Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986.
31
Iþróttir
lokabarátta Fram og Vals um íslandsmeistaratitilinn:
Þyrla verður til staðar
- ef bikarinn verður afhentur uppi á Akranesi. Failslagur í Hafnarfirði
Lokabaráttan um íslandsmeistara-
titilinn verður á morgun. Þá lýkur
einvígi Framara og Valsmanna, sem
verða í sviðsljósinu á Laugardalsvell-
inum og uppi á Akranesi. Hvar verður
bikarinn afhentur? er spuming sem
brennur á vörum knattspyrnuáhuga-
manna - á Laugardalsvellinum eða
uppi á Akranesi? KSÍ hefur tekið þyrlu
Landhelgisgæslunnar á leigu á morg-
un og verður hún til staðar, ef bikarinn
verður afhentur uppi á Akranesi. Bik-
arinn verður um borð í þyrlunni á
Reykjavíkurflugvelli og verða menn
frá KSÍ í stöðugu sambandi við Akra-
nes og Laugardalsvöll.
Margir möguleikar eru fyrir hendi.
Framarar eru með tveggja stiga for-
skot á Valsmenn og á þeim að duga
jafntefli gegn KR til að tiyggja sér
meistaratitilinn í fyrsta skipti í fjórtán
ár. Valsmenn geta þó náð Fram að
stigum en til að hljóta meistaratitilinn
verða þeir þá að vinna Skagamenn
með átta marka mun því að marka-
hlutfall Framara er miklu betra.
• Ef Framarar tapa fyrir KR og
Valsmenn vinna sigur á Akranesi, eru
Valsmenn meistarar. Ef Fram og Val-
ur tapa bæði þá eru Framarar meistar-
ar.
Mikill hugur í herbúðum Fram
Leikmenn Fram og Vals leika undir
mikilli pressu. Pressan er meiri á leik-
mönnum Fram þar sem þeir hafa
tveggja marka forskot á Valsmenn
sem hafa allt að vinna. Stuðningsmenn
Fram eru orðnir langeygðir eftir
meistaratitli. Félagið var síðast meist-
ari 1972. Þeir munu fjölmenna á
Laugardalsvöllinn á morgun og er
reiknað með að um 3000 áhorfendur
verði í Laugardalnum.
Það veða örugglega hörkuleikir á
báðum vígstöðvum. Framarar glíma
við KR-inga, sem hafa verið í mikilli
sókn, og Valsmenn eiga við Skaga-
menn sem hafa ekki tapað leik síðan
Pétur Pétursson byijaði að leika á ný
með þeim.
Framarar og Skagamenn eru að
undirbúa sig fyrir Evrópuleiki í næstu
viku og og eru leikimir þvi þýðingar-
miklir fyrir þá upp á stemmningu fyrir
Evrópuleikina að gera.
FH-ingar á hættusvæði
Það verður einnig spennandi keppni
um fallið. FH-ingar og Breiðabliks-
menn berjast um tilverurétt sinn í
deildinni á Kaplakrikavellinum í
Hafnarfirði. Blikamir verða að vinna
FH-inga með þriggja marka mun til
að forða sér frá falli. Það er ljóst að
FH-ingar leika vamarleik. Ingi Bjöm
Albertsson fer aftur í vömina eins og
í leiknum gegn Fram og verður um-
kringdur sterkum mönnum. Þá má
fastlega reikna með að FH-ingar láti
einn leikmann elta Jón Þóri Jónsson,
hættulegasta sóknarleikmann Breiða-
bliks.
• Fimm leikir verða í 1. deild og
hefjast þeir allir kl. 14.30. Akranes -
Valur, KR - Fram, Víðir - Vest-
mannaeyjar, FH - Breiðablik og Þór
- Keflavik.
•Víðir leikur án bræðranna Vil-
hjálms og Daníels Einarssona sem em
í leikbanni.
-sos
Vinnur Juventus
sinn 23 titil?
