Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986.
13
Neytendur
Lappaskómir eru mjög skrautiegir í útliti, barnaskórnir em með hælkappa, annars væri erfitt fyrir bömin að halda þeim á fætinum.
DV-mynd BG
ítölsk
„Við kynntumst þessum skóm er-
lendis fyrir nokkrum árum og urðum
strax mjög hrifin af þeim. Okkur datt
svo í hug að fá íslenskar tær til þess
að stinga sér í þessa skó,“ sagði Þórð-
ur Þórðarson í Hafnarfirði þegar hann
hönnun - íslenskar tær
sýndi okkur mjúka ítalska inniskó sem
hann hefur hafið innflutning á. Skóm-
ir hafa fengið nafnið „lappaskór," sem
er nýyrði og dregið af því að „lappa
skó“. Skómir em bæði úr ull og bóm-
ull og sólinn úr frauðplasti. Þeir henta
sérlega vel til þess að nota þar sem
em trégólf, steinflísar eða parket, en
auðvitað má eins nota þá á teppalögð-
um gólfum.
„Lappaskómir" em til bæði með al-
veg sléttum botni en einnig með
örlitlum hæl og er þá botninn eilítið
stífari. Þetta em mjög þægilegir skór
að bregða sér i og em bæði til á full-
orðna og böm. Fullorðinsskómir
kosta 350 kr. og bamaskómir 320 kr.
Skómir vom kynntir á Heimilissýn-
ingunni í Laugardalshöllinni en verða
seldir í stórmörkuðum.
-A.BJ.
Langþráður
bæklingur
Landssamtökin Þroskahjálp hafa
gefið út upplýsingabækling þar sem
safnað er saman á einn stað upplýsing-
um um réttindi og þjónustu fyrir böm
og ungmenni sem búa við fötlun eða
langvarandi veikindi.
Bæklingurinn á að spara foreldrum
mörg spor við að afla upplýsinga. Hér
er ekki um alveg tæmandi upplýsingar
að ræða, en lögð er áhersla á að benda
á hvar leita má frekari upplýsinga.
Bæklingurinn er fáanlegur á skrif-
stofu Þroskahjálpar, skrifstofum
aðildarfélaganna og svæðisstjóma um
landið.
-Ró.G.
Það fer lítið fyrir púðanum í tösku en hann er svo blásinn upp þegar á að
nota hann. Púðinn styður vel við höfuðið, smáhádegisblundur á skrifstofunni
verður ekkert mál. DV-mynd Óskar öm
Slappað af
með
aðstoðarpúða
Það er nú ekki beint þægilegt að
dotta í bílnum. flugvélinni eða á tann-
læknastofúnni. Eymsli í hálsi og önnur
óþægindi gera líklega vart við sig. Nú
er þetta „vandamál" leyst. Komnir em
á markaðinn sérstakir púðar sem
styðja við höfuðið einmitt þegar þú
vilt hvila þig við annars óþægilegar
aðstæður.
Púðinn er kallaður „SleepOver" og
er blásinn upp þegar á að nota hann
en er annars mjög fyrirferðarlítill og
þægilegt að taka hann með sér hvert
sem er.
Yrkir s/f flytur púðann inn.
-Ró.G.
Fiskflökunum rétt pakkað
„Ég er svo rasandi að ég næ varla
upp í nefið á mér vegna ósvífinnar
framkomu stórverslunar í höfuðborg-
inni,“ sagði kona nokkur er hún
hringdi til neytendasíðunnar.
„Ég pantaði 10 kg af ýsuflökum sem
ég ætlaði að matreiða fyrir 100 manna
veislu. Ég sendi eftir flökunum sem
vom afgreidd þannig að þau vom lát-
in í þrjá plastpoka og hnýtt fyrir.
Þegar þannig er gengið frá fiskinum
vilja stykkin brotna og fara illa þegar
þau em matreidd. Mér finnst ósvffni
að fara svona með fiskinn. Mér finnst
það vera móðgun bæði við viðskipta-
vininn og ekki síður við vömna sem
verið er a.ð selja.
Ég neyddist til þess að nota þennan
fisk, hafði ekki aðstöðu til þess að
skila þessu aftur þvi ég ætlaði að nota
fiskinn sama daginn og ég fékk hann.
