Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Síða 26
38 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986. Menning Wolfgang Plagge, rómantíkervið píanóið Tónleikar Wotfgarvgs Plagge á vegum Tón- listarfélags Kristskirkju 7. september. tfnisskrá: Johann Sebastian Bach: Toccata i e-moll BWV 912; Ludwig van Beethoven: Sónata i C-dúr op 53, (Waldstein); Domenico Scarlafti: Sónata í D-dúr; Wolfgang Plagge: Sónata nr. 5 op 23. Þrátt fyrir góðan ásetning og heiðar- lega tilraun fór þó svo að ekki komst undirritaður á fyrri tónleika norska píanóleikarans Wolfgangs Plagge sem hann hélt í Norræna húsinu. Mátti raunar þakka fyrir að sleppa nokkum veginn með heilli há. En svo vel bar þó í veiði að hann hélt aðra tónleika á vegum Tónlistarfélags Kristskirkju dagirvn eftir og þangað skrölti mús- íkskríbentinn til að missa ekki alfarið af kappanum. Tónleikamir i Safhað- arheimili Kristskirkju fengu skamm- arlega litla kynningu, hverju sem um er að kenna, og vom þar af leiðandi verr sóttir en efni stóðu til. Stóðst prófið með prýði Það má gjaman hafa fyrir prófstein á karakterstyrk listamanna hvort þeir standa sig þótt aðeins fáeinir mæti á tónleika þeirra. Og þetta próf má segja að Wolfgang Plagge hafi staðist með prýði. A þessum tónleikum spilaði hann ekki verk landa sinna, Griegs og Sevemds, sem vom á tónleikunum í Norræna húsinu, en að öðm leyti var efnisskráin lík. Hann hóf leikinn með einni af síðustu tokkötum Bachs sem hann samdi fyrir frumgerð píanós- ins og sem er því fyllilega réttlætanlegt að leiknar séu á píanó, þar sem þær em ekki sembalmúsík sem verið er að færa yfir á milli hljóðfæra af seinni tíðar mönnum. Það er svo aftur annað mál hvort maður er yfirbragði og stíl flytjandans sammála. Wolfgang Plagge ræður bara yfir svo mikilli fæmi sem píanisti að þó maður sé kannski annarrar meiningar um stíl þá er ekki annað hægt en að dást að leik hans. Að skipta á íhugun og færni Sama máli gegndi um Waldsteinsó- nötuna. Ég hefði gjaman viljað skipta á svolitlu af fæminni og fiminni, sem á mig verkaði yfirborðskennd, og meiri íhugun, þá jafhvel á kostnað þeirrar fljúgandi tækni sem Plagge ræður yfir. En þetta var óneitanlega stórglæsileg spilamennska þótt hún félli ekki alveg að mínum hugmyndum um túlkun verkanna. Merkilegt nokk, þá virtist þenslustíll Plagges eiga vel við Scarl- attisónötuna sem hann lék, en hún mim hafa númer einhvers staðar rétt ofan við miðju af þeim á sjötta hundr- að sem hann samdi fyrir píanó. Tónlist Eyjólfur Melsted Alla þá tæknilegu þætti sem einn stórpíanisti þarf á að halda Að síðustu lék Wolfgang Plagge nýja sónötu eftir sjálfan sig sem ber númerið fimm og opusnúmer tuttugu og þrjú. Skráningin samkvæmt góðri Wolfgang Plagge. hefð og dyggðum segir kannski svolít- ið til um innihaldið. Wolfgang Plagge er greinilega nýrómantíker. Þá skil- greiningu er náttúrlega svo oft búið að nota með misjafhri meiningu, allt eftir því hvenær menn hafa verið staðnir að því að bera á borð rómant- ík í verkum sínum. En einhvem veginn held ég að við verðum að láta poppfræðingum eftir að tala um ný- bylgjurómantík og þass háttar sem við, þessir miðaldalegu, kunnum hal- lærislega lítil skil á. Gott og vel, ef Wolfgang Plagge væri ekki svo feim- inn við að láta melódískar tilhneiging- ar ná of sterkum tökum á sér myndi maður einfaldlega kalla hann ró- mantíker. En sónatan var afar píanist- isk og sérlega vel upp byggð. Hún er bæði eymagaman og stykki sem pían- istanum þætti eflaust gaman að glíma við. Og varla þcirf að geta þess sér- staklega að Wolfgang Plagge var