Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Blaðsíða 3
„Ég var heppinn og tapaði sem betur fer engu. Fyrsta greiðsla mín vegna sumarhúsakaupanna á Spáni komst til skila en Páll stal þeirri síðari. Hann þorði svo ekki annað en endurgreiða mér Qárhæðina þegar ég ætlaði að sýna hörku. Ég tók snemma eftir því að ef hann fann linkind gekk hann á lagið,“ sagði húsmóðir í Reykjavík sem átti viðskipti við Umboðssölu Páls Jónssonar. Páll Jónsson hefur nú verið kærður til Rannsóknarlögreglu ríkisins fyrir að hafa tekið við rúmlega 700 þúsund króna greiðslu vegna sumarhúsa- kaupa á Spáni og stungið í eigin vasa. í gærmorgun höfðu ekki fleiri kærur borist vegna starfsemi Páls þó svo 12 aðrir aðilar hafi sannanlegá sömu sögu að segja og hafi samanlagt tapað rúmlega 6 milljónum króna: „Ég skil ekki hvað maðurinn hefur gert við allt þetta fé. Ekki barst hann á,“ sagði einn viðmælandi blaðsins. Fómarlömb Páls Jónssonar eru bú- sett víða um land: - Forstjórafrú á Seyðisfirði tapaði 742 þúsund krónum er hún hafði greitt inn á sumarhús á Spáni. Frúin var ekki einu sinni á lista hjá spænsku seljend- unum. - Fiskverkandi í Sandgerði tapaði 680 þúsundum og rækjuverkandi á Sumartiúsasvik Páls Jónssonar teygja sig um allt land: „Ef hann fann linkind gekk hann á lagið‘ ‘ sama stað 318 þúsund krónum. - Stórkaupmaður er rekur verslanir við Langholtsveg tapaði 147 þúsund krónum. - Hjón í Kópavogi töpuðu rúmlega einni milljón. - Bóndi á Kjalamesi tapaði 300 þús- und krónum. - Öryrki í Breiðholti tapaði 46 þús- und krónum. Þá hafði starfsmannafélag Garða- bæjar greitt Páli 375 þúsund krónur vegna sumarhúsakaupa og Iðnaðar- mannafélag Sauðárkróks 556 þúsiind krónur. Þessi félög munu þó hafa feng- ið tiyggingar fyrir endurgreiðslu fjárins. Mál annarra em í biðstöðu og alls óvíst að fleiri kærur komi fram á Pál vegna skilasvika á greiddum inn- borgunum. Kaupendur munu óttast að fjárfestingar þeirra í sumarhúsum brjóti í bága við gjaldeyrislög og sætti sig þvi betur við tapað fé en málarekst- ur fyrir dómstólum. -EIR 1987 árgerðirnar á nýju óg betra verði F// A T Uno FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986. Fréttir Stjóm stúdentaráðs: Mótmælir ákvörðun stjómar Háskólabíós Stjóm stúdentaráðs Háskóla Islands hefúr mótmælt ákvörðun stjómenda Háskólabíós að fella niður ókeypis aðgang stúdenta að sýningum bíósins. í ályktun, sem stjómin hefúr sent frá sér, segir meðal annars: „Telja verður að stjóm Háskólabíós hafi bmgðist full harkalega við, þar sem ekki er fúllreynt, hvort hægt er að leysa þetta mál á annan hátt, til dæmis með því, að stúdentar greiði þann hluta aðgöngumiðaverðs, sem rennur til erlendra aðila. Stjóm stúdentaráðs hvetur stjóm Háskólabíós til þess að leita leiða til lausnar þessa máls. Ennfremur lýsir stjómin sig reiðubúna til samstarfs um að finna lausn á þessu vandamáli." -KÞ Rækjubátur tekinn: Dæmdur í 110 þúsund kr. sekt Felldur hefúr verið dómur í saka- dómi Bolungarvikur yfir skipstjóran- um á rækjubátnum Geir goða GK-220. Var skipstjórinn dæmdur í 110 þúsund króna sekt fyrir að hafa stundað ólög- legar rækjuveiðar norður af Stranda- grunni. Landhelgisgæslan tók Geir goða á þessu svæði um síðustu helgi en bátur- inn reyndist ekki vera með tilskilin leyfi firá sjávarútvegsráðuneytinu til rækjuveiða. Var báturinn fluttur til hafnar í Bolungarvík. í sömu ferð tók LHG tvo aðra báta til hafiiar en yfir- menn á þeim reyndust án tilskilinna réttinda. Dóminn í máli Geirs goða dæmdi Ólafúr K. Ólafsson, settur bæjarfótgeti í Bolungarvík. -FRI Nú hafa FIAT- verksmiðjurnar samþykkt afgerandi verðiækkun á ölium 1987árgerðum FIATbifreiða - GÓÐ VERÐIGÓÐÆRI annn umboðið SkeifunniS, Reykjavík Sími6888 50 páv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.