Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1986, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986.
17
Iþróttir
Springur HSÍ?
Gífurieg óánægja og sundrung innan stjómarínnar
„Það er gífurlega mikil óánægja
ríkjandi innan stjómar Handknatt-
leikssambands Islands um þessar
mundir og hefur raunar lengi verið.
Ég er búinn að starfa lengi að málum
handboltans og mórallinn hefur aldrei
verið verri,“ sagði heimildarmaður DV
í gærkvöldi sem um árabil hefiir verið
starfandi innan HSI.
DV hefur á undanfömum dögum og
i kjölfar „frestunarmálsins" orðið vart
við mjög mikla óánægju margra með
störf HSl og þeirra manna sem vinna
á vegum sambandsins. Nú virðist sem
nokkuð margir stjómarmenn séu að
gefast upp og margir séu orðnir
fúllsaddir á vinnubrögðum ýmissa
manna.
Óánægja með ráðningu vara-
formanns HSÍ
Heimildarmaður DV sagði einnig í
gærkvöldi: „Það em allir búnir að fá
nóg. Fólk er hætt að mæta á fundi.
Ég get nefnt tvö atriði sem menn em
á suðupunkti yfir núna þessa dagana.
Eitt þeirra er ráðning varaformanns.
í tvígang hafa 8 af 11 stjómarmönnum
HSÍ lýst yfir óánægju sinni með ráðn-
ingu Steinars J. Lúðvíkssonar. Hann
hefúr lýst þvi yfir að hann vilji ekki
taka þetta að sér ef óeining sé innan
stjómarinnar með ráðninguna. Samt
er hann orðinn varaformaður sam-
bandsins. Hitt atriðið er varðandi ferð
sem fara á í til Senegal á IHF þing
og nægt hefði að senda einn mann á.
Búið var að ákveða að Jón Hjaltalín
og Jón Erlendsson færu á þingið. En
til þess að friða einn þeirra sem óhress
var með ráðningu Steinars var honum
líka boðið til Senegal. Ferð þessi mun
vafalaust ekki kosta undir 300 þúsund
krónum.
Jón Hjaltalín einræðisherra?
Á meðan að þetta viðgengst þurfa
kvennalandsliðið og unglingalands-
liðið að synda maraþonsund til að afla
sér peninga. Það em mörg önnur mál
sem menn em óánægðir með og það
kæmi mér ekki á óvart þótt eitthvað
stórt skeði á næstu dögum. Menn em
að gefast upp á einræðisherravinnu-
brögðum Jóns Hjaltalíns hjá HSÍ,“
sagði heimildarmaðurinn og það skal
ítrekað að hann þekkir og hefur lengi
þekkt mjög vel til hjá HSÍ.
„Frestunarmálið“
Furðuleg vinnubrögð mótanefridar í
„frestunarmálinu" svokallaða virðast
hafa hleypt illu blóði í marga og sam-
kvæmt heimildum DV er langt frá því
að því máli sé lokið eins og raunar
kemur fram í viðtali við formann
handknattleiksdeildar Fram hér ann-
ars staðar á opnunni.
-SK
• Jesper Oisen.
Hefur Olsen
leikið sinn
síðasta leik?
Jesper Olsen er greinilega
kominn í vond mál hjá Manc-
hester United eftir að hann sagði
frá viðureign sinní og Reini Mo-
ses sem lauk með því að Moses
sló hann. Það þurf'ti að sauma
ellefu spor í augabrún á Olsen
til að loka skurði þar. Blöð i
Englandi hafa sagt frá því að
Olsen sé búinn að leika sinn síð-
asta leik fyrir United og hann
verði ekki mikið lengur hjá fé-
laginu. -SOS
I
„Island er paradís á jörð
og þangað mun égfara
- segir Amór Guðjohnsen sem fer heim til íslands þegar knattspymuferii hans er lokið
Kristján Bemburg, DV, Belgiu:
„Island er paradís á jörð - þangað
mun ég fara strax og knattspymuferli
mínum er lokið,“ sagði Amór Guð-
johnsen í viðtali við belgíska íþrótta-
blaðið Sport 80. Amór hefur verið
heldur betur í sviðsljósinu hér að und-
anfömu, á vellinum, í blöðum, sjón-
varpi og útvarpi. Amór sagðist vonast
til að leika knattspymu þar til hann
væri orðinn 35 ára.
Þegar hann var spurður hvort hann
ætlaði sér að setjast að í Belgíu eft.fr
að atvinnuferli hans væri lokið sagði
hann: „Nei, ég fer beint heim til ís-
lands. Andrúmsloftið þar er stórkost-
legt.“ Ástæðan fyrir þessari spumingu um að hann eigi eftir að feta i fótspor
er, að sonur Amórs, Eiður Smári, hef- föðm- síns og gerast atvinnuknatt-
ur vakið mikla athygli fyrir kunnáttu spymumaður. „Eiður Smári er 8 ára.
í knattspymu og em menn sammála Hann er stór, sterkur og leikinn með
1 Ömggt hjá Tékkum
stig, Finnland 2 og ísland og Dan-
mörk ekkert. Þá vann Fólland
Grikkland, 10. og Auslumki vann
Albaníu, 10.
-SK
i Tékkar unnu ömggan sigur á
| Finnum í leik þjóðanna í Evrópu-
I keppni landsliða undir 21 árs í
I knattspyrnu í gær, lokatölur 2-0.
* Tékkar em efstir í riðlinum með 4
1
I
I
I
I
I
J
knöttinn. Þegar ég verð 35 ára er
strákurinn 18 ára. Þá er hann fær um
að sjá um sig sjálfúr,“ sagði Amór, sem
fór sjálfur 16 ára til Lokeren í Belgíu.
Þegar Amór var spurður hvað hann
myndi taka sér fyrir hendur þegar
hann færi aftur til íslands sagði hann:
„Ég hef mikinn hug á að gerast at-
vinnuþjálfari. Það er unnið mikið
unglingastarf heima á íslandi. Ég hef
mikla ánægju af því að þjálfa og segja
ungum strákum til. Ég vona að ég fái
tækifæri til þess að miðla ungum ís-
lenskum strákum af reynslu minni og
kunnáttu þegar ég kem aftur heim til
íslands," sagði Amór. -SOS
ekki með
Pólverjum
Knattspyrnukappinn Bonifek,
sem leikur með ítalska félaginu
Roma, var ekki valinn í landslið
Póllands sem leikur gegn Grikkj-
um í EM. Aðeins einn af þeim
Pólveijum sem leika með eriend-
um félagsliðum var valinn í
landsliðið. Það er Smolarek sem
leikur með Frankfurt. -SOS
Vandereycken
til Beriínar
Belgíski landsliðsmaðurinn
Rene Vandereycken, miðvallar-
spiiari hjá Anderlecht, gekk til
liðs við v-þýska félagið Blau
Weiss Berlín í gær. Vandereyc-
ken, sem er 33 ára, meiddist í
HM í Mexíkó. Hann heftu- ekki
leikið með Anderlecht í vetur.
-SOS
Sérverslun með
kven-náttfatnað,
og sloppa.
bamanáttföt
undirkjóla