Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986.
Léleg þjón
usta sjón-
varpsins
Spumingin
Hefur þú hugsað þér að fá þér
svokallaðan „afruglara" þeg-
ar Stöð 2 tekur til starfa?
Margrét Sigmundsdóttir nemi: Ég
hef ekkert hugsað út í það. En það
væri allt í lagi að hafa tvær stöðvar
að horfa á. Það gæfi meiri fjöl-
breytni.
Björn Hjaltason: Nei, það hef ég ekki
hugsað mér. Ég horfi lítið á sjónvarp
og er því alveg sama hvort stöðvarn-
ar eru ein eða tvær.
Kristjana Barðadóttir: Ég hef nú
ekkert hugleitt það mál - finnst
reyndar alveg nóg að hafa eina sjón-
varpsstöð.
Guðbjörg Bjarnadóttir leigubílstjóri:
Ég þarf þess ekki því ég bý í blokk.
Það verður gaman að sjá hvemig
þetta kemur út. Nú losnar maður líka
við að kaupa video.
Gunnlaugur Melsted bóndi: Ég hugsa
að það komi ekki til því að ég bý
vestur á íjörðum. En ef hún næst
þangað fæ ég mér sjálfsagt slíkt tæki.
Þráinn Agnarsson leigubílstjóri: Ég
veit það ekki en það er sjálfsagt allt
í lagi að hafa aðra stöð.
Málvöndunarkona hringdi:
Ég er ein þeirra sem vilja vemda
okkar ágætu íslensku tungu. Það
hefur því vakið undmn mína og
hneykslan að nú hafa leigubílstjórai-
okkar ágæta lands verið skyldaðir
til að setja erlenda slettu á þak bif-
reiða sinna.
Mér þykir orðið leigubíll alveg
ágætt og held ég að það sé notað
íbúi í Kópavogi hringdi:
Mig langar til að lýsa undrun minni
á íyiirkomulagi við viðhald gatna í
Reykjavíkurborg, það er að segja þeg-
ar mestu umferðargötur borgarinnar
eru malbikaðar á annatíma.
Gott dæmi um þetta sást núna síð-
astliðinn þriðjudag en þá var verið að
malbika Kringlumýrarbrautina
klukkan fimm til sjö síðdegis. Þannig
af þorra íslendinga i daglegu máli.
Skilti með þeirri áletrun ætti að
sjálfsögðu að vera á leigubílum hér-
lendis.
Þó að útlendingar eigi kannski
erfitt með að skilja það kæmust þeir
sjálísagt fljótlega upp á lagið. Enda
á ekki að vera að þjóna þeim örfáu
erlendu ferðamönnum er hingað
koma með slíkum málslettum.
varð stór hluti íbúa í Kópavogi,
Garðabæ og Hafoarfirði, sem vinna í
Reykjavík, fyrir tilfinnanlegum töfum
á heimleið úr vinnu.
Þetta finnst mér alveg ótækt. Það
hlýtur að vera hægt að finna rólegri
tíma til að loka þessum götum, þær
eru ekki svo margar.
Einnig finnst mér að það mætti aug-
lýsa, til dæmis í blöðum og/eða
Hólmgeir Einarsson hringdi:
Ég er mikill knattspymuunnandi
og verð að segja að ég er afskaplega
óánægður með þjónustu sjónvarps-
ins. Þar á ég við þá fúrðulegu
ákvörðun að sýna ekki landsleik Is-
lands og Frakklands í beinni útsend-
ingu síðastliðinn miðvikudag. Hvers
eigum við knattspymuunnendur úti
á landi að gjalda? Ég bara spyr.
útvarpi, þegar loka þarf heilu götun-
um vegna viðgerða. Ég lenti í því um
daginn að ég þurfti að keyra heilmikla
króka í Laugameshverfi og nágrenni
vegna viðgerða. Þannig varð tíu mín-
útna skottúr að hálftíma bíltúr sem
hægt hefði verið að komast hjá ef
upplýsingar hefðu verið fyrir hendi.
Hefði ég vitað fyrr af þessari lélegu
þjónustu hefði ég keypt mér flugfar
suður til að sjá leikinn. Svo var
maður ennþá svekktari út í íslenska
sjónvarpið þegar maður vissi að leik-
urinn var sendur í beinni útsendingu
alla leið suður til Frakklands.
Ég hvet íslenska sjónvarpið til að
þjóna landsbyggðinni betur í fram-
tíðinni en það hefúr gert hingað til.
Rétt skal
vera rétt
9240-3327 skrifar:
Fyrst af öllu vil ég þakka DV
fyrir greinar sínar um kvik-
myndir sem birtast í helgarblaði
‘2. En undanfarið hef ég rekist á
þrjár villur á stuttum tíma og
vildi ég gjarnan ræða um það.
Er DV skrifaði um myndina
Highlander nefodu þeir einnig
myndina Razorback og ekkert
athugavert við það nema það að
greinarhöfundur sagði að í
myndinni (Razorback) væri
bjöm sem hlypi um og slátraði
fyrir áhorfendur. Þetta er þvæla
því dýrið var ekki bjöm heldur
risastór villigöltur.
