Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1986, Síða 27
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986.
\V
39
Merming
Hallgrímur Helgason ásamt nokkrum verka sinna.
Tímabundnar
eftirhermur
Hinn módemíski myndlistarmað-
ur, arftaki þeirrar myndlistarhefðar
sem hófst einhvem tímann rétt fyrir
síðustu aldamót, leit á stíl eða steíhu
í myndlistum sem nokkurs konar
rannsóknarsvið. Hann gekkst tiltek-
inni stefnu á hönd, segjum kúbisma
eða futúrisma, vegna þess að hann
vildi taka þátt í þeim myndlistarlegu
rannsóknum sem hún leiddi af sér
og vinna þannig að því að víkka
tjáningarsvið myndlistannnar í
heild sinni.
í dag ganga menn ekki með svona
hugsjónir í maganum. Við lifum á
tímum gegndarlauss upplýsinga-
flæðis þar sem hugmyndir em
orðnar úreltar um leið og þær birt-
ast. Hver viU fá dagblöð dagsins í
gær? sungu Rolling Stones forðum.
Póst-módemisminn er afeprengi
þessa kaldranalega tíðaranda. Hann
gengur út á það að vera fljótur að
nýta hugmyndir og jafnfljótur að
gleyma þeim. Þessar hugmyndir
mega ekki vera of flóknar, annars
geta þær tafið úrvinnsluna. Póst-
móderískir myndlistarmenn vitna
aðeins í hið þekkta, þvi hið óþekkta
getur tafið neyslu á myndverkum
þeirra.
Kokkteill
Þeir taka til handargagns stíl-
brigði klassískrar listar án þess að
láta sig varða hugmyndafræði henn-
ar, blanda þeim saman við rómantí-
skan stíl en hafa engan áhuga á
þeirri lifun sem hann er byggður á
og hrista þessu saman í kokkteil með
örlitlu af yfirborðskenndum kúb-
isma. Ot úr þessu kemur stíll um
stíl, en ekki myndlist grundvölluð á
sannfæringu og upplifun.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
Ég hef áður haft svipuð orð um
myndlist Hallgríms Helgasonar, sem
nú sýnir íjölda lítilla myndverka í
Galleríi Hallgerði við Bókhlöðustíl,
og sé ekki ástæðu til að endurskoða
þau í ljósi þessarar nýju sýningar
hans.
Hann hefur komið sér upp hald-
góðri tækni sem gerir hann færan í
flestan sjó, myndlistarlega séð. Hins
vegar virðist honum ekki koma til
hugar að nota alla þessa tækni nema
til þess að flögra á milli stílbrigða,
gljápússa þau eða búa til eftirhermur
þeirra.
Kaldhamraðar fígúrur
í þetta sinn tekur Hallgrímur til
við að stæla nýja bylgju afstrakt-
listamanna sem aftur hafa innleitt
beínar línur og hreina fleti, en þeir
eru svo að stæla góðu, gömlu geó-
metrísku afetraktlistina sem er orðin
nógu gamaldags til að komast í
tísku.
Þessi afetraktlist setur einnig
mark sitt á þær kaldhömruðu fígúrur
sem listamaðurinn hefur fengist við
að mála þannig að nú eru þær teygð-
ar og glúpnar uns þær missa þann
snefil af mannsbrag sem einu sinni
var á þeim.
En alveg óvart verða sumar þess-
ara hálf-fígúratífu mynda til að
miðla kenndum sem virðast allt að
því einlægar. Undirritaður virðir
fyrir sér þær innilokuðu mannverur
sem listamaðurinn dregur upp af
næstum fanatískri nákvæmni, stjar-
far fyrir framan sjónvarp, agndofa
fyrir framan náttúruöfl, og langar
til að trúa því að H.H. sé að segja
eitthvað um firringu og einmana-
kennd nútímamannsins. En ætli það
sé ekki bara óskhyggja í mér.
Á þessari sýningu Hallgríms í
Hallgerði eru 37 verk, gerð með olíu
á striga eða strigapappa. Galleríið
er lítið og nett, á mörkunum að það
rúmi þennan ijölda. Sennilega hent-
ar það betur undir sýningar á grafík.
-ai
BÚÐARHAKKAVÉL
óskast keypt.
Upplýsingar í síma 82852 hjá Sigurborgu.
KO&fíA - snjóbræðslurör
KOB1ZA-PLAST HF.
Sigtún 3-105 Reykjavík. Sími 91-28900.
TIL SÖLU
OFFSETPRENTVÉL
Ryobi offsetprentvél KR-430, hámarks prentstærð
A-3, til greina kemur að taka bíl upp í eða á móti.
Hafið samband við auglýsingaþjónustu DV í síma
27022.
H-3000
LAUS STAÐA
Staða yfirfangavarðar við Vinnuhælið á Litla-Hrauni
er laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist ráðuneytinu fyrir 10. október nk.
3. september 1986.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
MYNDUSTA-
OG HANDÍÐASKÓLI
ÍSLANDS
FYRIRSÆTUR
(karlar og konur) óskast til starfa í vetur. Upplýsingar
á skrifstofu skólans.
Skólastjóri.
Skipholti 1, sími 19821.
SENDLAR ÓSKAST
STRAX
Upplýsingar á afgreiðslu DV í síma 27022.
AUGLÝSING
ENDURSKOÐUN LAGA NR. 109/1984,
UM HOLLUSTUHÆTTI OG
HEILBRIGÐISEFTIRLIT
Vakin er athygli á því að hafin er á vegum stjórnskip-
aðrar nefndar endurskoðun laga nr. 109/1984, um
hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit.
Þeir sem kynnu að vilja koma á framfæri skriflegum
athugasemdum eða breytingartillögum sendi þær for-
manni nefndarinnar, Ingimar Sigurðssyni lögfræðingi,
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi
116, |150 Reykjavík, fyrir 15. október nk., merkt:
Endurskoðunarnefnd laga nr. 109/1984, um hollustu-
hætti og heilbrigðiseftirlit.
10. september 1986.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.