Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1986, Qupperneq 28
40
FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1986.
Andlát
Sigurbjörn Ingþórsson lést 6. júlí
sl. Hann fæddist 17. júlí 1934. Hann
var sonur Unu Pjetursdóttur og Ing-
þórs Sigurbjörnssonar. Sigurbjörn
lauk námi i Tónlistarskólanum í
Reykjavík og hélt síðan til Þýska-
lands á tónlistarskóla í Hamborg.
Að námi loknu réðst hann til Sin-
fóníuhljómsveitar íslands og lék þar
um tveggja áratuga skeið. Útför hans
var gerð frá Frikirkjunni í morgun.
Sigurborg Pétursdóttir, Asvalla-
götu 59, lést í Borgarspítalanum 8.
júlí sl. Jarðarförin hefur farið fram
i kyrrþey að ósk hinnar látnu.
' Kristján H. Guðmundsson, áður
til heimilis að Steinagerði 3, andað-
ist á Hrafnistu miðvikudaginn 16.
júlí.
Jakobína Þórðardóttir, síðast til
heimilis að Hverfisgötu 83, Reykja-
vík, andaðist á Hrafnistu, Hafnar-
firði, 16. júlí sl.
Sigríður Sveinsdóttir, Nönnugötu
18, andaðist á Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund 16. júlí.
Kristján Samúelsson, Grenimörk
1, Selfossi, lést í Sjúkrahúsi Suður-
iands 16. júlí.
Útför Önnu Brynjúlfsdóttur,
Tryggvagötu 3, Selfossi, fer fram frá
Selfosskirkju laugardaginn 19. júli
kl. 13.30.
Útför Þorsteins Georgs Jónasson-
ar, Ljósalandi, Hveragerði, fer fram
frá Hveragerðiskirkju laugardaginn
19. júlí kl. 14.
Útför Katrínar Aðalbjörnsdóttur,
Hvolsvegi 25, Hvolsvelli, sem lést 10.
júlí sl., fer fram frá Stórólfshvols-
kirkju laugardaginn 19. júlí nk. kl.
14.
Útför Guðmundar Óskars Guð-
mundssonar bónda, Seljalands-
búinu, ísafirði, verður gerð frá
Isafjarðarkirkju laugardaginn 19.
júlí kl. 14.
Halldóra Guðrún Halldórsdóttir,
Oddabraut 10, Þorlákshöfn, verður
jarðsungin frá Strandakirkju í Sel-
vogi laugardaginn 19. júlí kl. 11 fyrir
hádegi.
Sæmundur Kr. Jónsson veggfóðr-
arameistari, Nökkvavogi 9, verður
jarðsunginn frá Langholtskirkju í
dag, föstudaginn 18. júli, kl. 15. Jarð-
sett verður í Fossvogskirkjugarði.
Tilkyimingar
Gjafir í minningarsjóð
Halldórs Jónssonar
Að undanfömu hafa „Minningarsjóði
Halldórs Jónssonar o.fl. til byggingar elli-
"heimilisins í Vík“ borist tvær stórar gjafir.
Annars vegar ákváðu ábyrgðarmenn
Sparisjóðs Vestur-Skaftafellsssýslu á
fundi sl. haust að afhenda minningar-
sjóðnum afganginn af eignum sjóðsins, en
þær munu vera um 820.000,- kr. Hins veg-
ar færðu þau feðginin Ólafur Jónsson og
Sigríður Olafsdóttir sjóðnum að gjöf nú í
vor húseignina Bakkabraut 3, Vík í Mýr-
dal, til minningar um eiginkonu Ólafs,
Ingibjörgu Elísabetu Ásbjömsdóttur. Vill
sjóðsstjómin nota þetta tækifæri til að
færa opinberlega öllum hlutaðeigandi
innilegar þakkir fyrir þessar höfðinglegu
gjafir og vonar jafnframt að þessi rausnar-
legu framlög verði til þess að aftur verði
hafist handa um byggingu elliheimilis í
Vík. Em þau mál nú í athugun og heitir
sjóðurinn á alla áhugamenn um þetta
málefni að ljá því stuðning.
Útihátíð í Þjórsárdal
Héraðssambandið Skarphéðinn stendur
fyrir útihátíð í Þjórsárdal um verslunar-
mannahelgina og ber hún yfirskriftina
Gaukurinn 86. Að vanda verður mikið lagt
í hátíðina og allt gert til að gera hana sem
g^glæsilegasta, dansleikir verða föstudag,
laugardag og sunnudag og munu hljóm-
Afmæli
Þórhallur Sigurðsson leikari:
sveitimar MX21, sem er ný hljómsveit
Bubba Mortens, Skriðjöklar frá Akureyri
og stuðhljómsveitin Lótus frá Selfossi sjá
um fjörið öll kvöldin. Á laugardag og
sunnudag verður sérstök hátíðardagskrá
og fram koma meðal annars Bjami
Tryggvason og hljómsveit, dúettinn Svart
og hvítt með þá Jón Gústafsson og Abudu.
