Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1986, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1986.
Fréttir
________________________________________________DV
Enskir og íslenskir bankar:
„Ekki sambærilegir
- segir bankastjóri Búnaðarbankans
„Þetta er alls ekki sambærilegt því
hér er sérstakt kerfi íyrir utan banka-
kerfið sem lánar það fé sem ætlað er
til fasteignakaupa," sagði Stefán Páls-
son, bankastjóri Búnaðarbankans,
aðspurður um samanburð Fasteigna-
matsins á fasteignalánum íslenskra
banka og enskra.
í fréttabréfi Fasteignamatsins kom
fram að enskir bankar lána mun hærri
upphæðir til fasteignakaupa en bank-
ar hér og einnig til lengri tíma. Einnig
eru engar ákveðnar reglur um veð-
hæfhi og heldur ekki reglur um hvort
taka eigi tillit til fjárhags lántakanda
við lánveitingu. í Englandi eru hins
vegar ákveðnar reglur um bæði þessi
atriði.
„Bankakerfið hér á landi hefur ekki
þróast í sömu átt og viða erlendis. Ég
tel að það myndi vel koma til greina
að bankar hér lánuðu til fasteigna-
kaupa en þá yrðu þeir líka að fá það
fjármagn sem ætlað er til þeirra," sagði
Stefán.
Hann sagði að á meðan kerfið væri
eins og það er nú væri ekki ástæða
fyrir banka að hafa ákveðnar reglur
um veðhæfni. Við lánveitingar væri
að nokkru tekið tillit til efhahagsað-
stæðna lántakenda því höfð væri
hliðsjón af viðskiptum hans við bank-
ann, sem ættu að endurspegla fjár-
hagsstöðu þeirra.
-APH
Greiðlega gekk að siökkva eldinn sem olli þó töluverðu tjóni.
DV-mynd S
Talsvert tjón í eldsvoða
Talsvert tjón varð bæði á húsnæði
og vamingi í eldsvoða að Suðurgötu 3
í fyrrinótt. •
Rétt fyrir tvö varð vart mikils reyks
í versluninni Hænko sem selur út-
búnað fyrir vélhjólafólk. Þegar
slökkviliðið kom á staðinn var mikill
reykur auk þess sem eldurinn hafði
komist í áfastan geymsluskúr.
Rífa þurfti gat á þak hússins til að
auðvelda slökkvistarf en þrjá stundar-
Qórðunga tók að slökkva eldinn.
Eldsupptök eru ókunn. -JFJ
Grænfrið-
ungar
. til
Islands?
„Ég vil ekkert segja um áætlanir
okkar, þær eru leynilegar og ekki
fyrir fólk utan samtakanna," sagði
talsmaður Greenpeace þegar DV
innti hann eftir þvi hvort skip
þeirra, Moby Dick, væri væntan-
legt að íslandsströndum. í norska
dagblaðinu Aftenposten voru um
daginn vangaveltur þess efhis og
í gær var haft eftir Paul Watson,
skipstjóra á Sea Shepherd, að hann
vissi til þess að Greenpeace-menn
ætluðu að senda skip hingað til
lands. „Paul Watson má segja
hvern andskotann sem honum
sýnist, hann er ekki á vegum okk-
ar samtaka,“ sagði talsmaðurinn
þegar honum var sagt frá ummæl-
um Watsons. Hann sagði að Moby
Dick væri nú á leið frá Noregi til
Hamborgar en þar myndi skipið
liggja í slipp vegna smávægilegrar
viðgerðar í nokkra daga. „Hvert
við förum svo vil ég ekkert segja,
það kemur í ljós nógu snemma.
Hvað sem öllu lfður munum við
berjast gegn hvalveiðum ykkar og
annarra þjóða á hvaða vettvangi
sem er og lítum á vísindahvalveið-
ar ykkar sem fyrirslátt. Okkar
baráttu lýkur ekki fyrr en hval-
veiðar verða aflagðar alls staðar
fyrir fullt og allt,“ sagði talsmaður-
inn.
JFJ
Ævar hlaut gullmerki
Brunabótafélagsins
ustu og þetta er því í fyrsta skipti
sem manni utan félagsins er sýndur
þessi heiður. Ævar hlaut merkið
vegna þess snarræðis sem hann
sýndi við að slökkva eld er kviknaði
í lítilli farþegavél sem brotlenti og
skall á fokkerflugvél á Reykjavíkur-
flugvelli fyrir skömmu. Hefðu bæði
menn og tæki vart sloppið svo vel
ef Ævars hefði ekki notið við.
Að brunavamarátakinu stóðu auk
Brunabótafélags íslands, Landssam-
band slökkviliðsmanna, Brunamála-
stofnun og Storebrand í Noregi.
Megintilgangurinn með átakinu var
að vekja fólk til umhugsunar um
þýðingu brunavama á heimilum og
í atvinnufyrirtækjum. Það var gert
á þann hátt að undanfamar 6 vikur
hefur slökkvibifreið með fullkomn-
um búnaði ekið um 5500 km og
heimsótti 66 staðir. Þar hefur verið
efrit til æfinga, sýninga og fræðslu-
funda sem hafa verið vel sóttir.
Vonast aðstandendur átaksins til að
það hafi gert fólk meðvitaðra um
nauðsyn traustra brunavama.
JFJ
Brunavamarátaki '86 lauk á mið- gullmerki Brunabótafélags íslands.
vikudaginn og við það tækifæri var Gullmerkið er venjulega veitt starfs-
Ævari Bjömssyni flugvirkja veitt mönnum eftir áratuga langa þjón-
Siguröur Reykjalín veitir Ævari Bjömssyni gullmerki Brunabótafélagsins.
DV-mynd Bjamleifur
DV á Bakkafirði:
..Kominn í land
Jón G. Haukssan, DV, Akureyxi;
„Ég hef verið til sjós alla mína starf-
sævi og ég byrjaði þrettán ára á
sjónum. Ég var tíu vertíðir fyrir sunn-
an, í Höfhunum, en svo nennti ég ekki
þessum flækingi," sagði Eyþór Áma-
son sjómaður á áttræðisaldri á
Bakkafirði.
„Ég er kominn í land,“ sagði Eyþór
sem nú sker af netateinum fyrir bróður
sinn. „Ég varð fyrir veikindum um
árið og hef ekki náð mér af þeim.“
Eyþór er fæddur og uppalinn á
Bakkafirði. „Ég hef aðallega verið á
bátum, átti trillu í mörg ár og rak jafn-
framt með bræðrum mínum saltfisk-
verkunarstöð."
- Hvemig var fyrir sunnan, í Höfh-
unum?
„Það var ágætt, það vom fínir menn
þar,“ sagði Eyþór.