Önnur villan kom fram er
skrifað var um hina stórgóðu
þætti Masada. Sagt var að leik-
konan Barbara Carrera léki eitt
aðalhlutverkið, sem er alveg hár-
rétt, en að hún léki líka i þátta-
röðinni Síðustu dagar Pompei
(sem Ione) er hin mesta vitleysa,
það er allt önnur manneskja í
því hlutverki (Olivia Hussey).
Þriðju mistökin komu fram er
B.H. skrifaði um myndina Top
gun, sem sýnd er nú í Háskólabí-
ói, og sagði að persóna ein í
myndinni héti Kelly McGillis og
væri leikin af Charlotte Black-
wood. Þetta er einmitt öfúgt,
Kelly McGillis er leikkonan en
þessi umrædda persóna heitir
væntanlega Charlotte Black-
wood (hef ekki séð myndina). Til
nánari útskýringa þá lék
McGillis í myndinni Vitnið á
móti Harrison Ford.
Að lokum vil ég biðja DV að
halda áfram með kvikmynda-
gagnrýni sem virðist alveg hafa
fallið niður, svo ég þurfi ekki að
leita á náðir Morgunblaðsins eft-
ir lýsingum á myndum kvik-
myndahúsanna.
Hvers eiga knattspyrnuunnendur úti á landi að gjalda?
Spurning til aðstandenda lands-
leiks Islendinga og Frakka
Sigurður Gunnarsson, Fáskrúðsfirði
skrifar:
Hinn mikli sé lofaður, þvi ég fór á
völlinn á miðvikudaginn. Veðrið var
frábært, stemmingin sömuleiðis sem
og leikur íslenska liðsins. Hvílík
heppni að ég þurfti suður, af þessu
vildi ég ekki hafa misst eins og félag-
ar mínir austur á Fáskrúðsfirði.
Fyrir leikinn hringdi ég í sjón-
varpið og spurði hvort þeir ætluðu
virkilega að loka á beina útsendingu.
Eftir leikinn kom ég við í sjónvarps-
bílnum og spurði hvort þeir hefðu
svo ekki sýnt eftir allt saman. Svarið
var: „Nei, það var ekki leyft.“
Hver er það eiginlega sem getur
ákveðið að leyfa landsbyggðinni ekki
að sjá stórlandsleik íslendinga í
knattspymu sem sýndur er beint um
alla Evrópu? Ef ég hefði verið fyrir
austan væri ég nú niðurlægður og
illa reiður yfir slikri frekju.
Og svo vil ég að lokum benda á að
dagskráin fyrir leikinn var sérstak-
lega illa skipulögð. Maður skamm-
aðist sín fyrir landann í stað þess að
byggjast upp fyrir leikinn. Ef við fyr-
ir austan skipulögðum svo illa
tveggja manna fund þá skömmuð-
umst við okkar.
Ellert B. Schram, formaður KSÍ
svarar:
Knattspymusamband Islands hef-
ur áhuga á því að sem flestir íslend-
ingar geti fylgst með knattspymu-
leikjum og þá ekki síst landsleikjum
á þess vegum. Meðal annars í þeim
tilgangi hefúr verið gerður samning-
ur við Ríkisútvarpið sjónvarp um
útsendingar. Og undanfarin ár hafa
Frá landsleiknum í fyrrakvöld.
allir landsleikir verið sýndir í sjón-
varpi, flestallir samdægurs. KSÍ var
fyrir sitt leyti búið að heimila sjón-
varpinu að senda Frakkaleikinn út
samdægurs og það er ekki rétt sem
sagt er í bréfi Sigurðar Gunnarsson-
ar að KSÍ hafi ekki leyft beina
útsendingu. Sjónvarpið fór aldrei
fram á slíkt.
Ef Ríkisútvarpið Sjónvarp vill
sýna beint frá leikjum og greiða
sannvirði fyrir þær útsendingar,
mun KSÍ ekki standa í vegi fyrir því.
Hins vegar hljóta allir að skilja
að á meðan fjárhagsafkoma KSÍ
byggist að langmestu leyti á þeim
tekjum er fást af aðgangseyri af
landsleikjum, er ekki hægt að leyfa
beinar útsendingar endurgjalds-
laust. Á Islandi er allra veðra von í
septembermánuði og hræddur er ég
um að fáir legðu það á sig að borga
sig inn á völlinn í roki og rigningu,
ef hægt væri að sitja heima í stofu
og horfa á leikinn í beinni útsend-
ingu.
En ég endurtek, KSÍ hefur ekki
bannað sjónvarpinu að sýna lands-
leiki samdægurs eða síðar.
Að því er varðar óánægju Sigurðar
með dagskrá fyrir leikinn get ég því
miður lítið sagt. Hann verður að fá
að hafa sína skoðun á því máli. Hins
vegar hitti ég á vellinum fjölda fólks,
sem í lét í ljósi ánægju og þakklæti
með alla umgjörð leiksins. Sitt sýn-
ist hveijum.
Malbikun á versta tíma