Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1986, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986.
Úúönd
Stjómarkreppa
í Belgíu vegna
tungumáladeilu
F'orsaetisráðherra Belgíu, Wilfri-
ed Martens, afhenti í gær konungi
landsins lausnarbeiðni fyrir stjóm
sína.
Var það vegna tungumáladeilu
Vallóna Flæmingja sem ekki hefur
tekist að leysa. Deilur milli þeirra
hafa staðið í mörg ár en það sem
heitast hefur verið deilt um undan-
farið var uppsögn frönskumælandi
bæjarstjóra nokkurs sem ekki var
nógu vel að sér í flæmsku.
Frönskumælandi og flæmsku-
mælandi deila einnig um hverjir
eigi að halda Evrópusöngvakeppn-
ina en hún á að fara fram í Belgíu
í vor. Sjónvarpsstöð frönskumæl-
andi telja rétt að keppnin fari fram
í Liege, heimaborg Söndm Kim.
Það þarf þó 60 miljónir íslenskra
króna til þess að koma húsnæði
því er til greina kemur í viðunandi
horf. Vilja flæmskumælandi að
söngvakeppnin fari fram í Ant-
werpen þar sem allt er til staðar
en aðeins húsfymi fyrir 1000
manns. A meðan syngur Sandra
Kim lagið „Vinur, vinur“ sem er á
hraðri leið niður vinsældalistann
í Belgíu.
14 kílóa rotta
bett veiðimann
Kriaján Bembuig, DV, lökaien;
Er veiðimaður nokkur í Belgíu
sat og drakk bjórinn sinn við
bakka árinnar Maas réðst 14 kílóa
rotta á hann. Hún beit í fótlegg
hans svo að það þurfti að flytja
hann á sjúkrahús til þess að gera
að sárunum.
Slökkviliðsmenn á staðnum voru
kallaðir út til að leita uppi rott-
una. Fundu þeir óargadvrið sem
var á stærð við hund.
Gullrán um
hádegisbil
Jóharma Rútadóttir, DV, Viru
Glæsilegur óg miðaldra við-
skiptavinur kom inn í skartgripa-
verslun hér í Vín og haföi meðal
annars á brott með sér 15 kíló af
gulli. Atburðurinn átti sér.stað síó-
astíiðinn föstudag um hádegisbil
og voru aðeins tveir afgreiðslu-
menn í versluninni.
Ræninginn ógnaði þeim með af-
sagaðri byssu og batt þá í stóla í
herbergi inn af versluninnl Því
næst gerði hann sér lítið fyrir, læsti
versluninni og krækti sér í 15 kíló
af gulli og 240.000 krónur. Veró-
mæti gullsins mun vera um 9
milljónir króna. Flúði hann svo
staðinn með feng sinn í poka.
Maður nokkur. er hafði ætlað
inn í verslunina meðan á ráninu
stóð. gekk burt sannfærður um að
lokað væri vegna hádegishlés.
Ræningjans er nú leitað og auð-
veldar það mjög leitina að hann
huldi ekki andlit sitt fyrir af-
greiðslumönnunum.
Trausts-
yfirtýsingu
frestað í ísrael
Deilur um valdaskiptin í ísrael
urðu þess valdandi að ísraelska
þingið frestaði afgreiðslu á trau-
styíírlýsingu við Yitzhak Shamir
sem forsætisráðherra.
Átti hann að taka við embættinu
af Peres samkvæmt samkomulagi
sem gert var efitir síðustu kosning-
ar. Shimon Peres átti að taka við
embætti utanríkisráðherra ísraels
í gær. Gagmýndi verkamanna-
flokkurinn hægri flokkinn fyrir að
hafa komið með óaðgengilegar
hugmyndir um stöðuveitingar á
síðustu stundu.
Elie Wiesel hlýtur
fríðaiverðlaun Nóbels
lifði af útrýmingarherbúðir Hitlers í
seinni heimsstyrjöldinni. Þá var
hann aðeins 15 ára gamall. Síðan
hefur hann helgað líf sitt því að
halda lifandi minningunni um ógnir
nasismans og von hans er sú að slík-
ar hörmungar endurtaki sig.
Elie Wiesel er búsettur í New
York, hann hefur skrifað hátt í þrjá-
tíu bækur og er stöðugt á ferðinni
um allan heim til þess að þjóna
málstaðnum. Um þessar mundir er
Wiesel mest upptekinn af því að
koma upp safhi í Bandaríkjunum til
minningar um fómarlömb helfarar-
innar. Hann tók sjálfúr fyrstur
skóflustunguna að safhi þessu fyrir
ári og lagði þar niður ösku frá út-
rýmingarbúðum nasista.
Gorbatsjov í ávarpi til sovésku þjóðarinnar í gærkvöldi:
Gyðingurinn Elie Wiesel hlaut friðarverðlaun Nóbels í ár og eiginkonan
Marion óskar honum hér til hamingju. Wiesel er rithöfundur, búsettur
í New York, og kom útnefningin ekki á óvart þar sem hann hefur oft
komið til greina áöur.
Björg Eva Eriendsdóttir, DV, OsQó:
Það kemur ekki á óvart hér í
Noregi að gyðingurinn Elie Wiesel
er sá sem hlýtur firiðarverðlaun Nób-
els í ár. Hann hefur oft áður komið
til greina og einhvem tímann hlaut
að koma að því að hlyti náð fyrir
augum norsku nóbelsnefhdarinnar.
Nefhdin hefur einungis hlotið hrós
fyrir þessa útnefningu.
