Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1986, Side 10
10
FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1986.
Útlönd
Boy George:
„Eg er forfallinn
heróínneytandi“
Boy George í júni síðastliðnum.
Þama er hann horaður og töluvert
farinn að láta á sjá. Hann heldur þó
enn gamla klæðastílnum.
Eins og algengt er með orðróm eða
slúðursögur hafði slúðrið nærst
nokkra hríð en um miðjan júní varð
það opinbert. Boy George er háður
heróíni. Fyrst birtust fréttir í bresk-
um æsifréttablöðum um að vinur
poppstjömunnar, David Ix'vine,
grátbæði vin sinn um að hætta í eit-
urlyfjum áður en þau yrðu hans
bani. Boy George lýsti því þá yfir
opinberlega að það þyrfti ekki að
venja sig af neinum eiturlyíjum.
Bræður hans lýstu því þá yfir að
hann ætti við heróínvandamál að
stríða. Aftur neitaði „strákurinn".
Fljótlega eftir þetta fóm hjólin að
snúast. Á sérkennilegum blaða-
mannafúndi á heimili sínu, þann 2.
júlí, viðurkenndi George vanda sinn.
„Þið þurfið ekki að vera læknar til
að horfa á mig og sjá að ég er deyj-
andi maður. Ég er forfallinn heróín-
neytandi og þarf átta grömm á dag
til að svala fíkn minni.“
Vinir handteknir
8. júlí ákærði lögreglan í London
svo fimm menn, þar á meðal Kevin
O’Dowd, bróður George, og vin hans,
kynskiptinginn Marilyn, fyrir að
hafa heróín undir höndum og hafa
útvegað átrúnaðargoðinu eiturlyf.
Næsta dag tilkynnti útgáfufyrirtæki
Boy George að hinn tuttugu og fimm
ára gamli söngvari væri í eiturlyfja-
meðferð. í fyrstu lýsti lögreglan því
yfir að hún myndi ekki reyna að
yfirheyra hann meðan á meðferðinni
stæði. Um síðustu helgi brá hins
vegar svo við að Scotland Yard
handtók hann og ákærði hann fyrir
að hafa heróín undir höndum.
Skjótt skipast veður í lofti
Þetta virðist allt gerast mjög
snögglega. Það hefúr aðeins tekið
Boy George fjögur ár að öðlast frægð
og frama og komast alla leið niður
í rykið aftur. Með laginu Do You
Really Want to Hurt Me, sem kom
út árið 1982, náði Culture Club
geysilegum vinsældum um allan
heim á mjög skömmum tíma. Aðal-
lega var það þó söngvari hljómsveit-
arinnar sem fólk var hrifið af.
George var ákaflega frumtegur í
klæðnaði og fasi. Það var líka eitt-
hvað seiðmagnað við framkomu
hans og rödd. Ekki leið á löngu þar
til hann var orðinn eftirlæti blaða-
manna og hann gat vafið þeim um
fingur sér.
Óvenju heilbrigður
Hann fékk einnig á sig það orð að
Vinur Boy George, kynskiptingurinn
Marilyn, færður á brott í fylgd lög-
reglu eftir að hann var handtekinn
fyrr í þessum mánuði.
Það kaldhæðnislega er að á þess-
nm tíma var mesti glansinn farinn
af Boy George. Salan á plötum Cult-
úre Club hafði minnkað frá árinu
1983 og síðasta metsölulag hljóm-
sveitarinnar var Karma Chameleon
sem komst á toppinn í mars 1984.
Vinir Boy George segja að hann
hafi verið háður því að vera í sviðs-
ljósinu. Hann hafði mjög gaman ai'
að fara á Elaine’s og láta sjá sig með
hinum stjömunum. Einn vinur hans
segir að á þessum tíma hafi hann
aldrei vitað til þess að George væri
í eiturlyfjum. Hann drakk ekki einu
sinni. Þegar aðrir drukku kampavín
sötraði hann diet kók. Sennilega var
það þó á þessum tíma sem hann
byrjaði að fikta við eiturlyf. Allt í
einu hvarf hann af sjónarsviðinu.
hann væri óvenju heilbrigður af
poppstjömu að vera. Árið 1983 sagði
hann, „Það nota ekki allar popp-
stjömur kókaín. Ég vil miklu frekar
fá mér kaffibolla og vænan skammt
af rjómaís." Einnig fór það ekki fram
hjá neinum, er sjá vildi, að Boy
George elskaði sviðsljósið. „Ég er
mjög góður sem poppstjama," sagði
hann í viðtali við Playboy í fyrra.
„Ég hreint elska allt í kringum þetta.
Ég elska aðdáenduma, athyglina,
gjafimar og peningana."
Endalokin?
í London lagðist á orðrómur um
eiturlyfjaneyslu George í byijun
þessa árs. Jonathan Ashby, popp-
fréttaritari og vinur söngvarans,
segist hafa vitað um eiturlyfjavanda
hans í fimm mánuði þótt George
hafi neitað því allt þar til nú fyrir
nokkrum dögum. Þá vom menn líka
famir að taka eftir því hve illa hann
leit út.
Kókaínvettan á við sexfaldar útflutningstekjur
Bandarísk hersvett í Bólivíu til aðstoðar stjómarher í kókaínherför
Bandarískar herflutningavélar
fluttu á annað hundrað sérþjálfaða
hermenn Bandaríkjastjómar til La
Paz, höfuðborgar Bólivíu, í gær.
