Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986. 13 Neytendur Að prjóna eða kaupa peysu Neytendasíðan gerði könnun nú á dögunum á hvort hagstæðara væri að prjóna sér peysu eða spara sér tíma og vinnu og kaupa sér peysu tilbúna út úr búð. Haft var samband við þrjár verslan- ir sem buðu gam til sölu og lögð fyrir þær spumingin: Hvað kostar gam í meðalstóra kvenpeysu? I Gami og gamni fengum við þær upplýsingar að þar væri á boðstólum 100% ullargam sem mætti þvo í þvottavél. Það er til í þremur grófleik- um, nr. 4, 5 og 6, og kostar hespan, sem inniheldur 50 g, 132 kr. Við feng- um uppgefið að í peysuna þyrfti 10-16 hespur eftir stærðum og reiknaðist okkur til að peysan kostaði 1320 kr. Odýrasta peysan á 1750 kr. Samband var haft við fjórar tísku- vöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu og báðum við þær um vorðið á ódýr- ustu og dýrustu peysunni í búðinni. I Sonju fengum við þær upplýsingar að ódýrasta peysan kostaði 2100 kr. Peysan er úr 100% ull, einlit og með líningu i hálsinn. Dýrasta peysan kost- ar 4360. Peysan er einnig úr 100% ull en hún er síðari og mun meiri um sig. í Sautján fengust þær upplýsingar að ódýrasta peysan kostaði 1750 kr. Hún er úr 100% akrýl, tvílit með v- hálsmáli. Dýrasta peysan var gefin upp á 2850 kr. Það er 100% ullar- peysa, munstmð og prýdd leðurhnöpp- um. DV [K J N N A R: úr 10 hespum en 2112 kr. úr 16 hesp- um. Einnig hafði verslunin á boðstól- um móhergam blandað silki, þ.e. 80% móher og 20% silki. Þetta garn var ívið dýrara en af því kostaði hespan 334 kr. 50 g. Þar vom gefnar upp 12-14 hespur í peysuna og þá kom verð út þannig að úr 12 hespum kostaði peys- an 4008 kr. en 4676 kr. úr 14 hespum. í Gambúðinni Tinna fengum við þær upplýsingar að þar fengist 100% ullar- gam sem einungis mætti handþvo. Þar kostaði hespan með 100 g 125 kr. Af þessu gami þarf 8-10 hespur í peys- una. Kosta þá 8 hespur 1000 kr. en 10 hespur 1250 kr. Þar var einnig að finna móhergam blandað ull, þ.e. 76% mó- her og 24% ull. Af því kostaði 50 g hespa 345 kr. Áætluð em 300-350 g í peýsuna en það gerir 2070-2415 kr. I Gam galleríinu fengust þrjár gerð- ir af burstaðri ull. Þar var verðið á óblandaðri burstaðri ull 139 kr. 50 g og gaf verslunin upp að 8 hespur væri nóg í peysuna sem gerir 1112 kr. Hægt er að fá burstaða ull með gliti. Hespan með 50 g kostar 158 kr. 8 hespur em gefnar upp og kostasr þá 1264 kr. í peysuna . Þriðja tegundin er burstað móher. Þar kostar hespan með 50 g 223 kr. Þarf ekki nema 7 hespur af þessari tegund og kostar þá 1561 kr. í peysuna. Verslunin Viktoría gaf upp að ódýr- asta peysan þar kostaði 1940 kr. Það er 80% ullarpeysa og 20% akrýl. Peys- an er einlit með v-hálsmáli. Dýrasta peysan var á 3980 kr. Það er 50% ull og 50% akrýl. Síð og mikil peysa prýdd rennilásum. Þessi peysa fæst í versluninni Lilj- unni. Hún er úr 100% akrýl og kostar 2290 kr. Garnið sem þyrfti i peysuna ef hún væri prjónuð. Garnið fæst i Garni og gamni og kostar dokkan 132 kr. Alls þarf 19 dokkur sem gerir 2508 kr. Ekki má prjónakonan gleyma því að mikill tími og vinna fer í að ljúka endanlega við peysuna. Ef hún reikn- aði sér tímakaup við það yrði verð peysunnar óneitanlega mun hærra. Einnig ber að athuga að dýmstu peys- umar í hverri búð em mun efnismeiri og þarf því mun meira gam og meiri vinnu. BB Dýrasta peysan i Sautján sem getið er hér i greininni. Það ertilvalið að koma í JL Byggingavörur við Hringbraut eða Stórhöfða. Þiggja góð ráð frá sérfræðingum um allt mögulegt sem lýtur að húsbyggingum, breytingum og viðhaldi húseigna. Við höfum ætíð heitt kaffi á könnunni. Laugardaginn 1. nóvember verður kynningu háttað sem hér segir: JL Byggingavörur, Stórhöfða. Laugardaginn 1. nóvemberkl. 10-16. JL Byggingavörur v/Hringbraut. Laugardaginn 1. nóvemberkl. 10-16. SVISSNESKT B.W. GÆÐAPARKET. Álímt á gólf og hljóðlátt. Sérfræðingar á staðnum. KYNNINGARAFSLÁTTUR Kynnt verður ný tegund málningar, SADOSOFT frá SADOLIN í þúsundum tónalita. Einnig verða kynntar aðrar málingartegundirfrá SADOLIN. KYNNINGARAFSLÁTTUR Komið, skoðið, fræðist BYGGINGAVORUR 2 góðar byggingavöruverslanir. Austast og vestast í borginni Stórhöfða, sími 671100 • v/Hringbraut, sími 28600 Hér má sjá garnið sem þarf í peysuna ef það á að prjóna hana. Dokkan af þessu akrýlgarni kostar 50 kr. Alls þarf 17 dokkur og kostar þá 850 kr. í peysuna. DV-mynd KAE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.