Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1986, Blaðsíða 32
FRÉTTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.500 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 4.500
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986.
Magnús Reynir Guðmundsson, varaþingmaður á Vesfjörðum:
Steingrímur
sveik okkur
Stefnuræðu
Steingríms
sjónvarpað
Stefnuræðu forsætisráðherra og
umræðum um hana á Alþingi verður
bæði útvarpað og sjónvarpað annað
kvöld, fimmtudagskvöld, frá klukkan
20 til 23.
Auk Steingríms talar Haraldur Ól-
afsson fyrir hönd Framsóknarflokks-
ins. Fyrir Alþýðuflokk tala Jón
Baldvin Hannibalsson, Jóhanna Sig-
urðardóttir og Stefán Benediktsson.
Fyrir Sjálfstæðisflokk Þorsteinn Páls-
son, Ólafur G. Einarsson og Matthías
Á. Mathiesen. Fyrir Alþýðubandalag
Svavar Gestsson og Hjörleifúr Gutt-
ormsson. Fyrir Kvennalista Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir, Kristín
Halldórsdóttir og Málmfríður Sigurð-
ardóttir. -KMU
Fokker
bilaði
Jón G. Hauksson, DV, Akureyit
Fokkervél Flugleiða á leið frá
Reykjavík til Grænlands, með átta
farþega og þriggja manna áhöfn innan
borðs, var snúið við til Akureyrar með
bilaðan hreyfil laust eftir miðnætti í
fyrrakvöld. Vélin lenti á Akureyrar-
flugvelli klukkustund síðar og var
talsverður viðbúnaður á flugvellinum.
Viðgerð var þegar hafin og var vélinni
flogið til Reykjavíkur í gærmorgun.
Hassfannst
á konu
Um 440 grömm af hassi fundust inná
konu á Keflavíkurflugvelli síðastlið-
inn sunnudag. Konan var að koma frá
Kaupmannahöfn og hafði hassið með-
ferðis þaðan. Við yfirheyrslu sagðist
hún hafa keypt hassið og flutt það inn
á eigin vegum. Markmiðið var að selja
hassið hér heimá. Málið fer nú fyrir
dómstóla. Konan er 36 ára gömul og
hefúr oft komið við sögu lögreglunn-
-KB
TRÉSMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF.,
IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVIK.
SIMAR: 92-4700-92-3320.
„Steingrímur Hermannsson hefúr
sýnt á sér nýja hlið. Hann hefúr
gengið á bak orða sinna og svikið
okkur Vestfirðinga. Það, að hann
skuli svo tilkynna þetta suður í
Hafnarfirði, sýnfr að manninum er
varla sjálfrátt,“ sagði Magnús Reyn-
ir Guðmundsson, bæjarritari á
ísafirði og varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins á Vestfjörðum. DV
leitaði álits hans á fyrirhuguðu
framboði Steingríms í Reykjanes-
kjördæmi.
„Við ólíkustu tækifæri hefur
Steingrímur alltaf sagt að hann færi
hvergi í framboð nema héma fyrir
vestan á meðan við vildum hafa
hann. Það hefúr hvergi nokkurs
staðar komið fi am annað en að við
vildum að hann yrði hér áfram. Þetta
em því hrein svik og framsóknar-
menn hér em almennt undrandi,
sárir og hreinlega í rúst yfir þessari
framkomu. Mér sýnist þetta merki
um að Framsóknarflokkurinn ætli
að sýna landsbyggðinni minni áhuga
hér eftir en á því var síst þörf eins
og nú er komið,“ sagði Magnús
Reynir.
