sér í fiskeldi. Sjónvarps-
þáttur var sýndur um það hvemig
Japanir hefðu farið að í svipuðum
tilfellum, en með þeirra aðferð varð
tjón þeirra sárahf 3.
í fiskeldi þurfa menn að taka mjög
mikinn vara fyrir ýmsum sjúk-
dómum. Nú em margir að hefjast
handa um eldi og er gott að hafa í
huga að það er viðsjál atvinnugrein.
Noregur
I norska blaðinu „Fiskaren" frá
3. júlí segir frá auglýsingaherferð
sem ráðist hefur verið í af hálfu ríkis-
ins og sölusamtaka norskra fisk-
framleiðenda til að kynna norskan
fisk fyrir Japönum.
Japanska sjónvarpsstöðin FUJI
TVs. hefur verið fengin til að annast
þetta verkefni sem kallast Japansá-
ætlun. Kostnaðaráætlun er 330 til
550 millj. íslenskra kr. Þegar hefur
verið hafist handa um þetta verkefiii
og hugmyndin er að taka 18 mynd-
bönd, sem eiga að sýna framleiðsl-
una allt frá því að aflanum er landað
og þar til hans er neytt. I áætluninni
er gert ráð fyrir að um 90 milljónir
manna í Japan komi til með að sjá
þessar upptökur. Meðal þess efnis
sem sýnt verður er fiskmáltíð, sem
útbúin er á hinu gamla gistihúsi
Rökenes Gaard og Gestehús, þar
veður ffamreidd máltíð úr stórlúðu.
Einnig verður sýnd mynd af smokk-
fiskmáltíð um borð í hraðferðaskip-
inu sem gengur meðffam norsku
ströndinni. Sýndar verða myndir af
matarvenjum Norðmanna á heimil-
um þeirra og frá veitingahúsum í
Osló, Tromsö, Bergen og Lofoten
auk mikiha fiskréttasýninga utan-
dyra hjá ýmsum hótelum. Kynnt
verður matreiðslubók með hinum
ýmsu fiskréttum. Þetta er tilkynning
ffá Norska útflutningsráðinu og
nefnist Japansáætlun. í henni er
gert ráð fyrir að tvöfalda útflutn-
ingstekjur sjávarútvegsins, þó ekki
verði um tvöfoldun að ræða í fiskút-
flutningi.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 14%
nafnvöxtum og 14,5% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningúr er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mán-
uð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygg-
ing auk~2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaöa tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
14% nafnvöxtum og 14,49% ársávöxtun eða
ávöxtun 6ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 12,4%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður ^r gerður
ið út.af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 8%, þann mánuð.
Kaskóreikningur Verslunarbankans.
Meginreglan er að innistæða, sem er óhreyfð
í heilan ársfjórðung, nýtur kjara 6 mánaða
bundins óverðtryggs reiknings eða 6 mánaða
verðtryggðs reiknings, eftir því hvor gefur
hærri ávöxtun fyrir þann ársfjórðung.
Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok
hvers ársfjórðungs, hfai reikningur notið
þessara „kaskókjara“. Reikningur ber kaskó-
kjör, þótt teknir séu út vextir og verðbætur,
sem færðar hafa verið á undangengnu og yfir-
standandi ári. Úttektir umfram það breyta
kjörunum sem hér segir:
Við eina úttekt í fjórðungi reiknast almenn-
ir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en
kaskókjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir
fær öll innistæða reikningsins sparisjóðs-
bókarvexti.
Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan
virkan dag ársfjórðungs, fær innistæðan hlut-
fallslegar verðbætur m.v. dagafjölda í innlegs-
mánuði, en ber síðan kaskókjör úr fjórðung-
inn. Reikningur, sem stofnaður er síðar fær
til bráðabirgða almenna sparisjóðsbókavexti
en getur áunnið sér kaskókjör frá stofnadegi
að uppfylltum skilyrðum.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar 5 sparisjóða eru
með innstæðu bundna óverðtryggða í 18 mán-
uði en á 14,5% nafnvöxtum og 15,2% árs-
ávöxtun. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnar-
firði, Kópavogi, Borgamesi og Sparisjóður
Reykjavíkur bjóða þessa reikninga.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, Qög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
er 8,16% á verðbættan böfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 2. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 826 þúsundum króna, 2 4 manna
fjölskyldna 1.052 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.233 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 2. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 413 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 207 þúsund. 2 4 manna
fjölskylda fær mest 526 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 263 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 617 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 309 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15 42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í júlí 1986 er 1463 stig
en var 1448 stig í maí og 1432 stig í maí. Mið-
að er við grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 3. ársfjórðungi 1986
er 270 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3998
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01.86. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
Hlutabréfamarkaðurinn
Kaupverð Kaupverð Söluverð Söluverð
m.v. 100 kr. að lokinni m.v. 100 kr. að lokinni
nafnverðs jöfnun nafnverðs jöfnun
Eimskipafélag fslands 370 185 400 200
Flugleiðir Iðnaðarbankinn V erslunarbanki nn 390 125 124 130 91 90 421 135 134 140 98 97
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 1.-10.07 1986
INNLÁN MEÐ SERKJÖRUM 1
SJA sérlista ll 1 x ■» 1111 1111 1111 Jllf
INNLÁN ÖVERÐTRYGGÐ
SPARISJÓÐSBÆKUR Óbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mðn. uppsögn 10.0 10,25 10,0 9.0 8.5 10,0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mðn.uppsögn 12.5 12.9 12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.5 10.0
12 mán.uppsögn 14.0 14.9 14,0 11.0 12.6 12.0
SPARNAÐUR - LÁNSRÉTTUR Sparaö 3-5 mán. 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10,0 9.0
Sp. 6mán. ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ
SPARIREIKNINGAR 3ja mðn. uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mðn.uppsögn 3.5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 7.0 7.0 6.0 6.0 6.0 6.5 6.0 6.5 6.0
Sterlingspund 11.5 10.5 9.5 9.0 9.0 10.5 9.0 10.5 9,0
Vestur-þýsk mörk 4.0 4.0 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5
Dansker krónur 7.5 7.5 7.0 7.0 6.0 7.5 7.0 7.0 7.0
UTLÁN ÚVERÐTRYGGÐ
ALMENNIRVlXLAR (forvextir) 15.25 15.25 15,25 15,25 15,25 15.25 15,25 15,25 15.25
VIÐSKIPTAVIXLAR3) (forvextir) kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kge
ALMENN SKULDABRÉE 2) 15.5 15,5 15,5 15.5 15.5 15,5 15.5 15,5 15.5
VIOSKIPTASKULDABRÉE 3) kge kgc kge kge kge kge kge kgc
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ
SKULDABRÉF A621/2 ðri 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lcngri cn 2 1/2 ðr 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU
SJANEÐANMALS!)
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,5%, í sterlingspundum 11,75%, í vestur-
þýskum mörkum 6,25%. 2)Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er
2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og
viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá