Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1986, Qupperneq 16
16
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986.
íþróttir
• Björn Borg keppir á ný.
Bjöm Borg
með á ny
Sænski tennisleikarinn Bjöm
Borg, sem meðal annars hefur
unnið einiiðaleik karla fimm
sinnuní á Wimbiedon keppninni,
er á leið á tennisvöllinn á nýjan
leik.
Mótið sem Borg mun taka þátt
í fer fram í Bologna á ftah'u 3.
og 4. nóvember og verða margir
af bestu tennisleikurum heims á
meðal þátttakenda. Þar má
nefna Tékkann Ivan Ix>ndl, sem
er í efsta sæti á lLstanum yfir
bestu tennisleikara í heiminum,
og Bandaríkjamanninn skap-
stóra John McEnroe en hann er
sem stendur í tíunda sætinu á
heimslistanum og er langt síðan
hann hefur verið svo neðarlega
á listanum. Af öðrum frægum
tennisleikurum má nefna Arg-
entínumanninn Guillermo Vilas,
Vitas Gerulaitis frá Bandaríkj-
unum og Rúmenann Ilie Nastase.
-SK
Navratilova
ekki blönk
íþróttamenn í fremstu röð í
heiminum þéna mikið af pening-
um eins og oft hefur komið fram
í fréttum. Einn er sá íþróttamað-
ur sem virðist vera í nokkrum
sérflokki en það er bandaríska
tenniskonan Martina Navrat-
ilova.
Það sem af er þessu ári hefur
hún unnið sér inn um 54 milljón-
ir eða rúmlega 1,3 milljónir
dollára. f öðnr sætinu er landa
hennar. Chrís Evert Lloyd, með
um 33 milljónir þannig að Nav-
ratilova ber höfuð og herðar yfir
stöllur sínar.
Norman ekki hálfdrætting-
ur
Ástralski golfleikarinn, Greg
Norman, hefur einnig gert það
gott í sumar en hann er þó ekki
hálfdrættingur á við Navrat-
ilovu. Norman hefiir það sem af
er árinu þénað um 26 milljónir.
Bob Tway, Bandaríkjunum, er í
öðru sæti hjá kylfingunum með
rúmar 25 milljónir. -SK
Fjórfaldur
Víkingssigur
Borðtennismenn úr Víkingi
unnu fiórfaldan sigur i meistara-
flokki karla á punktamóti
Víkings sem firam fór nýverið í
Fossvogsskóla. Krístján Jónas-
son vann mjög öruggan sigur í
meistaraflokknum, Hilmar Kon-
ráðsson varð annar, Bjami
TJjamason þriðji og Bergur Kon-
ráðsson fjórði.
í meistaraflokki kvenna sigr-
aði Ásta Urbancis, Emínum, en
Elísabet Ólafsdóttir, KR, varð
önnur. Jafriar í 3.-4. sæti urðu
Anna Sigurbjömsdóttir, Stjöm-
unni, og Fjóla Sigurðardóttir,
UMSB.
Emil Pálsson, Eminum, sigraði
í 1. flokki karla, Elín Eva Gríms-
dóttir, KR, í 1. flokki kvenna og
Sigurbjöm Sigfússon, Víkingi, í
2. flokki karla. -SK
Framarar mæta
ekki til leiks
ef ieikur Fram og KR fer fram á morgun
„Ég hef ekki fengið neina tilkynn-
ingu um að leikurinn hafi verið settur
á annað kvöld í Höllinni. Og það er
alveg klárt mál að ef hann hefúr verið
settur á þá mætir lið Fram ekki til
leiks,“ sagði Sigurður I. Tómasson,
formaður handknattleiksdeildar
Fram, í samtali við DV í gærkvöldi.
