Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986. 15 Þarf afruglara á Morgunblaðið? Nýju ljósi er varpað á afstöðu ungs fólks í húsnæðismálum í nýbirtri skýrslu Félagsvísindastofh- unar er gerð var meðal framhalds- skólanema að tilhlutan „framtíðar- nefndar" forsætisráðherra. Þessar niðurstöður afsanna hæpnar og fljótfæmislegar ályktanir sem ýmsir hafa sett fram um yfirgnæfandi stuðning íslenskrar æsku við svo- nefiida sjálfseignarstefnu. Könnunin sýnir nefnilega mjög mikinn stuðning við félagslegar leið- ir í húsnæðismálum, þar á meðal búseturéttarformið. Slíkar lausnir fá þegar á heildina er litið meiri stuðning en séreignarformið. Oft er vitnað til alkunnrar setning- ar í upphafi Islendingabókar Ara fróða: „Hvatki er missagt er í fræð- um þessum, þá er skylt at hafa þat heldr, er sannara reynist." Þeir aðil- ar, sem keppa nú hver við annan um glannalegar túlkanir á skoðana- könnunum, ættu sérstaklega að huga að þessum vamaðarorðum. Um 60% styðja félagslega valkosti! Alls reyndust 42% framhalds- skólanema telja auknar einkabygg- ingar brýnasta markmið okkar í húsnæðismálum. Morgunblaðið (dagblað í Reykjavík er hóf göngu sína árið 1913) dregur þá ályktun í leiðara þann 22. ágúst sl. að ungt fólk á framhaldsskólaaldri (17-22 ára) sýni með þessu „mjög eindreg- inn stuðning við sjálfseignarstefhu í húsnæðismálum". Þama er leiðarahöfundur hins aldna blaðs heldur betur að syndga gegn vinnureglu Ara hins fróða Þorgilssonar. Könnunin leiddi nefhilega líka í ljós að fleiri, eða samtals 43% svar- enda, settu auknar byggingar leigu- íbúða á oddinn. Þar af settu 22% „venjulegar" leiguíbúðir í fyrsta sæti og 21% töldu byggingar leiguíbúða með búseturétti langmikilvægasta markmiðið í húsnæðismálum þjóð- arinnar. KjaUaiinn Jón Rúnar Sveinsson félagsfræðingur Að auki vildu 16% svarenda leggja mesta áherslu á byggingar verka- mannabústaða. Alls styðja þvi 59% svarenda félagslega valkosti í húsnæðismálum. Samt sem áður túlkar leiðarahöfundur Morgun- blaðsins þessar niðurstöður - án þess að blikna - sem stórkostlegan stuðning unga fólksins við áfram- haldandi einokun einkaeignar- formsins! Mikil gróska er nú í hinum „fijálsá* fjölmiðlaheimi. Þar á meðal er einn í burðarliðnum sem nota verður á þar til gerðan „afruglara" svo skilja megi það efni sem fram verður reitt. I ljósi reikniaðferða leiðarahöfunda Moggans hlýtur sú spuming að vakna hvort lesendur verði einnig að útvega sér „;af- ruglara" fyrir öldunginn í Aðalstræti. Mikill stuðningur við búsetu- réttinn Búseturéttaríbúðir voru efstar á blaði hjá 21% framhaldsskólanema. Samkvæmt könnun Félagsvísinda- stofnunar á húsnæðismálum ungs fólks, er gerð var fyrir rúmi ári, töldu 14% byggingu búseturéttaríbúða vera brýnasta markmið þjóðarinnar í húsnæðismálum. Þessi hækkun hlutfallstölunnar endurspeglar lík- lega fyrst og fremst meiri stuðning þeirra sem yngri em við búseturétt- inn (framhaldsskólanemamir vom á aldrinum 17-22 ára, Húsnæðiskönn- un unga fólksins 1985 náði til fólks á aldrinum 18-29 ára). Það sem skiptir hér mestu fyrir þá ráðamenn sem fylgjast vilja sem gleggst með hugsanagngi þjóðarinn- ar er vitanlega sú staðreynd að meðal þess unga fólks, sem koma mun inn á húsnæðismarkaðinn á allra næstu árum, er fyrir hendi verulegur stuðningur við þetta húsnæðisform. Um fimmtvmgur þeirra aldurshópa, sem mestu máli skipta á húsnæðismarkaðnum, setja búseturéttaríbúðir í efeta sæti þrátt fyrir að enn hafi ekki ein einasta íbúð verið byggð með þeim hætti. Búseturétturinn fær þannig mun sterkari stuðning en verkamanna- bústaðir sem þó eiga sér meira en hálfrar aldar langa sögu. Nýja lánakerfiö banabiti sjálfseignarstefnunnar? Nýtt húsnæðislánakerfi tók gildi 1. september sl. Þetta kerfi er ekki gulltrygging „sjálfeeignarstefnunn- ar“ heldur kirkjugarður hennar. Ástæðan er einfaldlega sú að fyrstu 10-15 ár lánstímans borga menn samkvæmt nýja kerfinu nær eingöngu vexti. Eignamyndun samkvæmt „nýja kerfinu" er raunar ekki tiltakanlega hraðari en gerist í