Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1986, Page 28
28
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986.
Andlát
Þórir Baldvinsson arkitekt er lát-
inn. Hann fæddist á Granastöðum í
Köldukinn 20. nóvember 1901, sonur
Baldvins Baldvinssonar og Kristínar
Jónsdóttur. Eftir gagnfræðapróf frá
Akureyri liélt hann til Vesturheims
að læra húsagerðarlist og lauk prófi
í arkitektúr frá háskóla í San Franc-
isco en árið 1930 tók hann til starfa
á Teiknistofu landbúnaðarins í
Reykjavík þar sem hann starfaði í
tæpa íjóra áratugi, til ársins 1969 er
hann lét af störfum fyrir aldurs sak-
ir. Hann var forstöðumaður teikni-
stofunnar frá 1937. Eftirlifandi
eiginkona hans er Borghildur Jóns-
dóttir. Þeim varð þriggja barna
auóið. Utför Þóris verður ferð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 15.
Nanna Helgadóttir Ohlsson lést i
Kaupmannahöfn 10. október sl. og
verður jarðsungin þar á morgun, 16.
október.
Sólrún Jónasdóttir, Álfhólsvegi 53,
Kópavogi, lést í Vífilsstaðaspítala 11.
október sl.
Charles Bjarnason, Aðalstræti 22,
Isafirði, lést í Fjórðungssjúkrahús-
inu á ísafirði mánudaginn 13.
október.
Gunnar Eysteinsson, Hólmgarði
46, lést í Landakotsspítala mánudag-
inn 13. október.
Kristín Vigfúsdóttir, Kirkjuteigi
11, Reykjavík, andaðist 10. október
sl. Útförin fer fram frá Laugames-
kirkju mánudaginn 20. október kl.
13.30.
Laufey Guðjónsdóttir, Safamýri
34, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 17. októberkl. 15.
Útför Jóhönnu Methúsalemsdótt-
ur, Þangbakka 10, Reykjavík, sem
lést í Vífilsstaðaspítala 8. október, fer
fram frá Áskirkju föstudaginn 17.
október kl. 15.
Útför Ásmundar Kr. Ásgeirsson-
ar, fyrrverandi skákmeistara, Há-
teigsvegi 4, fer fram frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 16. október kl.
13.30.
Dr. Björn Þorsteinsson, Hjalla-
brekku 19, Kópavogi, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 16. október kl. 13.30.
Jarðsett verður í Fossvogskirkju-
garði.
Jóhann J.E. Kúld, er andaðist 7.
október, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 16.
október kl. 15.
Sumarlín Gestsdóttir frá Raufar-
höfn, Hrafnistu, Hafnarfirði, verður
jarðsett á Raufarhöfn laugardaginn
18. október kl. 14. Minningarathöfn
fer fram í Fossvogskapellu fimmtu-
daginn 16. október kl. 15.
Birgir Halldórsson, Þórshöfn,
Langanesi, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 17. okt-
óber kl. 16.30.
Arndís Tómasdóttir lést 29. sept-
ember sl. Hún fæddist og ólst upp í
Árbæjarhjáleigu í Holtum í Rangár-
vallasýslu, dóttir hjónanna Tómasar
Halldórssonar og Vigdísar Vigfús-
dóttur. Arndís giftist Gunnari Ólafs-
syni en hann lést fyrr á þessu ári.
Þeim varð tveggja sona auðið. Fyrir
hjónaband hafði Arndís eignast son
sem lést á öðru ári. Útför Arndísar
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag
kl. 13.30.
Afmæli
90 ára afmæli á í dag, 15. október,
Ingólfur Guðmundsson sjómaður,
Hlíðartúni 7, Höfn, Hornafirði.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Goóheimum 8, 2. haeð, þingl. eigandi Gísli Björnsson, fer fram
á eigninni sjálfri föstud. 17. okt. 1986 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru
Helgi V. Jónsson hrl. og Guðjón Ármann Jónsson hdl.
___________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Bugðulæk 17, 2. hæð, þingl. eigandi Pálína Lórenzdóttir, fer
fram á eigninni sjálfri föstud. 17. okt. 1986 kl. 10.45. Uppboðsbeiðandi er
Steingrímur Þormóðsson hdl.
______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Karfavogi 44, aðalhæð, þingl. eigandi Ingólf-
ur Guðnason, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 17. okt. 1986 kl. 11.15.
Uppboðsbeiðandi er Útvegsbanki íslands.
______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavik
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Rofabæ 43, 2.f.m., þingl. eigandi Elísabet
Gísladóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 17. okt. 1986 kl. 15.15. Uppboðs-
beiðendur eru Þorvaldur Lúðvíksson hrl. og Veðdeild Landsbanka Islands.
__________________Borgarfógetaembættið I Reykjavik
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Arahólum 4, íb. 2 E, þingl. eigendur Nína
Sigurjónsd. og Hjalti Kjartansson, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 17. okt.