- keppni á Ítalíu hefst um helgina
Nú um helgina hefst deildakeppnin
í knattspymu á Ítalíu og sem fyrri
daginn beinast athygli flestra að
meisturum Juventus. Þeir em nú sem
endranær taldir líklegastir til að
hrejipa titilinn en Juventus hefur orð-
ið Italíumeistari í 22 skipti. Nú hefur
orðið sú breyting hjá liðinu að aðal-
þjálfari þess síðustu 10 árin, Giovanni
TVapattoni, er hættur hjá liðinu. Á
ferli sínum með liðinu vann hann til
allra hugsanlegra verðlauna.
Nú hefúr Trapattoni tekið við Inter
Mílanó og verður fróðlegt að fylgjast
með því liði í vetur. Hann hefur keypt
Daniel Passarella til liðsins en hann
hefur leikið mörg ár hjá Fiorentina
og staðið sig frábærlega þar. Hjá
Mílanó hittir hann fyrir ekki ómerk-
ari kappa en Karl-Heinz Rummenigge.
„Það verður spennandi að sjá hvað
við náum að gera í vetur,“ sagði Tra-
pattoni.
Það er Rino Marchesi sem tekur við
þjálfun hjá Juventus núna en liðið
hefur titilvöm sína gegn Udinese.
Þetta verður erfiður vetur hjá Udinese
en liðið byijar með 9 stig í mínus en
liðið varð uppvíst að því að taka þátt
í miklu mútuhneyksli í fyrra. 30 lið
vom dæmd en Udinese var eina 1.
deildar liðið sem flæktist í málið.
Hvað gerir Maradona
Napoli liðið er talið geta gert stóra
hluti í vetur og á því er aðeins eins
skýring - Diego Armando Maradona.
Með hann innanborðs vonast Na-
políbúar til að liðið vinni sinn fyrsta
meistaratitil. Framkvæmdastjóri liðs-
ins, Ottavio Bianchi, gerir sér þó grein
fyrir að Maradona einn vinnur ekki
titilinn. Hann hefúr því styrkt hópinn
hjá sér með þvf að kaupa Femando
de Napoli sem stóð sig einna best
landsliðsmanna ítalfu f Mexíkó.
•Guðmundur Steinsson, fyrirliði Fram, sést hér skora mark gegn Viði.
Hampar Guðmundur íslandsmeistarabikamum á morgun?
DV-mynd Brynjar Gauti
Fer Ekström til Ítalíu?
Johnny Ekström, sem skoraði sigur-
mark Svía á móti Englendingum á
miðvikudagskvöldið, mun að öllum
líkindum leika á Ítalíu í vetur. Em-
poli, sem kom upp úr 2. deild, hefur
mikinn hug á því að fá kappann til
sín en hann hefur verið mjög iðinn
við að skora með landsliðinu og
Gautaborgarliðinu.
Samningaviðræður eru nú á loka-
stigi og hefúr verið nefnt að Empoli
hafi boðið Gautaborgarliðinu 40 millj-
ónir króna fyrir Ekström. „Við erum
fátækt félag en allt er mögulegt í
knattspymu," sagði talsmaður Empoli
þegar hann var spurður um þessa upp-
hæð.
-SMJ
„Útlendingarnir“ að hverfa?
„Erlendir leikmenn eru ekki lengur
í tísku,“ sagði frægur ítalskur íþrótta-
fréttamaður en það hefur vakið
athygli að erlendum leikmönnum hef-
ur fækkað á Ítalíu. Fyrir tveim árum
voru þeir 39 í tveim efetu deildunum
en nú eru þeir komnir niður í 30. Að
vísu er innflutningsbann á erlenda
leikmenn núna en eigi að síður greina
menn minnkandi áhuga á því að fá
þá til Ítalíu. Þar spilar inn í að menn
óttast afleiðingar þess fyrir ítalska
knattspymu og er slakt gengi lands-
liðsins síðan 1982 talið skýrt dæmi um
þessa öfugþróun. Þá er talið næsta
víst að tillaga Juventus og fleiri stór-
liða um að leyfa þrjá útlendinga í liði
verði felld.
Það eru aðeins þau lið sem komust
upp í 1. deild sem geta keypt útlend-
inga til sín. Brescia, Ascoli og Empoli
komust upp og það var aðeins Brescia
sem notaði tækifærið og keypti brasil-
íska vamarmanninn Claudio Branco.
