Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1986, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1986, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1986. 31 Iþróttir liirus ur leik . b i ' : U i -sleitinnra liðbandí „Þetta sýnir þá gífurlegu sam- us liggur nú á sjúkrahúsi í Ásu verður Lárus að vera einn við hann um stöðu í liðinu sem keppni sem er um stöðumar hjá Vestur- Þýskalandi. og hálfan mánuð í gifsi og annan slasaði hann á umræddri æfingu. Uerdingen. Okkui- hefði gengið eins tíma mun taka fynr Lárus betur að sætta okkur við orðinn Láms var í gær skorinn upp að koma sér í æfingu. Þá er eftir Varla þarf að taka fram að hlut ef þetta hefði átt sér stað í vegna alvarlegra meiðsla sem að komast í liðið og eins og þetta þetta er gífurlegt áfall fyiir Lárus leik. Það er fullgróft að svona hann varð fyrir á æfingu hjá atvik sýnh- getur ýmislegt þurft en hann var á síðasta keppnis- lagað skuli koma fyrir á æfing- Bayer Uerdingen fyrir nokkrum að ganga á áður en menn ná að tímabili markahæsti leikmaðm- um,“ sagði Ása Baldursdóttir, dögum. Lárus lenti í samstuði við tryggja sér sæti í liðunum í Bayer Uerdingen. Þetta er því eiginkona Lámsar Guðmunds- einn félaga sinn með þeim dapur- Þýskalandi. Samkvæmt heimild- einnig mikið áfall fyrir lið Láms- sonar knattspymumanns, í legu afleiðingum að innra lið- um DV var það leikmaður hjá ar. samtali við DV í gærkvöldi. I.,ár- bandið í hné slitnaði. Að sögn Uerdingen sem lengi hefur barist -SK. i markið 1611 mmutur og i tap Vals síðan 20. maí jngar rufu sigutgöngu Valsmanna og skrtust upp í annað sæti 1. deildar ir að ÍBK hafði sigrað Val á Hlíða- rendavelli með einu marki gegn engu. Það var Óli Þór Magnússon sem skor- aði sigurmarkið á 36. mínútu fym hálfleiks. Fram að marki Keflvíkinga höfðu Valsmenn ekki fengið á sig mark í 1. deild i heilar 611 mínútur. Síðast skor- aði Framarinn Guðmundur Torfason mark hjá Valsmönnum í leik Fram og Vals þann 6. júní. Þetta var fyrsti tap- leikur Vals síðan 20. maí en þá töpuðu Valsmenn öðrum leik sínum í röð á íslandsmótinu fyrir Blikunum. Hörmulega lélegt Leikur Vals og ÍBK í gærkvöldi var því miður mjög slakur og hreinlega hörmulega lélegur knattspymulega séð. Gríðarleg barátta hjá leikmönn- um beggja liða en lítið sem ekkert um marktækifæri. Mikið öskrað og skammast og aðstandendur liðanna utan vallar gáfú leikmönnum lítið eft- ir í þeim efnum. Lengst af var leikur- inn miðjuhnoð og kýlingar og á óvart kom hve Valsmenn virtust lítið fyrir að nýta sér breidd vallarins. Sókna- raðgerðir þeirra voru mjög einhæfar og framlínan er greinilega veikari hluti liðsins. Hvort þessi ósigur hefur einhver áhrif á framhaldið skal ósagt látið en víst er að liðið verður ekki meistari ef það sýnir ekki meiri getu í komandi leikjum. Keflvíkingar í annað sætið Ófi Þór Magnússon skoraði sigur- mark leiksins í gær og var það sérlega glæsilegt. Hann fékk knöttinn frá Sig- urði Björgvinssyni í utanverðum vítateig og skaut fallegu skoti efst í markhomið, óverjandi fyrir Guðmund Hreiðarsson í Valsmarkinu. Keflvík- ingar börðust af miklum krafti og vom nærri búnir að bæta við öðm marki á 37. mínútu síðari hálfleiks en Guð- mundur Hreiðarsson varði þá slakt skot Ingvars Guðmundssonar eftir að hann hafði komist einn inn fyrir vöm ÍBK. Með þessum sigri skutust Keflvík- ingar í 2. sæti 1. deildar og hafa nú 24 stig en Fram 26 í efsta sæti og leik inni. Valsmenn duttu niður í þriðja sætið, höfðu sætaskipti við Keflvík- inga. Liðin: Valur. Guðmundur Hreiðars- son, Þorgrímur