Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
17
Lesendur
Subbuskapur
við hitaveitu-
framkvæmdir
Guðmundur Svavarsson skrifar.
íbúar Hæðargarðs og gatnanna
sem liggja að Almgerði hafa í allt
sumar mátt horfa upp á sóðaskap
og handabakavinnu við hitaveitu-
framkvæmdir meðfram þessum
götum. Gauf hefúr einkennt þetta
verk og engum hluta leiðslunnar
hefur mátt ljúka að fúllu. Rokið
er í einn verkþátt í dag og annan
á morgun og svo öfugt dagana á
eftir. Til dæmis er sturtað nokkr-
um hlössum af sandi í dag og möl
á morgun og dreifl úr þessu að
hluta mörgum dögum seinna. Að
sturta hlössunum öllum inn á at-
hafnasvæðið virðist mönnum vera
fyrirmunað heldur þarf líka að
sturta á götumar sem eru útataðar
í grjóti, möl, sandi og mold íbúum
hverfisins og vegfarendum til mik-
ils ama, svo ekki sé talað um
spýtnabrakið.
Hvemig væri að borgarverk-
fræðingur færi á staðinn og tæki
síðan þessa verktaka og verk-
fræðinga á beinið?
góð þjónusta þama á öllum sviðum.
Góð þjónusta
hjá bHreiða-
eftivlHxnu
5692-2768 hringdi:
I tilefiii af greinum um lélega þjón-
ustu í bifreiðaeftirlitinu get ég ekki
lengur orða bundist. Ég hef skipt við
bifreiðaeftirlitið síðastliðin 25 ár og
er mjög ánægður með þjónustuna á
öllum sviðum. Það ætti ekki að ráðast
á starfsfólkið heldur frekar að skamma
ráðamennina sem fara með stjóm bif-
reiðaeftirlitsins, þar er sökin.
Ekkert húsnæði er fyrir skoðun bíla
og vinnuaðstaðan er mjög bágborin.
Það er furðulegt að núna, árið 1986,
skuli menn enn vera að skoða bfla úti
en eins og við þekkjum öll sem hér
búum þá er allra veðra von á íslandi.
Mér finnst ekki alltaf hægt að skella
skuldinni á ríkisstarfsmenn, þeir eru
nú mannlegir eins og við hin. Eða til
hvers er eigilega ætlast af þessu fólki
þegar vinnuaðstaðan er slík hjá því?
Er ekki kominn tími til að standa með
starfsfólkinu í staðinn fyrir að vera
stöðugt með skítkast út af öllu. Fólk
þarf að vera jákvæðari í umgengni
hvert við annað og þá ætti allt að
ganga betur.
Þakklæti til
gjörgæsludeildar
Landspítalans
GB hringdi:
Ég vildi koma á framfæri kæm
þakklæti til gjögassludeildar Land-
spítalans sem var á vakt sunnu-
dacsmorguninn 28. september.
Eg varð fyrir því að veskinu var
stolið meðan ég var á deildinni í
heimsókn. Fyrir þeirra snarræði
náðist þjófurinn strax og fékk ég
því veskiö aftur með öllu innihald-
inu. Þakka ég þeim öllum fyrir,
þau stóðu sig öll vel.
Hver varð vttni
að árekstri?
Gróa Sigurðardóttir hringdi:
Ég var að keyra fyrir neðan
Grundargerði og Sogaveg 46 í vest-
urátt er bíll fór fram úr mér með
því að keyra upp á gangstéttina
og ók hann um leið á mig. Var ég
á gulbrúnni Lödu en hinn bíllinn
var dökkblár Ford með hvítum
toppi.
Þeir sem sáu þennan atburð vin-
samlegast hafi samband við Gróu
í síma 77757.
Hver hefur
týnt kettinum
sínum?
Guðrún hringdi:
Köttur fannst við Fellsmúla,
sirka fimm mánaða læða, gráb-
röndótt, með hvitan kvið. Þeir sem
eiga köttinn vinsamlegast hafi
samband við Dýraspítalann.
HRINGIÐ
r
I
SÍMA
27022
MTLLIKL. 13 OG15
EÐA SKHIFIÐ
Urval
ÚRVAL - OKTÓBERHEFTH) ER KOMIÐ Á BLAÐSÖLUSTAÐI
ÚRVAL LESTRAREFNIS VIÐ ALLRA HÆFI
MEÐAL EFNIS í OKTÓBERHEFTINU MÁ NEFNA:
VAR ÞETTA ÞAÐ SEM KOM FYRIR DÍNÓSÁRANA?
Vísindamenn hallast nú að því að þróunin hafi ekki verið sígandi, heldur í stökkbreytingum af ástæðum sem beinlínis komu úr heiðskíru lofd!
AÐ HAGNAST Á HRYÐJUVERKUM
Hér er niöurstaöa höfundarins sú aö umfang hryöjuverka í heiminum stafi fyrst og fremst
af þvi aö ákveöin riki beiti þeim óbeint sem baráttutæki og önnur rfid tald ekki mannlega
á móti af því aö þau gætu skaöast á því fjárhagslega.
NOKKRAR SPURNINGAR UM SPIK
Varpaö er fram nokkrum spumingum um likamsfitu, svo þér gefist kostur á aö kanna
þekkingu þína á því fyrirbæri. Kannski getur þú slakað af þér einu eöa tveimur kflóum
aöeins meö aukinni þekkingu.
BÖRNIN MÍN GEGNA MÉR EKKI!
Þessa staðhæfingu má fremur kalla viölag en kvæöi og hér skortir ekkert á að foreldrakór-
inn taki undir. Hér segja nokkrir foreldrar frá reynslu sinni og uppeldisfræðingur svarar.
- Fyrir utan þetta eru 16 aðrir titlar í heftinu og allt
stendur þetta vel undir slagorðinu: Fræðandi, fjöl-
breytt, fyndið.
Náðu þér í októberheftið núna - vertu ÚRVALS lesandi!
ÚRVAL, TÍMARIT FYRIR ALLA