Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1986, Síða 44
FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1986.
44
-O
Svidsljós
Ólyginn
sagði . . .
Susan Sullivan
hin þekkta stjarna úr framhalds-
myndaflokknum Falcon Crest
er alls ekki á þeim buxunum að
ganga í það heilaga. Hún segir
að það séu alltof fáir spennandi
menn á sínum aldri. Auk þess
segir hún að maður verði svo
gagnrýninn er aldurinn færist
yfir. Maggie, kona Chase, sem
Susan leikur i Falcon Crest, er
einnig hálfóánægð með karl-
peninginn, samkvæmt nýjustu
fréttum af atburðarásinni I fram-
haldsmyndaflokknum.
Það er ekki fögur lýsing sem gefin er af Frank Sínatra í nýútkominni bók um ævi hans og ástarmál. Höfundur bókarinnar er Kitty Kelley.
Rokkstjarnan
Prince
, er mjög varkár náungi. Hann
meimtar ætíð að lífverðir hans
smakki allan mat áður en hann
sjálfur leggur sér hann til
munns. Uppáhaldsréttur Prince
er svínalæri og baunír, réttur
sem lífverðirnir hata.
Allison Moyet
poppstjarnan fræga geislaði af
vánægju á Heathrow-flugvelli í
London á dögunum. Ástæðan
var sú að hún sá litla son sinn
Joe, sem nú er 15 mánaða,
koma hlaupandi á móti sér.
Mamman hafði dvalið eina viku
i Kaliforníu. Og stórstjörnur geta
saknað barna sinna. Eða því
heldur Allison Moyet fram.
Ef Frank Sinatra hefði haft það á
„sinn hátt“ (His way) hefði bókin um
hann eftir Kitty Kelley, sem ber sama
heiti, aldrei komið út. Nú, þegar bók-
in er komin út, er ljóst hvers vegna
Sinatra hafði slíkar áhyggjur af
henni, sem ekki var unnin í sam-
vinnu við hann.
í bókinni er mjög opinskátt fjallað
um ástarmál Sinatra og þar á meðal
sambönd hans við ýmsar aðrar konur
en viðkomandi eiginkonu í það og
það skiptið.
Þar á meðal er fjallað um ástarsam-
band hans við 16 ára gamla skóla-
stelpu. Það er sagt frá sjálfsmorðstil-
raunum Sinatra og ógeðfelldum
aðferðum sem móðir hans notaði til
fóstul-eyðinga.
Stærsti hluti bókarinnar er helgað-
ur þvi hvernig söngvarinn fór með
sumar af fallegustu konum Holly-
wood.
Samkvæmt bók Kelley fór kappinn
mjög illa með Judy Garland og hrinti
henni frá sér á ruddalegan hátt þegar
hún minntist á giftingu. Og Elizabeth
Taylor „fékk sömu meðhöndlun...
þegar hún uppgötvaði að hún var
barnshafandi eftir söngvarann og
vildi giftast honum. Hann fór fram á
fóstureyðingu og vildi ekki sjá hana
meir“, eins og segir í bókinni.
Konan, sem ekki hvarf úr hugskoti
Sinatra, var eiginkona hans í sex ár
Ava Gardner og Liz Taylor fóru illa út úr samskiptum við Sinatra. Ást þeirra
á söngvaranum breyttist í hatur.
eða Ava Gardner. Ástæðan er sú, að
mati höfundar, að hún lét söngv-
arann ekki ráða yfir sér. Kelley segir
einnig frá því að Ava Gardner hafi
sjálf farið í fóstureyðingu.
„Ég hataði Sinatra svo mikið að
ég ákvað að barnið skyldi ekki fæð-
ast í þennan heim,“ er haft eftir
Gardner.
Sinatra hefur verið gjörsamlega
ófáanlegur til þessa að segja álit sitt
á bókinni. Hins vegar virtist hann
ekki í alltof góðu jafnvægi á dögun-
um er hann kom fram við enduropn-
un Chicago leikhússins. Þar virtist
Sinatra staðfesta þá ímynd sem gefin
er af honum í bókinni. I máli sínu
vitnaði hann til fortíðarinnar eða
nánar tiltekið til Liz Taylor og Eddie
Fisher. „Þið getið spurt Eddie Fish-
er. Hann mun segja ykkur alla
fjandans söguna. Hún fór frá honum.
En þá var hún orðin svo feit að það
skipti ekki máli.“
Marilyn Monroe er upptekin af Einari Sæmundssyni, fyrrum formanni Knattspyrnufélags Reykjavíkur, á herrakvöldi sem handknattleiksdeild KR efndi til
á dögunum. Einar virðist kunna athygli þokkadísarinnar vel og bíöur spenntur eftir...
4’