Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986.
7
Fréttir
Félagsmálaráðheira:
„Bara til að
ragla fólk“
„Pétur Blöndal er greinilega
mikill loftfimleikamaður í staerð-
fræði. Ég get ekki séð að hann
geti haft möguleika á að fjalla
um þetta því hann veit ekkert
hvemig þessum málum er og
verður háttað hjá Húsnæðis-
stofiiun þessa stundina. Það
heftir ekki verið fiallað endan-
lega um hversu mikið íjármagn
verður til skiptanna á næsta ári.
Þetta tal í Pétri er því bara til
að rugla fólk,“ sagði Alexander
Stefánsson félagsmálaráðherra í
viðtali við DV.
Pétur Blöndal, formaður
Landssambands lífeyrissjóða,
hefur slegið því fram að biðtími
eftir nýju húsnæðislánunum
verði mjög langur. Vegna þess
hve margir sæki um geti þeir sem
eru að sækja um í fyrsta sinn átt
von á að bíða í allt að eitt ár.
Og þeir sem eru að sækja um í
annað sinn í allt að tvö ár.
Alexander sagði að útlit væri
fyrir að lífeyrissjóðimir verðu
allt að 3,5 milljörðum króna til
byggingarsjóðanna á næsta ári.
Ekki væri endanlega frágengið
hvert framlag ríkissjóðs yrði en
það yrði þó ekki lægra en 1,3
milljarðar króna.
„A þessari stundu er ekki hægt
að gera sér grein fyrir hversu
mikil aðsóknin verður í nýju lán-
in. Og það' vakti ekki fyrir
ríkisvaldinu né aðilum vinnu-
markaðarins að búa til einhverja
byggingarsprengingu þegar þessi
lög vom samþykkt. Stefnan var
að hækka lánin en ekki að fjölga
þeim,“ sagði Alexander og bætti
við að hann yrði að lýsa furðu
sinni á ummælum Péturs Blönd-
al -APH
Fram-
kvæmda-
staða Lána-
sjóðsins
auglýst
Staða framkvæmdastjóra
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
hefur verið auglýst laus til um-
sóknar. Rennur umsóknarfrestur
út 19. september.
Að sögn Reynis Kristinssonar
í menntamálaráðuneytinu var
núvemndi framkvæmdastjóri,
Hrafh Sigurðsson, aðeins ráðinn
tímabundið í kjölfar breyting-
anna á Lánasjóðnum fyrir rúmu
hálfu ári. Staðan var þá ekki
auglýst, en Hrafri vann hjá Hag-
vangi og var færður tiL
í samtali við DV sagðist Hrafn
ekki hafa tekið ákvörðun um það
hvort hann myndi sækja um
stöðu framkvæmdastjóra eða
hverfa á ný til starfa hjá Hag-
vangi. -KÞ
Upplýsingabyttingin rædd á landsþingi sveitaifélaga:
Sjónvarpskapall
inn í hvert hús
„Fyrirsjáanlegt er að ýmsir aðilar,
þar á meðal bæjarfélög, hafi áhuga
á að hafnar verði framkvæmdir fljót-
lega við fjölrásasjónvarp, meðal
annars vegna ótta við fjöldauppsetn-
ingu diskloftneta. Er því knýjandi
nauðsyn á að áðurgreindar reglur
verði settar," sagði Ólafur Tómas-
son, póst- og símamálastjóri, í erindi
sem hann flutti á landsþingi Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
Ólafur hafði framsögu um samstarf
sveitarfélaga og Pósts og síma um
uppbyggingu staðbundinna sjón-
varpsdreifikerfa. Kom fram í máli
hans að nefnd, skipuð af samgöngu-
ráðherra, með fyrrverandi póst- og
símamálastjóra sem formann, er að
endurskoða fjarskiptalög, meðal
annars með tilliti til rekstrar sjón-
varpsdreifikerfa með strengjum,
svonefndra kapalkerfa.
Greindi hann þingfulltrúum frá
breiðbandskerfi með ljósleiðara-
strengjum, nýrri gerð símastrengja,
sem auk þess að flytja mikinn fjölda
talrása milli símstöðva geta einnig
flutt fjölda útvarps- og sjónvarps-
rása.
Hægt að senda margar sjón-
varpsdagskrártil Hvolsvallar
á þessu ári
„Á þessu ári verður lokið við að
leggja slíka ljósleiðarastrengi milli
allra aðalsímstöðva á höfuðborgar-
svæðinu og sem langlínukerfi milli
Reykjavíkur og Hvolsvallar. Og á
næsta ári er áætlað að leggja fyrsta
áfanga leiðar til Akureyrar.
Með kerfinu til Hvolsvallar opnast
til dæmis möguleiki á að flytja fleiri
sjónvarpsdagskrár til Selfoss og
Hvolsvallar og þaðan mætti brúa
leiðina til Vestmannaeyja með ör-
bylgjukerfi," sagði póst- og síma-
málastjóri.