Leikararnir Sigurður Sigurjónsson, Karl
Ágúst Úlfsson og Örn Ámason skemmta,
sýndur verður dans og bardagaíþróttir,
keppt 1 íþróttum og skotið upp flugeldum.
Einnig munu MX21 og Skriðjöklar koma
fram á tónleikum kl. 15 báða dagana.
Héraðssambandið Skarphéðinn saman-
stendur af 34 íþróttafélögum og munu
sjálfboðaliðar úr þessum félögum skila um
6500 tímum í sjálfboðavinnu.
Ályktun samráðsfundar
samninganefnda aðildarfé-
laga BHMR og launamála-
ráðs sem haldinn var að
Lágmúla 7,9.7.1986.
Með þeim dómum sem Kjaradómur hefur
nú kveðið upp í málum aðildarfélaga
BHMR bregst dómurinn þeirri lagalegu
skyldu að leiðrétta kjör félagsmanna.
Þetta er gert með rangtúlkun á lögum og
fullkomnu skilningsleysi á framlögðum
gögnum. Með almennum hækkunum um
6-9% frá 1. mars sl. sýnir dómurinn einu
sinni enn að lög og rök eru honum létt-
væg, þrátt fyrir ótvíræðar yfirlýsingar
ríkisstjómar og fjármálaráðherra um að
leiðrétta bæri laun háskólamenntaðra rík-
isstarfsmanna. Kjaradómur afhjúpar
starfshætti sfna með ítrekuðum rangfærsl-
um í forsendum dómsins.
Fundurinn skorar á launamálaráð að
segja þegar í stað upp gildandi samningum
og knýja á um fullan samningsrétt. Jafn-
framt hvetur fundurinn félagsmenn til að
leita allra leiða í kjarabaráttunni.
Séra Ólafur Jens Sigurðsson
ráðinn fangaprestur
Biskup íslands hefur ráðið sr. Ólaf Jens
Sigurðsson til embættis fangaprests í stað
séra Jóns Bjarman, sem tekið hefur við
starfi sjúkrahússprests. Sr. Ólafur Jens er
42 ára, fæddur og uppalinn í Reykjavík.
Hann lauk stúdentsprófi frá Verslunar-
skóla íslands 1963 og kandídatsprófi í
guðfræði frá Háskóla íslands 1972 og hlaut
prestvígslu sama ár. Hann hefur þjónað
Hvanneyrarprestakalli í Borgarfirði síðan
1973. Sr. Ólafur Jens lauk prófi í kenni-
mannlegri guðfræði við St. Andrewshá-
skólann í Skotlandi, einnig hefur hann
verið við nám í sálgæslu, bæði í Bandaríkj-
unum og Danmörku. Kona hans er Ólöf
Helga Halldórsdóttir og eiga þau fjögur
böm.
Nýir aðilar taka við Esjubergi
Nýir aðilar hafa tekið við rekstri Esju-
bergs, hins vinsæla veitingastaðar á Hótel
Esju í Reykjavík. Það er hlutafélagið
Glanni sem nú annast reksturinn en að
því standa tveir þrautreyndir menn í þess-
ari grein, þeir Kristján Daníelsson, sem
var veitingastjóri á Hótel Esju og Völund-
ur Þorgilsson, yfirmatreiðslumaður
Esjubergs. Á Esjubergi eru framreiddar
allar veitingar og er opið frá kl. 8 að
morgni til 22 að kvöldi alla daga vikunnar
en hótelgestir fá afgreiddan morgunmat
Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal
í sumar verður þjóðveldisbærinn í Þjórs-
árdal opinn daglega kl. 13-17. Á undan-
fömum árum hefur aðsókn verið góð í
bæinn. Eins og mörgum er kunnugt er
þjóðveldisbærinn eftirlíking af bæ frá
þjóðveldisöld. Hann er hugarsmíð Harðar
Ágústssonar listmálara og lagði hann
rústimar á Stöng til grundvallar við hönn-
un bæjarins sem og aðrar heimildir, bæði
skriflegar og uppistandandi mannvirki í
nágrannalöndum, þá aðallega Noregi, sem
eiga rætur sannarlega að rekja aftur til
Útvaip - sjónvarp
70 ára er í dag, 18. júlí, Arnþór
Guðmundsson frá Krosshúsum í
Flatey á Skjálfanda, til heimilis að
Oddeyrargötu 3, Akureyri. Hann
dvelur nú ásamt konu sinni, Maríu
Hauksdóttur, á Hótel Valhöll á
Þingvöllum.
