Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1986, Síða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986.
Lesendur
Ekki hissa á Lennon
að falla fyrir Yoko
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Einu sinni var hljómsveit til sem
hét The Beatles. Hana skipuðu íjórir
ungir menn, John Ixrnnon, Paul
McCartney, George Harrison og
Ringo nokkur Starr. Fjórmenning-
amir lögðu heiminn að fótum sér í
upphafi sjötta áratugarins. John var
sá þeirra sem mest bar á meðan sam-
starfið stóð og á eftir. Margir urðu
sárir og reiðir er kona ein birtist sem
þruma úr heiðskíru lofti við hlið
átrúnaðargoðsins. Yoko Ono heitir
hún og ekki löngu seinna splundrað-
ist hið virta band. Þegar Bítla-
draumurinn var allur 1970 tóku þau
hjónakom aðra stefnu i lífi sínu, með
músíkina þó í bakgrunni. Fóm að
huga að friðarmálum og unnu gott
starf á þeim vettvangi, á því leikur
enginn vafi.
Ég er þeirrar skoðunar að mótmæla-
aldan, sem yfir Bandaríkin gekk og
víðar á sínum tíma varðandi Víet-
namstríðið, hafi, óbeint að vísu,
verið þeirra hjúa verk sem síðan
leiddi til að Kaninn kallaði herlið
sitt burt frá Víetnam (þar er reyndar
stríð sem er annað mál). Og vann
„Hin frægu hjón kunnu að nýta sér mátt fjölmiðlanna i baráttu sinni fyrir
friði á jörð. Mætti í því sambandi nefna tíu daga rúmlegu þeirra um árið.“
Nixon þá mjög þarft verk og á heið-
ur skilinn þrátt fyrir öll Watergate-
hneyksli. Eftir því sem ég les og
heyri meira um hina merku konu,
sem að framan hefúr verið nefnd,
verður hrifningin af persónunni
sterkari og er ég ekki hissa þó Lenn-
on sálugi hafi fallið flatur á þeirra
fyrsta fundi. Það eitt er á hreinu að
hin frægu hjón kunnu til hins ýtr-
asta að nýta sér mátt fjölmiðlanna
í baráttu sinni fyrir friði á jörð.
Mætti í því sambandi nefna tíu daga
rúmlegu þeirra um árið sem vakti
athygli meðal margra þjóða. Stefnur
til hægri eða vinstri varðaði þau
ekki um, aðeins frið.
John Lennon var myrtur í byrjun
vetrar 1980. Hann féll fyrir hendi
vitfirrts byssumanns, því sem hann
barðist svo ötullega gegn. Það er
mín von og áreiðanlega allra íslend-
inga að margrómaður leiðtogafund-
ur stórveldanna tveggja, sem
haldinn var að Höfða um helgina,
leiði til þess að stórlega verði dregið
úr kjamavopnum og almennum her-
umsvifum þessara aðila í heiminum
á næstu árum.
Um BHreiðaeftirlK ríkisins
Spumingin
Að loknum leiðtogafundi:
Hvort líst þér betur á
Gorbatsjov eða Reagan?
Páll Ársælsson deildarstjóri: Miðað
við það sem gerðist hér heima er ég
hlynntari Gorbatsjov en Reagan er
minn maður.
Heimir Bjarnason læknir: Ég treysti
mér ekki til að segja til um það.
Guðmundur Þorkelsson innheimtu-
maður: Ég get ekki neitað því að
mér líst betur á Gorbatsjov eftir
þennan fund.
Jóhanna Axelsdóttir skrifstofumað-
ur: Reagan, hann ermiklu jákvæðari
persónuleiki, glaðlyndari og hress-
ari.
Ingvi Már hárskeri: Mér líst betur a
Reagan. Gorbatsjov kom í áróðurs-
skyni til að heilla almenning en ekki
með viljann til að semja.
Þórdís Guðmundsdóttir húsmóðir:
Þeir eru báðir bráðhuggulegir. Þótt
mér lítist vel á þá báða finnst mér
Reagan öllu hressilegri.