aldeilis í essinu sínu við leik eigin verks og lét alla sína fljúgandi fimi bruna óhefta um þær hvítu og svörtu, áheyrendum til óblandinnar ánægju. Hann hefur á valdi sínu alla þá tækni- legu þætti sem einn stórpíanisti þarf á að halda, og mikið held ég að verði gaman að fylgjast með því hvemig huglæga hliðin þróast hjá honum í tímans rás. EM. Austræna og vestræna í Hlaðvarpanum fer nú fram sýn- ing sem sjálfsagt kemur mörgum aðkomumönnum í opna skjöldu. Verkin em eftir kínverskan lista- mann, Wu Shan Zuan, og em þau hingað komin í farteski Kára nokk- urs Schram, ungs heimshomaflakk- ara úr Reykjavík. Annað eins hefur að vísu gerst. En það sem gerir þessa sýningu sér- staka er að hún ber þess ekki merki nema að takmörkuðu leyti að lista- maðurinn er austan úr Kína. Myndmál hans sver sig nefhilega mest í ætt við vestræna myndlistar- Kári Schram hengir upp verk eftir Wu Shan Zuan. tísku hin síðari ár, gengur út á ýmisleg myndhvörf, aðallega sam- setningar á mótífum úr mannheim- um og dýraríki. Og þá hugsar maður með sér: Þetta hlýtur að vera vestrænn Kínverji á borð við Walasse Ting. Öekki. Á fjöl- rituðu blaði, sem fylgir sýningunni, skýrir Kári Schram frá því að Zuan sé fæddur árið 1960 á lítilli eyju aust- ur pf Kína og hafi hann unnið við fiskverkun í sjö ár áður en hann gekk i listaskóla í Chejang. Sýningunni fylgir einnig stutt myndband, tekið af Kára, þar sem Zuan ræðir verk sín á ágætri ensku. Við verðum að gera ráð fyrir að allt sé með felldu varðandi þessa kynn- ingu og hljótum því að álykta að Zuan hafi til að bera meira en venju- legar eðlisgáfur og frumleika. Haldi hann rétt á hvoru tveggja, penslum og spilum, hefur hann alla burði til að verða stórstjama í kínverskri nútímalist. Nánari skoðun leiðir í ljós að það er í raun hin kínverska myndlistar- arfleifð sem gerir Zuan kleift að brjótast út úr einangrun sinni og leggja í hugarflug. Hinn breiði pentskúfur og gljúpi pappír, sem áður þjónuðu myndletr- inu, verða í höndum Zuans miðlar kröftugrar túlkunar sem er enn dramatískari en ella fyrir sparlega litbeitingu listamannsins, markvissa notkun hans á svörtu, hvítu og grá- tónum. Spánski listamaðurinn Antonio Saura kemur upp í hugann, sömuleiðis blekteikningar Kristjáns Davíðssonar. Ekki leiðum að líkjast. Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson En Zuan forsómar ekki alveg myndlistararfleifð sína. Á nokkrum örkum dregur hann upp voldugar útsetningar á kínversku myndletri sem jafhframt virka sem formrænar uppistöður á úlfgráum myndfleti. Þar sem myndverkin eru nafnlaus og engin skrá fylgir sýningunni er torvelt að tilgreina einstök verk. En það er fengur að þessari sýn- ingu hins dularfulla Kínverja í Hlaðvarpanum. -ai Að sjá Kvar maður er staddur - Einar Jóhannesson klarinettuleikari á nýni plötu Einar? Lengst af hefur útgáfa hljóm- platna með alvarlegri tónlist verið fátíð á Islandi. Slíkt færist nú í auk- ana, þótt svo sé komið að plötuút- gáfe svari sjaldnast kostnaði, í peningum mælt. Umrædd tónlist er þó ekki gefin út til einnar helgar. Hvað sem útreikningar sýna er gildi hljómplatna með alvarlegri tónlist ómælanlegt. Við eigum að kapp- kosta að leggja með þeim varanlegt slitlag á bestu tónlist og leik bestu hljóðfæraleikara okkcir. Mikilvægi þess mun koma í ljós með árunum. Svo gerist það að erlent úgáfufyrir- tæki fær áhuga á íslenskum hljóð- færaleikara. Getur ekki maðurinn fyllt Háskólabíó fagnandi fjölda? Selst platan ekki upp á íslandi? Einar Jóhannesson klarinettuleik- ari er þegar kunnur þeim sem fylgj- ast með tónlistarlífi landsins. Það er