Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986.
Utlönd
Fjöldi flóttamanna marg-
faldast á einum áratug
TóH milljónir flóttamanna hírast nú við illan leik í flóttamannabúðum víös vegar um heim eftir að hafa orðið að
flýja heimkynni sín sökum stríðsátaka og náttúruhamfara.
Tólf milljónir flóttamanna hírast
nú við illan leik í flóttamannabúðum
um allan heim eftir að hafa orðið
að flýja heimkynni sín sökum
stríðsátaka, borgarastyijalda og
hungursneyðar, samkvæmt nýjustu
tölum alþjóðlegra hjálparstofaana
er haft hafa málefai flóttafólks á
sinni könnu.
í kjölfar stofaunar Sameinuðu
þjóðanna eftir síðari heimsstyrjöld
tók sérstök stofaun S.Þ., fyrirrennari
núverandi Flóttamannastofaunar
samtakanna, að sér málefai yfir þrjá-
tíu milljóna flóttamanna um heim
allan er hvergi áttu höfði sínu að
að halla eftir hildarleik heimsstríðs-
ins.
Frá árinu 1947 tókst stofauninni
að búa yfir einni milljón flóttamanna
öruggt heimili á fjórum árum.
Vandamálið breyst
Á síðasta áratug hefur eðli flótta-
mannavandamálsins töluvert breyst
frá fyrstu árum efitir síðari heims-
styrjöld. Hefúr áratugurinn ein-
kennst af milljónum flóttamanna er
flýja heimalönd og leita hælis í fjar-
lægum ríkjum, oft í öðrum heimsálf-
um. Er þar skemmst að minnast
bátafólksins svokallaða frá Víetnam
er í tugþúsundatali hefur flúið
kommúnistastjómina í
heimalandinu og nú á síðustu vikum
á annað hundrað tamílskra flótta-
manna er bjargað var undan strönd
Nýfundnalands á bátkænum í tví-
sýnu veðri.
Á síðasta áratug hefur fjöldi flótta-
manna í heiminum margfaldast.
Mesti flóttamannastraumurinn er
til kominn vegna stríðsátakanna í
Afganistan, eftir innrás Sovétmanna
i landið árið 1979. Á skömmum tíma
neyddust milljónir Afgana til að flýja
föðurland sitt vegna harðnandi
stríðsátaka í heimahémðum.
Flóttamannastraumur Afgana er
mestur til nágrannalandsins, Pakist-
an, er orðið hefúr að leita aðstoðar
alþjóðlegra hjálparstofaana við að
hýsa og vista þær þijár milljónir
Afgana sem talið er að flúið hafi til
Pakistan á síðustu sjö árum.
Afganir hafa einnig flúið yfir til
Iran og áætla þarlend stjómvöld að
rúmlega tvær milljónir Afgana hafi
nú varanlegt aðsetur í Iran.
Annað meginverkefai alþjóðlegra
flóttamannastofaana er vandamál
Palestínumanna er barist hafa fyrir
stofaun sjálfetæðs ríkis Palestínu-
manna í áratugi. Frá stofaun ísraels-
ríkis árið 1949 hefur þjóð Palestínu-
manna ekki fundið sér griðastað og
hefur haft aðsetur í fjölmörgum ríkj-
um fyrir botni Miðjarðarhafe.
Hjálparstofaanir áætla fjölda
heimilislausra Palestínumanna að
minnsta kosti tvær milljónir. Palest-
inuvandamálið er meginorsök þeirra
átaka og spennu er ríkt hefur í Mið-
austurlöndum frá stofaun Ísraelsrík-
is í landinu helga, landsvæði er
Palestínumenn telja sitt og stofaa
vilja þjóðríki sitt á.
Af öðrum svæðum veraldar, er átt
hafe við alvarleg flóttamannavanda-
mál að stríða síðustu ár, má nefaa
Mið-Ameríku þar sem hundruð þús-
unda hafa orðið að flýja heimili sín
sökum stríðsátaka. Hjálparstofaun-
um hefúr ekki orðið eins ágengt með
aðstoð við heimilislausa í Mið-
Ameríku sökum ótryggs ástands í
heimshlutanum og þeirrar stað-
reyndar að flóttamannavandamálið
er útbreitt í flestum ríkjum álfunnar
og þar af leiðandi ekki um marga
griðastaði að ræða fyrir þá íbúa álf-
unnar er flúið hafa ástandið í
heimahéruðum.
Hjálparstofaanir áætla að aðeins
hafi tekist að aðstoða um 120 þúsund
flóttamenn Mið-Ameríku frá þvi
borgarastríðið í Nicaragua braust
út af alvöru árið 1979.
Alltlagtað veði
Langvarandi þurrkar í Afríku, sér-
staklega í Eþíópíu undanfarin þijú
ár, hafa skapað miklar hörmungar í
heimsálfunni. Milljónir hafa látist
úr hungri og enn fleiri orðið að flýja
harðindi heima fyrir. Hjálparstofa-
anir áætla að aðeins í nágrannarík-
inu Súdan, er einnig hefúr orðið illa
úti sökum langvarandi þurrka, séu
nú rúmlega 700 þúsund flóttamenn
frá Eþíópíu.
