Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Síða 22
22
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986.
Iþróttir
•Frank Stapleton.
Stapleton
áfram hjá
Man. Utd.
Frank Stapleton, fyrirliði írska
landsliðsins, hefur ákveðið að vera
áfram hjá Manchester United og
mun hann skrifa undir nýjan
tveggja ára samning við félagið
nú í vikunni. Stapleton, sem er nú
í mjög góðri æfingu, helur end-
umýjað samning sinn, sem rann
út í júní sl., vikulega fram til þessa.
Þess má geta að United bauð
Stapleton fyrst eins árs samning
en breytti síðan boði sínu í tvö ár.
-sos
Juventusí
deilu við
sjónvarpið
Forseti Juventus, Giampiero
Boniperti, hefur bannað leikmönn-
um félagsins að ræða við frétta-
menn ítalska ríkissjónvarpsins
RAI. Boniperti taldi að starfsmenn
sjónvarpsins hefðu mjög hagrætt
myndum frá leik Juventus gegn
Empoli. Reynt að láta leikmenn
Juventus líta kjánalega út og gefið
þá mynd af leiknum að sigur Ju-
ventus, 0-1, hefði verið ósann-
gjam. „Ekki nóg með það,“ sagði
forsetinn, „þeir kölluðu Sergio
Brio morðingja." Hann skoraði
sigurmarkið í leiknum.
Starfsmenn sjónvarpsins svör-
uðu strax. „Ef leikmaður eða
leikmenn bijóta af sér á leikvelli
og fá aðvörun þá sýnum við það.
Við samþykkjum ekki neina rit-
skoðun." -hsím
Dani til
Stjómar eins og her-
togi á nýlendutímanum
- segir ieikmaður hjá Brann um Tony Knapp
Enginn frá
Juventus
Lokaslagurínn að heflast í Svíþjóð
- Malmö FF, Gautaborg, AIK og Norköping berjast um meistaratitilinn
~ ~ n t/.ii..iii nv -.un.L'L-. Orslit urðu þessi: unum 22 í deildakeppninni, 37 stig. Gautaborg, varð markakóngur í deild-
uunrmigur j , pjoo-.__ Öster-Hammarby..........0-0 Gautaborg kom næst með 31 stig, AIK inni og skoraði 13 mörk. Hann hefur
Nú er aðeins úrslitakeppni fjögurra Halmstad-Örgiyte.2-0 25 stig og Norköping 21 stig. Þessi nú gert samning við ítalska 1. deildar
efstu liðanna í Allsvenskan eftir í Djurgárden-Elfsborg.3-0 fjögur félög munu beijast um sænska félagið Empoli og leikur með því á
sænsku knattspymunni og mestar lík- AIK-Brage..........3-0 meistaratitilinn. Þess má geta að lið næsta keppnistímabili. Liðið varð í 5.
ur taldar á að Malmö FF verði Gautaborg-Malmö FF.0-1 Teits Þórðarsonar, Öster, hafriaði í 6. sæti í 2. deildinni ítölsku í fyrra en
meistari í ár. Norköping-Kalmar...0-1 sæti með 20 stig. var flutt í 1. deild vegna afleiðinga
Síðasta umferðin í deildakeppninni mútumáls sem kom upp á Ítalíu eins
fór fram um síðustu helgi. Malmö FF hlaut flest stig í umferð- • Johnny Ekström, sem lék með og komið hefur fram í fréttum. -SK
• Tony Knapp - hertoginn af Brann.
„Hann er eins og hertogi frá mestu
veldistímum breska heimsveldisins.
Stjómar hér eins og þeir gerðu í ný-
lendum í Afríku,“ sagði Brann-leik-
maðurinn Morten Normark nýlega í
einu norsku blaðanna um Tony
Knapp, þjálfara Brann og fyrrum
landsliðsþjálfara fslands í knattspym-
unni.
Það er annað hvort í ökkla eða eyra
hjá leikmönnum Brann. Annað hvort
dá þeir Knapp eða hata. Normark átti
ekki upp á pallborðið hjá Tony -
missti sæti sitt í aðalliðinu og áttu
meiðsli nokkum þátt í því. „Mér var
sparkað frá félaginu," sagði hann enn-
fremur, „og ég hef aldrei kynnst
annarri eins harðstjóraþjálfun og hjá
honum.“
Tveir af leikmönnum Brann, Erik
Soler og Ame Möller, mótmæltu þess-
um ummælum Morten Normark.
Sögðu að þeir og aðrir leikmenn liðs-
ins bæm fullt traust til Tony. Og
vissulega hefur hann náð þeim ár-
angri sem forráðamenn Bergenliðsins
ætluðust til. Kom Brann strax á sínu
fyrsta ári sem þjálfari þar í l.deildina.