verkamannabústaðakerfinu eins og meðfylgjandi tölur sýna. (Miðað er við lán að fjárhæð 2,1 milljón kr.) Eftir 20 ár, þ.e. þegar lánstíminn er hálfiiaður, eru 70% lánsins enn áhvílandi! Þess ber að gæta að í verkamannabústaðakerfinu er reiknað með 1% árlegum fymingum sem dregst frá eignarhluta íbúðar- hafans. Væri reiknað með 'A% árlegum fymingum í „nýja kerfinu", væri eignamyndunin slétt 100 þús. kr. eftir 10 ár og 382 þús. kr. eftir 20 ár. Eignamyndun „nýja kerfisins" er hins vegar algerlega háð markaðs- sveiflum fasteignamarkaðarins. Verðsveiflur markaðarins geta því feykt. burt eignarhluta fólks í einu vetfangi. Slíkt gerist ekki í verka- mannabústaðakerfinu þó svo að eignamyndun þar sé hverfandi lítil. Nýja kerfið „tryggir“ því framtíð sjálfseignarstefnunnar með því að grafa undan frumforsendu hennar, sjálfri eignamynduninni. Þetta minnir óneitanlega á stjómmála- manninn sem lýsti því yfir að það besta sem ein þjóð gæti gert til þess að varðveita sjálfstæði sitt væri að glata því! Við hönnun hins nýja kerfis gleymdu menn nefhilega því að lang- tímalán henta miklu betur fjármögn- un leiguíbúða en eignaríbúða. Fyrstu 10-15 ár lánstímans greiða menn að ca % hlutum eingöngu vexti. Húseigendur framtíðarinnar verða því lengi vel fyrst og fremst leigjendur hjá Byggingarsjóði ríkisins. Jón Rúnar Sveinsson „Alls styðja því 59% svarenda félagslega valkosti í húsnæðismálum. „Nýjakerfið" kr. Verkambúst. kr. Eignam. eftir 5 ár 85 þús. 43þús. Eftir 10 ár 247 þús. 143 þús. Eftir 15 ár 439 þús. 259 þús. Eftir20ár 668 þús. 393 þús. Alnæmi, sjúkdómur einmanaleikans Landlæknir hefur á opinberum vettvangi, m.a. í viðtali við Þjóðvilj- ann 9. júlí sl., lýst áhyggjum sínum yfir því hversu fáir einstaklingar úr áhættuhópunum koma nú til mót- efnamælinga. Út frá reynslu minni í hópi homma langar mig til að varpa ljósi á nokkra þætti sem þama gætu legið að baki og ræða nokkuð hvað stjómvöld gætu gert. Gífúrlegur þrýsingur er lagður á þá einstaklinga sem telja sig þurfa að vita fullvissu sína um hvort þeir beri í sér smit alnæmisveirunnar. Innri barátta er einnig mikil: Annars vegar er hræðslan en hins vegar þörfin fyrir fúllvissu. Það verður að segjast eins og er að til em sorgleg dæmi um einstaklinga sem sitja eftir og ekki þora að undirgangast lækn- isrannsókn í þessu skyni. Og enn átakanlegri em dæmin þegar grunur getur leikið á að viðkomandi þurfi á hjálp að halda. Það er erfitt að horfa upp á vini sína í þessari stöðu. En ég skil þá. Það em þung spor að undirgangast slíka rannsókn og eiga á hættu að fá staðfest smit. Og það er erfitt að takast á við lífið eft- ir slíka vitneskju. Þessum hetjum hversdagsleikans tileinka ég grein mína. Þögnin Hræðslan við sjúkdóminn er tví- þætt. í fyrsta lagi er auðvitað hræðslan við dauðann. Hún er sá þáttur sem er sterkastur. Hins vegar er hræðslan við hina félagslegu ein- angrun. Að vera dauðvona og einn er óbærilegt. Það er engin tilviljun að alnæmi hefur verið kallað sjúkdómur ein- manaleikans. Andstætt t.d. krabba- meinssjúklingum eiga alnæmis- sjúklingar, svo og þeir sem em smitaðir en heilbrigðir, mjög erfitt með að ræða eðlilega um aðstæður sínar. Þeir eiga á hættu að þeim verði mætt með höfnun. Að vera haldinn krabbameini og smitaður af alnæmisveirunni er þó á þann hátt hliðstætt að dauðalíkur hafa aukist. Að neyða einstaklinga til að þegja í þeirri stöðu er andlegt ofbeldi og ég lýsi ábyrgð á hendur stjómvöld- um meðan það viðgengst. Allt of lengi hefur það legið í þagn- argildi og verið bundið einhverjum undarlegum tilfinningum um sekt að verða fómarlamb þessa sjúk- dóms. f rauninni er það þó ekki undarlegt þvi veiran berst í kynlífi en kynlíf hefur í okkar menningu löngum verið á valdi sektarkenndar- innar, ekki síst kynlíf homma. En með því að vera sjálfum sér sam- kvæmir hafa hommar fyrir löngu gefið sektarkenndinni langt nef og hafnað því að verða fómarlömb and- legrar kúgunar. Sá ásetningur getur nú orðið lýsandi fordæmi fyrir þá sem em smitaðir eða veikir. Líkingin við