Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1986, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986.
Stjómmál
Kröfu um afsögn BJ-
þingmanna vísað frá
„Ekki eru rök fyrir því að leggja
þetta mál undir úrskurð Alþingis, enda
engin fordæmi fyrir slíku,“ sagði Þor-
valdur Garðar Kristjánsson, forseti
sameinaðs þings, um erindi aðila úr
landsnefnd og framkvæmdanefnd
Bandalags jafnaðarmanna.
Þar vru- þess farið á leit að Alþingi
skæri úr því hvort þingmenn Banda-
lagsins hefðu misst kjörgengi við það
að ganga til liðs við aðra flokka. Var
sú skoðun látin í ljós að með því hefðu
þeir glatað kjörgengi sínu og vara-
þingmönnum bæri réttur til þingsetu.
Þorvaldur Garðar vísaði til 48.
greinar stjómarskrárinnar en þar seg-
ir: „Alþingismenn eru eingöngu
bundnir við sannfæringu sína og eigi
við neinar reglur frá kjósendum sín-
um.“
„Þetta ákvæði vemdar rétt þing-
manns til að taka afstöðu til málefna
eftir því sem sannfæring hans býður,
þar á meðal í hvaða flokk hann kýs
að skipa sér. Geta hvorki einstakir
kjósendur né stjómmálaflokkar aftur-
kallað þingmennskuumboð þótt
óánægðir séu með afstöðu eða at-
hafriir þingmanns," sagði Þorvaldur
Garðar. -KMU
Fjárlagafrumvarpið:
1250 þúsund í
Hafskipsrannsókn
í fjárlagafrumvarpinu, sem nú hef-
ur verið lagt fram, er að finna þrjár
fjárveitingar á aukafjárveitingum til
viðskiptaráðuneytisins sem flokkað-
ar eru sem „Hafskipsmál, rannsókn'*
og nema þær samtals 1250 þúsund
krónum.
Hér er um að ræða fjárveitingar
vegna þriggja manna rannsóknar-
nef'ndar sem ráðuneytið kom á fót
um síðustu áramót. Formaður
nefhdarinnar er Jón Þorsteinsson
hrl. en hlutverk hennar er að rann-
saka hvort um óeðlilega viðskipta-
hætti hafi verið að ræða í
samskiptum Hafskips og Útvegs-
banka íslands annars vegar og
Hafskips og annarra aðila hins veg-
ar.
Nefndinni er ekki ætlað að rann-
saka sömu mál og aðrir rannsóknar-
aðilar hafa þegar gert heldur Iíta á
þetta út frá stjómsýslulegum sjónar-
miðum. Nefndin hefur starfað allt
þetta ár en hefúr ekki skilað endan-
legri skýrslu til ráðherra. -FRI
Sóluskattur stærsta
tekjulind ríkissjóðs
Tekjur ríkissjóðs á næsta ári eru
áætlaðar 40 milljarðar króna. Er það
8,1 prósent hækkun frá því sem talið
er að verði í ár.
Uangstærsti tekjuliður ríkisins eru
óbeinir skattar, eða 31,3 milljarðar
króna. Þar af gefur söluskatturinn
ríkissjóði 15,5 milljarða króna.
Tollar, vörugjöld og aðflutnings-
gjöld eiga að gefa ríkinu 7,7 millj-
arða króna í tekjur á ntesta ári.
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
er ætlað að skaffa 2,5 milljarða
króna til samneyslunnar.
Skattar af launagreiðslum eru
áætlaðir um 2,9 milljarðar króna.
Þar 'af gefur launaskatturinn 1,5
milljarða og lífeyristryggingagjald
atvinnurekenda 1,1 milljarð króna.
Beinu skattamir, eignarskattur og
tekjuskattur, vega lítið miðað við
óbeinu skattana. Tekjuskatturinn á
að skila ríkinu 4,7 milljörðum króna
og eignarskatturinn 1,1 milljarði
króna.
Fjármunatekjur, það er vaxtatekj-
ur og aðrar tekjur af lánum, eiga
að gefa ríkissjóði 2,1 milljarð króna
á næsta ári.
-KMU
Heilbrigðis- og tvygg-
ingamál taka 40%
útgjalda ríkissjóðs
Gjöld ríkissjóðs em áætluð 41,6
milljarðar króna á næsta ári. Er það
6,1 prósent hækkun firá áætlaðri út-
komu þessa árs.
Heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytinu er ætlað að eyða langstærst-
um hluta fjármuna ríkisins, 40
prósentum, eða 16,9 milljörðum
króna. Þar af fara 10,3 milljaröar
króna til tryggingamála og 6,6 millj-
arðar króna til heilbrigðismála.
Menntamálaráðuneytið fær næst-
mest, eða 6,7 milljarða króna. Þar
af fara 6 milljarðar króna til fræðslu-
mála.
Þriðja stærsta útgjaldaráðuneytið
er reyndar ekki ráðuneyti heldur
Fjárlaga- og hagsýslustofnun. Hún
þarf 3,5 milljarða króna til að greiða
vexti og afborganir af lánum ríkis-
sjóðs.
Samgönguráðuneytið er næst í
röðinni með 3,2 milljarða króna. Þar
af á að setja 2,1 milljarð króna í
vegamál.
