Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Blaðsíða 36
FRETTASKOTIÐ 62 25 25 Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt - hringdu þá í síma 62-25-25 Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. FOSTUDAGUR 31. OKTÖBER 1986. Vestfirðir: Gunnlaugur íslaginn „Ég tók þessa ákvörðun að vel at- ■ 4t- huguðu máli og tilkynnti réttum aðilum það í gær að ég myndi taka þátt í skoðanakönnun Framsóknar- flokksins í byijun nóvember og að sjálfsögðu stefni ég á 1. sætið,“ sagði Gunnlaugur Finnsson, bóndi að Hvilft í Önundarfirði og fyrrum alþingismað- ur, í samtali við DV í morgun. Hann sat á Alþingi fýrir Framsóknarflokk- inn 1974-1978 og var þá í 2. sæti á bsta fiokksins fyrir vestan. Gunnlaugur sagði að ef Steingrímur Hermannsson hefði ekki yfirgefið kjördæmið hefði hann ekki hugsað sér til hreyfings í framboðsmálum. Strax eftir brotthvarf Steingríms sagðist Gunnlaugur hafa orðið var við hreyfingu hjá mönnum um að hann færi í slaginn. j»- Gunnlaugur sagði erfitt að meta stöðu Framsóknarflokksins á Vest- fjörðum eftir brotthvarf Steingríms Hermannssonar. Sitjandi þingmaður, Ólafur Þ. Þórðarson, gefur einnig kost á sér i skoðanakönnuninni, sem og Pétur Bjamason og Guðmundur Hag- alínsson. -S.dór. Freyr Ófeigsson: Haugalygi i Jón G. Hauksson, DV. Akureyri „Það er haugalygi hjá Vilhelm að ég hafi knúið á um kaup á vatnshita- réttindum af jörðinni Borgarhóli. Það eina sem er rétt hjá honum er að ég er tengdasonur þeirra hjóna sem eiga jörðina og fyrir því hef ég enga afsök- un nema konuna mína.“ Þetta sagði Freyr Ófeigsson, bæjar- íúlltrúi Alþýðuflokksins, vegna skrifa Vilhelms V. Steindórssonar, fyrrum hitaveitustjóra á Akureyri, um að Freyr hafi knúið á um kaup á vatns- hitaréttindum jarðar tengdaforeldra sinna. „Hitaveitan keypti vatnsréttindi af þessari jörð ásamt mörgum fleirum á þessu svæði. Þetta var ákveðið 8. fe- * brúar 1980, áður en Vilhelm kom til hitaveitunnar og var gert samkvæmt tillögu Orkustofnunar. Menn á Orku- stofnun vildu að hitaveitan tryggði sér hitaveituréttindi á þessum jörðum áð- ur en stofnunin setti fram tillögu um borun," sagði Freyr við DV í gær. m mjmmSSmá. ■Mk V SEbmbSk k TRÉ TRESMIÐJA ÞORVALDAR. ÓLAFSSONAR HF„ IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVÍK. SIMAR: 92-4700-92-3320. LOKI Skatta-Steini virðist aukastaðmun! 25% virðisaukaskattur í stað 25% soluskatts: Stórhækkun á matvöru mætt með millifærslum Fyrirhugað er að virðisaukaskatt- ur leysi söluskatt af hólmi 1. janúar 1988. Virðisaukaskatturinn leggstþá á nær alla vöru og þjónustu og öll afgreiðslustig. í drögum að laga- frumvarpi er gert ráð fvrir að virðis- aukaskatturinn verði 25% á verð eins og söluskatturinn. Fjölmargar og jafnvel flestar helstu matvörur og ýmsar aðrar vörur stórhækka því þar sem þær hafa verið undanþegnar söluskatti. Þessu höggi á að mæta með margvíslegum millifærslum upp á að minnsta kosti 2,8 milljarða króna. Sumar helstu neysluvörur eru nú hátollaðar. Þeir tollar verða felldir niður og mun það kosta 650 milljón- ir króna. 