holdsveikina Oft heyrist að alnæmi sé holds- veiki okkar tíma. Læknisfræðilega er þetta út í hött en sé tekið mið af hinni félagslegu hlið málsins hefur slíkur samanburður nokkuð fyrir sér. í staðinn fyrir að hafna saman- burðinum langar mig því til að fylgja honum svolítið eftir. Fram á miðja þessa öld var holds- veikum útskúfað úr mannlegu samfélagi. Þá fannst lyf við veikinni og hræðslunni létti. Vísindamenn hafa seinna komist að því að holds- veiki hafi verið afskaplega lítið smitandi og litlar líkur á að þú smit- aðir sjálfan maka þinn. Þetta vissu forfeður okkar ekki og eftir að smit- kenningin var sett fram á 16. öldinni urðu hinir holdsveiku fómarlömb ofeahræðslunnar. Vanþekkingin réð ferðinni. Vísindi okkar hafa sannað að al- næmisveiran berst ekki í daglegri umgengni en holdsveikin barst við snertingu. Samt sem áður sjáum við merki ofeahræðslunnar víða að úr heiminum. Foreldrar skólabama í Bandaríkjunum mótmæla því að smituð böm njóti þeirra mannrétt- inda að ganga í sama skóla og önnur böm. Þó að landinn hafi að mestu leyti haldið sig á mottunni hvað varðar slík viðbrögð þá er ljóst að slíkar fréttir síast inn í vitund fólks og marka afstöðu þess til smitaðra einstaklinga, svo og til einstaklinga úr áhættuhópunum almennt. Nóg er að tilheyra áhættuhópi til að grunsemdimar vakni. Nægir í þessu sambandi að minna á blaðamál fyrir nokkm þegar virkum félaga i Sam- tökunum ’78 var meinaður aðgangur að sundlaug hér í borg. Staða hinna holdsveiku var oft á tíðum slík að þeir leituðu síst af öllu til læknis. Þeir hurfú heldur undir jörðina af hræðslu við stimplunina. En þeir áttu að vonum erfitt með að vara aðra við ástandi sínu af ótta við að upp um þá kæmist. Þannig breiddist veikin út. Á þennan ótví- ræða hátt kennir sagan okkur að ömggasta vömin við útbreiðslu er að tryggja borgaraleg réttindi við- komandi einstaklinga. Um leið vitum við að engin ástæða er til annars. Við lifum ekki í myrkri mið- aldanna. Við vitum um smitleiðir alnæmisveimnnar og fræðsla er hér lykilorðið. Málefnaleg umræða Vert er að nefna annan þátt sem hindrar homma og bisexúal karl- menn í að leita í mótefnamælingar. Það er hræðslan við að upp komist um kynhneigð viðkomandi. Flestir hommar lifa í felum. Og þar sem hommar em stærsti áhættuhópurinn er erfitt að dyljast sem slíkur ef aðr- ir fá vitneskju um smit. Þannig má segja að samfélagið sé að taka út refsingu sína fyrir að hafa alið á hommafyrirlitningunni. Erfiðara verður fyrir bragðið að finna umfang vandans og fá hann upp í dagsljósið. Ráð við þessu væri auðvitað að beita sér fyrir málefnalegri umræðu um „En með því að vera sjálfum sér samkvæm- ir hafa hommar fyrir löngu gefið sektar- kenndinni langt nef og hafnað því að verða fómarlömb andlegrar kúgunar. Kjallaiiim Einar Þorleifsson félagsráðgjafi og félagi i Samtökunum 78 samkynhneigð. Allavega ber að forðast umræðu sem elur á neikvæð- um viðhoríúm til samkynhneigðs fólks. Heimskulegar athugasemdir um alnæmi sem hommasjúkdóm sem tengist lífemi þeirra er dæmi um slíka umræðu. Allir ættu nú að vita að alnæmis- veiran gerir ekki mannamun. Tilvilj- un ein réð því að hommar urðu fyrst fyrir barðinu á veirunni á Vesturl- öndum en í Afríku er veiran jafnút- breidd meðal allra þjóðfélagshópa. Lokaorð Ég hef í þessari grein bent á nokk- ur atriði sem auðveldað gætu aðstæður þeirra sem lenda í þeirri ógæfu að smitast. Fræðsla og borg- araleg réttindi em þar aðalatriði. Með fræðslu er hægt að komast hjá galdrabrennuhugsunarhættinum og ofeahræðslunni. En tilgangur fræðslustarfeemi er einnig sá að fómarlömbin verði ekki fleiri. Við skulum ekki stinga höfðinu í sandinn: Stöðugt fleiri smitast. I nágrannalöndunum, m.a. Dan- mörku, hefúr upplýsingabæklingum verið dreift inn á hvert og eitt heim- ili. Á íslandi kom út bækhngur fyrir meira en ári og er úreltur og ófull- nægjandi. Brýn þörf er á endumýjun og mér er spum: Eftir hverju em islensk stjómvöld að bíða? Einar Þorleifsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.