Landbúnaðargeirínn kostar þjóð-
ina 2,5 milljarða króna á næsta ári.
Þar af fara 720 miíljónir króna í út-
flutningsbætur og 1,1 milljarður
króna í niðurgreiðslur, sem reyndar
eru skráðar undir viðákiptaráðu-
neyti.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
tekur til sín 2,1 milljarð úr okkar
sameiginlega sjóði. Þar af fara 1,9
milljarðar til dómgæslu og lögreglu.
-KMU
Selja Áivakur og kaupa dýpkunarskip
Fjármálaráðherra óskar í fjár-
lagafrumvarpinu eftir heimild
þipgsins til að selja vitaskipið Ár-
vakur og verja andvirðinu að hluta
til kaupa á krana og tækjabúnaði
til vitaþjónustu.
Ennfremur óskar fjármálaráð-
heira eftir heimild til að veita ríkis-
ábyrgð að lánum sem kunni að verða
tekin til kaupa á dýpkunarskipi,
enda liggi fyrir áœtlanir samgöngu-
ráðuneytisins um líkleg verkefni
fyrir slíkt skip, svo og áætlanir um
rekstur þess. -KMU
Þingfulltrúar risu úr sætum og fögnuðu ákvörðun forsætisráðherra.
Steingrímur Hermannsson tilkynnti framboð sitt í Reykjaneskjördæmi
Ég verð að láta
skyldu mína sem
fórmanns ráða
„Það sem ég mun nú segja hefur
verið einhver sú erfiðasta ákvörðun
sem ég hef tekið og reyndar valdið
mér meiri andvöku, þó sef ég nú
vanalega eins og steinn, heldur en
jafnvel leiðtogafundurinn," sagði
Steingrímur Hermannsson, formað-
ur Framsóknarflokksins, á kjör-
dæmisþingi framsóknarmanna í
Reykjaneskjördæmi í gærkvöldi.
„Ég fór í framboð í Vestfjarðakjör-
dæmi og mér var ákaflega vel tekið
þar. Ég eignaðist þar mikinn fjölda
góðra vina. Persónulega mundi ég
kjósa að vera mína þingmannstíð
þingmaður Vestfirðinga og Stranda-
manna.
Hins vegar get ég ekki neitað því
að ég hef miklar áhyggjur af því að
fylgi flokksins hefur minnkað veru-
lega í þéttbýlinu.
Ég hef sagt það hvað eftir annað
að í næstu kosningum kunna að
ráðast örlög þessa flokks, hvort hon-
um tekst að byggja sig upp á ný í
þéttbýli og verða aftur sá alhliða
sterki flokkur dreifbýlis og þéttbýlis
sem hann var eða hvort hann verður
tiltölulega lítill dreifbýlisflokkur.
Og það er í raun og veru þetta
tvennt sem hefur barist um í huga
mér, annars vegar, ég bið ykkur um
að skilja það, mínar óskir sem ein-
staklings, að starfa áfram fyrir það
fólk sem tók mér svona vel, og hins
vegar skyldur mínar sem formanns
flokksins.
Þegar ég segi þetta vil ég taka fram
að mitt samstarf við ykkur hér í
Reykjaneskjördæmi hefur ætíð verið
mér til mikillar ánægju. Og svo
sannarlega væri mér ánægja að
starfa fyrir Reyknesinga.
Reyndar hef ég verið búsettur hér
í 20 ár. Og ég á reyndar líklega fleiri
frændur hér í þessu kjördæmi heldur
en í nokkru öðru og er oft minntur
á það þegar ég kem suður á Suður-
nes.
Steingrímur tilkynnir framboð í Reykjaneskjördæmi. DV-mynd KAE
Ég lagðist því undir feld, og ég
heyrði það í útvarpinu áðan að ég
hefði meira að segja gert það í kvöld-
matartímanum, og það er eiginlega
rétt, og niðurstaða mín varð sú að
ég yrði að láta persónufegar tilfinn-
ingar mínar víkja og skyldu mína
sem formanns flokksins ráða.
Ég hef því ákveðið, ef þið óskið,
að gefa kost á mér til framboðs í
þessu kjördæmi “
Við þessi orð Steingríms braust út
dynjandi lófatak. Þingfulltrúar, sem
fylltu fundarsal íþróttahússins í
Hafharfirði, risu úr sætum sínum og
fögnuðu ákaflega ákvörðun forsæt-
isráðherra.
„Fjölmargir í Vestfjarðakjördæmi
hafa reyndar sagt við mig að þeir
skilji það að eftir að ég, sem formað-
ur flokksins, hef sagt aftur og aftur
að við verðum að eflast í þéttbýlinu
þá á ég ákaflega erfítt með að segja
nei þegar ég er beðinn að sýna og
sanna að ég meini það sem ég hef
sagt.
I raun og veru er það þetta sem
réði því undir feldinum að ég ákvað
að gefa kost á mér,“ sagði Steingrím-
ur.
Eftir yfirlýsingu hans stigu þrír
fundarmenn í pontu og lýstu yfir
framboði, þau Jóhann Einvarðsson,
fyrrverandi alþingismaður, Níels
Ámi Lund ritstjórí og Inga Þyrí
Kjartansdóttir, í stjóm Landssam-
bands framsóknarkvenna.
-KMU