Mótanefrid HSf mun hafa sett leik-
inn á annað kvöld en seint í gærkvöldi
bámst svo þær fréttir að hætt hefði
verið við þá ákvörðun. „Ég hefði talið
eðlilegt að samráð hefði verið haft við
okkur um þetta mál. Það var ekki
gert. Við erum orðnir yfir okkur
þreyttir á þessum siðlausu vinnu-
brögðum HSÍ og þeirri valdníðslu sem
þar ræður ríkjum. Og ef það er mein-
ing þessara manna að setja leikinn á
annað kvöld er alveg ömggt að Fram-
arar mæta ekki til leiks. Þetta íslands-
mót er á góðri leið með að verða eitt
allsherjar klúður. Útlit var fyrir stór-
skemmtilegt kvöld á sunnudagskvöld-
ið siðasta þegar leikir Vals og Víkings
og Fram og KR vom á dagskrá, sem
sagt fjögur Reykjavíkurfélög í slagn-
um. En með furðulegum vinnubrögð-
um tókst HSÍ að klúðra þessu
algerlega," sagði Sigurður I. Tómas-
Framarar kæra
Framarar hafa ákveðið að kæra
leikinn gegn KR og vilja þeir að Fram
verði dæmdur sigur í leiknum þar eð
KR-ingar mættu ekki til leiks og ólög-
lega var staðið að frestun hans. -SK
Lúxemborgarar
voru rassskelltir
- Claesen með þrjú og Beigía vann, 0-6
Kristján Bembuig, DV, Bélgiu;
Belgar em nú efstir í sjöunda riðli
undankeppni Evrópukeppni landsliða
í knattspymu. Þeir léku í gærkvöldi
gegn Lúxemborg á útivelli og unnu
stóran sigur, 9-6. Thys, þjálfari Belgíu,
sagði fyrir leikinn að mjög inikilvægt
væri fyrir lið sitt að skora mikið af
mörkum og honum varð að ósk sinni.
Belgar byijuðu mjög vel og eftir að-
eins níu mínútur var staðan orðin 0-2.
Fyrst skoraði Eric Gerets á 6. mínútu
og loks Nico Claesen á þeirri 9.
Skömmu fyrir leikhlé bætti Franky
VerCauteren þriðja markinu við og á
54. mínútu skoraði Claesen fjórða
mark Belgíu og annað mark sitt. Jan
Ceulemans bætti fimmta markinu við
með skalla á 88. mínútu og mínútu
skoraði Claesen sjötta markið og full-
komnaði þrennu sína. -SK
•Amór Guðjohnsen, atvinnumaður hjá Anderlecht, ásamt syni sinum, Eiði Smára, sem
er átta ára gamall en hefur vakið mikla athygli fyrir knattspyrnuhæfileika í Belgíu.
Millwall for
í 3. umferð
Millwall sigraði Walsall, 3-2, í gær-
kvöldi í síðari leik liðanna í 2. umferð
enska deildabikarsins. Millwall komst því
í 3. umferð með samanlagða markatölu,
4-2, og leikur gegn toppliði 1. deildar,
Norwich í næsta leik. Plymouth vann
Sheffield Utd. í 2. deild í gærkvöldi, 1-0,
Doncaster vann Carlisle, 2-0, og Wrexham
vann Peterborough, 4-3. -SK
Mjög góð byrjun hjá Ribe
•Pétur Guðmundsson tognaði í baki og
hefur ekki getað æft i tvær vikur.
- í 1. deildinni dönsku í handknattieik
Ribe, sem Anders Dahl-Nielsen leik-
ur með og þjálfar, hefur komið veru-
Iega á óvart í 1. deildinni dönsku í
handboltanum. Sigrað í tveimur fyrstu
umferðunum. Eftir að liðið missti sjö
leikmenn úr aðalliði sínu í sumar,
meðal annars Islendingana Gísla Felix
Bjamason og Gunnar Gunnarsson,
var spáð að það mundi eiga í vök að
veijast í deildinni i vetur. En gömlu
landsliðskappamir Anders Dahl og
Mogens Jeppesen markvörður hafa
leikið mjög vel tvær síðustu vikumar
og drifið nýju leikmennina með sér. f
2. umferð sigraði Ribe Álaborgar-
KFUM á útivelli, 19-21, eftir 10-13 í
hálfleik. Anders Dahl var tekinn úr
umferð en skoraði þó þijú mörk. Enn
seigur, gamli KR-þjálfarinn. Flemming
Bevensee var markahæstur leikmanna
Ribe með 6 mörk.
í leik stórliðanna í danska hand-
boltanum, HIK og Helsingör, sigruðu
Danmerkurmeistarar HIK, 23-20, eftir
9-9 í hálfleik. Michael Fenger var
markahæstur hjá HIK með 8/5 mörk
en Jens Erik Roepstorrf hjá Helsingör
með sex.
