Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986. Fréttir Ef lög verða sett á Rainbow Navigation: Líkur á gagnaðgerðum af hálfú Bandaríkjanna - segir lögfræðingur bandaríska skipafélagsins Lögfræðingur bandaríska skipafé- lagsins Rainbow Navigation, Frank Costello, telur líklegt að Banda- ríkjamenn muni grípa til gagnráð- stafana ef íslendingar láta verða alvöru úr að setja íslensk lög gegn þeirra lögum um flutninga fyrir bandarískar herstövar. „Þetta mál er nokkuð flókið gagn- vart bandarískum lögum. Banda- ríkjamenn hafa hins vegar möguleika að svara í sömu mynt ef þessi lög verða sett,“ sagði Frank Costello. Hann sagði einnig að lagasetning af hálfu íslendinga hefði komið til tals á síðasta ári. Þá hefði Rainbow Navigation þegar í stað byrjað að ýta á bandarísk stjómvöld til að koma með gagnráðstafanir. Ekkert varð þó úr þessu vegna þess að Is- lendingar gripu ekki til þessa ráðs þá. Ljóst væri að farið yrði af stað aftur með þann málflutning ef Is- lendingar ætluðu sér að setja þessi lög. Samkvæmt upplýsingum utan- ríkisráðuneytisins er búist við svari frá bandarískum stjómvöldum um framvindu mála í sambandi við þetta mál. Fjölmargar athugasemdir bár- ust frá hlutaðeigandi aðilum vegna þeirra breytinga sem stómvöld þar hyggjast gera á fyrirkomulagi þess- ara flutninga. Þessa stundina er verið að fara yfir þessar athuga- semdir. -APH Nýja sjónvarpsstöðin: Mánaðaigjaldið innan við eitft þúsund krónur - auk þess þarf að kaupa sértakt tæki á tólf þúsund Mánaðargjald fyrir að horfa á nýju sjónvarpsstöðina, Stöð tvö, verður undir eitt þúsund krónum. Til að ná kvölddagskrá stöðvarinnar þurfa menn enn fremur að kaupa sérstakt tæki, afréttara, sem kosta mun um tólf þúsund krónur. Gjöld þessi hafa þó ekki verið endanlega ákveðin. Dagskráin klukkan 21 til 1 eftir mið- nætti verður send út brengluð. Afrétt- arinn, af Philips-gerð, sem Heimilis- tæki hf. selja, gerir myndina skýra. Ætla Heimilistæki að bjóða góða greiðsluskilmála, að sögn Rafns Jo- hnson. Til þess að afréttarinn virki þarf að stimpla inn í hann sérstakt númer. Þetta númer fá aðeins þeir sem greiða afhotagjaldið. Ekki dugar að fá númer nágrannans því að engir tveir afréttarar munu hafa sama númer. Ekki mun heldur duga að nota númer fyrra mánaðar því að númerunum verður breytt mán- aðarlega. Kerfi þessu verður stjómað úr móðurtölvu frá sjónvarpsstöðinni. Fyrstu afréttaramir koma ekki til landsins fyrr en undir mánaðamót, rétt áður en útsendingar eiga að hefj- ast. Má búast við að hörgull verði á þessum tækjum til að byrja með. -KMU Gísli Alfreðsson, þjóðleikhússtjóri, og Sverrir Hermannsson, menntamálaráð- herra, kynna Nordal-hátíðina í Þjóðleikhúsinu. DV-mynd: Brynjar Stofnun Sigurðar Nordais: „Engin pjattstofnun“ - segir menntamálaráðherra „Þetta verður engin pjattstofiiun. I fyrstunni mun menntamálaráðuneyti sjá henni fyrir húsnæði og öðm en í framtíðinni verður þetta sjálfstæð stofnun og strax á næsta ári verður varið til hennar fé á fjárlögum," sagði Sverrir Hermannsson menntamála- ráðherra þar sem hann kynnti stofhun og rekstur fræðaseturs við Háskóla íslands sem tengt verður nafiii Sigurð- ar Nordals. Stofhunin mun heita Stofhun Sig- urðar Nordals og verður endanlegá frá henni gengið á sunnudag þegar haldið verður upp á aldarafmæli Sigurðar í Þjóðleikhúsinu með sérstakri hátíð og sýningu á bókum og handritum hans í anddyri Landsbókasafnsins. Sverrir sagði að húsnæðið, sem ráðuneytið myndi setja undir stofnun- ina, væri aðeins til bráðabirgða. Ekki væri þó ákveðið hvar það yrði né um framtíðarhúsnæði. Hann sagðist hafa fengið leyfi fjármálayfirvalda til að veita fé í stofhunina á þessu ári en ekki væri ákveðið hversu mikið það yrði né heldur hversu stór póstur þetta yrði á fjárlögum. Sagðist ráðherrann vera með frumvarp til laga í smíðum um stofiiunina og þá kæmi þetta allt í ljós. Hann sagði einnig að til stæði að ráða einn starfsmann í fullt starf við stofnunina en