Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986.
19
Nonænir tónlistardagar
Sóngur þriggja góðra kóra
Merming
Norrænir tónlistardagar.
Tónleikar i Langholtskirkju 29. september.
Rytjendur Kór Langholtskirkju, stjómandi
Jón Stetánsson; Hljómeyki; Hamrahlíöar-
kórinn, stjómandi Þorgeröur Ingólfsdóttir.
Einsöngvari: Kristinn Sigmundsson.
Efnisskrá: Lars Johan Werle: Trees; Rolf
Enström: Directions; Jón Nordal: Alda-
söngur; Thomas Jennefelt Warning to the
Rich.
skrattinn úr sauðarleggnum innan
um kórmúsókina. Ég held að það
hafi nefhilega skemmt heldur fyrir,
því verkið er ágætt, en féll hér bara
ekki inni mynstrið.
Tónlist
Eyjólfur Melsted
Áhrifamikil verk
Það var ekki ónýtt að fá að heyra
Aldasöng Jóns Nordals eina ferðina
enn, því harla gott er verkið. En um
það hefur svo nýlega verið fiallað
að ekki verður farið að endurtaka
hér - aðeins að það hugnast enn
betur við ítrekaða hlustun og að
Hljómeyki gerði þvi ágæt skil sem
fyrr.
Kemur nú eitt hvíslverkið enn,
hugsaði ég þegar Hamrahlíðarkór-
inn hóf upp raustina í Waming to
the Rich eftir Thomas Jennefelt. En
ekki var látið sitja við hvíslið eitt
og raunar hef ég aldrei heyrt Hamra-
hliðarkórinn taka eins hressilega á
og í þessu verki. Það er í raun og
veru voðalegt að fá svona áhrifamik-
il verk yfir sig, því þá fer maður
samstundis að trúa því að það sé
hræðilega ljótt að vera ríkur, en
þeir geta sagt til um það sem eru
það. A þessum tónleikum fengum við
ótviræða sönnun um styrk íslenskra
kóra með söng þriggja góðra kóra
sem spreyttu sig með góðum árangri
á vandsungnum verkum og gerðu
vel. EM.
Kórtónlist er allfyrirferðarmikil á
dagskrá Norrænu tónlistardaganna
að þessu sinni. Það á sér þær eðli-
legu orsakir að víða á Norðurlönd-
um eru góðir kórar og margir þeirra
alls óhræddir að takast á við nýja
músík. Þeir panta gjaman verk og
ég held að að minnsta kosti hér á
landi séu kórar yfirleitt dugmeiri við
að flytja nýrri norræna tónlist en
hljóðfærahópar, þess heldur sem þeir
verða stærri.
Ekkert skrýtið þegar til kom
Fyrstur reið Kór Langholtskirkju
á vaðið á þessum tónleikum og söng
verkið Trees eftir Lars Johan Werle.
Trees er samið við eitt af skrýtnum
ljóðum e.e. cummings. Ég man þá
tíð að menntaskólaskáld stældu
cummings. Hann þótti heljar frum-
legur gaur, en að manni dytti í hug
að nokkur maður semdi kórverk við
þau, það var af og frá - í hæsta lagi
einsöngsverk fyrir sköllótta söng-
konu. Svo reyndist þetta nú ósköp
lítið skrýtið, að minnsta kosti í tón-
setningu Lars Johans Werle. En
Kór Langholtskirkju á æfingu.
stykkið bauð upp á að einsöngvar-
inn, Kristinn Sigmundsson, og Kór
Langholtskirkju sýndu sínar góðu
hliðar, þéttleika og góða samsvömn
raddanna, hreinan söng og lifandi
styrkleikabrigði.
Eins og skrattinn úr sauðar-
leggnum
Og um leið og Kór Langholts-
kirkju hafði sungið siðasta tóninn,
glumdu Directions eftir Rolf
Enström við úr hátölurum. Directi-
ons urðu útundan á raftónleikunum
á laugardag þar sem bandið náði
ekki til landsins í tæka tíð. Líklega
hefði nú verið betra að skella þeim
inn á dagskrá fyrri tónleika þessa
dags, því hér komu þær eins og
í kross
Lokaðar samkeppnir um opinber
verk em algengari meðal arkitekta en
myndlistarmanna, a.m.k. á Islandi.
