Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Page 32
44
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
Tom Cruise
átrúnaðargoði ungmeyja og
kyntrölli yngri kynslóðarinnar í
Bandaríkjunum brá heldur í
brún þegar hann varð var við
að fylgst væri með hverri hreyf-
ingu hans. Honum varð Ijóst að
einhverjir óprúttnir sátu í næsta
húsi við hann uppi í háloftum
New York borgar og horfðu á
hann í gegnum sjónauka. Tom
hringdi á lögregluna og lét hana
vita af þessari ósvífni og gripu
verðir laganna gluggagægjana
glóðvolga. Reyndust þetta vera
táningsstelpur sem lágu þarna í
glugganum öllum stundum án
vitundar foreldra sinna. Faðir
þeirra hringdi fljótlega í Tom og
bað hann afsökunar, sagði hann
að stúlkunum hefði verið refsað
og hann hefði í hyggju að byrgja
fyrir glugga þeirra. Tom var farið
að þykja nóg um öil lætin og
til að allt félli í Ijúfa löð bauð
hann stelpunum i mat - en auð-
vitað ekki fyrr en þær höfðu
lofað að hætta öllum gægjum í
framtíðinni.
Joan Collins
er ekki beint vinsæl um þessar
mundir. Þykir meðleikurum
hennar hún heldur leiðinleg og
mikil með sig. Nýlega fór fram
golfmót á Hawaii og í hléi var
háð kokkteildiykkjasamkeppni
þar sem frægir leikarar voru
dómendur. Voru dæmdir drykkir
áhugamanna um kokkteil-
drykkjagerð. Einn dómenda var
John Forsythe, sá er leikur
Blake Carrington í Dynasty.
Hann tók sér sopa af glæsilega
skreytum drykk sem hafði verið
gefið nafnið „Tom Collins" og
yggldi sig. „Úff, þetta bragðast
miklu frekar eins og Joan Coll-
ins," sagði leikaririn með viðeig-
andi andlistfettum. Var mikið
hlegið og klappað fyrir þessari
einkunn og segja fróðir menn
að drykkurinn hafi hafnað neðst
í samkeppninni.
Don Johnson
svellkaldi harðjaxlinn úr lög-
regluþáttunum „Miami Vice"
tókst að skjótast í sumarfrí með
kærustu sinni, Patti D'Araban-
ville, og syni þeirra, Jesse, sem
er ársgamall. Leiðin lá til Evrópu
og var Donnsi alveg með lífið í
lúkunum um að hryðjuverka-
menn myndu hafa hann að
skotspæni í orðsins fyllstu merk-
ingu. Ákvað hann að nota
byssumennt sína úr vinnunni
og tók byssu með sér í farangur-
inn. Lét hann flugfélagið síðan
vita af því til að sleppa við vand-
ræði en þar á bæ voru menn
alls ekki samvinnuþýðir og fékk
Donnsi ekki að hafa byssuna
með sér. Nú voru góð ráð dýr
en til að leysa málið leigði hann
2 lífverði, rakaði af sér skegg-
broddana og dekkti Ijósu
lokkanna. Tókst Evrópuferðin.
án vandræða.
Hér má sjá flykkið í allri sinni dýrð og bendir örin á manngreyið sem er
að bardúsa við tennur þess.
Maður étíirn
lifandi
Það varð heldur betur uppi fótur
og fit við Cabazon í Kalifomíu þegar
fólk varð vart við að uppi í forsögu-
legri ófreskjunni sat maður á milli
tannanna. Virtist sem hann væri að
bursta tennurnar á ófreskjunni og
una sér hið besta. Eitthvað af fínum
frúm féll í öngvit og hugrakkir menn
kölluðu upp til hans hvort allt væri
ekki í hinu mesta lagi. Svo reyndist
og vera. Ófreskjan var ekki lifandi
eins og flesta hefur sjálfsagt rennt
grun í enda búin að vera útdauð í
milljónir ára og maðurinn sat þarna
af fúsum og ffjálsum vilja. Reyndar
var hann að vinna að viðgerðum á
þessum 5 'A hæða tyrannosaurus rex
og lauk hann þeim viðgerðum með
því að mála tennumar á dýrinu svo
allt liti nú raunvemlegar út.