1986 kl. 17.00. Uppboðsbeiðendur eru Guðjón Steingrímsson hrl., Veðdeild
Landsbanka islands, Ásgeir Thoroddsen hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Jón
Halldórsson hrl., Tryggingastofnun ríkisins, Kópavogskaupstaður, Ólafur Ax-
elsson hrl., Róbert Arni Hreiðarsson hdl„ Landsbanki Islands, Þorvaldur
Lúðvíksson hrl. og Bæjarfógetinn í Kópavogi.
_______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Fiskakvísl 9, 2. t.v., þingl. eigandi Hörður Harðarson, fer fram
á eigninni sjálfri föstud. 17. okt. 1986 kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er Veð-
deild Landsbanka íslands.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik
Útvarp - Sjónvarp
Felix Bergsson söngvari:
Venjuleg amerísk
menntaskólamynd
I gærkvöldi horfði ég fremur lítið
á sjónvarp. Þó horfði ég á þáttinn í
fullu fjöri, þeir þættir eru mjög
skemmtilegir. Því miður missti ég
af Vitni deyr en ég hef hingað til
fylgst með þeim þáttum. Það er áber-
andi í sjónvarpinu hve breskir þættir
eru miklu betri en þeir bandarísku.
Það eina sem ég horfði á á Stöð 2
var myndin 16 kerti sem var venju-
leg amerísk menntaskólamynd sem
gengur út á nærbuxur og sex.
Reyndar líst mér ekki alveg nógu
vel á Stöð 2 það sem af er. Það er
svo til eingöngu amerískt efni á
boðstólum þar, alla vega ennþá.
Finnst mér að leggja verði miklu
meira upp úr íslenskri dagskrárgerð
og verður það vonandi svo í framtíð-
inni.
Þegar ég hlusta á útvarp verður
rás 2 yfirleitt fynr valinu. Hún og
Bylgjan eru mjög góðar rásir. Páll
Þorsteinsson og Vilborg Halldórs-
dóttir á Bylgjunni eru fínir útvarps-
menn. Jónatan Garðarsson og
Ragnheiður Davíðsdóttir voru bæði
með skemmtilega þætti í gærdag á
rás 2. Því miður missi ég svo til allt-
af af morgunþætti rásar 2 því þá er
ég í skólanum. Svæðisútvarpið
finnst mér að ætti að leggja niður.
Ég held að það sé ekki grundvöllur
fyrir því að reka það miðað við þá
hlustun sem það virðist fá.
Ég er mjög ánægður með þá sam-
keppni sem myndast hefur í útvarps-
og sjónvarpsmálum og held að hún
verði til góðs. Það má strax sjá
breytingu á RÚV sjónvarpinu en
mikill fjörkippur hefúr komið í það
undanfamar vikur.
Tilkyriiúngar
50 ár frá gerð glermuna eftir
Alvar Aalto
lönnski arkitektinn Alvar Aalto teiknaði
hinn fræga Aalto-vasa í samkeppni um
hönnun glermuna, sem efnt var til af gler-
verksmiðjunni Karhula-littala árið 1936.
Glermunir Aaltos voru sýndir í fyrsta
skipti á heimssýningunni í París 1937.
Á þessu ári á vasinn, sem nefndur hefur
verið frægasti nútímavasi í heimi, 50 ára
afmæli.
Það, sem Aalto lagði af mörkum til
keppninnar, voru fjórir uppdrættir, hver
með sínu móti. iittala glerverksmiðjurnar
hafa framleitt tvær mismunandi gerðir
vasa eftir uppdráttunum. 1 keppnisgögnum
Aaltos voru líka nokkrar grunnar skálar
Hjálparsveitirnar fá farsíma
Á sunnudaginn sl. færði Landssamband
hjálparsveita skáta hverri aðildarsveit
sinni farsíma að gjöf. Tilefni þessarar
rausnarlegu gjafar er 15 ára starfsafmæli
Landssambandsins og góð rekstrarafkoma
þess á árinu. Margar af hjálparsveitunum
tóku þátt í öryggisgælsu vegna leiðtoga-
fundarins og var tækifærið notað er henni
lauk síðdegis á sunnudag og farsímarnir
Námskeið fyrir sjómenn
Slysavarnarskóli sjómanna mun efna til
almenns námskeiðs fyrir sjómenn dagana
21. 24. okt. nk. Fjallað verður um helstu
þætti öryggismála, svo sem endurlífgun
og skyndihjálp, flutning slasaðra og ráð
til að halda lífi við erfiðar aðstæður, með-
ferð ýmissa björgunartækja um borð í
skipum og höfnum. Björgun með þyrlum.
Lög og reglur um búnað skipa svo og
brunavamir og slökkvistörf.
sem framleiddar voru fram til 1960.
Frá ársbyrjun 1986 ákvað Iittala að hefja
aftur framleiðslu á áðurnefndum skálum,
sem nota má, að sögn Aaltos, sem bakka,
ávaxtafot, og hvers vegna ekki undir kakt-
usa.
