Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986.
Atvinnumál
Norðmenn smíða sitt
stærsta fiskiskip
Reykjavík
Eftir sumarleyfi hafa eftirtalin skip
landað í Reykjavík. Bv. Ásbjöm land-
aði 9. september 160 tonnum, mest
karfa. Bv. Ásþór landaði 8. sept. 127
tonnum, einnig mest karfa. Bv. Hjör-
leifur landaði 1. september 133 tonn-
um, og bv. Vigri landaði 9. sept. um
300 tonnum, báðir mest karfa.
Fiskurinn var allur 1. flokks. Eins og
sjá má er það mikils virði að vera með
góðan fisk.
Bv. Oddgeir landaði 117 tonnum fyr-
ir 3,9175 millj. kr. Stór þorskur kr.
77,43, meðalstór þorskur kr. 74,99,
smáfiskur kr. 67,18, ýsa 65, meðalstór
ýsa 62,50, smáýsa kr. 62,50. Skarkoli
af meðalstærð kr. 60, smákoli kr. 55,63,
England
Seldur fiskur úr gámum 8.9. 1986.
Sundurliðun Selt magnkg Verð í erl. mynt Söluverð ísl. kr. kr. pr. kg
Þorskur 192.637,50 213.578,60 12.933.038,54 67,14
Ýsa 10.025,00 11.673,00 706.846,84 70,51
Ufsi 660,00 603,00 36.514,06 55,32
Karfi 2.057,50 1.263,00 76.479,70 37,17
Koli 16.352,50 17.551,80 1.062.831,70 65,00
Blandað 3.933,75 5.703,00 345.339,46 87,79
Samtals 225.666,25 250.372,40 15.161.050,31 67,18
Grimsby
Bv. Rauðinúpur landaði 3. septemb-
er, verð var gott meðalverð, kr. 74,70.
Þorskur kr. 84,03, meðalstór þorskur
kr. 75,40, smáfiskirr 69,20, karfi 40,43,
smálúða kr. 57,43, steinbítur kr. 50.
Peningainarkaður
VEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur óbundnar »-9 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 8.5-10 Ab.Lb.Vb
6 mán.uppsögn 9.5-12.5 Ab.Vb
12 mán. uppsögn 11-14 Ab
Sparnaður - Lánsréttur
Sparað i 3-5 mán. 5-13 Ab
Sp. í 6 mán. og m. 5-13 Ab
Avisanareikningar 3-7 Ab
Hlaupareikningar 3-4 Lb.Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1 Allir
6 mán. uppsögn 2.5-35 Lb
tnnlán meö sérkjörum 5-16
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalur 6-7 Ab
Sterlingspund 9-10.5 Ab.Vb
Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab
Oanskar krónur 6-7.5' Ab.Lb, Bb.Sb
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 15.25 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kge og 19.5
Almenn skuldabréf(2) 15.5 Allir
Viðskiptaskuldabréf (1) kg« Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 7-9
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Að 2.5 árum 4 Allir
Til lengritima 5 Allir
Utlán til framleiðslu
ísl. krónur 15
SOR 7.75
Bandaríkjadalur 7.75
Sterlingspund 11.25
Vestur-þýsk mörk 6
Spariskírteini
3ja ára 7
4ra ára 8.5
6ára 9
Með vaxtmiðum(4 ár) 8.16
Gengistryggð(5 ár) 8.5
Almenn verðbréf 12-16
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLU R
Lánskjaravisitala 1486 stig
Byggingavísitala 274.53 slig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 5% 1. juli
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnverðs:
Eimskip 200 kr.
Flugleiðir 140 kr.
Iðnaðarbankinn 98 kr.
Verslunarbankinn 97 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, af þriðja aðila, er
miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
flestum bönkum og stærri sparisjóðum.
(2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs
vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð
og óverðtryggð lán. Skammstafanir:
Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðar-
bankinn, Ib = Iðnaðarbankinn, Lb =
Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn,
Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunar-
bankinn, Sp = Sparisjóðimir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DV á fimmtudög-
ufsi kr. 40,94, karfi kr. 42, steinbítur
kr. 62. Fiskurinn var sæmilegur, 1. fl.
40%, 2. fl. 60%.
Bv. Viðey landaði 206 tonnum fyrir
12.655.646 kr., meðalverð kr. 65,50. Stór
þorskur kr. 71,83; meðalstór þorskur
68,60; smáþorskur kr. 63,04; stór ýsa
71,27; meðalstór ýsa 65,45; skarkoli
73,47; smákoli 65,45; ufsi kr. 26,90;
steinbítur kr. 59; sólkoli kr. 150 kg. í
fyrsta flokk fóru 40%, í annan fl. 60%.
Bv. Sveinborg landaði alls fyrir kr.
6.215.603,90. Stór þorskur 56,20 kg,
meðalstór þorskur 49,62 kg, smáfiskur
kr. 44,80 kg. ufsi kr. 38,57 og karfi kr.
20,63.
Hull
Bv. Haukafell landaði 9. sept. ca 40
tonnum fyrir kr. 2.058.180,90; meðal-
verð kr. 52,90. Stór þorskur kr. 70,96,
smáfiskur kr. 39; steinbítur kr. 57,20.
Noregur
Th. Hellesöy skipasmíðastöð í Harð-
angri smíðar 91 metra langan togara
Gott atvinnuástand:
0,4%
atvinnu-
leysi
í ágúst
Tíu þúsund atvinnuleysisdagar voru
skráðir á landinu öllu í ágúst. Það er
fækkun um fjögur þúsund daga frá
mánuðinum á undan. Er þetta minnsta
atvinnuleysi sem skráðst hefur í einum
mánuði á þessu ári.