70 ára er í dag, ,18. júlí, Bjarni Guð-
mundsson til heimilis á Blikabraut
9, Keflavík. Hann verður að heiman.
„Ljúft og átakalítið
útvarpskvöld"
Breskir og írskir skátar
á ferð um Island
Dagana 22. júlí til 7. ágúst munu fjörutíu
og sjö breskir og írskir skátar á aldrinum
16-20 ára dvelja á Islandi. Ætla þeir að
ferðast mikið á svæðinu milli Reykjavíkur
og Þórsmerkur meðan á heimsókn þeirra
stendur. Tilgangur ferðarinnar er að fræð-
ast um Island, íslendinga og íslenska
lifnaðarhætti. Þeir verða að ferðast gang-
andi um Suðausturland og ekki ganga
skemmri vegalengd en 200 km. Á leiðinni
eiga þeir að ljúka 12 verkefnum upp á eig-
in spýtur. Þessi leiðangur er skipulagður
af skátahreyfingum Irlands og Bretlands
í samvinnu við Bandalag íslenskra skáta.
Þetta er í fyrsta skipti sem leiðangur þessi
kemur til íslands og er vonast til að íbúar
þess svæðis sem leiðangursfaramir ferðast
um taki vel á móti þessum erlendu gestum
í viðleitni þeirra til að kynnast landi og
þjóð.
Ríkismat sjávarafurða
Út er komið 9. tölubiað fréttabréfs Ríkis-
mats sjávarafurða. í fréttabréfinu eru m.a.
teknar saman helstu niðurstöður af gæða-
mati á síðustu vertíð og sýnd heildarút-
koma fyrir hverja höfn. Á grafi eru sýnd
áhrif helgarfría á gæði netafisks. Þar sést
glögglega að fiskur, sem landað er á mánu-
dögum, er mun lakari en fiskur sem landað
er aðra daga. Margar spurningar vakna
varðandi netaveiðar. Ámi Benediktsson
varpaði því fram í hringborðsumræðum
um „aukin gæði og bætta meðferð afla“
að ná megi öllum þeim fiski með öðrum
veiðarfærum, sem veiddur er í net, þannig
að hann færi í fyrsta gæðaflokk. Hann
telur það vera spumingu hvort veiða eigi
fisk í net ef við getum ekki náð betri gæð-
um en nú er. Ríkismat sjávarafurða vonast
til-að þær upplýsingar sem birtar hafa
verið í fréttabréfinu geti orðið grundvöllur
fyrir frjóa og faglega umræðu um þessi
mál.
Ályktun um niðurstöður
Kjaradóms
varðandi launamál BHMR
„Stúdentaráðsliðar Félags vinstrimanna
(FVM) í Háskóla íslands harma niður-
stöðu Kjaradóms í máli BHMR og lýsa
yfir fullum stuðningi við baráttu BHMR
fyrir leiðréttingu á launakjörum háskóla-
manna. Það er krafa FVM að kennarar
við Háskóla íslands geti sinnt kennslu og
rannsóknum heilir og óskiptir og geti haft
af því framfæri sitt og fjölskyldu sinnar.
FVM bendir á mikilvægi þess að til starfa
við háskólann fáist jafnan hæfustu starfs-
kraftar sem völ er á og að þar eigi
háskólinn í samkeppni við launakjör á
almennum markaði og rannsóknastofnan-
ir erlendis." Samhljóða ályktun var borin
upp í nafni stúdentaráðs Háskóla íslands
(SHl) á stúdentaráðsfundi 15. júlí af stúd-
entaráðsliðum FVM. Henni var vísað frá
af meirihluta Vöku og Stíganda með tilvís-
un í samstarfssamning þeirra. Við slík
málalok getum við (FVM) ekki unað og
sendum því fjölmiðlum okkar samþykkt
varðandi launamál BHMR og sendum
þeim baráttukveðjur.
Tapað - Fundið
Verkfærabox tapaðist
Smiður varð fyrir því óláni að tapa bláu
verkfæraboxi með verkfærum sínum í.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma 42965.
Fundarlaun.
Ég hlustaði bara á alla kvölddag-
skrá útvarpsins í gær, það er að segja
á rás eitt. Það gerir maður ekki oft.