Gro Harlem Brundtland forsætis-
ráðhema og þingmenn úr ýmsum
stjómmálaflokkum hafa opinberlega
látið í ljós ánægju sína með að Wies-
el fái friðarverðlaunin í ár.
Wiesel er rithöfundur og heim-
spekingur. Hann er einn þeirra sem
Segir Bandaríkjamenn hafa
eignað sér frumkvæðið
í ávarpi til sovésku þjóðarinnar í
gærkvöldi lýsti Gorbatsjov Sovétleið-
togi leiðtogafundinum á íslandi sem
mikilsverðu skrefi í átt til afvopnunar-
samninga stórveldanna í framtíðinni,
en gagnrýndi Bandaríkjastjóm harð-
lega fyrir ósveigjanleika í áformum
sínum um vamarkeríi í geimnum, svo-
kallaða stjömustríðsáætlun.
I ávarpi sínu kvað Gorbatsjov við-
ræðumar á íslandi hafa verið gagnleg-
ar en stjömustríðsáform Bandaríkja-
manna væm enn sem fyrr helsti
þröskuldur á vegi varanlegra afvopn-
unarsamninga.
Gorbatsjov ásakaði einnig banda-
rísku samninganefhdina fyrir að segja
vísvitandi ekki rétt frá þróun viðræðn-
anna í Höfða og eigna sér mestallt
frumkvæði í þeim tillöguflutningi er
þar fór fram. Sagði Gorbatsjov að þrátt
fyrir yfirlýsingar Bandaríkjaforseta
um eigið frumkvæði í viðræðunum
væri sannleikurinn sá að á íslandi
heföu allar mikilvægustu afvopnun-
artillögumar átt uppmna sinn í
sovésku sendinefhdinni, en í þeim
hefði verið gert ráð fyrir útrýmingu
kjamorkuvopna á næstu tíu árum.
Sagði Gorbatsjov að slík samþykkt
heföi leitt til sögulegra þáttaskila, til
heilla fyrir mannkyn allt en á endan-
um hefði óbilgimi Reaganstjómarinn-
ar varðandi geimvamaáætlunina leitt
til þess að ekkert varð úr samningum.
Yfirskin Sovétmanna
Richard Perle, aðstoðarvamarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði aftur á
móti á fundi með blaðamönnum í gær
að tillaga um útrýmingu kjamaflauga
á næsta áratug kæmi frá Reagan for-
seta. Sagði bandaríski aðstoðarvam-
armálaráðherrarm að viðræðumar í
Reykjavík hefðu raunvemlega siglt í
strand sökum andstöðu Sovétmanna
við að þurfa að fóma langdrægum
kjamaflaugum sínum í slíkum samn-
ingi en ekki vegna andstöðu þeirra
við bandarísku geimvamaáætlunina.
Á blaðamannafundinum með Perle,
er fram fór í gegnum sjónvarpskerfi
upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna,
meðal annars með þátttöku íslenskra
blaðamanna, lagði aðstoðarvamar-
málaráðherrann áherslu á að umtals-
verður árangur hefði náðst á
íslandsfundinum þó óneitanlega hefðu
það orðið vemleg vonbrigði að ekki
heföi tekist að fastbinda betur drög
að samkomulagi um afvopnunarmál.
I svari við spumingu frá íslandi
kvaðst Perle vilja nota tækifærið og
undirstrika ánægju Bandaríkjastjóm-
ar með hlut íslendinga að undirbún-
ingi og framkvæmd fundarins er hann
sagði að verið heföi sérlega glæsilegur.
Shultz hittir Sévardnadse
Haft var eftir Bandaríkjaforseta í gær-
kvöldi að niðurstöður fundarins í
Reykjavík útilokuðu alls ekki mögu-
leika á því að annar fundur leiðtog-
anna yrði senn haldinn og lýsti
forsetinn Gorbatsjov sem manni er
hægt væri að semja við af alvöru.
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, kvaðst í gær ætla að fúnda
með sovéskum staarfsbróður sínum,
Sévardnadse í Vínarborg í næsta mán-
uði og á þeim fundi myndi Banda-
ríkjastjóm leggja mikla áherslu á það
við Sovétmenn að haldið yrði áfram
viðræðum þeim um afvopnum er skrið-
ur komst á í Reykjavík.
Richard Perle, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, á sjónvarpstundi með blaðamönnum i sjö evrópskum
höfuðborgum i gær, þar á meðal Reykjavik. Kvað Perle Sovétmenn hafa guggnað í Reykjavik við tillögu Bar.darikja-
manna um útrýmingu langdrægra kjarnaflauga i áföngum.
DV-mynd Brynjar Gauti
Sprengjutilræði í Barcelona
Öflug sprengja sprakk í bíl fyrir
utan lögreglustöð í hjarta Barcelona
í gærkvöldi. Lögreglumaður lést af
völdum sprengjunnar og tólf manns
særðust, þar af tveir alvarlega.
Að sögn lögreglunnar haföi bílnum
verið stolið og var hann með falskt
númer. Var hann fullur af sprengi-
efiii, nöglum og málmbrotum sem settu
göt á nærliggjandi bíla við sprenging-
una.
Sprengingin varð aðeins tveim dög-
um áður en tilkynnt verður um hvar
ólympíuleikamir sumarið 1992 verða
haldnir en Barcelona hefur sótt um
að fá að halda þá. Borgarstjórinn í
Barcelona heldur þó að ekkert sam-
band sé á milli sprengingarinnar og
umsóknar Barcelona en aðskilnaðar-
sinnar í Katalóníu hafa lýst því yfir
að þeir séu mótfallnir ólympíuleikun-
um.