Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
13
Hver eru bestu kaupin
í lambakjöti í
Mjög góð kaup í lambakjöti í dag
er að kaupa skrokka í heilu og hálfu.
Þannig kostar kg 235 kr. ef kjötið
er frosið, 223,40 kr. ef það er ófryst.
(1. verðflokkur DI).
Við báðum Gísla Ámason hjá Af-
urðasölu SÍS að sýna okkur hvemig
einn skrokkur, valinn af handahófi,
gæfi af kjöti í aðra hönd. Við vorum
vitni að því að Gísli valdi skrokk
af handahófi úr mikilli stæðu af ný-
slátruðu kjöti. Gísli setti skrokkinn
á vigtina og reyndist þetta vera
stærðar lamb, hvorki
minna en 17,2 kg.
Gísli afklæddi síðan skrokkinn í
vinnslusalnum og skar haiin niður
eftir „ósk kaupanda" eins og sjá má
á myndinni sem þessari grein fylgir.
Skiptingin varð eftirfarandi:
Læri x2
Hryggur
Framhryggur
Framhryggssneiðar
Slög x2
Súpukjöt
Afskurður
Samtals
Þama vantar upp á 160 g sem hafa
farið í sagið. Þessi skrokkur reyndist
5,5 kg
2,25 kg
1,4 kg
1,65 kg
1,7 kg
3,94 kg
0,6 kg
17,04 kg
mjög góður, engin aukafita sem
maður á að venjast bæði á lærunum
og innan á hryggnum en kjötið vel
vöðvafyllt eins og það er kallað.
Á mörgum heimilum er ekki að-
staða til þess að nýta slögin til
rúllupylsugerðar og verður að
fleygja þeim. Ef við drögum vigt
slaganna, sagið og afskurðinn frá
heildarvigtinni fáum við 14,74 kg.
Skrokkurinn kostaði allur 4.042 kr.
Ef við deilum nýtanlegu vigtinni upp
í þá krónutölu kemur út kg verð upp
á 275 kr.
Það er hagstætt verð fyrir neyt-
men-a
ne
Gisli Amason hjá Afurðasölunni sagaði fyrir okkur kjötið af mikilli snilld.
DV-myndir Brynjar Gauti
Þama er kominn skrokkurinn sem við létum skera fyrir okkur. Lengst til vinstri á myndinni em lærin, fyrir framan
þau er hryggurinn, slögin á miðri myndinni. Aftast til hægri er súpukjötið, framhryggsbitinn þar fyrir framan og
fremst niðursneiddur framhryggur sem þykir henta mjög vel í grillveisluna. Þessi skrokkur reyndist mjög vel fitu-
hreinsaður, engir fituhlunkar eins og oft hefur verið.
andann miðað við að kaupa stykkin
í verslun með fijálsri smásöluálagn-
ingu.
Hins vegar er það spuming hvort
það borgar sig að kaupa skrokkana
í heilu ef hægt er að fá hinar ýmsu
steikur á heildsöluverði eins og Af-
urðasalan býður upp á núna. Ef það
er gert losnar viðkomandi við að
henda slögunum ef hann getur ekki
nýtt þau. Heildsöluverðið á hinum
ýmsu steikum er: heil læri 270 kr.,
hryggir 281 kr., frampartar 210 kr.
og slög 50 kr. kg. -A.BJ.
Neytendur
Haust-
rétturinn
kjötsúpa
Kjötsúpa hefur í ellefu hundruð ár
þótt herramannsmatur á Islandi. Svip-
uð súpa er til á þjóðlegum matseðlum
flestra landa sem hafa kjöt á boðstól-
um á annað borð. Það er misjafrit
hvað fólk ber mikið í kjötsúpuna. En
gulrófur, gulrætur og laukur eru
ómissandi en svo má bæta grænmeti
við eftir því sem til er eða hve miklu
menn vilja kosta til.
Þá eru margir sem nota súpujurtir
út í kjötsúpuna og gefur það mjög
gott bragð. Sömuleiðis er nauðsynlegt
að láta út í hana annaðhvort hafra-
grjón eða hrísgrjón og þá gjaman
hýðisgrjón.
Reiknið með um 200 g af kjöti á
hvem. Bæði eToft mikil fita (þótt svo
eigi ekki að vera lengur) á súpukjöts-
bitum og auk þess talsvert af beinum.
Hreinsið kjötið vel, skerið mestu fit-
una frá og látið í pott með vatni.
Fleytið froðuna, sem kemur, ofan af
þegar suðan kemur upp. Saltið og strá-
ið hrísgijónum út í pottinn.
Hreinsið grænmetið og skerið það í
hæfilega stóra bita. Kjötið er soðið í
um það bil eina klukkustuind. Græn-
metið er soðið með 20-30 síðustu
mínútumar.
Það er smekksatriði hvort kartöflur
em bomar fram með kjötsúpu en ný-
uppteknar kartöflur með örþunnu
hýði passa óneitanlega vel með slíkri
súpu.
Þá er einnig hægt að búa til ljósa
sósu úr soðinu og bera fram með kjöt-
inu og grænmetinu. Þá er sleppt að
fsetja gijónin út í soðvatnið. Slíkur
réttur nefnist írikassé á erlendu mat-
armáli en hvitspað á íslensku og getur
verið hreinasta lostæti, léttur í maga
og ekki mjög fitandi (ef fitan er fjar-
lægð af kjötinu).
Hráefhiskostnaður í góða kjötsúpu
getur verið ærinn. Ef við reiknum með
súpu fyrir fjóra myndum við kaupa 1
kg af góðu súpukjöti sem gæti hæglega
kostað 250 kr., ýmislegt grænmeti fyr-
ir 250 kr. er hóflega reiknað, þannig
að skammturinn gæti hugsanlega
kostað 500 kr. eða rétt um 125 kr. á
mann. Það er ekki svo slæmt á þessum
síðustu og verstu tímum, eða hvað?
-A.BJ.
DV-mynd Brynjar Gauti