Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986. Utlönd í Kína er fjöldi íbúa meiri en einn milljarður. Hjónum hefur verið bannað að eignast fleiri en eitt bam en nú eru yfirvöld farin að veita samþykki sitt til þess að fólk megi reyna að eignast son ef fyrsta bam er stúlka. Myrða stúlkuböm vegna gamalla fordóma Að eignast dóttur er í mörgum löndum Asíu sú mesta ógæfa er fjöl- skylda getur orðið fyrir. Þrátt fyrir hraða efnahagsþróun og aðrar fram- farir á sviði framleiðslu og þjónustu tröllríða ennþá samfélögunum trú- arforboð og siðvenjur frá því á dögum Konfúsíusar. I Kína hafnar stjómin opinberlega aldagömlum fordómum gegn stúlku- bömum en meðal 800 milljóna bænda á löngunin eftir syni sér svo djúpar rætur að stjómin er farin, þrátt fyrir ofijölgunarvandamálið, að falla frá þeirri stefnu sinni að hjón megi aðeins eignast eitt bam. I maí tilkynntu yfirvöld í Guang- dong héraðinu að ef fyrsta bam bænda væri stúlka mættu þeir gera aðra tilraun til þess að eignast son. Banna legvatnspróf í Suður-Kóreu, þar sem verksmiðj- ur af nýjustu gerð hafa ekki undan að framleiða bíla og myndsegulbönd fyrir bandarískan markað, berst stjómin við arfleifð Konfúsíusar. Vegna vaxandi fjölda fóstureyðinga meðal þeirra kvenna er von eiga á stúlkubömum hafa yfirvöld bannað legvatnspróf er sýnir kyn fóstursins. Kvenréttindafélög á Indlandi, og önnur samtök er berjast fyrir mann- réttindum, hafa farið þess á leit við yfirvöld þar í landi að þau grípi til svipaðra aðgerða en án árangurs. Talsmenn samtakanna segja að læknastofur í borgum og þorpum landsins setji upp sérstakar stofúr þar sem boðið er upp á legvatnspróf fyrir 40 dollara. Er þá sérstaklega höfðað til fiölskyldna sem ekki vilja eignast stúlkuböm. Vilja samtökin að legvatnspróf fari fram á sérstök- um stofnunum undir eftirliti yfir- valda. Aðalritari kvennasamtakanna á Indlandi, Sushila Gopalan, segir að í landi þar sem fordómar gegn kon- um séu ríkjandi séu þessi legvatns- próf enn einn krossinn sem indverskar konur þurfa að bera. Bæði Kína, þar sem íbúafjöldinn er meiri en einn milljarður, og Ind- land, með 750 milljónir íbúa, hafa lögleitt fóstureyðingu sem takmörk- un við fæðingum. Árið 1984 vom framkvæmdar tæplega 9 milljónir fóstureyðinga í Kína. Nýjustu tölur frá Indlandi em frá 1980-1981 en þá vom framkvæmdar þar tæplega 2 milljónir fóstureyðinga. Morð algeng Morð á nýfæddum stúlkubömum em algeng í norðurhluta Indlands en ekki em til neinar tölur yfir fjölda þeirra. Algeng morðaðferð er að kæfa ungbömin með votu hand- klæði. Þó að yfirvöld í Kína hafi í fyrra harðlega neitað fúOyrðingum um að ungbamamorð séu algeng úti á landsbyggðinni koma samt fréttir um einstök tilfelli í opinberum fjöl- miðlum þar. Aldagamlir fordómar gegn stúlku- bömum tröllríða ennþá mörgum samfélögum í Asíu. Sagt hefúr verið fiá manni frá borginni Kaifeng sem var ásakaður um að hafa reynt að myrða þriggja mánaða gamla dóttur sína með því að stinga pijónum og flísum úr bambusreyr í höfúð hennar. Tók hann til við þetta eftir að kona hans hafði stungið upp á því að þau reyndu að eignast son. Að því er sagði í kínverska blaðinu sýnir þetta viðhorf greinilega hversu djúpar rætur fordómar gegn kvenkyninu eiga sér. En þetta viðhorf er ekki bara ríkj- andi í samfélögum Konfúsíusar í austurhluta Asíu og hjá hindúum á Indlandi heldur einnig hjá múha- meðstrúarmönnum í Pakistan. Fyrirvinna í Pakistan er frekar óskað eftir drengjum þar sem gert er ráð fyrir að þeir verði fyrirvinna fjölskyld- unnar en stúlkur verða að gera sig ánægðar með það að vera húsmæð- ur. Konur til sveita, sem ekki hefur tekist að fæða syni, leita til heilagra manna og biðja þá um töfragripi ef það mætti verða til þess að þær eign- ist drengi. í Pakistan hefúr ekki verið komið á fót læknastofum er gera sér for- dómana að féþúfu og fóstureyðingar eru bannaðar. Dagblöð skýra oft frá atvikum þar sem ungaböm hafa verið yfirgefin af mæðrum sínum. Fyrir þrem árum var ungabam, sem skilið hafði verið eftir fyrir utan bænahús í Karachi, grýtt til dauða, að tilskipan yfirmanns bænahússins. Bað hann mannfjöldann að drepa þetta afkvæmi djöfúlsins. Engar handtökur fylgdu í kjölfar atburðar- ins. Dætrum mismunað Margir réttrúaðir múhameðstrú- armenn mismuna dætrum sínum með því að neita þeim um æðri menntun til þess að fullvissa sig um að þær fari ekki út á vinnumarkað- inn heldur haldi sig innan veggja heimilisins. í mörgum auðugri þjóðfélögum í Asíu virðast þessir gömlu fordómar vera að deyja út. í Hong Kong hafa til dæmis betri lífcskilyrði og mennt- un aðstoðað við að þreyta viðhorfi foreldra til stúlkubama. Margir Kínveijar, búsettir í Hong Kong, lýsa því nú yfir að þeir taki ekki drengi fram yfir stúlkur. Þó eimir svolítið eftir af þörf þeirra fyr- ir að ættamafni þeirra sé haldið við. Að láta gera legvatnspróf til að komast að því hvort konur gangi með dreng eða stúlku er bannað í Hong Kong en fóstureyðingar eru leyföar þar. Hækka stöðu kvenna í Suður-Kóreu, þar sem velmegun fer vaxandi, ætla yfirvöld að reyna að hækka þjóðfélagslega stöðu kvenna og veita þeim fleiri tækifæri á vinnumarkaðinum. Vonast er til að litið verði á konur sem dýrmæt- ari þjóðfélagsþegna en nú er gert. En það er þó langt í land í roörgum hlutum Asíu. I fyrra komu vestrænir fréttamenn að fatækum konum í Kína, rétt við landamæri Hong Kong. Buðu þær böm sín til sölu og var verðið á drengjum 540 dollar- ar en stúlkur vom seldar á 325 dollara. Umsjón: Ingibjörg Bára Sveinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.