Það er þægilegt að hlusta á útvarp,
jafrivel hægt að dunda við hitt og
þetta á meðan. Sjónvarpið étur
mann alveg. Kvöldfréttir, fastir liðir
eins og venjulega. Haiskipsmálið
“fúll- rannsakað" en ekki virðist eiga
að rannsaka þá þætti sem skipta
kannski mestu máli og svo hinir
sprellfjörugu fréttaritarar víða utan
úr heimi. Ég reyni að missa aldrei
af sjö fréttunum.
Guðmundur Sæmundsson var al-
veg passlega óhátíðlegur í daglegu
máli, talaði um eignarfallsess á er-
lendum sémöfhum. Mér finnst sjálf-
um miklu nær að fara til Japans en
að fara til Japan. Svo kom leikritið,
hungömul dönsk kómedía sem varð
bara skemmtileg, sérstaklega þegar
Gunna Stef. sagði Erlingi að hann
hefði unnið stóra vinninginn í happ-
drættinu. Þau voru alveg dásamleg
og Magga og Edda líka. Reykjavík
í augum skálda er notalegur þáttur
sem minnti mig á að ég á enn eftir
að lesa síðustu bókina um Pál Stef-
ánsson blaðamann, Dreka og
smáfugla. Hún bíður uppi í hillu.
Það var nautn að lesa Seið og hélog
og næst þegar ég fæ næði ætla ég
að lesa lokin á þessari einstöku
skáldsögu Ólafs Jóhanns sem hann
var að skrifa í þrjátíu ár. Finnski
ljóðasöngurinn var ágætlega þung-
lyndislegur en hápunktur kvöldsins
var þó Sunnudagur, verðlaunasagan
hans Úlfs Hjörvars sem hann las
fallega. Manni fannst sagan af
stráknum geta orðið miklu lengri en
þannig eiga auðvitað smásögur að
enda. Dagskránni lauk á spjalli um
Bach og tónlist hans. Sem sagt hið
ljúfasta útvarpskvöld, átakalítið.
íslenskar bókmenntir í
„opnu húsi“
Heimir Pálsson menntaskólakennari ræð-
ir um íslenskar bókmenntir í opnu húsi í
Norræna húsinu í kvöld, 17. júlí, kl. 20.30.
Fyrirlesturinn verður fluttur á sænsku.
Að loknu kaffihléi verður sýnd kvikmynd
Ósvalds Knudsen, Sveitin milli sanda, með
norsku tali. Eins og fram hefur komið er
dagskrá þessi einkum ætluð norrænum
ferðamönnum og öðrum sem áhuga hafa.
Bókasafnið og kaffistofan verða opin til
kl. 22. Aðgangur er ókeypis.
fyrir kl. 8 ef þeir óska. Innan Esjubergs
er líka sérsalur, Kiðaberg, þar sem þjónað
er til borðs. Ýmsar breytingar eru fyrir-
hugaðar á Esjubergi og koma þær til
framkvæmda í haust. Hins vegar hefur
úrval veitinga þegar verið aukið og mikil
áhersla lögð á góða þjónustu. Esjuberg
hefur jafnan verið einn vinsælasti veit-
ingastaður borgarinnar, enda í alfaraleið,
og er það von hinna nýju rekstraraðila
að gestir kunni vel að meta aukna og
bætta þjónustu á staðnum. Þar er rúm
fyrir 180 gesti í senn.
miðalda. Óhætt mun að fullyrða að þjóð-
veldisbærinn hefur vakið verðskuldaða
athygli bæði meðal innlendra og útlendra
gesta, og að sögn bæjarvarðar, sem nú er
Ásólfur Pálsson á Ásólfsstöðum, koma
margar spurningar upp í huga gesta þegar
gengið er um og kringum bæinn. Stjórn
bæjarins og rekstur er nú í höndum nefnd-
ar sem er skipuð af forsætisráðuneytinu
og eiga í henni sæti fulltrúar frá Þjóð-
minjasafni íslands, Landsvirkjun og
Gnúpverjahreppi. Sem fyrr segir verður
bærinn opinn til sýnis frá kl. 13-17 dag-
lega í sumar.
80 ára verður sunnudaginn 20. júlí
Samúel Jónsson, fyrrum bóndi á
Snjallsteinshöfða í Landsveit, nú til
heimilis á Freyvangi 12, Hellu. Hann
mun taka á móti gestum á afmælis-
daginn milli kl. 15 og 18 í Félags-
heimilinu Brúarlandi, Landsveit,