Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1986, Qupperneq 29
tgtíOTHO gAuaMfaMivaiM MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 1986. 29 Guð hefiir fyrir- gefið mér bílstuldina - segir Trausti Finnbogason sem fyrir tveimur árum hafði offan af fyrir sér með eiturtyfiasölu „Á þessum tíma stal ég 160 bílum, sem ég man eftir, þótt aðeins 30 þeirra haíi komist á skrá hjá lögregl- unni. Ég var farinn að sprauta mig og seldi eiturlyf í stórum stíl en nú hefur Guð fyrirgefið mér,“ segir 23ja ára gamall Reykvíkingur í samtali við DV, maður sem fyrir tveimur árum var svo djúpt sokkinn í eitur- lyf og allt sem því fylgdi að aðeins ræsið blasti við honum. Trausti Finnbogason heitir þessi maður eða Tauti, eins og hann var kallaður í undirheimum Reykjavík- ur. Hann byrjaði leið sína áleiðis í ræsið aðeins 11 ára gamall. Tíu árum síðar hafði hann misst alla lífsvon. Um það leyti rakst hann fyrir tilvilj- un á tvo menn sem voru félagar í trúfélaginu Krossinum. Hann fór með þeim á samkomu og frelsaðist, eins og hann orðar það. Fór að drekka 11 ára Nú eru tvö ár síðan það var og hann sýnir engin merki um fyrra lí- femi sitt. í dag stundar hann fasta vinnu sem pípari og gengur vel í lífs- baráttunni. „Þetta byrjaði allt þegar ég var 11 ára gamall. Mér fannst ég einhvem veginn alveg ómögulegur og ég veit rekinn úr skóla. Um þetta leyti byij- aði ég að drekka og fljótlega fór ég að drekka um hverja helgi og ekkert annað komst að.“ - Hvemig náðirðu þér í vín, 11 ára gamall? „Þegar þetta byijaði var ég í Voga- skóla. Mamma gaf mér alltaf 100 kall í nestispening. Ég lét vissan aðila í skólanum fá þennan pening á þriðjudögum. Það var nemandi við skólann sem var eldri en ég. Fyrir helgamar fékk hann 200 kall hjá mér í viðbót og í staðinn fékk ég flösku af bmggi sem hann bruggaði. þetta var heilmikill bisness hjá hon- um. Svo vom önnur ráð til að útvega sér vín. Stundum hékk maður fyrir utan Ríkið eða talaði við mann sem þekkti mann og svo framvegis. Um tíma eimaði maður svo sjálfur. Þá keypti maður sér brennsluspíritus í apóteki og eimaði svo. Þetta var minnsta mál í heimi." Stal bilum og braust inn - En höldum áfram með sögu þína... „Já, ég var á fylliríi í nokkur ár og gerði ekkert annað, foreldrum mínum og öðrum til hinnar mestu óhamingju. Ég var líka í lyfjum alls konar, einkum geðlyfjum, sem ég fékk hjá fólki úti í bæ eða læknum. Ég vann aldrei neitt svo ég fram- fleytti mér með innbrotum og bíl- þjófhuðum. Þótt ég muni eftir 160 bílum sem ég stal komust aldrei nema 30 þeirra á skrá hjá lögregl- unni. Um tíma var svo engin helgi með helgum nema brjótast inn ein- hvers staðar. Einkum voru þetta sjoppur sem ég braust inn í. Ég var í þessum innbrotum og bílþjófhuðum til 16 ára aldurs en þá hætti ég þeim. Á þessum tíma var ég oft gripinn við þessi afbrot en þar sem ég var ekki orðinn 16 ára var ekkert hægt að gera við mig. Stórgræddi á eiturlyfjasölu Þegar ég var 16 ára fannst mér brennivínið ekki orðið nóg svo ég fór að prófa hass og smám saman fór ég út í sterkari efiii og fór að sprauta mig með amfetamíni. Ég hafði í mig og á á þessum tíma með eiturlyfja- sölu. Ég flutti þó aldrei neitt inn sjálfur heldur var í samböndum við slíka menn sem margir hveijir eru í þessu ennþá. Ég stórgræddi alveg á þessu. Það var aldrei neitt mál að kom- ÆFINGASTOÐIN, ENGIHJALLA 8. UPPLÝSINGAR OG INNRITUN, SÍMAR 46900 - 46901 - 46902. Stór hópur i heróini Svona byijaði ég á sprautunum og svona gerist það oftast. Nú er meira að segja farið að blanda heróíni í amfetamínið til að koma fleirum á bragðið. Þótt lögreglan haldi því fram að ekkert heróín sé komið hingað til lands er það hópur 30 til 40 manna sem notar það að stað- aldri.“ - Hvemig koma þessi eiturlyf til landsins? „Þau koma mikið með bátunum og í gegnum póstinn. Einnig með flugfarþegum. Yfirleitt er það fólk sem kemur vel fyrir, sem ekki er á sakaskrá, er smyglar því. Það er nefiiilega mikið atriði að þeir sem eru að smygla þessu séu ekki á saka- skrá.“ Sat tvisvar inni - Lentir þú aldrei í útistöðum við fQcniefiialögregluna á þessum árum? „Jú, ég sat tvisvar inni, einu sinni i hálfs mánaðar einangrun. Svo var hasshundurinn stundum sendur heim til mín.“ - Reyndir þú aldrei á þessum árum að losna út úr þessu? „Jú, en það var bara svo erfitt. Trausti Finnbogason. „Guft bjargaði mér úr viftjum eiturlyfjanna.“ ast yfir þessi efhi ef viljinn var fyrir hendi. Það er fullt til af þeim og fullt af fólki sem er að reyna að losna við þau. Um það leyti sem ég hætti í þessu var hann orðinn stór hópur- inn sem var farinn að sprauta sig og sá hópur hefur farið vaxandi. Ég man eftir því þegar ég spraut- aði mig fyrst. Þá var ég orðinn vanur því að taka amfetamínið í nefið. Ég stóð uppi eitt kvöldið og átti ekki neitt en þurfti nauðsynlega að fá eitthvað. Ég fór á skemmtistað hér í bænum, þar sem ég vissi að mitt fólk hélt til, og bað um skammt. Þá var mér sagt að annað hvort fengi ég mér sprautu eða ekki neitt. Það er nefhilega þannig að þeim sem nota sprautumar líður illa og þeir vilja að öðrum líði illa líka. Einu sinni fór ég í meðferð til SÁÁ en ég hélt mér ekki hreinum nema í þrjá mánuði, þá fór allt í sama far- ið aftur. En ég bjargaðist. Það er sem sagt hægt að bjarga þessu fólki og ég veit um fjölda fólks, sem ég var með á þessum tíma og er enn á kafi í eiturlyfjunum, sem vill láta hjálpa sér. En það vantar aðstöðu fyrir þetta fólk, heimili þar sem það getur dvalið til þess að koma undir sig fótunum á ný. Ég var svo heppinn að foreldrar mínir vildu alltaf hjálpa mér þótt ég slægi lengi vel í útrétta hönd þeirra. Sumir hafa engan til að halla sér að ef þeir vilja losna úr viðjum eiturlyfjanna og þetta fólk þarf eitthvert heimili," segir Trausti Finnbogason sem segir Guð hafa bjargað sér. -KÞ DV-mynd GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.