Þráinsson, Ársæll Kristjánsson, Guðni Bergsson, Magni Pétursson, Hilmar Sighvatsson, Ing- var Guðmundsson, Siginjón Kristj- ánsson, Valur Valsson, Ámundi Sigmundsson(Guðmundur Kjartans- son), Bergþór Magnússon(Jón Grétar Jónsson). Keflavík. Þorsteinn Bjamason, Rúnar Georgsson(Sigurður Guðnason), Einar Ásbjöm Ólafsson, Valþór Sigþórsson, Gunnar Oddsson, Sigurður Björgvins- son, GísliGrétarsson,SigurjónSveins-, son, Freyr Sverrisson(Skúli Rósants- son), Óli Þór Magnússon og Ingvar Guðmundsson. • Þorvarður Bjömsson dæmdi leik- inn. Var hann allt of linur í byijun og missti leikinn svo að segja út úr höndunum í lokin. Gul spjöld fengu þeir Sigurður Björgvinsson, Sigurður Guðnason og Siguijón Sveinsson, allir ÍBK. Maður leiksins: Óli Þór Magnússon, ÍBK. -SK. • Em ítalir strax farnir að njósna um Valsliðið fyrir leik þess gegn Juvent- us? Þessi ítalski Ijósmyndari var á leik Vals og Keflavíkur í gærkvöldi og myndaði leikmenn Vals í bak og fyrir. DV-mynd Brynjar Gauti Staðan 1. deild Staðan eftir leikinn í gærkvöldi í 1. deild: Valur-ÍBK..................0-1 Fram ....11 8 2 1 25-6 26 Keflavík.... ..12 8 0 4 15-14 24 Valur ..12 7 2 2 18-5 23 Akranes.... ..11 5 2 4 17-10 17 KR ..11 3 5 3 13-9 14 Þór ..11 4 2 5 14-20 14 FH ..11 4 1 6 17-20 13 Víðir ..11 3 2 6 7-14 11 UBK ..11 3 2 6 9-19 11 ÍBV ..11 1 2 Q 9-25 5 • Preben Elkjær. Rosatilboð í Elkjær - Monaco býður 75 milljónir Franska liðið Monaco, sem leikur í l.deild, hefur boðið ítalska liðinu Hellas Veróna 75 milljónir króna í danska landsliðsmiðherjann Preben Elkjær Larsen. Það er gríðarleg upphæð fyrir leikmann sem er að verða þrítugur. Forráðmenn ítalska liðsins hafa enn ekki tekið ákvörðun um hvort þeir selja Danann harðskeytta. Þeir hafa þegar látið Þjóðverjann Hans-Peter Briegel frá sér en hann og Elkjær áttu mestan þátt í því að Hellas Verona varð ítalskur meistari 1985. Briegel tók stöðu Skotans Graeme Souness hjá Sampdoria. Verona er að reyna að fá Thomas Berthold, þýska landsliðsbakvörðinn, frá Eintracht Frankfurt. Hann er aðeins 21 árs og stóð sig mjög vel á HM í Mexíkó. Ef Preben Elkjær fer til Monaco, sem miklar líkur virðast á, mun hann leika þar með öðrum dönskum landsliðs- manni, Sören Lerby, sem franska liðið keypti í vor frá Bayem Múnchen. hsím Nýrstjóri hjá Skotum - hefur aldrei verið sfjóri áður „Það að vera þjálfari landsliðsins verður í raun ekki svo ólíkt því sem ég hef verið að gera með unglingaliðunum. Ég sat á Ázteca leikvanginum fyrir framan 90.000 áhorfendur, sem hentu flöskum og öðm lauslegu að okkur, og stjómaði unglingalandsliðinu í heims- meistarakeppninni þar. Sá sem þolir það getur tekið öllu,“ sagði Andy Roxburgh sem hefúr nú verið ráðinn landsliðs- þjálfari Skota. Ráðning hans kemur mjög á óvart en hann hefur aldrei verið í framkvæmdastjórastöðu áður. Rox- burgh hefúr séð um þjálfúnarmál hjá unglingalandsliðum Skota að undan- fömu. Hann var meðal annars tekinn fram fyrir Billy McNeill, framkvæmda- stjóra Manchester City, ogJim McLean, framkvæmdastjóra Dundee United. Roxburgh tekur við af Alex Ferguson, firamkvæmdastjóra Aberdeen, sem hljóp í skarðið þegar Jock Stein lést. Rox- burgh, sem er 42 ára, tekur við ákaflega erfiðu starfi en Skotar gera ávallt mikl- ar kröfúr til landsliðs síns. -SMJ Víðir-Akranes Akumesingar bregða í kvöld undir sig betri fætinum og leika gegn Víðismönn- um í 1. deildinni í knattspymunni. Leikurinn hefst kl. 20.00. Á sama tíma leika KA og KS í 2. deild á Akureyri. -SK. V* ■r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.