Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1986, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986.
3
Fréttir
Að leiðtogafundinum loknum var byrjað að grafa aftur skurðinn við Sætún
sem fylltur var upp vegna leiðtogafundarins i Höfða. Að sögn Ólafs Guð-
mundssonar, yfirverkfræðings gatnadeildar Reykjavikurborgar, munu
þessar aukaframkvæmdir kosta borgina um tvær milljónir og kemur þetta
til með að tefja framkvæmdir um viku til tíu daga.
-SJ/DV-mynd GVA
„Ljóst að íslend-
ingar beri
nokkum kostnað 4
sagði Kjartan Lámsson, forstjóri Ferðaskrifstofu rikisins
„Ég held að það sé nokkuð ljóst
að íslendingar beri nokkum kostnað
vegna leiðtogafundarins. Hins vegar
ber að líta á mögulega sveiflu í
neyslu vegna töluverðs fjárstreymis
inn í landið og þegar til lengri tíma
er iitið held ég að þetta skili sér aft-
ur.“ ságði Kjartan Lárusson, for-
stjóri Ferðaskrifstofu ríkisins, í
samtali við DV í gær.
Hann sagði erfitt að áætla hversu
mikið fjárstreymið væri og hversu
mikill kostnaðurinn væri. Nú er
unnið að því að taka saman niður-
stöðutölur hjá Ferðaskrifstofunni og
meðal annars er verið að revna að
ná til þeirra fjölmörgu aðila sem
stóðu ekki við pantanir sínar hjá
skrifstofunni. „Það er ljóst að al-
mennar leikreglur í ferðamálum
voru ekki virtar og við sitjum uppi
sem miililiður," sagði Kjartan.
-S.I
Bókaflóðið skellur á um miðjan nóvember:
Búist við um 400 bókatitlum í haust
„Enn er ekki hægt að segja um það
með vissu hve margir bókatitlar koma
út í haust en ég giska á að þeir verði
um 400, eða álíka margir og í fyrra.
Þótt ein og ein bók sé komin á mark-
aðinn má segja að hið svokallaða
bókaflóð hefjist ekki fyrr en um miðjan
nóvember," sagði Eyjólfiir Sigurðsson,
formaðui- Samtaka bókaútgefenda, í
samtali við DV.
Eyjólfur sagði að árið 1983 hefði
verið eitthvert versta ár í sögu bóka-
útgáfu hér á landi. I fyrsta lagi voru
gefnar út fleiri bækur en nokkru sinni
fyrr, eða um 550, salan var í lágmarki
og verkfall um haustið. Eftir þetta
áfall hefðu bókaútgefendur sest niður
og rætt málin. Þá voru menn á því
að gefa ekki út fleiri titla en um 400
fyrir jólamarkaðinn og það hefur að
mestu leyti haldist.
I fyrra var mikil uppsveifla í bóka-
útgáfu og mun það hafa verið með
betri árum hjá bókaútgáfum hér á
landi. Eyjólfúr Sigurðsson sagðist vera
bjartsýnn með bókasöluna í haust. Svo
virtist sem bókin væri að sækja á aft-
ur ef borið væri saman við árin upp
úr, 1980 og ef salan yrði viðlíka og í
fyrra væri allt í lagi.
Ástæðuna fyrir því að bækur færu
ekki almennt að koma út fyrr en um
miðjan nóvember sagði Eyjólfur vera
þá að ný tækni í prentun og bókbandi
gerði mönnum kleift að vera seinna á
ferðinni en áður. Eins hefði verið mik-
ið óöryggi á vinnumarkaði bókagerð-
armanna á hausiin fi-rir nokkrum
árum en nú væri ekki um það að ræða.
-S.dór.
BIRGIRISLEIFUR
ER EINARÐUR OG ÖTULL TALSMAÐUR
SJÁLFSTÆÐISSTEFNUNNAR.
HEFUR REYNST SJÁLFSTÆÐISMÖNN-
UM FARSÆLL FORYSTUMAÐUR.
HEFUR STAÐIÐ VÖRÐ UM HAGSMUNI
REYKVÍKINGA BÆÐI í BORGARSTJÓRN
OG Á ALÞINGI.
TRYGGJUM BIRGI GLÆSILEGA KOSNINGU.
STUÐNINGSMENN.