-hsím
Petur
S jJj ^Jj 5 JL
meiddist
Norður-lrar án Pat
Jennings í fyrsta
sinn í 120 leikjum
i
- í æfingabuðum með Lakers
„Ég tognaði nokkuð illa á baki í æfinga-
búðunum með Lakers og hef ekkert getað
æft síðasta hálfa mánuðinn," sagði Pétur
Guðmundsson, atvinnumaður í körfuknatt-
leik hjá bandaríska liðinu Los Angeles
Lakers, í samtali við DV í gærkvöldi.
„Ég var orðinn nokkuð góður um síðustu
helgi og fór þá á æfingu en meiðslin tóku
sig upp að nýju. Ég gat því ekkert verið
með í tveimur æfingaleikjum sem liðið spil-
aði um helgina. Fyrst vann Lakers Chicago,
123 -104, og loks New York Knicks, 112-87.
Ég get ekki sagt til um hversu alvarleg
þessi meiðsli eru en ég er nú í sérstakri
læknismeðferð og vonast eftir þvi að vera
orðinn góður fyrir fyrsta leikinn í deildinni
þann 1. nóvember," sagði Pétur Guðmunds-
son. Keppnistímabilið í NBA-deildinni hefst
1. nóvember en þá á Lakers að leika gegn
Houston á útivelli. Það verður örugglega
erfiður leikur fyrir Lakers en Houston sló
Ijakers út í úrslitakeppninni um titilinn í
fyrra. -SK
- þegar þeir mæta Englendingum á Wembley í kvöld í EM j
Hætt er við að leikmönnum norður-
írska landsliðsins í knattspymu bregði
nokkuð í brún í kvöld er þeir mæta
Englendingum á Wembley leikvangin-
um í Lundúnum en leikur þjóðanna
er liður í Evrópukeppni landsliða. Pat
Jennings, sem staðið hefur í marki
norður-írska liðsins í síðustu 119 leikj-
um liðsins, er nú hættur og leikur
ekki fyrir aftan vamarmennina norð-
ur-írsku í kvöld. Talið er mjög líklegt
að ungur markvörður, Phil Hughes,
sem leikur með Bury, taki stöðu Jenn-
ings í markinu.
Bobby Robson, landsliðseinvaldur
Englands, hefur ákveðið að kalla ekki
á þá Mark Hateley og Ray Wilkins
sem báðir leika á Ítalíu. Enskir knatft
spymuunnendur bíða spenntir eftir
því að sjá hvemig þeim Bryan Rob-
son, Manchester Únited og Steve
Hodge, Aston Villa, muni ganga að
leika saman á miðjunni en sem kunn-
ugt er kom Hodge inn í enska liðið í
• Pat Jennings fjarri góðu gamni í
kvöld.
Mexíkó þegar Robson meiddist og stóð
sig afburðavel.
Norður-írum, sem leika í riðli með
Englandi, Tyrklandi og Júgóslavíu,
gekk vel síðast þegar þeir léku á
Wemley. Þá var ekkert mark skorað
og með jafhteflinu tryggði norður-
írska liðið sér farseðlana til Mexíkó.
Þá var Jennings í miklu stuði og
Norður-írar bíða nú spenntir eftir að
sjá frammistöðu arftaka hans í kvöld.
Mjög líkleg lið í kvöld: England: Shil-
ton, Anderson, Watson, Butcher,
Sansom, Waddle, Robson, Hoddle,
Hodge, Lineker og Beardsley. N-
frland: Hughes, McDonald, Nicholl,
McClelland, Donaghy, Mcllroy, Whit-
eside, Penney, Campbell, Clarke og
Stewart. -SK
I
I
Andevs Dahl
og Skaarup
- á þjálfaranámskeiði hjá Fram
Handknattleiksdeild Fram gengst fyrir
A-stigs þjálfaranámskeiði um næstu helgi
og þar munu þeir Anders Dahl Nielsen og
Per Skaarup verða leiðbeinendur. Anders
Dahl er núverandi þjálfari Ribe í Danmörku
en Skaarup þjálfar Fram. Þeir sem áhuga
hafa á námskeiði þessu eru hvattir til að
tilkynna þátttöku hið allra fyrsta í síma
25054 (Sigurður) og 82800 (Lárus). Nám-
skeiðið hefet klukkan fjögur á fóstudag og
því lýkur á sunnudag. -SK