Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Síða 21
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986. 21 •Guðmundur Torfason: „Það er 100% öruggt að ég fer til Hannover á morgun.“ ________________________________íþróttir Amór skoraði og fékk gula spjaldið - þegar Anderiecht gerði jafntefli, 1-1, í Póllandi Kristján Bemburg, DV, Belgiu: „Islendingurinn Amór Guðjohnsen er heldur betur í essinu sínu þessa dagana, hann skorar og skorar," sagði þulur belgíska sjónvarpsins þegar hann lýsti leik Anderlecht og Gomik Zabrze í Evrópukeppni meistaraliða sem fór fram í Póllandi. Amór tryggði Anderlecht jafritefli, 1-1, og em belg- ísku meistaramir komnir í 16-liða úrslitin. Anderlecht byrjaði leikinn með miklum látum og gerðu þeir Amór og Lozano mikinn usla í vöm pólska liðs- ins með hraða sínum og leikni. Pólvcrjarnir sóttu í sig veðrið og kom- ust yfir á 56. mínútu með marki Cyron. Það varð til þess að leikmenn And- erlecht vöknuðu aftur til lífsins og á 80. mínútu greiddi Amór Pólverjunum rothöggið með því að skora af stuttu færi eftir sendingu frá Vercauteren. Þess má geta að Amór fékk að sjá gula spjaldið í leiknum þegar hann mótmælti því að dómarinn Holzemann frá V-Þýskalandi dæmdi ekki á eirrn Pólverjann sem braut á Amóri eftir að hann var kominn einn inn fyrir vöm Gomik. 30.000 áhorfendur sáu leikinn. -sos •Amór- skorar mark i nær hverj- um leik. Framarar í fangabúðum „Þetta var mjög átakanlegt allt saman og ónotalegt að sjá þetta með berum augum,“ sagði Guð- mundur Torfason í samtali við Fram í gærkvöldi. I gærdag fóru leikmenn í Aus- witz fangabúðimar frægu en reynt hefúr verið að halda þeim svo til óbreyttum frá lokum striðsins. Þegar Guðmundur var spurður að því hvort þessi heimsókn kæmi til með að hafa slæm áhrif á leikmenn liðsins kvað hann svo ekki vera þrátt fyrir að óhug hefði sett að mönnum þegar þeir litu herleg- heitin augum. -SK ó! l c Willie Reinke breytti skyndilega um ferðaáætlun í gærkvöldi: Nú er það Hannover! - „100% ömggt að ég fer til Hannover á morgun/‘ segir Guðmundur Torfason „Það er alveg pottþétt og 100% öruggt að ég fer til Hannover í Vestur-Þýska- landi með Willie Reinke á morgun og ég mun líta á að- stæður hjá Hannover 96 sem er sem stendur efst í 2. deild- inni,“ sagði Guðmundur Torfason, knattspyrnumaður í Fram, í viðtali við DV í gærkvöldi. í gærkvöldi hringdi Willie Reinke umboðsmaður í forráðamenn knatt- spymudeildar Fram og tilkynnti þeim breytta áætlun en eins og fram kom í DV í gær var ferðinni heitið til Sviss á fóstudaginn. Ekki fékkst uppgefið í gær hvað olli þessari skyndilegu brey-tingu hjá Reinke en vitað var um áhuga forráðamanna Hannover 96 á Guðmundi fyrir nokkru eins og fram kom í blaðinu í gær. Líklegt er að þeir. Guðmundur og Reinke fari einnig til Sviss og kanni aðstæður hjá svissnesku meist- urunum Young Boys. „Þýskaland og Sviss eru draumalöndin“ „Eins og greinilega hefur komið fram síðustu daga eru þessi mál laus í reipunum eins og þessi skyndilega breyting í gærkvöldi gefur til kynna. Ég er þó nokkuð bjartsýnn á fram- haldið og get ekki neitað því að Þýskaland og Sviss eru draumalönd- in hjá mér þegar atvinnumennskan er höfð í huga,“ sagði Guðmundur í gærkvöldi. Ssimkvæmt heimildum DV verður ekki flanað að neinu í þessu máli og leitað verður gaumgæfilega eftir góð- um tilboðum. Reinke hefur mikinn áhuga á að koma Guðmundi að hjá félagi erlendis og tryggja honum góð- an samning enda hefur hann mikið álit á honum sem knattspymumanni. -SK ; Skagamenn i fengu mesta skellinn í Evrópu •James Bett. Bett rekinn af leikvelli Skoski landsliðsmarkvörður- inn Jim Leighton sló knöttinn í eigið mark og landsliðsfélagi hans, Jim Bett, var rekinn af leikvelli í fyrri hálfleik þegar fyrrverandi Evrópumeistarar Aberdeen voru í gær slegnir út í 1. umferð Evrópukeppni bikar- hafa. Það var í Sion í Sviss og heimaliðið sigraði, 3-0. Saman- lagt 4-2 því Aberdeen sigraði, 2-1, í fyrri leik liðanna í Aberde- en. Það voru ekki liðnar nema fimm mínútur af leiktímanum þegar Leighton sló knöttinn i eigið mark. Bouderbala skoraði annað mark svissneska liðsins á 29. mín. Síðan var góðvinur okk- ar íslendinga, Jim Bett, rekinn af velli. Tveimur mín. fyrir leiks- lok skoraði Brigger þriðja mark Sion. Aberdeen sigraði í Ev- rópukeppni bikarhafa 1984, sigraði Real Madrid í úrslitum í Gautaborg. hsím tópuðu samtals 0-15 fyrir Sporting Lissabon „Við lékum betur hér i Lissabon heldur en í Reykjavík en eins og heima fengum við ódýr mörk á okkur,“ sagði Skagamaðurinn Sveinbjöm Hákonarson eftir að Akranesliðið tapaði 0-6 fyrir Sporting Lissabon í gærkvöldi. Leikmenn Sporting gáfu ekkert eftir þrátt fyrir að þeir höfðu unn- ið stórsigur í Reykjavík. Þeir léku á fúllu allan tímann. 35 þús. áhorf- endur sáu Englendinginn Ralph Meade skora fyrsta markið á 19. mínútu og síðan bætti Zinho tveimur mörkum við, á 23. og 43. mínútu. Seinna markið skoraði hann úr vítaspymu sem var dæmd á Guðbjörn Tryggvason fyrir að fella Mexíkanann Negrete. McDonald skoraði flórða mark Sporting á 71. mínútu og síðan bætti Marion tveimur við, á 78. og 86. mínútu. „Við fengum þokkaleg færi til að skora. Ámi Sveinsson og Pétur Pétursson. Þá átti Ólafur Þórðarson tvö langskot sem rétt fóm fram hjá marki," sagði Svein- bjöm. Skagamenn töpuðu samtals 0-15, sem er mesti Evrópuskellurinn til þessa. Möltuliðið Rabat Ajax tap- aði samtals 0-10 fyrir Porto frá Portúgal. 0-9 í Portúgal en 0-1 á Möltu í gærkvöldi. -SOS • Willie Reinke breytti skyndilega um ákvörðun i gærkvöldi, hætti við ferðina til Sviss og fer með Guðmund til Hannover á morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.