ekki væri ákveðið hver það yrði. Verið væri að útnefha menn í stjóm þar sem yrðu þrír menn, menntamálaráðherra skipaði einn, heimspekideild annan og háskólaráð þann þriðja. Sú stjóm myndi ráða í fyrmefhda stöðu. Þrír menn hafa unnið að undirbún- ingi Stofnunar Sigurðar Nordals. Það em Davíð Ólafsson, fyrrverandi seðla- bankastjóri, Jónas Kristjánsson, forstöðumaður Stofnunar Áma Magnússonar, og Páll Skúlason, for- seti heimspekideildar. Hátíðin í Þjóðleikhúsinu á sunnu- dag hefst með ávarpi Sverris Her- mannssonar en erindi um Sigurð flytur Þórhallur Vilmundarson prófessor. Þá mun Hamrahlíðarkórinn syngja lög eftir Jón Sigurðsson Nordal tónskáld, Páll Skúiason, forseti heimspekideild- ar, mun flytja ávarp og leikarar flytja efni úr bókum Sigurðar undir stjóm Gísla Alfreðssonar þjóðleikhússtjóra. -KÞ Ríkisútvarpið: Ríkis- stjómin hafríar hækkun afnota- gjalda Rfkisstjómin hefur hafnað beiðní Ríkisútvarpsins/sjónvarps um hækk- un á afhotagjaldi stofhunarinnar eða svokölluðu útvarpsgjaldi sem nær til afhota af litsjónvarpstæki og hljóð- varpi. Farið var fram á að gjaldið yrði 1525 krónur ársfjórðungslega sem er hækkun um 260 krónur. Hörður Vilhjálmsson, fjármálastjóri Ríkisútvarpsins, sagði í samtali við DV að vegna þessa þyrftu þeir að draga saman seglin. „Við verðum að hagræða rekstri okkar í samræmi við ráðstöfunarfé," sagði hann. Hörður hafði ekki heyrt eða séð af- greiðslu menntamálaráðherra á þessu máh en benti á að afnotagjöldin hefðu ekki hækkað frá áramótum. „Við áttum von á að fá þessa hækk- un, við teljum hana hógværa og eftir sem áður yrðum við fyrir neðan áskrift á dagblöðunum,“ sagði Hörður. -FRI Bandariski dómritarinn sem skráir það sem fram kemur í yfirheyrslunum. DV-mynd GVA Ekki dómþing heldur skýrslutaka utan réttar - segír Gunnlaugur Claessen ríkislögmaður „Það er fullyrt í frétt DV að þama séu dómsyfirheyrslur fyrir bandarísk- um rétti. Þama er ekki um bandarísk- an rétt að ræða. Þetta er skýrslutaka undir stjóm lögmanna aðilanna í sam- einingu. Þetta em utanréttarstörf í eðli sínu,“ sagði Gunnlaugur Claessen ríkislögmaður um yfirheyrslur þær sem undanfama daga hafa staðið yfir í flugtuminum í Reykjavík. „í öðm lagi er fullyrt í frétt að það sé „líklega einstakt í sögu íslenska lýðveldisins að dómþing erlends ríkis sé háð á íslensku yfirráðasvæði“. Þetta er ekki dómþing. Það hefur hins vegar komið fyrir að dómþing íslenskra dómstóla hafi verið háð á erlendu yfirráðasvæði og þá eftir ís- lenskum réttarreglum, til dæmis dómþing í Skiptarétti Reykjavíkur," sagði Gunnlaugur. Nefndi hann Hafekipsmálið. Dóm- þing vegna þess hefði verið háð í V estur-Þýskalandi, Danmörku og Bandaríkjunum samkvæmt íslenskum réttarfarsreglum og vitni sem þar eiga búsetu og vamarþing yfirheyrð sam- kvæmt íslenskum lögum. „Þá var ekki farin sú leið sem pró- fessorinn bendir á, það er að segja íslenskir dómstólar snem sér ekki til bandarískra og óskuðu eftir að vitni yrðu yfirheyrð fyrir þarlendum dóm- stól. Sá grundvallarmunur er þó hér á að hér er ekki bandarískur dómstóll á ferðinni andstætt því sem ég var að nefiia um ferðir íslenskra dómstóla erlendis og sem enginn hefur talið óeðlilegt, hvorki prófessorar í laga- deildinni né aðrir, svo mér sé kunnugt. Þetta em ekki vitnaleiðslur fyrir rétti. Þetta er skýrslutaka sem á sér stað með samkomulagi beggja lög- manna og er tekin gild sem vitna- skýrsla fyrir bandarískum dómstóli. Enginn dómari er til staðar en dómrit- ari skráir það sem fram kemur,“ sagði Gunnlaugur. Tekið skal fram að sú skilgreining í frétt á blaðsíðu 2 í DV í gær, að hér væm á ferðinni dómsyfirheyrslur fyrir bandarískum rétti, er blaðamannsins en ekki Jónatans Þórmundssonar pró- fessors. Jónatan lýsti þessu hins vegar sem bandarískum vitnaleiðslum. Þótti honum mjög óeðlilegt að þær fæm fram á íslandi. Taldi hann eðlilegra að upplýsinga væri aflað eftir íslensk- um réttarreglum. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.