Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1986, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986.
Stjómmál
Horkuslagur um líkleg átta þingsætí í Reykjavík:
Stólastimpingar í
SjáHstæðisflokknum
Próíkjör Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík vegna framboðs til Alþingis
í vor fer fram á laugardaginn. Fimmt-
án frambjóðendur bítast um átta sæti
sem líkleg eru til þess að verða þing-
sæti. Þar af eru einungis fjórir
núverandi þingmenn. Þinglið sjálf-
stæðismanna í Reykjavík verður því
áreiðanlega skipað einhverjum nýlið-
um hvemig sem núverandi þing-
mönnum vegnar í prófkjörinu.
Á því er enginn vafi að talsverðar
og í sumum tilvikum miklar sti mping-
ar munu standa um þessi vænianlegu
þingsæti. Um 10.000 manns eru á kjör-
skrá, fiokksbundið fólk, og flestir sem
enn eru á lífi hafa þegar fengið yfir
sig skæðadrífu af bænarskjölum, rit-
um, símtölum og jafnvel heilar bækur.
Alþjóð verður svo vitni að auglýsinga-
stríði í fjölmiðlum og sér að allir
frambjóðendumir, utan tveir eða þrír,
reka kosningaskrifstofur með tilheyr-
andi umstangi.
Kostnaður frambjóðenda er að sjálf-
Peningamarkaöur
VEXTIR (%) hæst
Innlán ówerötryggð
Sparisjóðsbækur óbundnar 8-9 Ui
Sparireikningar
3ja món. uppsögn 8.S-10 Ab.Lb.Vb
6 mán. uppsögn 9.5-13.5 Vb
12mán. uppsögn 11-14 Ab
Sparnaður - Lánsréttur
Sparaö í 3S mán. 8-13 Ab
Sp. í 6 mán. og m. 9-13 Ab
Ávisanareikningar 3-7 Ab
Hlaupareikningar 3-4 Lb.Sb
Innlán verötryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1 Allir
6 mán. uppsögn 2,5-3.5 Lb
Innlán með sérkjörum 8-16
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 5-7 Ab
Sterlingspund 8.75-10.5 Ab.Vb
Vestur-þýsk mörk 3.5=4 Ab
Danskar krónur 7-9 Ib
Utlán óverðtryggð
Almennir vixlarjforv.) 15.25 Allir
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kfle Allir
Almenn skuldabréf(2) 15.5 Allir
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 15.25 Allir
Utlán verðtryggð Skuldabréf
AA 2.5 árum 4 Allir
Til lengri tíma 5 Ailir
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 15
SDR 7.75
Bandarikjadalir 7.5
Sterlingspund 11.25
Vestur-þýsk mörk 6
Spariskirteini
3ja ára 7
4raára 8.5
6ára 9
Með vaxtmiðum(4 ár) 8.18
G«ngistryggð(5ár) 8.5
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala 1509stig
Byggingavísitala 281 stig
Húsaleiguvisitala Hakkeði 9% 1. okt.
HLUTABRÉF
Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnverðs:
Almennar tryggingar 111 kr.
Eimskip 218 kr.
Flugleiðir 152 kr.
Hampiðjan 131 kr.
Iðnaðarbankinn 98 kr.
Verslunarbankinn 87 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til upp-
gjörs vanskilalána er 2% bæði á verð-
tryggð og óverðtryggð lán. Skammstaf-
anir: Ab=Alþýðubankinn,
Bb=Búnaðarbankinn, Ib=Iðnaðar-
bankinn, Lb=Landsbankinn, Sb=
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank-
inn, Vb=Ver8lunarbankinn,
Sp=Sparisjóðimir.
Nánari upplýslngar um peninga-
markaðinn birtast i DV á fimmtudög-
um.
sögðu misjafn í samræmi við misjöfh
umsvif. í sumum tilvikum er hann
greinilega vemlegur og hleypur á
hundruðum þúsunda. Heimildir DV
telja að þeir sem mestu eyði í stóla-
stimpingamar fari með hálfa til heila
milljón króna. Talað er um að fram-
bióðendur í prófkjörinu muni leggja
fram meira fé en flokkurinn sjálfur í
kosningunum þegar þar að kemur.
