Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986. 5 Fréttir Fangar mótmæla aðbúnaði í Hegningarhusinu: „Gamalt húsnæði og fjárskort- ur há okkur“ - segir forstöðumaður Fangar í Hegningarhúsinu að Skólavörðustíg 9 hafa undirritað bréf þar sem þeir mótmæla harðlega þeim aðbúnaði og aðstöðu sem þar er að finna. I bréfinu segir m.a.: „Við getum alls ekki sætt okkur við að ekki sé farið að íslenskum lögum um lágmarksaðbúnað og hreinlæti... Við kref]umst aðgerða þegar í stað þar sem kvartanir okkar við fangaverði staðarins ná ekki fram að ganga... Héðan kemur enginn betri maður út eftir það óréttlæti sem honum er sýnt hér í þessari pestargildru sem varla getur talist fokheld...“ Guðmundur Gislason, forstöðumað- ur Hegningarhúsins, sagði í samtali við DV að hann hefði ekki séð þetta bréf en hann vissi til að fangar hefðu kvartað undan aðbúnaði. „Það er ljóst að þetta er orðið yfir aldargamalt húsnæði og fjárskortur hefur háð okkur. Úrbætur í fangelsis- málum hafa lengi staðið til en aldrei náð lengra en byggja að byggja grunn að nýju fangelsi," sagði Guðmundur. í máli hans kom fram að hvað hrein- læti varðar þá væri það skylda fanganna sjálfra að þrífa klefa sína en því miður vildi oft verða misbrestur á því. Aðrir hlutar fangelsisins væru þrifnir daglega og hann gæti fullyrt að þau mál væru í lagi. Hann vildi einnig taka það fram að ekki væri rétt að fangaverðir hlustuðu ekki á kvartanir fanga, málið væri einfaldlega að þeir gætu lítið gert vegna fjársveltis. -FRI Þær standa þétt saman og hata allt sitt á þurru, trillurnar á Husavík. DV-mynd JGH DV á Húsavík: Tríllurnar teknar upp Ján G. Hauksson, DV, Akuieyii blómleg og á Húsavík, þar eru hátt í ------------------- áttatíu fley, en lítið er um fagrar árar, á tímum tækninnar er allt vélknúið. Trillumar tínast á land þessa dag- Aðeins um 4 til 5 trillur róa á h'nu frá ana, enda kominn fyrsti vetrardagur. Húsavík í vetur. Hinar hafa allt sitt á Á fáum stöðum er útgerð trilla eins þurru. FÍB álykfar um fýrirhugaðar bensínhækkanir: Koma harðast niður á fólki með meðaltekjur Brúttótekjur fjölskyldu þurfa að aukast um 200 til 600 krónur á mán- uði fyrir hverja eina krónu sem bensínlítrinn hækkar í verði þegar höfð er hliðsjón af bensínnotkun og tillit .er tekið til bifreiðaeignar og mis- munandi tekna og skatta að því er ffarn kemur í ályktun stjórnar Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Þessi ályktun er gerð í tilefhi fregna af fyrirætlunum stjómvalda um nýjar álögur á bensín og olíuvörur sem gert er ráð fyrir að skili ríkissjóði um 600 milljónum króna á næsta ári. Telur stjórn félagsins að þessar álögur muni lenda með fullum þunga á almenningi með meðaltekjur og þaðan af lægri en síst á hinum tekjuhæstu í þjóðfélaginu þar sem þeir greiði oftast ekki sjálfir að fullu rekstrarkostnað bifreiða sinna. Segir stjómin að þá kjarabót, sem felist í lækkun á rekstrarkostnaði bifreiða vegna lækkandi bensínverðs, sé fráleitt að afnema og megi búast við því að aðilar vinnumarkaðarins muni beita sér af fullum þunga gegn slíkri ráðstöfun. -ój VELDU SAMS Stjörnutækið E3 IMER * COUNTEfi 2-Wt£K 2-fWGRAfcftfABU ES i- »I OOOOcfjQcfjQ Lauaaveaj 63 (Vitastíasmeqinl - Sími 6-22-0-25. MYIMD BANDS TÆKIÐ VX-510TC • „Sllmllne (aðeins 9,6 cm á hæð). • Framhlaðið m/fjarstýringu • Skyndiupptaka m/stillanlegum tíma, allt að 4 klst. • 14 daga minnl og 2 „prógrömm". • 12 ráslr. • Hreln kyrrmynd og faersla á milli myndramma. • Stafrænn teljari. • SJálfvlrk bakspólun. • Hraðspólun m/mynd I báðar áttlr. CftTil TRESMIÐJA Koupfél a q siHy o m m sf j oirtfaS ARMUIgHgOgJ SI>1I HKÍ50 Arfeilsskilrúm og handrið Komiö meö mál eóa viö komum heim og mælum. Teiknum upp og gerum verótilboð. Þeim sem staðfesta pöntun fyrir 10. nóv. er lofað afgreiðslu fyrir jól. Opió laugardag til kl. 16. Arfellsinnréttingar. Ármúla 20, sími 84630.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.