Ascoli lét sér nægja að fá Liam Brady
til liðs við sig en írinn hefur nú verið
sex ár á Ítalíu, nú síðast hjá Inter
Mílanó. -SMJ
•Diego Armando Maradona.
DV-lið
17. um-
férðar:
• Þorsteinn Gunnarsson • Gunnar Gíslason (2)
(2) markvörðiu-, Vest- varnarmaður, KR
mannaeyjum
• Ágúst Már Jónsson (7) • Loftur Ólafsson (4) vam- # Kristinn jónsson mið-
vamarmaður, KR armaður, KR vallarleikmaður, Fram
• Rognvaldur Rognvalds- # Sveinbjöm Hákonarson # Ómar Jóhannesson miö-
«>n miðvallarleikmaður, (3) miðvallarleikmaður, vallarleikmaður, Vest-
Breiðabliki Akranesi mannaeyj um
• Hókon Gunnarsson mið-
vallarleikmaöur, Breiða-
bliki
• Guðmundur Steinsson
(2) sóknarmaður, Fram
• Guðmundur Torfason (9)
sóknarmaður, Fram
• Tommy Docherty.
„Davenport
og Gibson
ómögulegir“
Tommy Docherty, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Manchester
United og reyndar fjölmargra ann-
arra liða, er frægur fyrir að liggja
ekki á skoðunum sínum. Hann er
þekktur fyrir skrautlegar vfirlýs-
ingar og hefúr oft komist skemmti-
lega að orði og er vinsæll hjá
fjölmiðlum fyrir vikið.
Hann hefur ekki mikla trú á
nýjasta sóknartríói Manchester
United, þeim Peter Davenport og
Terry Gibson: „Davenport er eins
og skegglaus Gar>’ Birtles. Það
væri hægt að láta hann hafa 12
skot til að taka einhvem af lífi og
sá hinn sami þyrfti ekki einu sinni
á plástri að halda eftir það. Og
Gibson er svo lítill að ef þeir slá
ekki grasið daglega á Old Trafford
myndi hann týnast þar.“ Þetta eru
stór orð en flestir virðast hafa af
því nokkra ánægju þessa dagana
að gefa út yfirlýsingar í kjölfar
hörmulegs gengis Manchester
United. -SMJ
HættirZico
vegna meiðsla?
„Þar sem linjámeiðsli mín há
mér mjög verð ég að fara i upp-
skurð. Og ef það reynist eins og
ég óttast og liðböndin séu mikið
sködduð neyðist ég líklega til að
leggja skóna á hilluna. Það er best
að hætta áður en maður verður
alger aumingi,“ sagði brasilíski
knattspymusnillingurinn Zico við
blaðamenn nýlega. Hann hefur átt
við þrálát meiðsli að striða í rúmt
ár og komu þessu meiðsli meðal
annars í veg fyrir að hann gæti
leikið af fullum krafti i Mexíkó.
Það vekur athygli að þetta er í
fyrsta skipt sem Zico nefnir þann
möguleika að hann verði að hætta
knattspymuiðkun. Hann er nú 33
ára. -SMJ
Úrslitin
verða í Vín
tírslitaleikurinn í Evrópukeppni
meistaraliða um Evrópubikarinn
fer líklega fram á Prater leikvang-
inum í Vín en leikurinn verður
háður 27. maí. Þá keppa Amster-
dam og Rotterdam um að sjá um
úrslitaleikinn í Evrópukeppni bik-
arhafa en sá leikur verður háður
13. maí.
Enn hefúr ekki verið tekinn end-
anleg ákvörðun um hvort leikimir
fara fram á þessum stöðum en ör-
yggiskröfur sem UEFA gerir eru
orðnar gríðarlegar. „í kjölfar auk-
ins ofbeldis meðal áhorfenda og
umsvifa alþjóðlegra hryðjuverka-
samtaka eru öryggisráðstafanir
orðnar okkar aðalmál,1' sagði
Jacques Georges, forseti UEFA.
-SMJ