„En landið verður ekki „kapal-
vætt“ á skömmum tíma. Ennfremur
er ýmissa breytinga í gerð kapal-
kerfa að vænta á næstunni sem leiðir
til þess að viturlegt er að flýta sér
hægt og leita bráðabirgðalausna í
sumum tilfellum.
Ein slík lausn væri UHF-radíó-
sendakerfi eða kanadískt kerfi,
MMDS, fyrir eina til átta rásir á
helstu þétthýlissvæðum landsins.
UHF-radíósendalausnin, eða
MMDS, virðast í mörgum tilfellum
hagkvæmar fyrir aðaldreifingu í
upphafi. En hafa skal í huga að
ýmis kapalkerfi verða byggð á af-
mörkuðum svæðmn vegna óska
sveitarfélaga og á skuggasvæðum.
Einnig kosta UHF-móttökuloftnetin
töluverða fjárhæð þannig að í nýjum
hverfum eða þéttbýliskjömum getur
kapallausn verið mjög hagkvæm frá
upphafi.
Póstur og sími getur tekið að sér
rekstur slíkra radíókerfa samkvæmt
sérsamningi. Þessi kerfi yrðu rekin
aðskilin frá símakerfinu. Hagkvæmt
getur verið að nýta húsa- og mastra-
aðstöðu Pósts og síma þar sem því
verður við komið.“
Kerfiö byggt á 10 til 20 árum
„Framtíðar breiðbandskerfið verð-
ur lagt í jörðu og byggt í áfóngum
á ef til vill 10 til 20 ára tímabili, með
ljósleiðurum og sammiðjustrengjum
og UHF-sendum, allt eftir því hvað
er hagkvæmast á hverju svæði.
1 framtíðarbreiðbandskerfinu get-
ur orðið um mikla samnýtingu að
ræða á öllum símaþjónustugreinum,
eins og tal- og gagnaflutningi, og
jafnframt útvarps- og sjónvarpsrás-
um, að minnsta kosti á öllum aðal-
leiðum.“
Skýrði póst- og símamálastjóri frá
viðræðum stofunarinnar við fulltrúa
Reykjavíkur og annarra sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu um
byggingu radíó- og strengjakerfa.
„Markmiðið er að skapa hag-
kvæma möguleika fyrir notendur á
móttöku erlends sjónvarpsefriis, sem
endurvarpað er frá gervitunglum, og
á móttöku ýmiss konar innlends efn-
is, meðal annars frá RÚV og einstök-
um dagskrárgerðarfyrirtækjum fyrir
bæði útvarp og sjónvarp.
Jafnframt skapar þetta möguleika
á fræðslusjónvarpi og móttöku
ýmissa upplýsinga á sjónvarpsskjá-
inn. Með þessari samræmingu væri
stuðlað að fækkun loftneta á húsum.
Þetta markmið takmarkar hins
vegar ekki byggingu útvarpsstöðva
á vegum einkafyrirtækja sem vilja
fara eigin leiðir án aðstoðar sveitar-
félaga eða Pósts og síma,“ sagði
Ólafur.
Rör fyrir sjónvarpsstrengi
lögð í öll ný hverfi
Setti hann fram þá hugmynd að
stofrikerfið yrði í eigu Pósts og síma.
Dreifikerfin gætu hins vegar verið i
eigu Pósts og síma, sveitarfélaga,
húsfélaga eða fyrfrtækja.
„Til þess að stuðla að hraðari upp-
byggingu strengjakerfisins mun
Póstur og sími leggja og eiga rör á
helstu leiðum og jafnvel að hveiju
húsi. Stefiit er að því að hefja strax
lagningu röra í öll ný hverfi og alls
staðar þar sem götur verða grafnar
upp vegna annarra framkvæmda.
I þessi rör verður heimilað að
draga útvarpsstrengi eftir þörfum.
Greiðir þá strengjaeigandinn Pósti
og síma fyrir afnot af rörunum,“
sagði Ólafur.
-KMU
„Jafnframt skapar þetta möguleika á fræðslusjónvarpi og móttöku ýmissa
upplýsinga á sjónvarpsskjáinn," sagði Ólafur Tómasson, póst- og sima-
málastjórl.
Gagnavinnslubanki
Jarðstöð
Videostöð
□e ■ -=a hht: u g 1111 U'B
3
Sjónvarps- og hljóð-
varpsstöð
Heimili
Sjónvarp □9
L ■l
Fjarljósriti
(telefax)
Heimilistölva
Sjónvarpssimi
LJ:
• □
1® 1
Simi
• □
|j 1
Fjarljósriti
Sjónvarpsráðstefnur
W&ji
(dagblöð og póstur)
Dæmi um hvemig nýta má boðveitu.
BÖRNIN VEUA
ptaymobil
Fæst í öllum betri leikfangaverslunum
Studto-X