Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1986, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986.
Stjómmál
Tökum 8,3 milljarða að
láni erlendis árið 1987
- ríkið og aðrir opinberir sjóðir ætla að fa 7,5 milljarða að láni innanlands
Ríki, sveitarfélög og aðrir opin-
berir sjóðir munu taka að láni alls
12,2 milljarða á næsta ári samkvæmt
frumvarpi til lánsíjárlaga fyrir árið
1987 sem lagt var fram með fjárlaga-
frumvarpinu.
Erlend lán hins opinbera verða
upp á 4,8 milljarða króna. Lán tekin
innanlands hljóða upp á tæpa 7,5
milljarða.
Gert er ráð fyrir að atvinnufyrir-
tæki taki erlend lán upp á 3,5 millj-
arða króna. Samtals hljóða erlend
lán því upp á 8,3 milljarða og láns-
fjárlögin alls upp á rúma 15,7 millj-
arða króna.
Á næsta ári er gert ráð fyrir að
afborganir af erlendum lánum verði
alls 6,7 milljarðar. Lántaka erlendis,
nettó, eykst því um 1,5 milljarða.
Af þeim 15.744 milljónum króna,
sem teknar verða að láni erlendis
og innanlands, tekur ríkissjóður,
A-hluti, 4.850 milljónir króna, þar
af 1.700 milljónir króna erlendis,
1.500 milljónir með sölu spariskír-
teina og 1.650 milljónir með verð-
bréfakaupum bankanna.
Fyrirtæki með eignaraðild ríkis-
sjóðs taka 500 milljónir króna, allt
erlend lán, og sveitarfélög 350 millj-
ónir króna, eingöngu erlendis frá.
Til húsbyggingarsjóða verða 3.490
milljónir króna teknar að láni, allt
innanlands aðallega með verðbréfa-
kaupum lífeyrissjóða. Húsnæðis-
málastjórn fær 3.050 milljónir króna
og Byggingarsjóður verkamanna 440
milljónir króna.
Aðrar lánastofnanir fá 3.054 millj-
ónir króna að láni, þar af 2.230
milljónir króna erlendis. Fram-
kvæmdasjóður tekur 564 milljónir
króna, Fiskveiðasjóður 1.050 millj-
ónir króna, þar af 650 milljónir
króna vegna greiðsluhalla, Byggða-
stofriun 750 milljónir króna, sjóðir
iðnaðarins 650 milljónir króna og
Stofnlánadeild landbúnaðarins 40
milljónir króna. -KMU
Þungbúnir þingmenn: Stefán Valgeirsson, Ólafur Þ. Þórðarson og fjær Kristín Kvaran.
Sjátfstæðismenn:
Prófkjör á Norðuriandi
eystra um næstu helgi
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra verður
haldið næsta laugardag. í framboði
eru átta manns, þar á meðal báðir
þingmenn flokksins í kjördæminu, þeir
Halldór Blöndal og Bjöm Dagbjarts-
son.
Aðrir sem eru í framboði eru Bima
Sigurbjömsdóttir, Margrét Kristins-
dóttir, Stefán Sigtryggsson, Tómas
Ingi Olrich, Tryggvi Helgason og Vig-
fús B. Jónsson.
Rétt til þátttöku hafa allir flokks-
bundnir sjálfstæðismenn, svo og þeir
er undirrita inntökubeiðni í eitthvert
sjálfstæðisfélag, búsettir í kjördæminu
og náð hafa 18 ára aldri.
-KÞ
Sjálfstæðisflokkurinn:
Ekkert prófkjör á Suðurlandi
Sjálfstæðisflokkurinn á Suðurlandi
mun ekki hafa prófkjör til að velja
frambjóðendur á lista heldur munu
kjömir fulltrúar félaganna i kjördæ-
misráði, varafulltrúar þeirra og
aukafulltrúar tilnefna fólk á listann.
Þetta var ákveðið á fundi kjör-
dæmisráðs flokksins um síðustu helgi.
Valið fer þannig fram að útbúin er
kjörskrá með öllum fulltrúum í kjör-
dæmisráði, varafulltrúum þeirra og
aukafulltrúum. 25. október verða svo
opnaðar kjördeildir hjá hverju fulltrú-
aráði i kjördæminu. Til þessara
kjördeilda mæta fulltrúamir og skrifa
nöfn einhverra sex manna á kjörseðil-
inn sem skipa eiga sex efstu sæti
listans. Niðurstaða þessa kjörs verður
svo lögð fyrir aðalfund kjördæmisráðs
um miðjan nóvember.
-KÞ
í dag mælir Dagfari
Að loknum fundi
Fljótt skipast veður í loftí. Fundur-
inn i Höfða, sem endaði án þess að
nokkur niðurstaða fengist og allir
vom sammála um að hefði mis-
heppnast, er nú orðinn merkilegur
og gagnlegur og sögulegur og já-
kvæður á nýjan leik. Fer þá aftur
að vænkast hagur Reykjavíkur, en
um tíma leit út fyrir að borgin okkar
yrði svartur blettur á landakortinu
og tungunni. Gestabókin hækkar í
verði og nú geta Reykvíkingar tekið
niður hauspokana og farið að benda
á Höfða með stolti og segja: þama
var fundurinn.