Síðan hef ég talað við afgreiðslufólkið
í þessari verslun. „Afhverju skilaðirðu
þessu ekki aftur?“ var ég spurð.
Til allrar hamingju eru enn til fisksalar
eins og Jón Ægir i Hafrúnu sem pakk-
ar fiskinum inn eins og neytendur vilja
fá hann.
DV-mynd BG
Ég hafði hreinlega ekki tíma eða
tækifæri til þess og þótt mér hafi ve-
rið boðið að koma í verslunina og fá
eitthvað í sárabætur bætir það ekki
úr þessu máli,“ sagði viðmælandi okk-
ar.
„Nú hef ég farið í verslunina og fékk
þar mjög alúðlegar móttökur. Var mér
endurgreiddur fiskurinn og er ég viss
um að fiskurinn verður ekki seldur
án viðeigandi innpökkunar í framtíð-
inni i þessari verslun og er það vel,“
sagði viðmælandi okkar.
Hún sagðist hafa veitt því eftirtekt
að það væri alsiða nú orðið að selja
fisk á þennan máta, láta flökin beint
í plastpoka í stað þess að leggja utan
um þau smjörpappír eða plast og vefja
svo öllu inn í pappír.
Sem betur fer er þetta ekki svo. Það
em enn til „siðaðar" verslanir sem
pakka fiskinum inn á „gamla“ má-
tann, eins og t.d. fiskbúðin okkar,
Hafrún í Skipholtinu. -A.BJ.
Hvað um verðskynið?
Gefið gaum
að verðinu
Við erum alltaf að hesna um
mikinn verðmun á nákvæmlega
samskonar hlutum. Við hvetjum
alla til þess að athuga sinn gang
vel áður en innkaup em gerð og
hafa hugfast að það borga sig í
mörgum tilfellum að skoða á fleiri
en einum stað áður en kaup em
gerð.
A dögunum kom viðmælandi
okkar í bamavagnaverslun efst á
Klapparstíg og skoðaði grind und-
ir bamavagn. Grindin kostaði 1200
kr., reyndar var til önnur sem kost-
aði 2 þús. kr. - í annarri bama-
vagnabúð. neðar í sömu, götu var
til nákvæmlega samskonar grind
og þessi á 1200 og kostaði hún 650
kr. Þama munaði 550 kr. sem er
hvorki meira né minna en 84.6%!
Þess má geta svona rétt í leið-
inni að bamavagn sem kostar hér
á landi 30 þús. kr. kostar 16 þúsund
í framleiðslulandinu Þýskalandi.
Þá var okkur sagt af verðmun á
smellutöng. Hún fékkst í verslun-
inni Zikk Zakk við Garðatorg og
kostaði 265 kr. Nákvæmlega sams
konar töng fékkst í Vogue í Hafn-
arfirði og kostaði 182 kr. Þama
numar 83 kr. eða hvorki meira né
minna en 45,6%.
Verðið hjá Zikk Zakk er sanit
ekki það hæsta sem um getur á
svona smellutöngum. Hjá Virku
kosta þær kr. 700 en þá fylgja 25
smellur með í kaupunum. 1 Nafn-
lausu búðinni kostar smellutöngin
um 300 kr.
Kaupmaðurinn í Zikk Zakk upp-
lýsti að viðskiptavininum heföi
verið boðin innleggsnóta er hann
kvartaði vfir verðinu á tönginni,
sem hann þáði ekki. vildi fá töng-
ina endurgreidda.
-A.Bj.
Upplýsingaseðill
i til samanburðar á heimiliskostnaði
| Hvað kostar heimilishaldið?
I Vinsamlega sendið okkur jiennan svarseðil. Þannig eruð j)ér orðinn virkur þátttak-
I andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
I fjölskyldu af sömu staerð og yðar.
I
! Nafn áskrifanda
i
Heimili
Sími
i Fjöldi heimilisfólks_________
i
I Kostnaður í ágúst 1986.
i
i _________________________________
j Matur og hreinlætisvörur kr.
I Annað kr.
I
Alls kr.
I
I
I
I