Fjármagn er þannig bersýnilega talið
þungt á vogarskálunum í þessu próf-
kjöri sem snýst um áhrif á löggjafar-
samkundu þjóðarinnar.
Albert og Friðrik
En það er ekki einungis barist um
að komast í átta sæta úrvalið. Metnað-
ur segir sumum að eitt sæti sé öðrum
merkilegra og þannig kljást Friðrik
Sophusson, varaformaður flokksins,
og Albert Guðmundsson um fyrsta
sætið. í prófkjöri fyrfr fjórum árum
hafði Albert þetta sæti en Friðrik lenti
í öðru sæti. Eftir það varð Friðrik
varaformaður og telur nú eðlilegt að
skipa þetta „forystusæti" þar sem
flokksformaðurinn er í framboði í öðru
kjördæmi.
Þýðing þess að skipa nákvæmlega
efsta sætið er ekki augljós. Því fylgir
í rauninni ekkert annað en að hafa
nafhið sitt efst á listanum. Vissulega
ber það vott um mikið traust. En
stundum hefur það jafhvel þótt merki-
legra að lenda í baráttusæti, sæti sem
viðkomandi flokkur ætlar að halda
eða ná í harðri baráttu. Hvað um það,
nú vilja þeir Albert og Friðrik báðir
fyrsta sætið.
Þessir menn beita ólíkum baráttuað-
ferðum. Albert hringir með liði sínu
„á línuna". „Hann hringir í alla kjör-
skrána og segist berjast fyrir pólitisku
lífi sínu,“ sagði einn samflokksmanna
hans sem þekkir vel til. Einnig eru
birtar heilsíðuauglýsingar í dagblöð-
um frá stuðningsmönnum Alberts og
sumir þeirra skrifa um hann í blöðin
jafnframt. Friðrik hefur aftur á móti
hægt um sig og treystir á virðuleik
varaformannsins umfram annað.
Hann er þó búinn eða er að senda
mönnum línu í hefðbundnum stíl
flokksforingjans.
Talið er að breyttar aðstæður þess-
ara manna innan flokksins og aðrar
prófkjörsreglur kunni að valda sæta-
skiptum þeirra nú. Síðast var þátttaka
bundin flokksmönnum og þeim sem
skrifuðu undir stuðníngsyfirlýsingu
við flokkinn. Nú er hún eingöngu
bundin flokksmönnum. 1982 kusu
8.155 en nú er búist við því að varla
kjósi nema 5-6 þúsund manns í lokuðu
prófkjöri. Fyrir borgarstjómarkosn-
ingamar tóku 5.200 þátt í slíku
prófkjöri. Þessi breyting ein er talin
Friðrik verulega í hag sem öðm höfði
flokksins og um leið Albert í óhag sem
nýtur nú ekki óflokksbundinna stuðn-
ingsmanna sinna.
Birgir og Ragnhildur
Hinir tveir núverandi þingmenn
flokksins í kjördæminu, sem bjóða sig
fram, em Birgir ísleifúr Gunnarsson
og Ragnhildur Helgadóttir. Ragnhild-
ur biður raunar um annað sætið svo
að þröngt er á toppnum. Hún var í
fimmta sæti 1982. Birgir ísleifúr hafði
þá þriðja sætið og Ellert B. Schram
eið fjórða. Hann er hættur. Birgir
leifur er þungur á bámnni sem fyrr
að mati flestra þeirra sem DV ræddi
við. Hann er jafhvel talinn geta bland-
að sér í bardagann um fyrsta sætið sem
þriðji kostur fyrir þá sem ekki vilja
standa í uppgjöri milli Alberts og Frið-
riks. Slagur þeirra tveggja er í raun-
Utankjörfundaratkvæöagreiðsla hefur staðið yfir að undanförnu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik. Myndin
var tekin þegar einn kjósandi var að greiða atkvæði í gær. DV-mynd KAE
inni slagur allra þessara fjögurra
núverandi þingmanna flokksins í
Reykjavík. Líklegast er að þeir skipi
þessi fjögur sæti. Það getur svo oltið
á ýmsu hver röðin verður og atfylgið.
í prófkjörinu í nóvember 1982 fékk
Albert 6.027 atkvæði af 8.155. Friðrik
fékk 5.670, Birgir ísleifur 5.608, Ellert
5.386 og Ragnhildur 5.137 atkvæði.