H.P.I. skrifar:
Nokkuð hefur verið skrifað um Bif-
reiðaeflirlit ríkisins undanfama daga
í DV. Þjónustan á þeim bæ hefur ve-
rið gagnrýnd og það nokkuð með
réttu. En lítum nánar á málið. Aðstæð-
ur til bifreiðaskoðunar í húsnæði
Sigríður Sigurðardóttir skrifar:
Nokkrir aðilar virðast hafa orðið
fyrir því að borga tannlæknum sam-
kvæmt hækkáðri gjaldskrá þeirra
(fyrri hækkunin nam yfir 40%), án
þess að fá leiðréttingu mála sinna. Það
fékk hins vegar „opinberi geirinn“,
Reykjavíkurborg og fleiri. Urðu tann-
læknar sem kunnugt er að geifla á
saltinu gagnvart þeim aðilum. Að sögn
tannlækna vom hækkanir á verðskrá
þeirra gerðar í samráði við lögfræð-
ingana Guðmund Ingva Sigurðsson
og Benedikt Siguijónsson. Engu hafa
fyrmefndir lögfræðingar svarað ítrek-
uðum fyrirspumum í blöðum tun það
hvort tannlæknum beri ekki að endur-
Bifreiðaeftirlitsins em vægast sagt
hörmulegar, þarf ekki að tíunda það
nánar. Þær þekkja bifreiðaeigendur á
Reykjavíkursvæðinu. Reglur um um-
skráningu ökutækja, skráningu og
skoðun em fyrir löngu gengnar sér til
greiða einstaklingum líkt og hinu
opinbera (svo að mér sé kunnugt).
Nú lenti ofEuirituð í því að borga
tannlækni samkv. háu gjaldskránni
og sá hefur neitað öllum endurgreiðsl-
um. Þvi vil ég hér með beina þeirri
fyrirspum til Lögmannafélagsins og/
eða siðanefndar lögmanna hvort ég
eigi ekki rétt á endurgreiðslu frá við-
komandi tannlækni?
Svar Lögmannafélagsins:
Ef einhver aðili telur sig eiga rétt á
endurgreiðslu af þessu tagi, ætti hann
að snúa sér til dómstóla í landinu.
Mál sem þetta heyrir undir dómstóla.
Lögmannafélagið getur ekki úrskurð-
að í slíkri deilu. Það tilheyrir ekki
verksviði félagsins.
húðar. Það eitt t.d. að þurfa að skipta
um númeraspjöld á bifreið kaupi
Reykvíkingur hana í Kópavogi er for-
kastanleg vitleysa og tekur óhemju
tíma.
Að auki má nefria að kaup bifreiða-
eftirlitsmanna og kvenna er fyrir
neðan öll velsæmismörk eins og allra
ríkisstarfsmanna. Bifreiðaeflirlitinu
óska ég síðan alls hins besta með
þeirri von að aðstæður þeirra batni í
ffamtíðinni.
Montiðframúrhófe
Grímur verkstjóri skrifar:
Ég er einn þeirra er fylgdust
grannt með leiðtogafúndinum í
Höfða, aðallega gegnum sjónvarpið
sem stóð sig ágætlega í frásögn af
þessum merkisatburði. Eitt fannst
mér þó verulega miður i þessum
sjónvarpsútsendingum og það var
montið í Ingva Hrafni sem keyrði
ffarn úr hófi á stundum.
Það kastaði þó fyrst tólfunum þeg-
ar hann fór að segja okkur saklaus-
um sjónvarpsáhorfendum að einhver
ljósamaður sjónvarpsins væri allt í
öllu í Höfða og helst mátti skilja á
Ingva að ekkert hefði orðið úr fund-
inum ef þessi ljósamaður hefði ekki
bjargað málunum.
Persónulega hef ég ekkert á móti
því að menn blási sig svolítið út
enda er ég ættaður úr Skagafirði.
Það ættu þeir þó að gera prívat og
persónulega en ekki fyrir ffaman
alla þjóðina.
Menn ættu ekki að blása sig út fyrir framan þjóðina, að mati bréfritara.
Ingva Hraffi á þing
Kristján hringdi:
Ég á vart til orð til þess að lýsa
hrifningu minni á ffammistöðu
Ingva Hrafiis í sjónvarpinu á meðan
á leiðtogafúndinum stóð. Sérstak-
lega þótti mér Ingvi góður undir lok
viðræðnanna þegar hann talaði
meira og minna látlaust allan daginn
og gaf greinargóðar upplýsingar um
gang mála. Ég er viss um að þetta
úthald og þessi seigla Ingva sé ekki
öllum gefin.
Því skora ég á fréttastjóra sjón-
varps að gefa kost á sér til setu á
Alþingi við fyrsta tækifæri því þama
fer maður sem er með munninn fyrir
neðan nefið og virðist vel að sér um
flesta hluti. Persónulega myndi ég
óska þess að hann færi í framboð
fyrir Jón Baldvin og Alþýðuflokk-
Ber tannlæknum ekki að endurgreiða þeim sem borguðu samkvæmt háu gjald-
skránni?, spyr bréfritari.
Fyrirspum til Lögmannafélagsins:
Eiga tannlæknar
ekkí að enduvgreiða?