altalað hvað hann spilar vel. Enska fyrirtækið Merlin Records bauð honum að taka upp plötu á þess vegum. Nú er platan bráðum orðin og útkomin. Og hvað segir Ein íslensk hlið „Þetta er fyrirtæki sem hefúr nær eingöngu unga tónlistarmenn á sín- um snærum. Þeir höfðu samband við mig í vetur og buðu mér þetta. Þeir eru hins vegar ekki mjög fjársterkir og ég hlýt að taka á mig ákveðinn kostnað. Upplagið verður 1000 ein- tök fyrst um sinn, en helmingi þess verður dreift í Bretlandi. Helming tek ég sjálfur og dreifi hérlendis. Vonum bara að vel gangi.“ - Er þetta einleiksplata? „Nei, öll verkin eru fyrir klarinettu og píanó. Philip Jenkins leikur á píanóið. Hann hefur kennt hérlendis en er nú prófessor við Konunglegu tónlistarakademíuna í London. Við æfðum saman í sumar, en í byrjun september tókum við upp í BBC 3 útvarpið og síðan plötuna." - Og verkin? „Við leikum fjögur íslensk þjóðlög í útsetningu Þorkels Sigurbjöms- sonar. Eftir hann leikum við og nýtt verk, Rek. Svo er sónata Jóns Þórar- inssonar; þá er komin ein hlið með íslensku efrii. Hinum megin eru Fantasía eftir Carl Nielsen, þessar þrjár frægu eftir Schumann og són- ata eftir Norbert Burgmuller. Burgmuller lést árið 1836, aðeins tuttugu og sex ára. Þeir sem kynnt- ust honum og tónlist hans, meðal annarra Schumann, bundu miklar vonir við hann. Hann var stórefhi- legur, það ber tónlistin líka með sér.“ - Hefurðu þurft að standa sjálfur undir utanferðum og vafstri sem út- gáfunni fylgir? „Sem betur fer hafa góðir menn létt mikið undir með mér. Ég hef verið styrktur bæði af Landsbankan- um, Seðlabankanum og Armanns- felli. Ferðaskrifstofan Otsýn greiddi götuna og starfsmannafélag Sin- fóníunnar hefur sýnt mér mikinn skilning. Mér er skylt að þakka þeim öllurn." Sendiherra - En hvaða gildi hefur plötuuppt- akan fyrir þig? (Þögn í stofunni, svo:) „Maður rétt tyllir sér niður til að sjá hvar maður er staddur. Að vissu leyti er skelfi- legt að festa eitthvað svona í varanlegt form, en það er líka lær- dómsríkt. Hljómplata krefet full- komnunarinnar, hún tekur ekki hálfúnnu verki. Maður verður að gera eins vel og maður getur. Svo er þetta búið. Maður horfir fram á veginn og heldur áffam.“ - Hvað er framundan að sjá? „Það er fjölmargt framundan, öll tækifærin sem maður fær búandi hér heima. Maður gerist öðru hvoru eins konar tónlistarlegur sendiherra. Á næsta ári reikna ég með ferð til Kína í apríl, Leipzig um sumarið og í nóv- ember spila ég á Scandinavia today í Japan. Slík tækifæri er ekki víst að ég hefði fengið, til dæmis ef ég hefði sest að úti í London. - En þú heldur áffarn í Sinfó- níunni? „Já, það er mjög gott að hafa þann- ig fastan punkt í tilverunni. Eins og ég sagði hefur starfsmannafélagið og líka stjómin sýnt því mikinn skilning þegar fleira er á döfinni hjá mér. Það þarf kannski oft að sveigja til áætlanir, en alltaf gengur þetta einhvem veginn." - Þú ert þá ánægður með apparat- ið? „Það em miklar hræringar í ffam- faraátt hjá Sinfóníuhljómsveitinni. Hún hefur fengið á sig gagnrýni sem orðið hefur til góðs. Eins og margur annar rekstur í landinu er hún orðin mun meira „prófessjónaT en hún var.“ - Nokkuð að lokum? „Nei, ég held ekki.“ Hér hefði Einar átt að segja tón- listarunnendum að kaupa plötuna sem um var rætt. Þegar við ræddum við hann var hann ekki búinn að ákveða hvemig staðið yrði að dreif- ingu hennar, en átti von á að umsjón með henni yrði í hans höndum. Þeir em ófáir sem vildu gjaman hlusta á leik Einars heima í stofu. Nú verður það hægt. Atli Ingólfsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.