Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Síða 5
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986. 5 Fréttir Sjö manna lyfta Blönduvirkjunar: Lyftan verður 238 metrar Kristinn Sigtryggsson, hinn nýi framkvæmdastjóri Arnarflugs. Ráðinn firam- kvæmdastjóri Amarflugs „Flugrekstur er hlutur sem ég þarf að kynna mér,“ sagði Kristinn Sig- tryggsson sem í gær var ráðinn framkvæmdastjóri Amarflugs frá næstu áramótum. Agnar Friðriksson gegnir starfinu til þess tíma meðan Kristinn kynnir sér rekstur félagsins. „Þetta var fyrst nefiit við mig fyrir um það bil hálfum mánuði,“ sagði Kristinn, sem er löggiltur endurskoð- andi. Frá árinu 1963 hefur hann starfað hjá Endurskoðendum N. Manscher, sem nú heitir Endurskoð- unarmiðstöðin hf. N. Manscher. Frá 1970 hefur hann verið meðeigandi og framkvæmdastjóri þess fyrirtækis. „Þetta leggst svona ágætlega í mig. En það er alveg ljóst að þetta er erfitt starf. Framundan er mikið endurreisn- arstarf," sagði Kristinn. -KMU Kartöflur fluttar út til Danmerkur Fyrir skömmu voru flutt út til Dan- merkur 25 tonn af kartöflum. Þetta er þó ekki upphafið að kartöfluút- flutningi því tilgangurinn er að prófa vinnslu íslenskra kartaflna í vélum sem hugsanlega verða keyptar hingað til landsins. Það er kartöfluverksmiðjan Kjör- land hf., sem áður var eigu Kaupfélags Svalbarðseyrar, sem stendur fyrir þessum útflutningi. Ágæti hf. hafði milligöngu í þessu máli. „Þetta er fyrst og fremst rannsókn- arverkefni. Við höfum ekki verið ánægðir neð gæði kartaflnanna að norðan. Við ætlum því að gera prufu með að láta framleiða kartöflur í Dan- mörku og prófa vélar sem við kaupum væntanlega. Þessi leið var valin í stað þess að kaupa dýrar vélar strax,“ sagði Gestur Einarsson, framkvæmdastjóri Ágætis, er hann var spurður um þenn- an útflutning. Gestur sagði að íslenskar kartöflur væru mjög bragðgóðar. Hins vegar væri þurrefiiisinnihald þeirra lágt og ljóst væri að þær þyrftu meiri þurrkun og ef til vill meiri suðu. Verið væri að kanna vélar sem uppfylltu þessar þarfir. Kartöflumar verða síðan fluttar í neyutendaumbúðum hingað til lands- ins. Sá böggull fylgir skammrifi að þá verða íslensku framleiðendumir að greiða svokallað kartöflugjald sem sett var á til að vemda innlenda fram- leiðslu. -APH Vommarkaðurinn: Eigendaskipti um næstu helgi Vörumarkaðurinn á Seltjamamesi skiptir um eigendur um næstu helgi. Nýtt hlutafélag Sláturfélags Suður- lands og heildverslunarinnar Sund tekur þá við rekstrinum og Ebenezer Þ. Ásgeirsson, stofriandi Vörumarkað- arins, dregur sig í hlé. Kaupverðið er leyndarmál en sam- kvæmt heimildum DV var Vörumark- aðurinn ódýrari en Víðir í Mjóddinni er KRON festi kaup á fyrir tæpar 300 milljónir fyrir skemmstu. -EIR Búið er að bjóða út smíði sjö manna fólkslyftu fyrir Blönduvirkjun. Þetta verður langhæsta lyfta á Islandi og með lengstu lyftum í heiminum. Frá gólfi í vélasal neðanjarðar upp í stjómhús ofanjarðar eru 238 metrar. Til samanburðar er að Hallgríms- kirkjutum mælist 76 metra hár. Búið er að bora göng fyrir lyftuna. Þau em 3,80 metrar í þvermál. Þar verða einnig rafetrengir og hring- stigi. Sex vikur tók að bora göngin í fyrravetur. Fyrst var bomð 25 sentímetra hola frá yfirborði og nið- ur úr. Þá var boröxull látinn síga niður og á hann hengdur borskjöld- ur með mörgum tannhjólakrónum. Síðan var skjöldurinn togaður upp og þannig spændi hann 6 metra af fullvíðum göngum á sólarhring. Grjótsallinn féll niður og var fjar- lægður jafrióðum. Frestur til þess að bjóða í lyftu- smíðina er út þennan mánuð en lyftan á að verða fullbúin 1. ágúst Í989. Ferðin í lyftunni mun taka mínútu. HERB g SAMSUNG MYND Tilvalinn í sumarbústaðinn, • Hraðspólun. bátinn, langferðabílinn : Bakspóiun. og sem aukatæki • Sjálfvlrk endurtekning. ^ hCÍmÍlÍllU 220 volt. Einnig hægt að tengja viö 12 volta rafgeymír. AðeíriS 24.900 stgr. VELDU SAMSUIMG - ÞAD ER ÖRUGGARA Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) - Sími 6-22-0-25. LONDON ■ Helgar- og vikuferðir Yfir 55 hótel víðs vegar um London og íbúðir af öllum stærðum, m.a. Helgi Vika Queensborough 13.203 18.735 Royal Scott 14.223 21.115 Imperial 14.328 21.360 Mount Royal 14.523 21.815 Bloomsbury 14.523 21.815 Kensington Close 14.688 22.200 White House 14.643 22.095 Forum 15.348 23.740 Kenilworth 15.558 24.230 Grafton 14.733 22.305 Vanderbilt 14.328 21.360 Clifton Ford 15.648 24.440 Straford Court 17.088 27.800 Cumberland 17.508 28.780 Ypsilon 14.598 21.990 Berners 16.983 27.555 Selfridge 18.123 30.215 DruryLane 16.983 27.555 St. George 18.528 31.160 Park Lane 19.353 33.085 Waldorf 18.603 31.335 RoyalGarden 19.548 33.540 Mariott 19.068 32.420 StJamesCourt 20.778 36.410 Britannia 22.428 40.260 Grosvenor House 23.448 42.640 Portman 24.063 44.075 Holidaylnn 17.856 29.592 Ritz 24.273 44.565 Ibúðir í Earls Court, Covent Garden, South Kensington, Bakersstreet, May- fair. Verð á viku frá kr. 19.000 miðað við fjölda farþega og gæði ibúða. Verð er miðað við gengi 15.09. Tveggja manna herbergi með baði, wc, sjón- varpi, sima og ýmsum öðrum þæging- um. Verð gildir frá 1. nóv.-31. mars en er eilitið hærra tram að þeim tima og eftir. Við útvegum leikhús-, bíó- og knatt- spyrnumiða og ýmislegt annað. Leitið upplýsinga hjá okkur og dragið ekki að panta. o Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar hf., GnoAarvogi 44. Simi 686255. LONDON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.