Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986. 45 Sterkasta húsið á staonum Þeir segja það gárungarnir í Eyjum að Blátindur sé sterkasta húsið á staðnum. Það fór undir hraun fyrir tæpum fjórtán árum og stendur enn af sér veður og vinda að mestu leyti - glugginn giampar móti þeim er leið eiga um svæðið eins og talandi tákn um hamfarir náttúruaflanna og magnleysi mannsins við slík tækifæri. DV-mynd Agnar S Twiggyfjölskyldan á ferðalagi Fyrrum drottning horrenglanna - Twiggy - og elskhuginn Leigh Lawson eru hérna á leið i vetrarleyfi. Ferðinni er heitið til Palma á Majorka og með i förinni eru dóttir Twiggyar - Carly - og sonur og fóstursonur Lawsons - Ace og Christian. Sá siðarnefndi er sonur Hayley Mills og Roy Bolting. Af myndinni sést nokkuð glögglega að fyrirsætan fræga hefur braggast allnokk- uð á síðustu tíu til fimmtán árum þannig að lystarstol er viðs fjarri henni þessa dagana. Diana prinsessa: Lífvörðurinn varð perluvinur Ekki höfðu hneykslunarraddir fyrr þagnað vegna of náins sambands Önnu prinsessu við einn lífvarða sinna er kurrið tók að hækka kring- um Diönu prinsessu. Ástæðan er ungur og myndarlegur lífvörður - Barry að nafni - sem sást með hinni verðandi drottningu Breta við öll helstu tækifæri. Einmanalegt líf Diönu innan hall- arveggjanna i Kensington Palace varð til þess að smám saman myn- daðist náið vináttusamband með henni og Barry sem sýndi einstaka alúð og nærgætni í samskiptum við hana og synina tvo. Karl Bretaprins hafði sína hentisemi við veiðar og annað sem honum þykir gaman að sinna þannig að hin unga kona hans var farin að fara með lífverðinum í stuttar skemmtiferðir og hann fylgdi prinsessunni í allar verslunarferðir. Og öllum var orðið ljóst að eitthvað meira en venjulegt samband milli lífvarðar og aðalskonu var orðið að veruleika. í Balmoralkastala í Skotlandi tók þó steininn úr. Þar sinnti Karl ein- göngu veiðum þar til honum var bent á að Diana sæist varla án Barr- ys og þau kæmu fram eins og hamingjusöm fjögurra manna íjöl- skylda þar sem synimir tveir voru ævinlega með í ferðum. Prinsinn náði ekki upp í sitt stóra nef fyrir reiði og lífvörðurinn ungi var um- svifalaust færður til í starfi. Barry Manikee var samdægurs settur í diplómatalífvörðinn þannig að engin hætta er á því að þau Di og Barry hittist framar. Svo snöggt gerðist þetta að þeim gafst ekki færi á þvi að kveðjast. Og Diana er ein með synina undir strangari vörslu en nokkru sinni fyrr. Diana prinsessa er aftur orðin ein með synina og þess er vel gætt að hún finni sér ekki annan óviðeig- andi félaga. Sviðsljós Ólyginn sagði... Julio Iglesias elskar konur, íþróttir og sólböð - að eigin sögn. Þetta þrennt er það þýðingarmesta í lífinu að hans dómi og er söngvarinn al- sæll að þessu fengnu. Vfirleitt tekst ágætlega að uppfylla óskirnar frá degi til dags þannig að Julio Ijómar af hamingju, blessunarlega laus við að dragnast um með einhverjar háleitar hugsjónir á bakinu. Samt hefur honum á stundurh orðið hált á áhugamálunum, konurnar farið illa með hann, íþróttunum fylgt beinbrot og önnur meiðsli en sólböðin færðu kappanum húðkrabba í ofanálag. En samt sem áður og þrátt'fyrir allt - hin heilaga þrenning heldur enn velli. V, Stefanía prinsessa verður líklega að leggja draumnum um að feta í fótspor móðurinnar ef dæma skal af ár- angrinum af reynslumyndatöku sem hún fékk gerða um daginn. Stykkið var Köttur á heitu þaki og var útkoman svo hryllileg að nærstaddir sögðu Grace heitnu Kelly hafa hringsnúist I gröfinni mætti hún sig hræra. En sem söngvari er Stebba mun skárri og reyna velviljaðir nú að fá hana ofan af því að snúa sér að leiklistinni fyrir alvöru - telja að fatahönnunin og söngurinn ætti að nægja þessari atorkukonu næstu árin. Svo mun henni vera vissara að næla í karl og krakka I fyllingu timans ef ekki á að heyrast hljóð úr horni Mónakó- hallar. Barbra Streisand hefur halað inn fjóra milljarða á sinni fögru rödd og varð þvi litt hrifin þegar kókverksmiðjurnar buðu tuttugu og fimm milljónir fyrir þátttöku í sjónvarpsauglýs- ingum. Stjarnan nennti ekki að hlaupa á eftir slíkum smáaurum og ráðlagði kókurum að verða sér úti um einhvern annan sem þyrfti á fénu að halda. Boðið var hækkað en samt sem áður var svarið neitandi - Barbra er ekkert hrifin af gosdrykkjaþambi og hefði þurft ótalin peninga- seðlafjöll til þess að hnika henni hársbreidd frá fyrri ákvörðun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.