í Bólivíu er það hlutverk hermann-
anna að aðstoða þarlend yfirvöld í
hatrammri baráttu gegn framleiðslu
kókaíns í landinu.
Til Bólivfu koma hermennimir frá
stöðvum Bandaríkjamanna í Pan-
ama ásamt sex fullkomnum Black
Hawk flutninga- og leitarþyrlum,
sem ætlað er að nota í herför banda-
rískra og bólivískra yfirvalda gegn
bólivfskum eiturlyfjasmyglurum.
KomnirtilTrinidad
f gærkvöldi hermdu fregnir frá
Bólivíu að hluti Bandaríkjamann-
anna hefði þegar verið fluttur flug-
leiðis til bæjarins Trinidad í
Norður-Bólivíu ásamt sveitum úr
herafla landsins, en aðalstöðvar eit-
urlyflaherferðarinnar verða í Trini-
dad.
Borgin er umvafin þéttu frum-
skógasvæði sem erfitt er yfirferðar
og talið er miðpunktur kókaínfram-
leiðslunnar í Bólivíu.
Afgangur bandarísku hermann-
anna heldur sig um þessar mundir í
borginni Santa Cruz og undirbýr sig
þar undir átök við eiturlyfjasmygl-
ara.
í fréttatilkynningu Hvíta hússins
í gær segir að hlutverk Bandaríkja-
mannanna í Bólivíu sé fyrst og
fremst að aðstoða þarlend lögreglu-
yfirvöld í baráttunni gegn samtökum
glæpamanna er einbeita sér að rækt-
un kókaíns og að Black Hawk þyrlur
þær sem sendar voru til landsins
verði notaðar til að flytja bólivískar
lögreglusveitir inn í frumskóginn
þar sem áhlaup verði gerð á búðir
og vinnslustöðvar eiturlyfjasmygl-
aranna.
Mikil framleiðsla kóka-
ínstöppu
Að sögn bandarískra fíkniefriayfir-
valda á yfir helmingur ræktaðs
kókaíns í heiminum nú uppruna sinn
að rekja til frumskóga Bólivíu.
í þar til gerðum vinnslustöðvum
lengst inni í frumskógum landsins
framleiða eiturlyfjasmyglararnir
sérstaka kókaínstöppu úr laufblöð-
um kókaplöntunnar og úr því er
sjálft kókaínið síðan fullunnið.
Fullvinnsla kókaínsins á sér þó
ekki nema að litlu leyti stað í Bóli-
víu. Framleiðendumir fljúga með
kókainstöppuna til stöðva sinna í
nágrannaríkjum Bólivíu, mest til
Kólumbíu og Brasilíu, þar sem
stappan er síðan fullunnin áður en
afraksturinn er sendur á markað í
Bandaríkjunum og Evrópu.
Yfirstjóm eiturlyfjaherferðarinnar
verður í höndum Fernando Barth-
elemy, innanríkisráðherra Bólivíu,
er flaug ásamt Bandaríkjamönnun-
um og liðssveitum úr stjómarher og
lögreglu til Trinidad, um 415 kíló-
metra fyrir norðan höfúðborgina La
Paz.
Að sögn bólivískra lögregluyfir-
valda taka á sjöunda hundrað her-
og lögreglumanna þátt í herferðinni
er standa mun í ótilgreindan tíma.
Samkvæmt stjómarskrá Bólivíu
þarf samþykki þingsins til að leyfa
hermönnum erlends ríkis inngöngu
í landið, en haft er eftir Gaston Enc-
inas, þingforseta neðri deildar
bólivíska þingsins, að enn hafi
stjómvöld ekki farið fram á að slíkt
leyfi verði veitt.
Talsmenn Bandaríkjahers sögðu í
gærkvöldi að hlutverk hermann-
anna væri fyrst og fremst að vera
til aðstoðar og ráðleggingar og að
hermennimir myndu ekki taka bein-
an þátt í áhlaupum á aðsetur eitur-
lyfjasmyglaranna.
Sexfaldar útflutningstekjur
Bólivíu
Talsmaðurinn staðfesti ennfremur
að Bandaríkjamennimir hefðu fyrir-
skipanir um að beita ekki skotvopn-
um nema á þá sé ráðist.
Utanríkisráðuneytið í Washington
áætlar að heildarframleiðsla kóka-
ínstöppu í Bólivíu á síðasta ári hafi
ekki verið undir 32 þúsund tonnum,
hráefrú sem að minnsta kosti 84 tonn
af fullunnu kókafni fást úr.
Þingnefnd á vegum bólivísku öld-
ungadeildarinnar áætlaði í skýrslu
fyrr á þessu ári að kókaínræktendur
í landinu hefðu velt að minnsta kosti
3,3 milljörðum Bandaríkjadollara á
síðasta ári, eða meira en sexfaldar
útflutningstekjur landsins á árinu.
Sveit á annað hundraö bandarískra hermanna er nú komin til borganna Trinidad og Santa Cruz í Bólivíu til að
aðstoða þarlend yfirvöld í baráttunni við ræktendur kókaínplöntunnar. Trinidad er inni á miklu frumskógasvæði
Bólivíu þar sem talið er að kókainræktendur séu afkastamiklir.
Umsjón: Hannes Heimisson og Ólafur Arnarson