Þessi forsögulegi gripur var búinn
til af 89 ára gamalli konu, hverri
skemmtilegast þykir að lesa sér til
um risaeðlur og líf á jörðinni á for-
sögulegum tíma. Sú gamla, sem
reyndar heitir Claude Bell, hefur
ekki látið sér nægja að lesa bækur
og láta ímyndunaraflið og teiknaðar
myndir færa sig inn í heim risaeðl-
anna heldur hefur sjálf staðið fyrir
byggingu á þessum tyrannosaurus
rex og áður að byggingu af bronto-
saums. Segir hún að þannig verði
áhugamálið meira „lifandi" og
áhugaverðara auk þess sem hún geti
leyft öðrum að njóta þess. „Jafnvel
getur þetta orðið til þess að fólk fái
áhuga á þessum tíma og kynni sér
hann. Þá komast örugglega ein-
hverjir að því hvað þetta er yndislegt
áhugamál,“ sagði Claude Bell.
Sá er hvergi banginn og passar sig að mála vel upp á milli tannanna.
Stefanía við upptökur við eyjuna Mauritius.
Stefeuúa fetar í fótspor móður sinnar
Söngkonan, Ijósmyndafyrirsætan,
fatahönnuðurinn og prinsessan
Stefania, óneitanlega myndarleg og
fjölhæf stúlka en eiga kvikmyndirnar
við hana?
Stefanía Mónakóprinsessa hefur
átt einn af heitari smellum ársins á
vinsældalistum í suðurhluta Evrópu.
Plata hennar, Hurricane, hefur nú
þegar selst í 1,2 milljónum eintaka
og nú hefur hún í huga að olnboga
sig inn á Ameríkumarkað. Á þessari
velgengni hefur Stefanía þénað vel
og einnig hefur hún þénað vel sem
ljósmyndafyrirsæta en sem slík er
hún mjög eftirsótt. Ekki versnaði
staðan á bankareikningi hennar þeg-
ar hún hannaði nýja línu í baðfötum
og seldi. Nú fyrir skemmstu var hún
á eyjunni Mauritius í Indlandshafi
við upptökur á myndbandi við lagið
„Irresistible" af áðumefndri plötu.
Prinsessunafnið hefur hjálpað
henni heilmikið en þrátt fyrir það
vill hún alls ekki láta auglýsa sig sem
slíka. „Ég er Stefanía og þó að ég
sé prinsessa hefur það alls ekkert
með hæfileika mína að gera. Sér-
fræðingar hafa sagt mér að ég geti
orðið góð söngkona og það yrði ég
þrátt fyrir að ég væri ekki prins-
essa,“ segir Stefanía, nýorðin 21 árs
og hefur aldrei litið betur út. Hún
segist elska að dveljast á Mauritius
enda hefur hún komið þangað oft í
fylgd yngissveina og Stefanía segist
vilja ferðast um allan heiminn, hún
elski að ferðast. „En það eru alltof
margar öryggisráðstafanir sem þarf
að gera þannig að það ér ekki mögu-
legt. Aðdáendur mínir verða að láta
sér nægja að sjá mig í sjónvarpi eða
hlusta á plötuna mína,“ segir prins-
essan.
Myndbandiö fæi slæma dóma
Sagan segir þó að myndband henn-
ar hafi fengið slæma dóma gagn-
rýnenda og evrópskar sjónvarps-
stöðvar hafi lítinn áhuga á að sýna
það. Stefaníu hefur alltaf dreymt um
að feta í fótspor móður sinnar, Grace
Kelly, og verða leikkona og hafði
hugsað sér að nota myndbandið sem
stökkpallinn inn í kvikmyndaheim-
inn. Einu viðbrögð manna í þeim
„bransa" hafa verið að segja henni
að fara á leiklistamámskeið. Þrátt
fyrir mótbyrinn hefur stúlkan ekki
gefist upp og segist stefna ótrauð á
frama í kvikmyndum. „Ég geri þetta
í minningu móður minnar en hún
sagði oft við mig þegar ég var lítil
að ég væri sú eina í fjölskyldunni
með leikhæfileika. Ég vil sanna að
hún hafi haft rétt fyrir sér,“ segir
Stefanía.
„Hennar óheppni var sú að allir
bjuggust við að sjá nýja Grace Kelly
en sáu einungis nýja og óreynda leik-
konu,“ sagði vinur prinsessunnar.
Móðir Stefaníu, Grace Kelly, þótti
afburðaleikkona. Hér sést hún
ásamt Bing Crosby i kvikmyndinni
High Society.