Oftast nær em slíkar samkeppnir öll-
um opnar eða þá að einn listamaður
er fenginn til tiltekins verks. Sér-
Benedikt Gunnarsson ásamt verðlaunatillögu sinni.
hverri þessara aðferða fylgja kostir og
sennilega einnig gallar. Lokaða sam-
keppnin hefur það þó fram yfir þá
galopnu að nokkrir útvaldir listamenn
em á launum við að keppa um fyrstu
verðlaun og renna því ekki blint í sjó-
inn með tillögur sínar.
Þegar Háteigskirkju vantaði altari-
stöflu var bmgðið á það ráð að bjóða
þremur valinkunnum listamönnum,
Benedikt Gunnarssyni, Björgu Þor-
steinsdóttur og Þorbjörgu Höskulds-
dóttur, að gera tillögur að töflunni.
Dómnefhd valdi síðan lausn Benedikts
til sérstakra verðlauna og verður hún
sett upp í kirkjunni í fyllingu tímans.
Allar tillögumar em nú til sýnis i
Listasafrú ASÍ og getur almenningur
nú gert upp hug sinn gagnvart þeim.
Frá upphafi var gert ráð fyrir að
nýta sjáífan vegginn fyrir aftan altarið
undir mósaíkmynd, enda fordæmi fyrir
því (sjá mynd Nínu Tryggvadóttur i
Skálholti) en þar sem þessi veggur er
hvelfdur og að hluta til í skugga, stóðu
listamennimir frammi fyrir sérstökum
vandamálum.
Sniöin fyrir rýmið
Það verður að segjast eins og er að
Benedikt Gunnarsson er sá eini þre-
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
menninganna sem mætir þessum
vandamálum af einurð og útsjónar-
semi enda þaulreyndur að fást við
veggmyndir í alls kyns byggingum.
Hann byggir vönduð módel af kirkj-
unni, leggur fram tvær megintillögur,
útlistar tákngerð sína skýrt og skil-
merkilega í máli og myndum, lætur
meira að segja fylgja með sýnishom
af þeim mósaíksteinum sem hann
hyggst nota.
Sjálf formgerð Benedikts er að vísu
fremur einföld og skrautleg fyrir minn
smekk, en mestu máli skiptir að tillaga
hans er eins og sniðin fynr rýmið og
endurspeglar helstu gmnnform kirkj-
unnar með sannfærandi hætti.
Tillögur Bjargar Þorsteinsdóttur
ganga út á táknræn frumform eins og
hringinn sem endurtekin em með
ýmsum tilbrigðum og stærðum en hins
vegar virðist hún taka afar takmarkað
tillit til rýmisins í kirkjunni.
Þorbjörg Höskuldsdóttir er hér
einnig alllangt frá sínu besta. Hún
nálgast hvelfdan kirkjuvegginn sem
væri hann marflatur og dregur upp
hefðbundna biblíusögumynd af báts-
ferð Jesú og lærisveinanna. Ekki
verður þess heldur vart að hún hafi
gaumgæft arkitektúr kirkjunnar.
En sýningin er fróðleg og getur orð-
ið til þess að opna augu þeirra sem
ábvrgir em fyrir kirkjuskreytingum
hérlendis. -ai
Styrkið og fegrið iíkamann
DÖMUR OG HERRAR!
Ný 5 vikna námskeið hefjast 6. október. Hinir vinsælu
herratímar i hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sórtímar fyrir
konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Sértimar fyrir eldri dömur og þær sem
eru slæmar i baki eða þjóst af vöðvabólgum. Vigtun — mæling — sturtur — gufu-
böð — kaffi — og hinir vinsælu sólaríum-lampar.
Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Júdódeild Ármanns
Á 'f 90 Innritun og upplýsingar alla virka daga
Mrmuia jz. kL 13_22 \ Síma 83295.