Vegir stjómmálanna em stundum
órannsakanlegir. Fyrst sögðu Rúss-
amir að sögulegur fundur væri í
nánd. Síðan komu þeir út af fúndin-
um og sögðu að Kanámir hefðu
eyðilagt fundinn á síðustu stundu
og komið friðnum fyrir kattamef.
Þeir sögðu að stjömustríðið væri
einskis nýtt mgl, sem ekki væri
mark takandi á. Samt neituðu þeir
að skrifa undir samkomulag nema
Kaninn hætti við stjömustríðið.
Rússamir segjast vilja fækka eld-
flaugum og Kaninn háfi verið búinn
að samþykkja að fækka hjá sér líka.
Samt skrifaði hvomgur undir.
Hvemig á maður að botna í þessu?
Af Bandaríkjamönnunum er það
að segja að þeir sögðu í upphafi að
þetta væri undirbúningsfundur, þar
sem ekki ætti að ganga frá neinu
endanlegu samkomulagi. Svo kom
Shultz út af fundinum og lýsti von-
brigðum með að ekkert samkomulag
skyldi gert. Reagan vildi ekki semja
en samt vildi hann semja. Eða rétt-
ara sagt: Reagan vildi semja en vildi
samt ekki semja. Hvað snýr upp og
hvað snýr niður?
Niðurstöður fundarins í Höfða
vom þær að engar niðurstöður feng-
ust. Samt lítur flest út fyrir að nú
séu báðir aðilar sammála um að
fundurinn hafi fengið jákvæða nið-
urstöðu! Hvað skyldu þeir eiginlega
segja þegar niðurstöður verða þær
að niðurstöður fast? Þá er líka at-
hyglisvert sem fréttaskýrendur segja
og maður verður auðvitað að taka
mark á að þetta með fundinn hafi
alveg verið aukaatriði. Það sem
skiptir máli er áróðursstríðið eftir
fundinn. Fundurinn hafi sem sé ve-
rið settur á svið sem einhvers konar
stökkpallur fyrir áróðurinn. Þetta
sé ekki spuming um það hver vilji
semja um frið. Þess þarf ekki enda
ríkir ágætur friður í Evrópu og á
hann er ekkert bætandi. Það gildir
hins vegar í stöðunni að láta það
líta svo út í áróðrinum að andstæð-
ingurinn sé á móti friðnum en ekki
með honum. í þessum efnum er það
mál manna að Rússamir hafi skorað
fleiri mörk. Gorbatsjov hafði vit á
því að taka konuna með sér til ís-
lands sem var gífurlega mikilvægt
til að varpa húsmóðurlegum og bros-
mildum svip á friðarviðleitni Sovét-
ríkjanna. Fundurinn, sem hann hélt
í Háskólabíói, er sömuleiðis talinn
vera snjall leikur í stöðunni, þar sem
Gorbi lýsti því fjálglega hvað hann
er mikill friðarins maður. Hann var
bókstaflega búinn að semja um var-
anlegan frið og endanlega afvopnun
þegar Kanamir þverskölluðust við
tillögum hans og eyðilögðu fundinn.
Þetta er ekki dónalegur árangur hjá
Gorba þegar haft er í huga að hann
ætlaði sér aldrei að semja um frið.
Rússamir hafa með öðrum orðum
unnið áróðursstríðið og í því er
trikkið fólgið. Ekki að semja um frið
eða eyða eldflaugum, heldur að
vinna það stríð sem snýst um áróð-
urinn og er miklu þýðingarmeira
heldur en venjulegt stríð þar sem
beita þarf sjálfum vopnunum. Vopn-
in em framleidd fyrir áróðurstríðið
en ekki kjamorkustríðið.
Þessu hefur fólk ekki áttað sig á,
og ef Dagfari væri ekki svona snjall
að lesa á milli linanna og skilja
diplómatamál þá hefði hann heldur
ekki komið auga á þennan kjama
málsins. Vopna- og hergagnafram-
leiðsla er báðum stórveldunum
nauðsynleg. Hundmð þúsunda
manna hafa af því atvinnu að smíða
hergögn og hvergi er að finna meiri
framfarir í tækni og vísindum heldur
en í vísindastöðvum vopnaverk-
smiðjanna. Hvomgur aðilinn hefúr
efni á því að leggja þessa framleiðslu
niður og hvað á að gera við allan
þann fjölda ungra manna sem stunda
herþjónustu ef enginn em vopnin
og vamarstöðvamar til að manna
og búa til?
Nei, mennimir vom ekki að semja
um frið. Þeir vom að semja um það
hvemig þeir gætu komið í veg fyrir
að semja um frið. Og það tókst. Þess
vegna er fundurinn bæði sögulegur
og gagnlegur og jákvæður.
Dagfari