-hsím
•Johnny Ekström, markaskorarinn mikli, er á förum til ítaliu.
- í landsliðinu sem leikur gegn Gríkklandi í kvöld
Það verður enginn leikmaður frá
Juventus í ítalska landsliðinu í knatt-
spymu, sem leikur gegn Grikklandi í
Bologna í kvöld. Ár og dagur síðan
slíkt hefur skeð. Antonio Cabrini, sem
átti að vera í liðinu, getur ekki leikið
vegna meiðsla. Slasaðist á vinstra hné
í leiknum við AC Milano í Torino á
sunnudag og hinn Juventus-leikmað-
urinn sem er í landsliðshópnum,
Stefano Tacconi markvörður, er vara-
maður.
Þetta verður fyrsti landsleikur ftala
undir stjóm nýja landsliðsþjálfarans,
Azeglio Vicini, sem tók við starfinu
af Enzo Bearzot eftir HM í sumar.
Hann tilkynnti val á liði sínu í gær.
Tveir leikmenn em úr piltalandslið-
inu, sem Vicini þjálfaði áður. Þá er
Sandro Altobelli, Inter, í liðinu óg
kemur það talsvert á óvart því eftir
HM sagðist hann ekki framar leika
með landsliðinu. Aðeins þrír leikmenn
ítalska liðsins í kvöld em 26 ára eða
eldri, nokkuð annað en var undir
stjóm Bearzot. Liðið er þannig skipað:
Walter Zenga, Inter, Giuseppe Ber-
gomi, Inter, Sebastiano Nela, Roma,
Franco Baresi, AC Milano, Bario Bo-
netti, AC Milano, Salvatore Bagni,
Napoli, Roberto Donadoni, AC
Milano, Femando de Napoli, Napoli,
Guiseppe Dossena, Torino, Altobelli,
og Gianluca Vialli, Sampdoria.
-hsím
Bremen er úr leik!
Werder Bremen var slegið út úr
v-þýsku bikarkeppninni í gær-
kvöldi af 2. deildar félaginu
Allemania Aachen, sem vann sig-
ur, 7-6, yfir Bremen í vítaspymu-
keppni. Staðan var jöfn, 0 0, í
leiknum eftir venjulegan leiktíma
og framlengingu. Það var Dieter
Burdenski, markvörður Bremen,
sem var búinn að verja tvær víta-
spymur, sem brást bogalistin.
Hann misnotaði sína vítaspymu -
skaut fram hjá marki Aachen.
-sos
Þegar Sheedy neitaði
að fara til Islands
- kostaði það hann landsliðssæti hjá íram
Kevin Sheedy, landsliðsmaður ír-
lands og miðvallarspilari Everton, er
kominn út í kuldann hjá Jackie Charl-
ton, landsliðsþjálfara írlands. Sheedy,
sem gaf ekki kost á sér til íslands-
ferðarinnar í maí sl. vegna meiðsla í
hné, hefur síðan þá ekki varið vahnn
í landsliðshóp frlands.
Charltpn reyndi allt sem hann gat
til að fa Sheedy til íslands en án árang-
urs. „Ég var ekki að gera mér upp
meiðsli til að sleppa við íslandsferð-
ina. Það sýna dagbækur á sjúkrahúsi
og einnig getur Howard Kendall,
framkvæmdastjóri Everton, vitnað um
það,“ sagði Sheedy, sem var ekki val-
inn í Evrópuleik gegn Belgíu á
dögunum og ekki heldur í hóp fr-
lands, sem leikur gegn Skotlandi í
Dubhn í næstu viku.
Sheedy er sár yfir því að fá ekki aft-
ur tækifæri hjá Charlton, sem er
kunnur þverhaus. Charlton er ekki
tilbúinn að velja Sheedy aftur eftir að
hann neitaði að leika með írska lands-
liðinu í Reykjavík.
-sos
Dússeldorf
Ungur, danskur knattspymu-
maður, Henrik Ravn, sem er 21 árs
og leikur með Vejle í 1. deildinni
í Danmörku, skrifaði í gær undir
samning við Fortuna Dtisseldorf,
sem er í neðsta sæti vestur-þýsku
Bundesligunnar. Hann dvaldi hjá
þýska liðinu um tíma í fyrri viku,
lék með Vejle á sunnudag en hélt
síðan til Þýskalands til að skrifa
undir samning. Það merkilega er
þó að Ravn hefur ekki verið fasta-
maður í liði Vejle á leiktímabilinu.
Hann er hins vegar talinn meðal
efnilegustu leikmanna Dana. Tveir
íslendingar hafa leikið með Fort-
una, Atli Eðvaldsson og Pétur
Ormslev. -hsím