Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1986, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986.
25
Sandkom
Færri en viidu fengu seöla i vasann
vegna leiötogafundarins.
Góður viku-
skammtur
Nú ganga tröllasögur í
borginni um þau uppgrip sem
einstaka maður komst í með-
an á leiðtogafundinum stóð.
Við vitum til dæmis um ein.n
ágætan athafnamann sem
ekki verður nafngreindur hér
en komst í vinnu hjá erlendri
sjónvarpsstöð. Hlutverk hans
var að lóðsa sjónvarpsmenn-
ina milli staða og hjálpa þeim
áleiðis í kerfmu, svo sem að
finna þeim rétta viðmælendur
í hinum ýmsu málum.
Þessi ágæti maður fékk
heilar tvö hundruð þúsund
krónur fyrir vikuna.
Að vísu má segj a að það sé
að bera í bakkafullan lækinn
að vera að segja svona sögur.
En það er nú bara gert til að
espa þá sem ekkert fengu...
Málverk
fyrir hross
Listamenn eru misduglegir
að selja verk sín. Einn þeirra
sem er hvað harðastur í söl-
unni er Steingrímur St. Th.
Sigurðsson.
Að sögn Vestfirska frétta-
andvirði myndanna, sem seld-
ust, rynnu til styrktar félags-
heimilinu.
Ummæli
vikunnar
Ummæli vikunnar eru eign-
uð Ingva Hrafni, fréttastjóra
sjónvarps. Þegar hann stóð,
eða öllu heldur sat, í eldlín-
unnu meðan leiðtogafundur-
inn geisaði urðu nokkrar
hljóðtruflanir í sjónvarpinu.
Þá bunaði Ingvi Hrafn út úr
sér:
„...og nú skulum við sjá
hvað við heyrum..."
Ekki Karíus og
Baktus, held-
ur...
Allur skrambinn getur nú
skeð:
Það gerðist til dæmis í gær
að einn af ágætum blaða-
mönnum á DV fékk ægilega
tannpínu í postulínstönn.
Maðurinn, sem er þekktur fyr-
ir hugmyndaauðgi sína, þurfti
auðvitað að finna orsökina
fyrir þessu fyrirbrigði, svo sem
góðum blaðamanni sæmir.
Ekki leið á löngu þar til lausn-
in var fundin, því hann sagði
sigri hrósandi:
„Það eru ekki Karíus og
Baktus sem valda þessari
tannpínu, heldur Bing og
Gröndahl.'1
Fjorir a
fylliríi
Fjórir menn komu veltandi
fullir út af bamum á Hótel
LofUeiðiun og slöguðu að bíl
einum á stæðinu. Þá heyrðist
einn þeirra segja þvoglumælt-
ur:
„Þú keyrir, Bjami, þú ert
hvort eð er alltof fullur til að
syngja."
...i skiptum fyrir trippi.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
Steingrimur lét málverk...
blaðsins hélt hann sýningu um
daginn í Dalbæ á Snæfjalla-
strönd. Mun sýningin hafa
gengið prýðisvel og aðsókn
verið góð. Tólf myndir seldust
með venjulegum hætti, en sal-
an á hinni þrettándu var með
nokkuð óvenjulegum hætti.
Hana keypti Jón bóndi á
Laugabóli í ísafirði og gaf fyr-
ir hana þreveturt trippi.
Kvaðst Jón ekki hafa annan
gjaldmiðil handbæran, enda
er maðurinn þekktur fyrir
hrossaeign sína. Það fylgdi
svo i kaupunum að Steingrím-
ur geymdi myndina þar til
trippinu hefði verið slátrað í
sláturhúsinu í Bolungarvík.
Verður Jóni bónda þá afhent
málverkið.
En við þessi óvenjulegu
kaup hefur félagsheimilinu
Dalbæ á Snæfjallaströnd
væntanlega áskotnast nokk-
urt magn af trippakjöti.