Á afmælisárinu framleiðir littala einnig
Aalto-vasa í sægrænum lit, sem var einn
af upphaflegu litunum á glermunum Aalt-
os á heimssýningunni í París. littala
glerverksmiðjurnar framleiða vasann
núna einnig glæran, ópalhvítan og kóbolt-
bláan.
Umræddir glermunir Aaltos eru fagurt
dæmi um mikilvægustu markmið Alvars
Aalto: að skapa samhljóm í lífi mannsins
með því að láta byggingar, hluti og um-
hverfi mynda innbyrðis samspil.
afhentir við formlega athöfn við Höfða.
Fyrir valinu urðu Dancall farsímar en
þeir eru mest seldu farsímar á fslandi. Það
er fyrirtækið Radíómiðun hf. sem flytur
inn símana og við þetta tækifæri færði
Kristján Gíslason, framkvæmdastjóri
Radíómiðunar, LHS einn farsíma að gjöf.
LHS og aðildarsveitirnar 21 eru því enn
betur en áður í stakk búnar að takast á
hendur margþætt björgunar- og þjónustu-
störf.
Leiðbeinendur á námskeiðinu verða frá
Slysavarnafélagi Islands, Landssambandi
slökkviliðsmanna, Landhelgisgæslunni,
Siglingamálastofnun og Líffræðistofnun
Háskólans.
Þess má geta að fyrri námskeið um ör-
yggismál sjómanna, sem SVFÍ hefur
gengist fyrir, hafa verið fjölsótt og færri
komist að en vildu.
Upplýsingar varðandi námskeiðin verða
gefnar á skrifstofu SVFÍ.
Dansnámskeiö íþróttafélags
fatlaðra
Danstímar fyrir fullorðna hefjast fimmtu-
daginn 16. október kl. 20.30. Hjólastólafólk
boðið sérstaklega velkomið. Kennsla fyrir
börn og unglinga hefst laugardaginn 18.
október kl. 16. Kennsla fer fram í félags-
heimili ÍFR, Hátúni 12. Kennari Dagný
Björk Pétursdóttir. Nánari upplýsingar í
síma 688686 og 46635.
15. október - alþjóðlegur dag-
ur hvíta stafsins
Hvíti stafurinn er aðalhjálpartæki blindra
við að komast leiðar sinnar jafnt utan
húss sem innan. Hann er jafnframt for-
gangsmerki þeirra í umferðinni.
Það krefst langrar þjálfunar að læra að
nota hvíta stafinn svo að hann komi að
sem mestum notum. Þjálfunin er fólgin í
að læra að beita stafnum á réttan hátt,
læra ákveðnar leiðir og að þekkja kenni-
leiti. Mikilvægt er að hlusta eftir um-
hverfishljóðum, t.d. eru fjölfarnar
umferðargötur gott kennileiti. Þegar
blindur maður þarf að komast yfir götu
heldur hann stafnum skáhallt fyrir framan
sig
Okumenn og aðrir vegfarendur taka í
ríkara mæli tillit til blindra og sjónskertra
sem nota hvíta stafinn. Eitt aðalvandamál
þess sem ferðast um með hjálp hvíta stafs-
ins eru kyrrstæðir bílar á gagnstéttum.
Þessir bílar geta valdið stórhættu, sérstak-
Iega vörubílar og aðrir háir bílar. Stafur-
inn lendir undir bílnum og sá blindi verður
ekki var við hann fyrr en hann rekst sjálf-
ur á hann.
Skorað er á ökumenn að virða hvíta
stafinn sem stöðvunarmerki. Vegfarendur
eru hvattir til að sýna blindum og sjón-
skertum fyllstu tillitssemi í umferðinni og
að bjóða fram aðstoð sína ef þurfa þykir.
Félag makalausra
Félagsfundur í Mjölnisholti nk. fimmtu-
dag, 16. október, kl. 21. Rætt verður um
vetrarstarfið.
Hallgrímskirkja
- starf aldraðra
Á morgun, fimmtudag, verður farið í Norr-
æna húsið og skoðuð málverkasýning eftir
Munk. Að því loknu verður ekið að Kjarv-
alsstöðum og skoðuð málverkasýning
Eyjólfs Eyfells, þá drukkið kaffi ef vill.
Lagt verður af stað frá Hallgrímskirkju
kl. 14.30. Nánari upplýsingar gefur Dóm-
hildur Jónsdóttir í síma 39965.
Kvenfélag Kópavogs
heldur fund fimmtudaginn 16. október kl.
20.30 í félagsheimilinu. Gestur fundarins
verður Sigríður Halldórsdóttir og mun
hún tala um kljásteinavefstað.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
Vetrarstarfið er hafið. Sýnikennsla
verður í félagsheimilinu að Baldurs-
götu 9 í kvöld, 15. október, kl. 20.
Kristín Gestsdóttir kennari mun
annast kennslu á nýjum og spenn-
andi réttum úr innmat. Sýnikennslan
er öllum opin.