Skráðir atvinnuleysisdagar í ágúst
jafngilda því að 465 manns hafi verið
á atvinnuleysisskrá allan mánuðinn
en það svarar til 0,4% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaði í ágúst sam-
kvæmt spá Þjóðhagsstofnunar. Er það
þriðjungi minna en að meðaltali í
ágúst síðastliðin þrjú ár.
Eins og fyrr segir fækkaði skráðum
atvinnuleysisdögum um fjögur þúsund
frá fyrri mánuði. Tekur fækkunin til
allra landsmanna nema Austurlands
þar sem ástandið var nánast óbreytt.
Mest fækkaði skráðum atvinnuleysis-
dögum á höfuðborgarsvæðinu, eða um
2.100 daga, en á því svæði eru þó um
43% af skráðu atvinnuleysi í mánuð-
inum en 33% mánuðinn á undan.
-KÞ
Norðmenn eru nú að láta smíða fyrir sig þetta fiskiskip sem er það stærsta til þessa.
Fiskiriarkaðimir
Ingólfur Stefánsson
sem ætlað er að veiða í sureme-fram-
leiðslu. Er þetta stærsta fiskiskip sem
smíðað hefur verið í Noregi. Útgerðar-
fyrirtækið Kelvin McHugh í Kikky-
bergs á írlandi lætur smíða þetta stóra
og fúllkomna fiskiskip. Stærð skipsins
er, eins og fyrr er sagt, lengd 91 metri,
breidd 15 metrar og dýpt 10 metrar.
Tækjabúnaður verður frystiaðstaða
fyrir makríl, kolmunna og síld í pönn-
um. Ennfremur verður í skipinu
verksmiðja fyrir sureme-framleiðslu.
Gert er ráð fyrir að skipið fiski vestan
við írland og Skotland. Áhöfii verður
70 manns.
í sumar hefur eitt skip verið á veið-
um fyrir gulllax en sá fiskur mun vera
mjög vel til fallinn að framleiða úr
honum fars fyrir sureme. Vonandi
verður því verkefni haldið áfram að
kanna möguleika til hh'tar um slíka
veiði hér við land.
Eru fiskimjölstöflur framtíðin?
Framkvæmdastjóri fyrir K.G. Punt-
ervold A/S, Ole Puntervold, segir að í
framtíðinni verði framleitt mikið af
fiskimjölstöflum til manneldis. Erfið-
leikar voru að finna rétt bindiefhi en
nú er sá vandi ekki fyrir hendi leng-
ur. Framleiðsluna hyggst fyrirtækið
selja til Danmerkur, Frakklands, Eng-
lands og fleiri landa.
Mjög stytt, Fiskaren 26.8. 1986.
Rússar
Samkvæmt upplýsingum Fishing
News Intemational er fiskveiðifloti
Rússa 15.000 vélknúin skip. 2000 stór
skip veiða 85% af öllum afla þeirra,
en hann var 9.545.900 tonn 1985. Síðan
1981 hafa afköst hvers fiskimanns au-
kist um 50% vegna hetri útbúnaðar,
skipin eru búin nýtísku tækjum og
áhafhimar þjálfaðar til að nota þau.
Noregur
Útflutningur Norðmanna á sardín-
um minnkaði árið 1985 í 47.200.000 úr
105.000.000 dósa, sem hann var 1984.
Til Suður-Afríku vom fluttar út 47.
000.000 dósir af sardínum en 31.300.000
árið 1985.
Kanada
Þorskveiðar Kanadamanna vom
1985 478.000 tonn, sem vom 85% af
veiðinni 1984. Heildarveiði er áæt.luð
530.000 tonn 1986; þorskur 453.000; ufsi
40.000 tonn og ýsa 37.000 tonn.
Kanadískur humar
Verslanir í Reykjavík hafa að und-
anfomu boðið viðskiptavinum sínum
kanadískan humar. Humrinum er
pakkað í hinar skrautlegustu umhúðir
en þó er erfitt að sjá útlit vörunnar
þar sem mikið er af vatni í pakkanum.
Humarinn kostar 1300 kr. kílóið svo
það er æði dýrt að leggja sér hann til
munns. Ekki get ég sagt um gæði þess-
arar vöm en efast stórlega um að
humarinn sé mikið bragðbetri en sá
sem við framleiðum sjálfir. Hér er eitt
dæmi þess hvemig við notum okkar
annars dýrmæta gjaldeyri. Auðvitað
væri hægt að benda á aðra vitleysu í
innflutningi fiskafurða en læt þetta
duga í bili.
Fjöldi atvinnulausra í ágúst
Atvlnnuleysisdagar i ágúst
„Held að
Rússar
kaupi
síldina“
- segir Kristján Ragnarsson
„Ég held að Rússar kaupi af okkur
síldina. Þeir vilja hafa viðskipti við
okkur. En kröfur þeirra núna virka
hjákátlegar. Þeir em að biðja um
umbúðir sem ekki er hægt að fá og
verða ekki búnar til. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem upp koma furðulegar
kröfur frá Rússum,“ sagði Kristján
Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
Samningaviðræður við Rússa um
sölu síldar em nú í uppsiglingu. Ekki
horfir vel fyrir þessar viðræður, þar
sem kröfur Rússa em þannig að flestir
telja alveg útilokað að ganga að þeim.
Auk þess að biðja um ófáanlegar um-
búðir krefjast þeir mun lægra verðs
en þeir kaupa síldina á í ár. Telja
margir að þeir séu að reyna að kom-
ast hjá síldarkaupunum.
„Við eigum ekkert að gefa eftir. Við
getum um frjálst höfúð strokið um
þessar mundir. Við hættum bara að
eiga viðskipti við þá ef þeir halda
áfram álíka kröfugerð," sagði Kristj-
án.
um.
-KB