Steingrímur lýsti því nefni-
lega yfir áður en málverka-
sýningin hófst að 60% af
Bubbi Morthens hefur farið
eins og eldur í sinu um landið
að undanfömu ásamt fríðu
liði. Hefur Bubbi haldið tón-
leika til styrktar kvennaat-
hvarfmu, sem er að sjálfsögðu
hið þarfasta mál. Má fullyrða
að eldhuginn bjargi athvarf-
inu frá bráðum bana með
þessu framlagi sfnu.
Bubbi hélt meðal annars
tónleika á Akureyri á dögun- .
um. Þar komu fram ýmsir
listamenn aðrir og þóttu tón-
leikamir takast með afbrigð-
um vel. Að Bubba undan.skild-
um vakti líklega mesta athygli
hljómsveitin Skriðjöklar, eða
öllu heldur textinn sem þeir
fluttu. Hann var á þá leið, að
pabbi væri í eldhúsinu, eitt-
hvað að fást við mat, því
„...mamma er í athvarfinu gul
ograuð ogblá.“
Það er ekki hægt að segja
annað en að þeir Skriðjöklar
hafi haft textann f samræmi
við tilefnið að þessu sinni.
Bubbi syngur fyrir kvennaathvarfiö.
Mamma er
í athvarfinu
Böðvar Hannesson, eigandi Rúnu, og Sigurður Hauksson, eigandi Lunda, í Hafnarfjarðarhöfn eftir björgunina. DV-mynd S
Báti bjargað út af ÁHtanesi
Lítill bátur á netaveiðum djúpt út
af Álflanesi lenti í erfiðleikum vegna
vélarbilunar og skaut bátseig-
andinn upp neyðarblysi vegna þess.
Vegfarandi á leið um Álflanesið sá
blysið og gerði lögreglunni í Hafnar-
firði viðvart.
Lögreglan sendi lóðsinn út til báts-
ins sem sást vel í kíki frá höfninni.
Er lóðsinn var kominn vel áleiðis í átt
að bátnum hafði hraðbátur komið þar
að og tekið bátinn í tog auk þess sem
tveir aðrir bátar höfðu séð blysið og
voru komnir á svæðið þannig að aldr-
ei var nein hætta á ferðum. Báturinn
sem bjargað var heitir Lundi HF 3.
Nýbúið var að taka upp í honum vél-
ina er óhappið varð en hann var á
netaveiðum. Báturinn sem bjargaði
honum heitir Rúna.
-FRI
SMA AUGLÝSING í DV GETUR LEYST VANDANN.
Smáauglýsingadeild
T
EUROCARO
— slmi 27022.
TIL LEIGU RAKARASTOFA
í BOLUNGARVÍK
Stofan leigist með öllum búnaði, er á besta stað í
bænum, laus 1. nóvember. Upplýsingar í síma
94-7265, 94-7174 og 94-7231.
NÝ ÞJÓNUSTA
Ryðvarnarskálans h/f,
Sigtúni 5.
^ CAR RENTAL SERVICE
loS BILALEIGAN
^ RYÐVARNARSKÁLENN HF.
NNR 9345-5177 — SIGTÚNI 5 — 105 REYKJAVÍK ® 19400 —
LYFTARAR ATH! Nýtt heimilisfang
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra raf-
magns- og dísillyftara, ennfremur snúninga- og
hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum
lyftara, flytjum lyftara.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð.
Tökum lyftara í umboðssölu.
LYFTARASALAN HF.
Vatnagörðum 16, simar 82770-82655.
JL-húsið auglýsir eftir
fólki í eftirtalin störf.
1. Símavörslu o.fl.
2. Aðstoðarmanni á vörulager.
3. Stúlku í matvörumarkað.
Umsóknareyðublöð hjá deildarstjóra.
Jón Loftsson hf.
/A A A A A A
(CZ Zj lZ 6 2JZ3 BSUQaT
Hringbraut 121
LjaacjaaaJ
„ j uuuaj:
ÞINGHOLTSSTRÆTI l