í Austurlöndum fjær bíða tug-
þúsundir flóttamanna eftir að
komast úr landi og hefja nýtt líf í
nýjum heimkynnum. Tugþúsundir
hafa lagt líf sitt að veði og flúið land
á yfirfullum smábátum og freistað
þess að komast í var á erlendri
strönd þar sem hægt væri að hefja
nýtt líf.
Aðeins í Thailandi eru nú 120 þús-
und flóttamenn frá Víetnam er bíða
eftir tækifæri til að komast til Evr-
ópu eða Norður-Ameríku til að hefja
þar nýtt líf. Að auki fjölgar nú flótta-
mönnum stöðugt á Sri Lanka, er
flúið hafa átök tamíla við
stjómarher landsins, og í suðurhluta
Afríku, er flosnað hafa upp frá
heimilum sínum í kjölfeir átaka og
vaxandi spennu í samskiptum Suð-
ur-Afríkulýðveldisins og blakkra
nágrannaríkja í norðri.
Endalok Persaflóastríðs ekki fyrirsjáanleg
Styijöldin við Persaflóa hefúr nú
staðið í sex ár og segja sérfræðingar
að litlar horfúr séu á því að þessi
styijöld, sem sundrað hefúr aröbum,
fái skjótan endi. Sáttatilraunir
ýmissa aðila, allt frá Sameinuðu
þjóðunum til samtaka múhameðs-
trúarmanna og samtaka óháðra
ríkja, hafe verið árangurslausar.
Stjómvöld í Kuwait sögðu í síðast-
liðnum mánuði að þess væri vænst
að rætt verði um friðartilraunir á
fundi stórveldanna síðar á þessu ári.
Sendifulltrúar á staðnum draga í efa
að stórveldin geti komið einhverju
til leiðar, sérstaklega þar sem and-
legur leiðtogi írans, ayatollah
Khomeini, hefur eindregið hafaað
hvers konar gerðardómi. Segir hann
að baráttan haldi áfram þar til sigur
hefúr unnist og fúllyrðir hann að það
verði fljótlega.
Skilyrði
Friðarskilyrði íraks eru þau að
íran afturkalli allt herlið sitt til
landamæra sem em viðurkennd á
alþjóðlegum vettvangi, að skipst
verði á öllum stríðsfongum og að
löndin skipti sér ekki af innanríkis-
málum hvort annars.
íran fer fram á að írak afturkalli
allt herlið sitt, að Saddam Hussein
forseti og stjóm hans fari frá völdum
og að greiddir verði margir milljarð-
ar dollara í viðgerðarkostnað.
Arabaríkin við Persaflóa og flest
önnur arabaríki styðja írak, en
Líbýa og Sýrland, sem em óvinveitt
stjóminni í írak, veita stjóminni í
Iran stuðning sinn.
Erfitt er að komast að raun um
óánægju almennings með stríðið í
báðum löndunum þar sem andstaða
gegn því er ekki liðin. I íran er til
dæmis litið á það sem vott um stuðn-
ing við byltinguna þegar menn em
fiísir til að berjast.
Gamall fjandskapur
Það hefúr löngum ríkt fjandskapur
milli araba og Persa en aðalorsökina
til stríðsins má rekja til óánægju
íraks með samkomulag sem gert var
1975 um landamærin meðfram Shatt
al-Arab simdinu. írak óttaðist einnig
útbreiðslu múhameðstrúar og
stjómmálaöngþveiti eftir byltinguna
í Iran 1979.
Er sagt að írak hafi talið það auð-
veldan leik að ráðast á íran vegna
ringulreiðar eftir byltinguna. En
Persar sóttu á og 1982 hafði herlið
íraks hörfað aftur til landamæranna.
Hvomgur aðilinn hefúr gefið upp
tölur yfir fjölda fallinna. Samkvæmt
bandarískum heimildum er tala fall-
inna í íran 235.000 og 400.000 hafa
særst. írak hefur misst 80.000 her-
menn og 170.000 hafa særst. Alþjóða
Rauði krossinn segir að íran sé með
70.000 stríðsfanga í haldi og írak
með milli 10.000 og 15.000.
Allar sáttatilraunir til að binda enda
á Persafióastríðið hafa verið árang-
urlausar
Hergögn erlendis frá
írak notar erlend hergögn, sér-
staklega frá Sovétríkjunum og
Frakklandi, og hefúr þar með greið-
an aðgang að mikilvægum varahlut-
um en íran hefur þurft að reiða sig
á það sem alþjóðlegur markaður
hefur upp á að bjóða. Það hafa þó
komið upplýsingar frá Bandaríkjun-
um þess efais að Kína sjái íran fyrir
vopnum. Sendifulltrúar í Asíu álíta
að Norður-Kórea útvégi íran vopn.
Báðir aðilar hafa beðið mikið fjár-
hagslegt tjón og sömu sögu er að
segj a um litlu ríkin í kring. Gj aldeyr-
isforði íraks var 35 milljarðar dollara
fyrir stríðið en er nú minni en 1
milljarður dollara. Skuldimar eru
aftur á móti orðnar 40 milljarðar
dollara. Iran hefur að miklu leyti
getað komist hjá því að taka erlend
lán en lækkun olíuverðs hefur gert
ástandið verra.
Umsjón: Hannes Heimisson og Ingiþjörg Bára Sveinsdóttir