Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1986, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1986.
19
Sigurður G. Tómasson og Vilborg Halldórsdóttir að loknum fyrsta þættinum á Bylgjunni. DV-mynd PK
-sagði Sigurður G. Tómasson eftirfyrstu útsendinguna
Með Sigurði við hljóðnemann
þennan fyrsta morgun var Vilborg
Halldórsdóttir sem í framtíðinni á
eftir að koma meira við sögu á Bylgj-
unni. Hún hefur tekið að sér kvöld-
þætti þannig að eldraunin hennar í
útsendingunum bíður þess að dag-
skrá stöðvarinnar nái fullri lengd nú
eftir helgina.
„Hún var bjargvætturinn minn í
þættinum," segir Sigurður. „Mér
finnst líka betra að hafa tvær raddir
í svona þætti og hafa þá karlrödd og
kvenrödd. Það hljómar betur. En ég
veit ekki hvort þetta er karlrembu-
sjónarmið eða einfaldlega kven-
semi.“
Fyrsti gestur Sigurðar var Davíð
Oddsson borgarstjóri, sem ræddi
stemmninguna á afmælisári borgar-
innar og valdi lög við hæfi. „Svona
fínir gestir setja jafnlítillátan og
feiminn mann og mig út af sporinu.
Ég týndi fóninum í eins og fimm
mínútur sem er heil eilífð í útsend-
ingu.“
„Það koma alltaf fram hnökrar,
Sigurður," grípur Einar útvarps-
stjóri fram í. „Við skulum ekki gera
okkur grillur. Málin verða að fá að
þróast. Það er útilokað að allt geti
gengið snurðulaust á fyrsta degi.“
Og útvarpsstjórinn er rokinn með
það sama.
- En Sigurður, nú hefur þú verið
kenndur við vinstrimennsku en nýj-
ungamar í fjölmiðluninni eigna
menn hægri mönnum. Ert þú ekki á
rangri hillu?
„Ef við vinstrimenn ætluðum að
útiloka okkur frá öllum kapítalisma
gætum við ekki einu sinni farið út í
búð. Það er fáviska að ætla sér að
loka augunum fyrir því sem er að
gerast. Við verðum að vera með. En
hér vinn ég sem dagskrárgerðarmað-
ur og gegni ekki öðrum skyldum en
að vinna mín verk af fagmennsku.
Það eru einu skilyrðin sem mér eru
sett.“
- Þú ert þekktastur fyrir að gagn-
rýna fjölmiðlamenn fyrir vont
málfar. Öttastu ekki að nú vilji
margir hefna sín?
„Ég á fátt mér til afsökunar en ég
hef margoft sagt að það gildir ekki
það sama um talað mál og ritað. En
Við eigum 40 ára afmæli mánudaginn 1. september og ætlum að bjóða gestum og gangandi
að njóta með okkur veitinga og léttrar tónlistar í Samvinnutryggingahúsinu Ármúla 3, í tilefni
Veitingar verða einnig á boðstólum á stærstu
umboðsskrifstofum okkar úti á landi.
Sjáumstámánudaginn
„Það er ef til vill mont að líkja
útsendingu í útvarpi við lífsháska en
þessir fyrstu tveir tímar voru mesta
martröð lífs míns,“ sagði Sigurður
G. Tómasson, stjórnandi morgun-
þáttarins á Bylgjunni. „En það er
gaman að þessu,“ bætti hann við um
leið og hurðin að hljóðstofunni féll
að stöfum.
„Ég sé strax að það eru hundrað
hlutir sem þarf að endurbæta og það
verður gert. Það er meira en að segja
það að vera í tveggja tíma beinni
útsendingu og stjórna öllu,“ sagði
Sigurður. Það er nýmæli hjá Bylgj-
unni að hafa ekki tæknimenn við
útsendingar heldur sjá dagskrár-
gerðarmenn einnig um þá hlið mála.
„Það er erfiðara að hafa ekki
tæknimann sér til halds og trausts,"
segir Sigurður, „en fyrir utan spam-
aðinn fyrir stöðina í mannahaldi þá
þýðir þetta að dagskrárgerðarmenn-
irnir verða miklu nákomnari hlust-
endum.“
Ætlar þú að leggja áherslu á per-
sónulegan stíl í þáttum þínum?
„Ég hef aldrei hugsað mér að
stillinn verði persónulegur í því sem
ég hef áður gert fyrir útvarp en hver
maður hefur sinn stíl og hann kemur
fram hvort sem mönnum líkar betur
eða verr. Fyrirmyndir mínar eru Jón
Múli og Pétur Pétursson. Þeir hafa
talað við hlustendur eins og fólk. Ég
vil endilega ná því.“
ég er orðinn það sjóaður að ég er
ekkert hræddur við gagnrýni," sagði
Sigurður G. Tómasson.
GK
SAMVINNU
TRYGGINGAR
„Mesta
martröð
lífs míns‘ *