Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986.
Fréttir
Edda Magnúsdóttir matvæiafræðingur sker börð af skötu. Dr. Grímur Valdimarsson, forstöðumaður Rannsóknar-
stofnunar fiskiðnaðarins, dr. Guðmundur Stefánsson matvælafræðingur og Unnur Steingrímsdóttir lifefnafræðingur
horfa á. Edda og Guðmundur hafa umsjón með skötuverkefninu.
Lrftæknin leysir aldagamait vandamál:
Örverur losa skráp-
inn af skötunni
Þama heldur Edda á skötubörðum, annars vegar með skráp og hins veg
ar skráplausu eftir nótt í ensimbaði.
DV-mynd: GVA.
Aldagamalt vandamál við skötuát
er að hverfa úr sögunni. Framleiðsla
á ensímum til þess að leysa upp
skrápinn með göddum og öllu saman
er í burðarliðnum hjá Rannsóknar-
stofhun fiskiðnaðarins. Skötubörðin
eru einfaldlega lögð í ensímlög yfir
nótt og síðan er skrápurinn skolaður
af undir krana. Engin breyting verð-
ur á bragði og eftir situr gómsætur
fiskur sem seldur er dýrum dómum
víða um heim.
Upptökin að því að nýta örverum-
ar eru hjá Rannsóknarstofnun
Háskólans. Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins tók við því hlutverki
að búa til sams konar blöndur í stór-
um stíl og unnar voru í tilraunaglös
í upphafi. Ensímin eru unnin úr
venjulegu fiskslógi. Með sömu tækni
eru nú gerðar tilraunir til þess að
hreinsa hreistur af roði ýsunnar,
hreinsa hörpuskelfisk og ná himnu
af lifúr. Við þetta eru notaðar mis-
munandi ensímblöndur.
Að sögn Gríms Valdimarssonar,
forstöðumanns Rannsóknarstofnun-
ar fiskiðnaðarins, er greinilega fyrir
hendi áhugi fiskframleiðenda til þess
að nota sér líftæknina við þessi verk-
efni, sem hvorki mannshöndin né
vélar hafa ráðið sæmilega við. Sem
dæmi um þýðingu þeirra má nefha
að ekki munu vera hirt nema um
200 tonn af skötu af hérlendum fiski-
skipum á ári, um 2.000 tonnum sem
koma með öðrum fiski í skipin er
hent. Talið er líklegt að veiða megi
miklu meira af þessu lostæti sem við
höfum ekki kunnað að nýta okkur
nema í smáum stíl.
HERB
Tveir gengu berserksgang á Djúpavogi:
Rústuðu verbúðina og
slösuðu 5 manns
lögregluþjónninn sleginn er hann ætlaði að skakka leikinn
Tveir menn gengu berserksgang í
verbúðinni á Djúpavogi, rústuðu þeir
allt innanstokks og slösuðu fimm fbúa
húsins. Er lögregluþjónn staðarins
ætlaði að skakka leikinn var hann
sleginn af mönnunum.
Atburður þessi átti sér stað um síð-
ustu helgi. Að sögn lögreglunnar á
Fáskrúðsfirði hafa þeir sem æðið rann
á ekkert viljað segja um upptökin.
Ljóst er að þeir voru mjög ölvaðir er
lætin hófust. Átta manns voru í ver-
búðinni og kom upp ósætti milli
mannanna tveggja, sem eru heima-
menn, og hinna. Meðal þeirra sem
urðu fyrir barðinu á berserkjunum
voru tvær farandverkakonur frá
Nýja-Sjálandi, þar af önnur þeirra al-
varlega því þeir tóku hana kverkataki
og slógu utan í vegg.
Allir þeir fimm, sem urðu fyrir barð-
inu á mönnunum tveimur, eru meira
og minna lemstraðir á eftir. Lögregl-
an, sem slegin var, mun hafa sloppið
lítt slösuð.
Skemmdimar á verbúðinni em mikl-
ar. Mennimir tveir mölbmtu sjö
hurðir í verbúðinni, rifu slökkvitæki
af veggnum og sprautuðu kvoðu úr
því um alla verbúðina auk þess sem
stólar og borð urðu undan að láta í
hamaganginum.
-FRI
„Forysta flokks-
ins vildi
útiloka mig“
- segir Guömundur J.
„Það vom sterk samtök um að úti-
loka mig. Það gekk maður undir
manns hönd í nafhi vináttu að sann-
færa mig um að ég væri með öllu
vonlaus í prófkjöri," segir Guðmundur
J. Guðmundsson í viðtali sem birtist
í helgarblaði DV á morgun. Þar segir
hann frá átökum síðustu vikna í Al-
þýðubandalaginu og tildrögum þess
að hann hefur ákveðið að hætta þing-
mennsku.
Aðspurður hverjir stóðu að baki
samtökunum um að útiloka hann frá
prófkjörinu svarar Guðmundur:
„Ýmsir helstu forystumenn flokksins."
Hann sagði einnig að Svavar Gestsson
„tefldi þetta eins og skák. Hann þurfti
nú að fóma manni“.
Guðmundur segir í viðtalinu að Al-
í helgarviðtali við DV
þýðubandalagið sé nú á mörkum þess
að liðast í sundur vegna persónulegra
deilna forystumanna þess. Hann segir
að framboð sitt hefði kostað mikil og
ef til vill afdrifarík átök í flokknum.
„Ég segi ekki að flokkurinn hefði
klofnað en það hefði orðið gífurlegt
blóðbað," segir Guðmundur.
Guðmundur segist hafa íhugað al-
varlega að leika sama leikinn og
Albert Guðmundsson í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins. „Það hefði orðið
illvígur slagur. Ég á engan hulduher
en ég hefði getað smíðað hann.“
Guðmundur boðar að hann muni
snúa sér að verkalýðsbaráttu næstu
árin og megi búast við harðri lotu frá
honum í þeim efnum.
GK
Harður árekstur varð á Hafnarfjarðarveginum skammt frá Kópavogsbrúnni
í gær er bifreið var ekið aftan á aðra á mikilli ferð. Fremri bifreiðin var
stöðvuð á veginum þar sem sprakk á dekki á henni og afleiöingarnar urðu
aftanákeyrsla. Engin slys urðu á fólki í árekstrinum. DV-mynd S.
Jólasveinamir
komnir
Jólasveinamir eru komnir í bæinn og þeir eru sjálfum sér líkir meö hvítt
skegg i vöngum og pakka í pokum. Að vanda eru það jólasveinarnir i
glugga Rammageröarinnar í Hafnarstræti sem eru fyrstir á vettvang og á
myndinni sést starfsfólk vera að koma þeim fyrir á sinum stað. í dag eru
53 dagar til jóla.
-EIR
DV-mynd B.G.