900 milljónum á að bæta við niðurgreiðslur á landbúnaðar- vörum til þess að þær hækki ekki. Nú eru greiddar 1.458 milljónir með þeim. 450 milljónir eiga að koma á móti hækkun húshitunar. Aðrar 450 milljónir eiga svo að fara til hækk- unar bamabóta og 150 milljónir til hækkunar elli- og örorkubóta. Loks á að endurgreiða húsbyggjendum hækkun byggingarkostnaðar, 1.500 krónur á fermetra upp að 200 fer- metrum. Áætla má að þetta þýði 150 200 milljónir króna á ári. Ýmsar aðrar vörur en helstu neysluvömr og byggingarvörur munu lækka eitthvað með tolla- breytingum. Þær lækkanir verða þó minni en upphaflega var ætlað enda átti skattprósentan að lækka. Henni verður haldið óbreyttri til þess að eiga fyrir toilalækkunum og milli- færslum. Aðalrökin fyrir skiptum á þessum sköttum em þau að virðis- aukaskatturinn leggst á allt og öll afgreiðslustig. í þvi felst innbyggt eftirlitskerfi svo að undanskot sem nú em algeng verða afar torveld. Á móti koma gríðarleg skrififinnska og flókið endurgreiðslukerfi. HERB Það er sagt um köttinn að hann hafi níu líf og á það jafnt við þennan kött sem situr á vegg við Alþingishúsið og aðra sömu tegundar. Hins vegar skýrist það í prófkjörum á næstunni hvort einhverjir þingmann- anna hafi níu pólitisk líf. DV-mynd GVA Davíð stöðvar fíkniefnamynd - kostnaður tvöfaldaðist Davíð Oddsson borgarstjóri stöðvaði í gær frekari tökur á kvikmyndinni „Þitt er valið" sem verið er að gera fyrir Reykjavíkurborg og fjallar um vímuefnamál ungs fólks. Þriðjungi verksins var lokið þegar borgarstjóri greip í taumana vegna þess að kostn- aðaráætlun hafði farið úr böndum. Upphaflega var áætlað að kostnaður vegna gerðar kvikmyndarinnar yrði 1750 þúsund krónur en samkvæmt nýrri áætlun var hann orðinn tæpar 4 milljónir króna. Málið verður kynnt fyrir borgarráði næstkomandi þriðju- dag og að því loknu tekin ákvörðun um framhaldið. „Tafir á tökum svo og ýmis auka- kostnaður hefur valdið þessum breyt- ingum. Málið er hins vegar það að gjörsamlega vonlaust er að ætla sér að gera kvikmynd fyrir 1750 þúsund krónur,“ sagði Önundur Bjömsson hjá fjolmiðlunarlijónustunni Tákn sf. sem falið var að gera umrædda kvikmynd. -EIR BJ-peningamir látnir ávaxtast „Ætli við höfum peningana ekki bara inni á bankabókinni á einhverj- um góðum vöxtum og bíðum þess að fjármálaráðherra fái áhuga á því að fá þá inn í ríkissjóð," sagði Stefán Benediktsson um þá rúmu hálfú millj- ón króna, hluta útgáfustyrks þing- flokks Bandalags jafhaðarmanna, sem styr stendur nú um. Veðrið á morgun: Rigning eða súld um vestan- vert landið Sunnan- eða suðaustanátt um land allt. Rigning eða súld um vestanvert landið en þurrt að mestu um landið austanvert. Hiti verður á bilinu 1-4 stig. „Mér skilst að skýringin sé sú að til þess að gæta hagsmuna fjármálaráöu- neytisins, sem annars gæti orðið aðili að þessari deilu um eignarhald á þess- um peningum, telji ráðuneytið réttast að taka ekki við þeim. Ég tel þetta mjög vafasama niður- stöðu þvi að með henni er því lýst yfir að fjármálaráðherra sé alls ekki með á hreinu hverjum hann afhendir það fé sem greitt er út samkvæmt fjár- Iögiun,“ sagði Stefán,_-KMU „Hæstu logleyfðirvextir1 Vaxtafíelsið skapar óvissu Á morgun verða bankavextir alger- lega frjálsir og ekki lengur undir forsjá Seðlabankans. Ekki er búist við neinni sprengingu eins og varð í fyrra þegar fyrst var reynt að gefa vextina frjálsa. Aftur á móti ríkir nú alger óvissa um vexti á skuldabréfúm með „hæstu lög- leyfðum vöxtum". Enginn veit nú við hvað á að miða og ljóst er að hæstu vextir á markaðnum geta breyst jafh- vel dag frá degi. Búast má við vand- ræðum og málaferlum út af þessari óvissu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.