Hann var spurður hvort hann
gæfi kost á sér í skoðanakönnun
flokksins. „Ég get engu svarað um
það á þessari stundu. I síðustu kosn-
ingum varð ég varamaður Stein-
gríms og raunar Ólafs Þ. einnig. Ég
veit ekki hvort ég get talist vara-
maður Steingríms lengur eftir að
hann gerðist þingmaður Reyknes-
inga í gærkvöldi. Annað get ég ekki
sagt núna.“
Ölafur Þ. Þórðarson, annar þing-
maður Framsóknarflokksins á
Vestfjörðum, lýsti því yfir að hann
myndi ekki taka þátt í skoðana-
könnun sem flokkurinn ætlaði að
halda í fyrravetui-. „Það snerti þá
skoðanakönnun, sem ég var á móti
á þeim tíma, en ég hef ekki ákveðið
hvort ég tek þátt í þeirri könnun sem
nú stendur til,“ sagði Ólafur í morg-
un. „Ég hef ekki verið harður fylgis-
maður margs af þvi sem flokkurinn
hefur stefnt að undanfarið svo að
þessi mál verður að skoða vel.“
Byggung:
Bakreikn-
ingar nema
milljónum
„Það er langt síðan ég lauk við að
greiða íbúðina mína samkvæmt kaup-
samningi en svo fæ ég núna bakreikn-
ing upp á 800 þúsund krónur. Aðrir
hafa fengið enn hærri bakreikninga,
allt upp í rúma milljón,“ sagði íbúi í
Byggungsblokk við Seilugranda í
samtali við DV. „Við eigum að kaupa
þessar íbúðir á kostnaðarverði en
núna þykir okkur kostnaðarverðið
orðið nokkuð hátt. Það er farið að líkj-
ast toppverði á fasteignamarkaðin-
um.“
íbúar í 129 íbúðum við Seilugranda
og Rekagranda munu sitja fund með
framkvæmdastjóra og stjóm bygging-
arsamvinnufélagsins Byggung í
KR-heimilinu annað kvöld þar sem
bakreikningamir verða ræddir. Þar
ætla íbúarnir að krefjast þess að bók-
hald Byggung verði rannsakað og
hafa þeir þegar haft samband við end-
urskoðendur í því skyni.
„Þessi krafa okkar er einfaldlega
fram komin vegna þess að við skiljum
ekki hvemig allar þessar milljónir sem
við nú eigum að greiða em tilkomnar.
Einnig viljum við fá að vita hvemig
stjóm Byggung ætlast til að við greið-
um bakreikningana," sagði einn
íbúanna í morgun.
Um óánægju íbúanna hafði Guð-
mundur Karlsson, framkvæmdastjóri
Byggungs, eftirfarandi að segja: „í
þessum bakreikningum em bíla-
geymslur sem kosta 258 þúsund
krónur. Afganginn má skýra með því
að mismunandi var hvenær fólk vísi-
tölubatt eftirstöðvar af greiðslum
sínum. “ -EIR
Fiskverðshækkun
í Bandaríkjunum
„Það stendur til að hækka 5 punda
pakkningamar í Bandaríkjunum og
ég á von á því að það verði tilkynnt
á morgun. Menn hafa verið að funda
um þetta vestra undanfama daga og
þetta er niðurstaðan," sagði Olafur
Gunnarsson, framkvæmdastjóri hjá
Sölumiðstöð hraðfrystíhúsanna, í
samtali við DV í morgun..
Friðrik Pálsson, forstjóri SH, hefúr
undanfama daga verið í Bandaríkjun-
um vegna þessa máls en hann er
væntanlegur heim í dag. Viðræður um
endurskoðun á verðsamningi SH og
Long John Silver leiddu ekki til fisk-
verðshækkunar til þessarar stóm
veitingahúsakeðju en samningur SH
og Long John Silver gildir fram á
næsta sumar. S.dór
HERB
LOKI
Nú segja vestfirskir
framsóknarmenn:
Þú líka, Steingrímur!
Veðrið á morgun:
Suðvesflæg
átt og bjart á
Norður- og
Austurlandi
Suðlæg átt á Suðvestur-
urlandi, skýjað en þurrt fram ei
degi. Suðvestlæg átt og bjarf
Norður- og Austurlandi. Helc
hlýnandi þegar líður á daginn
fer að rigna á Suðvesturlandi s
degis.
Játning
og geð-
rannsókn
Þijátíu og tveggja ára gamall Reyk-
víkingur, sem handtekinn var vegna
árásar á 54 ára gamla konu í kirkju-
garðinum við Suðurgötu sjötta októb-
er síðastliðinn, hefúr játað á sig
verknaðinn. Hann situr nú í gæslu-
varðhaldi og mun gangast undir
geðrannsókn.
Maðurinn, sem nauðgaði ungri konu
í Hljómskálagarðinum fyrir skömmu,
er ófúndinn og að sögn Rannsóknar-
lögreglunnar er fátt að fara eftir í því
máli. -KB