Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1986, Side 26
26
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
■
Margaret
Thatcher
hefur lýst því opinberlega yfir
að hana langi óskaplega í
barnabörn. Hins vegar sér hún
litlar vonir til þess og er víst
aðalhindrunin sú að börn henn-
ar tvö - Mark og Carol - eru
ekki komin I hjónaband ennþá.
Þetta eina smáatriði hefur nú
hingað til ekki staðið i vegi fyrir
barneignum hérna á íslandi
þannig að eitthvað er þetta á
annan máta í Bretlandi.
Ronald Reagan
er efstur á lista yfir þá sem besta
mannasiði kunna í Bandaríkjun-
um. Sérfræðingarnir segja það
viðurkennt meðal bæði demó-
krata og repúblíkana þannig að
treysta megi niðurstöðunum.
Nærri honum á listanum má
finna Barböru Bush sem er víst
kurteis líka. Hin? vegar fyrir-
finnast George Bush og Nancy
Reagan þar hvergi og því hlýtur
það að vera stóra spurningin
hvað í ósköpunum fór úrskeiðis
i uppeldi þeirra - bæði i barn-
æsku og hjónabandi.
Victoria
Principal
er ákaflega hrifin af fiskmeti og
dreif í sig hráan fisk af mikilli
atorku í Japansreisu með els-
kunni sinni, Harry Glassmann.
En máltíðinni var ekki lokiðþeg-
ar leikkonan bögglaðist saman
af kvölum og mun orsökin hafa
verið heiftarleg matareitrun.
Harry er herramaður mikill og
kippti málunum í lag í snatri -
kom elskunni sinni umsvifalaust
á sjúkrahús þar sem hún var
orðin sæmilega gangfær eftir
tvo tíma. Ekki fylgdi sögunni
hvort skvísan fór aftur á veit-
íngahúsið og kláraði af diskin-
um sínum.
Blóð Brandos
Þeir segja vestra að hún hafi sjóbisnessinn i blóðinu - hin sextán ára
gamla Gorgeous Cheyenne Brando. Myndin er tekin á skólasýningu í Pap-
etee á Tahiti en þar býr þessi dóttir Marlons Brando og þriðju eiginkonunnar,
Taritu. Hvort hún verður síðar súperstjarna stendur víst bara í stjörnunum
ennþá en ekki vantar hana hæfileikana að dómi hinna (ærustu sérfræðinga
í listinni.
Kathleen Kennedy-Townsend er á fuliu í pólitíkinni. A síðasta fundi mætti
hún með dæturnar Meaghan, Maeve
Kvenkyns
„Ég á þá ósk að einn góðan veður-
dag verði kvenmaður forseti Banda-
ríkjanna - og að hún beri nafnið
Kennedy." Þessi fróma bæn gat ekki
komið frá neinum öðrum en höfði
Kennedyklansins, hinni rúmlega ni-
ræðu Rose Kennedy. Sú gamla lætur
ekki deigan síga og stjórnar ennþá
þeim yngri með harðri hendi.
Núna virðist margt benda til þess
að henni geti orðið að ósk sinni því
að þrjátíu og fjögurra ára gömul
dóttir Ethel og Roberts Kennedy er
á góðri leið með að verða þekkt nafn
í stjómmálaheiminum. Kathleen
og Kate.
Kennedy
Kennedy-Townsend heitir konan,
þriggja dætra móðir og byrjaði feril-
inn sem aðstoðarmaður Teds
Kennedy. Nú segir hún tíma til kom-
inn að breyta mynstrinu örlítið:
„Konumar í Kennedyfjölskyld-
unni hafa alltaf stutt karlmennina
og staðið að baki þeim í öllu meiri-
háttar veraldarvafstri. Nú er kominn
tími til þess að breyta til og hætta
að halda okkur í bakgrunni fyrir
karlana. Ég hef bara stigið fyrstu
skrefin út í sviðsljósið og vona að
reynslan muni sýna að tímar jafn-
réttis séu raunverulega upp runnir.
Fjölskyldan
var fjarri
Þegar loksins margumrætt brúð-
kaup Tatum O’Neal og Johns
McÉnroe var haldið þótti íjöl-
miðlafólki undarlegt að enginn úr
fjölskyldu brúðarinnar sást á
staðnum. En skýringin er nú komin
í dagsljósið - þeim var bara alls
ekkert boðið! Og það sem meira er,
Tatum hringdi og bað þau vinsam-
legast um að láta ekki sjá sig.
Slæmt samkomulag milli Ryans
og Johns, andstyggð McEnroanna
á foreldrum Tatum og manndráps-
ákæra á hendur Griffith, bróður
hennar, gerði það að verkum að
hin verðandi brúður hringdi í ætt-
ingjana og bað þá í guðanna
bænum að halda sig fjarri. Ekki
gæti gengið að sumir mættu en
aðrir ekki og ljóst var að ekki töld-
ust allir sýningarhæfir fyrir aðal-
inn á Long Island.
Faðir Tatum er ekki vanur að
taka mótlæti ljúfmannlega og núna
öskraði hann af reiði og hótaði að
kýla alla tengdafjölskyldu dóttur-
innar kalda við næsta tækifæri.
Allt kom fyrir ekki og meira að
segja amma Tatum - en brúðar-
kjóllinn var einmitt úr fataskáp
þeirrar gömlu - var beðin um að
sitja heima.
Nánir vinir þeirra segja ákvörð-
unina að mestu komna frá John
sem gat ekki hugsað sér frekari
hneykslismál á síðum blaðanna.
Til þess að deyfa áhrifin gekk hann
að þeirri kröfu eiginkonunnar til-
vonandi að í framtíðinni fylgdu
hún og sonurinn, Kevin, með á öll-
um keppnisferðalögum. John finnst
það truflandi fyrir spilamennskuna
en Tatum segist vita það af eigin
reynslu að þetta sé þeirra eina von
til þess að halda hjónabandinu til
frambúðar.
Aöeins ættingjar brúðgumans voru velkomnir í brúðkaupið og hriktir
nú hressilega i fjölskyldu O’Nealanna.