Fréttaljós
Herbert
Guðmundsson
Sex um fjögur sæti
í þeim hópi sem talinn er af nær
öllum heimildarmönnum DV ganga
næstur fjórmenningunum í þessu próf-
kjöri em sex manns. Það verður því
hlutskipti þessara sexmenninga að
kljást um þau fjögur sæti til viðbótar
sem talið er víst að flokkurinn hljóti.
Þessi þingmannatala er auðvitað ekki
gulltrygg. Flokkurinn gæti alveg eins
fengið sjö eða níu menn en varla miklu
færri eða fleiri.
í þessum hópi er aðeins ein kona
eins og í fyrsta hópnum, María E.
Ingvadóttir. Hún er formaður Sjálf-
stæðiskvennafélagsins Hvatar. Hún
er nýliði í prófkjörsframboði en þykir,
samkvæmt heimildum DV, einna næst
því að ná einhverjum árangri núna.
Henni hefur tekist vel að kynna sig
og nýtur stuðnings sterkra afla innan
flokksins.
Fimm konur em á fimmtán manna
framboðslista í prófkjörinu. Ragnhild-
ur var talin í fyrsta hópnum. Auk
hennar og Maríu em þær Bessí Jó-
hannsdóttir, Esther Guðmundsdóttir
og Sólveig Pétursdóttir í framboði.
Bessí varð í 11. sæti 1982 og sækist
raunar eftir 6. sæti nú. Esther varð
enn neðar og Sólveig er nýliði og nær
alveg óþekkt innan flokksins. Sumir
heimildarmenn DV vildu ekki útiloka
að Bessí næði í fyrmefndan sex manna
hóp frekar en María.
Karlaslagur enn
í þessum sex manna hóþi em svo
taldir fimm karlmenn sem allir hafa
verið áberandi í flokksstarfi sjálfetæð-
ismanna. Eyjólfur Konráð Jónsson
kemur sem þingmaður úr Norður-
landskjördæmi vestra og virðist hafa
góðan byr. Guðmundur H. Garðarsson
varð í áttunda sæti í prófkjörinu 1982
og nýtur stuðnings meðal annars sem
fyrrverandi verkalýðsforingi í hópi
verslunarmanna. Pétur Sigurðsson
sjómaður hættir nú þingmennsku. Það
er talið styrkja Guðmund til metorða
á listanum.
Þá em þrír úr yngri manna röðum.
Jón Magnússon og Geir Haarde em
forverar Vilhjálms Egilssonar sem for-
menn Sambands ungra sjálfetæðis-
manna og þessir þrír em allir í
framboði. Jón varð í níunda sæti 1982
og Geir í tíunda en Vilhjálmur er ný-
liði. Heimildarmenn DV telja þó
Vilhjálm ekki eiga minni möguleika
en forverana þar sem hann sé vel
kynntur sem hagfræðingur vinnuveit-
enda. Annars er torvelt að spá um
afdrif þeirra sem skipa þennan sex
manna hóp.
Ólíklegri til frama
Áður var getið um þær þrjár konur
sem tæpast em taldar blanda sér al-
varlega í stólastimpingamar þar sem
gildir þó fyrirvari um mismunandi mat
á líklegu gengi Bessíar. Með þeim í
hópi, þriðja hópnum, em svo tveir
karlmenn sem hafa það sammerkt að
reka hvað skemmtilegasta kosninga-
baráttu, að minnsta kosti ef marka
má blaóaauglýsingar þeirra. Þetta em
þeir Ásgeir Hannes Eiríksson og
Rúnar Guðbjartsson flugstjóri sem
kemur raunar beint af himnum ofan
í hóp þeirra sem ganga nú með þing-
mann í maganum.
Sú flokkun sem hér er gerð á fram-
bjóðendum í prófkjöri Sjálfetæðis-
flokksins í Reykjavík byggir að
sjálfeögðu á ýmsum og mismunandi
heimildum. í baráttu af þessu tagi get-
ur vitanlega margt breyst á skemmri
tíma en hálfrí viku. Og stundum verða
þeir fyrstir sem áður vom síðastir svo
það er aldrei að vita hver sest í hvaða
stól eftir klukkan m'u á laugardags-
kvöldið.
HERB