Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1986, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986.
27
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Peter Holm
fær nú loksins að leika á móti
sinni heittelskuðu Joan Collins.
Hann verður í nýjum sjónvarps-
þáttum sem heita Monte Carlo
og leikur þar njósnaFa sem
bjargar lifi Joan frækilega. Sá
góði maður lætur lífið víð bram-
boltið og liggja handritshöfund-
ar undir grun um að hafa með
öllum ráðum reynt að losna við
fírinn af skerminum sem allra
fyrst. Þetta verður að teljast
nokkuð snyrtilega að málum
staðið enda Hollívúddarar öllu
Bianca Jagger
er víst þekkt fyrir annað en góð-
an smekk og er eiginmaðurinn
fyrrverandi - Mick Rollingur
Jagger - oftlega nefndur máli
því til sönnunar. Síðast gekk
hún yfir fína liðið með því að
mæta í kokkteilboð i Beverly
Hills klædd dökkum smóking-
jakkafötum og bikinibrjósta-
haldara. Bianca átti allra athygli
það kvöldið og fór heim i hátt-
inn með sigurbros á vör.
Warren Beatty
og Molly Ringwald reyndu
bænir, blíðmælgi og hótanir í
samskiptum við aldraða plast-
pokakerlu á Manhattan en
höfðu ekki erindi sem erfiði.
Stefnan var að fá þá gömlu til
þess að færa sig niður eftir gö
tunni svo hún væri ekki inni i
myndinni þegar taka á nýrri
sjónvarpsmynd stóð yfir. En
kerlingin haggaðist ekki og
æpti sem sitt síðasta tillegg í
umræðurnar: „Ég hreyfi mig
ekki fyrir nokkurn mann! Og þar
að auki getið þið ekkert leikið
hvort sem er - allir með tölu.
Eitthvað lá í loftinu undir lok síð-
ustu viku - að minnsta kosti í
Þingholtunum. f ljós kom að orsökin
var leiðtogafundurinn rnikli, vegna
dvalar Reagans i bandaríska sendi-
ráðinu var umferð um hverfið meira
og minna lömuð - eða jafnvel bönn-
uð. Heilu svæðin vöktuð af öryggis-
vörðum og þar fór enginn um nema
með tilskilin skilríki.
Samt var umferð óvenjumikil því
hverfið yfirfylltist af passalausum
köttum. Allir sem vettlingi gátu
valdið voru ekki aðeins utan dyra
heldur hreint alveg ofan í sendiráð-
inu - enda hafa kettir pottþétt frétta-
nef. Þeir eru hinir fæddu fjölmiðla-
menn dýraríkisins og voru í essinu
sínu þetta haustkvöld.
Og taugatrekktir öryggisverðir
reyndu að fylgjast jafnt með ferðum
katta og manna - lítt öfundsverðir
af verkefninu. Meðfylgjandi DV-
mynd BG sýnir nokkra hinna vökulu
gesta, kött sem hefur allt á hreinu
og eitt hinna stórgrunsamlegu ræsa
sem drógu til sín áhyggjufulla örygg-
isverði með skömmu millibili. Hvað
þeim þótti svo varhugavert við ræsin
er óleyst gáta ennþá.
Brjóstgóðar - og blíðlegar líka
Brjóst eru vinsælt umfjöllunar-
efni á hinum ýmsu vígstöðvum og
er þá bæði tekið fyrir allt sem við-
kemur lagi og þyngd þykknisins.
Svo tengjast þau víst tískunni að
auki þannig að ekki þykir alltaf
fínt að hafa þau i annaðhvort
stærra lagi eða minna.
Yfirleitt er í lagi að hafa þarna
einhverjar bungur ef frá eru taldir
tímar eins og þegar Twiggy var upp
á sitt besta eða sjarlestonæðið gekk
yfir. Bogalínur hafa verið með
besta móti á síðustu árum og hér
sjást nokkrar heimsþekktar og
brjóstgóðar kvensur. Þær eru vist
brjóstbestar í Hollívúdd og þótt
víðar væri leitað.
Víst er að Bette Midler er með
eitthvað þarna líka - tvær keimlík-
ar bungur.
En Dolly Parton rúllar þeim öllum
upp. Brjóstmálið er hundrað og
tuttugu sentimetrar.
Sú fertuga Farrah Fawcett Mayors
hefur lag á að vekja athygli hvar
sem hún kemur.
Elísabet Taylor hefur tapað þrettán
kílóum og augljóslega ekki að of-
anverðu.
Aliur er varinn góður...
Fréttanef
katta